Þjóðviljinn - 07.07.1955, Page 7

Þjóðviljinn - 07.07.1955, Page 7
■W. Fimmtudagur 7. júlí 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (7 Hons Kirk: Honum hafði nokkurn veginn tekizt að sefa sjálfan sig þegar yfirverkfræðingurinn kom loks á vettvang. Hann ákvað að minnast ekki einu orði á hið óþægilega atvik í barnum, því að það leyndi sér ekki að maöurinn var truflaður á geðsmunum. Hann fylgdist með verk- fræðingnum út í bílinn. — Þetta var afleit nótt, Kaas, sagði hann. Tvisvar í loftvarnabyrgi. Kom nokkuð fyrir? — Ekki í fyrra skiptið, en það var bardagi í lofti meðan á seinna merkinu stóð, sagði hinn lágvaxni og dugnaðarlegi Kaas yfirverkfræöingur. Þýzk flugvél var skotin niður. Strax í morgun voru menn sendir á stað- Tómas Klitgaard var glaður og hreykinn. Þetta var hans verk og það var harla gott. inn til að mála ensk einkennismerki á flakið. Hinir þýzku vinir okkar láta undir engum kringumstæðum sigra sig. — Þeir eru hugmyndaríkir, sagöi Tómas Klitgaard og kinkaði kolli. Þeir hafa jafnvel röð og reglu á áróðri sínum. — Og kunna sé ekki hóf, sagði Kaas. Hver einasti skóladrengur í borginni veit allt um þetta nú þegar. Þessir asnar kunna ekki aö fara meðalveg. Árangurinn af þessu bragði þeirra er sá, að fólk heldur að það séu alltaf þýzkar vélar Sem skotnar eru niður. Jafnvel þegar það eru í rauninni enskar vélar. — Fólk er heimskingjar, sagði Tómas Klitgaard næst- um raunamæddur. Hafið þér nokkum tíma lesið Nietz- sche? — Aldrei. — Ekki ég heldur, en ég þekki skoðanir hans. Hann fyrirlítur múginn og heldur því fram að hið eina sem gefi tilveru hans gildi, sé að hann er undirstaða hins mikla einstaklings, ofurmennisins. Því eldri sem ég verð, því oftar dettur mér í hug að hann kunni að hafa rétt fyi’ir sér. Kaas skotraöi til hans augunum og brosti í laumi. y Sat maðurinn ekki þarna eins og heimskur og rauna- mæddur flóðhestur og hélt svei mér þá að hann væri ofurmenni. Já, því ekki það? Fyrst maður gat ekki þverfótað fyrir arískum ofurmennum á flugvellinum daglega, ætti að vera hægt að sætta sig við eitt í viðbót. Þeir óku yfir bnina þar sem þýzkir varðmenn stóðu vörð og brátt nálguöust þeir flugvöllinn. Þeir fóru fram- hjá allmörgum varðstöðvum þar sem skilríki þeirra voru athuguð, en loks ók bíllinn upp að skálanum, þar sem Klitgaard og Synir höfðu útbúið sér teiknistofur og skrifstofur. SKR9FST0FA B0R6ARUEKNIS ■ ■ a ; verður lokuð vegna flutnings föstudaginn 8. júlí. m a Skrifstofan verður fræmvegis í Heilsuverndar- stöðinni, inngangur frá Barónsstíg. ■ ■ Bðrgarlæknir. i Styðjið gott niálefni Öllum mun ljóst vera, að hinir nýju söfnuðir innan Reykjavíkurprófastsdæmis eiga við ýmiss konar ytri og innri örugleika að etja. Öll byrjun er erfið, og það tekur að sjálf- sögðu nokkur ár að koma mál- unum í sæmilegt horf, reisa kirkjur og afla til þeirra nauð- synlegra muna, sjá ungmenna- starfseminni fyrir nægilegum húsakosti og þar fram eftir götunum. En í augnablikinu verður að tjalda því sem til er og bjarg- ast eins og bezt gengur, — og sækja þó fram. Eg hef getið þess áður hve ágætlega nokkrir einstaklingar hafa reynt að stuðla að því, að messurnar í barnaskólanum kæmu að tilætluðum notum. En ýmislegt vantar sem vonlegt er. Hingað til hefur verið not- ast við lélegt lánsorgel. En nú vill hvorki kórinn né aðrir á- hugamenn sætta sig við það lengur. Þegar hefur verið pant- að lítið pipuorgel frá Þýzka- landi, og er það væntanlegt í sumar. En safnaðargjöldin hrökkva ekki til að greiða það. Því er skipuð fjáröflunarnefnd, sem hyggst að reyna að leysa vandann með hjálp almennings núna á sunnudaginn. Verður þá leitað samskota innan safn- aðarins. En jafnframt hefur fengizt leyfi til að selja merki þessu máli tií framdráttar og munu þau einnig verða á boðstólum í höfuðborgiiini. Einhverjum kann að virðast nokkuð hart að gengið með því að seilast þannig út fyrir sóknarmörkin. Þá er þess að minnast, að margoft eru seld merki í Kópa- vogi til hjálpar ýmiss konar starfsemi, sem á höfuðstöðvar sínar í Reykjavík. Og flestir Kópavogsbúar eru og bundnir bæjarbúum traustum böndum. Mörgum er líka kært að geta með lítilli fóm léð svona góðu máli lið. Þessu skal getið, að ef ein- hver, sem ekki er sérstaklega leitað til kynni að óska, að gefa smáa eða stóra upphæð í orgel- sjóðinn, þá veitir organisti safnaðarins, hr. tónlistarkenn- ari Guðmundur Matthíasson gjöfum móttöku. Hann býr á Digranesvegi 2. Munum að við getum létti- lega lyft þessu taki á einum degi, ef við erum samtaka. Gunnar Árnason. Glæsileg í svörtu og favítu Sumarkjóllinn er bæði hversdagskjóll, sparikjóll og strandkjóll og hér er sýnd af honum ítölsk útgáfa. Blússan er úr svörtu flaueli og til skiptanna er notuö svört bómullarblússa, að öðru leyti er kjóllinn notaður óbreyttur bæði hversdags og spari. Pils og bólerójakki úr hvítu efni stórgerðu, svörtu. Takið eftir hönzkunum. Italir nota mjög mikið stutta hanzka við flegna og ermalausa kjóla. Stúdentaiélagið Framhald af 8. síðu. lenzk málfræði og réttritun, beri að leysa undan landsprófs- skyldu." n. „Stúdentafundur Miðvestur- lands haldinn að Reykholti 3. júlí 1955 telur rétt, að Mennta- skólinn að Laugarvatni verði fluttur að Skálholti svo fljótt sem verða má. Bendir fundur- inn á, að söguleg rök hnígi að því, að svo verði gert, auk þess sem menntaskóli þar yrði snar þáttur í endurreisn Skálholts- staðar.“ Ræða Ermósms Framhald af 4. síðu. leyti vil ég láta í ljós þakkir til íslenzkra forustumanna fyrir vinsamlega afstöðu til framkvæmdar þessarar sýn- ingar. Einnig vil ég láta í ljós þakkir til viðskiptamálaráðu- neytisins, framkvæmdanefnd- ar sýningarinnar, verzlunar- ráðsins, íslenzkra félagssam- taka og allra þeirra sem tekið hafa virkan þátt í undirbún- ingi sýningarinnar. Rjóma- BS SÖLUTURNINN við Arnarhól Hinar íullkonmu LEWYT ■ ryksugur fyrirliggjandi. Einkaumboð á Islandi: ; Albert Guðmundsson, heildverzlun Vonarstræti 12. Sími 80634. Söluumboð; Uös 06 HITI, Laugavegi 79. Sími 5184 Kvennærföt Verð kr. 27,50 settið. Buxur kr. 13,00. Toledo Fischerssundi Œtgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. — Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb) — Fréttastjóri: Jón Bjarnason. — Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, Guðmundur Vigfússon, ívar H. Jónsson, Magnús Torfi ölafsson. — Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. — Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðu- «tíg 19. — Sirni: 7600 (3 Jínur). -— Áskrvftarverð kr. 20 á mán. í Rvík og nágrenni: kr. 17 annars staðar. —Lausasöluvexð kr. 1,— Prentsmiðja Þjóðvjljane h.f.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.