Þjóðviljinn - 07.12.1955, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 07.12.1955, Blaðsíða 7
Fyrir skömmu komu út í bókaílokki Máls og menning- ar fyrstu skáldsögur tve'ggja ungra rithöfunda, Hinn for- dæracli eftir Kristján Bender og Strandið eftir Hannes Sig- fússon. Báðir voru höfundarn- ir að góðu kunnir, Kristján, hafði gefið út tvö smásagna- söfn, Lifendur og dauðir og Undtr Skuggahjörgum, en Haxmes tvær ijóðabækur, Dymbilvöku og Imbrudaga. Hinar nýju skáldsög'ur tákna þó timamót á höfundaferli þeirra: Ailii sem lesið hafa bækurnar, og þeir eru þegar orðnir margir, telja þær hráð- snjallar og um margt óvenju- legar í íslenzkum bókmenntum. i>egar slík tíðindi gerast, ber vissulega að gleðjast. Sérstak- iega ætti íslenzkri alþýðu að vera ljúft og skylt að fagna þeim, og þá auðvitað með því að lesa sögur þessara ungu rit- höfundá — og lesa þær vel. Blaðamanni Þjóðviljans datt í hug, að ýmsum kynni nú að þykja gaman að fræðast eitt- hvað um höfundana sjálfa, svo að hann brá sér á fund þeirra og tók að forvitnast um ævi þeirra, aðstæður og áform. Sæll vertu, Kristján. Ert þú ■ekki uppalinn fyrir austan? Jú, ég er fæddur á Borgar- firði eystra, en í æsku var ég á ýmsum stöðum, svo sem Seyðisfirði, Norðfirði, Eskifirði og' Djúpavogi. Fluttu foreldrar þínir svona Oft búferlum? Móðir mín dó þegar ég var þriggja ára. Þegar hún veiktist var ég tekinn í fóstur af þeim Guðríði og Sigurði á Bakka í Borgarfirði. Þeirra minnist ég ætíð með hlýju, en hjá þeim dvaldist ég næstu þrjú ár, og frá þeim tíma á ég marg- ar góðar minningar um menn og málleysingja. Viltu segja mér eitthvað frá þessum tíma? Það fyrsta sem ég man eft- ir er fugl. Þetta hefur líklega verið einhvern fyrsta daginn minn á Bakka. Ég sat við gluggann og fuglinn settist á vatnsbrettið, við rúðuna. Þarna skoðuðum við hvor annan langa stund; ég var stórhrifinn af þessum vængjaða leikfélaga. Þá sótti ég mömmu — en svo nefndi ég Guðríði — svo að hún gæti lika séð þetta. Þegar við komum að gluggánum, flaug fuglinn burt. Þá settist hún á rúmstokkinn, tók hend- tir mínar, horfði lengi í augu . mér og sagði: Þetta var sál móður þinnar, drengur minn. Á þennan fagra hátt sagði hún mér frétt, sem ég skilrti þó varla. Seinna minnist ég þess, er ég vakti yfir túni, níu óra drengur. Það var að Refsmýri í Fellum á Fljótsdals- héraði. Á þeim bsé kynntist ég fyrst bókum. Dýrðlegri næt- urvökur hefi ég aldrei lifað en þær, sem ég átti í félags- skap þeirra Gunnars og Njáls, Þormóðs og Kolbrúnar, Grett- is og Hreiðars heimska. En þrátt fyrir allar þessar hetj ur og gáfumenn, var ég alltaf dá- litið smeikur við Lagarfíjóts- orminn. Þó erum við nú komnir að bókmenntunum. Hvenær tók hugur þinn að hneigjast til skáldskapar? , . Það var af illri nauðsyn. Ég var í barnaskóla. Eitt sinn henti mig það ólán að koma of seint í tíma. Kennarinn hafði rétt lokið við að !esa yfir endursögnina, þegar ég drattaðist inn úr dyrunum. Þetta var íslenzkur still — hið eina sem mér þótti gaman að í skóla. Ég bað kehnarann að lesa þetta aðeins einu sinni fyrir mig. En hann svaraði því, að ég' væri ekki undan- skilinn reglum skólans. Þá spurði ég' sessunaut minn urn hvað þetta hefði verið. Um hafur og tófu, sagði hann. Hvíslingar bannaðar! hrópaði kennarinn. Þarna hafði ég það, hafur og tófa hét sagan — og hvísl- ingar bannaðar. Ég tók penn- ann og skrifaði mína fyrstu smásögu. Hún hét: Hafur og tófa. í næsta íslenzkutima las kennarinn upp þessa sögu mér til mikillar hugraunar, allt þar til hann færði mér stílabók- ina og þakkaði mér fyrir fram- takið. Hvernig lízt þér á bókmennt- irnar um þessar mundir? Það er sjálfsagt ýmislegt um (V ii.ristján JUender þær að segja, bæði gott og illt. Mér finnst vera mikil gróska meðal þeirra sem enn eru ungir. Hannes Sigfússon kom með mjög' góða skáldsögu í haust, Ólafur Jóhann Sig- urðsson er með tvær. nýjar bækur samtímis, Jón Dan vann tvenn fyrstu verðlaun fyrir smásögur í Helgafelli og Samvinnunni í vor. Vængjað- ir hestar, Guðmundar Daníels- sonar, eru þegar komnir í bók- hlöður og' þykja vel fóðursins verðir. Helgi Hálfdánarson, sendi frá sér nýjar ljóðaþýð- ingar, sem skipa honum á bekk meðal góðskálda. Sagt er að enn sé mikilla tíðinda að vænta af ungum skáldum á þessum vetri. Heldur þú að fólkið sé ánægt með ungu skáldin, svona yfir- leitt? Ó nei, ekki held ég það, — en andstaðan bæði örvar og skerpir. Mitt álit er það, að með sjálft sig. Mér þykir þú segja tíðindin. Jæja finnst þér það? En hvað viltu segja okkur um síðustu bók þína, vinnu- brögð þín yfirleitt og aðstöðu þína til að stunda ritstörf? Ég held að aðstaða mín til ritstarfa sé hvorki verri né betri en annarra vinnandi manna, sem hafa þetta í hjá- verkum. Ég skiifaði mínar fyrstu smásög'ur áðallega á sementspoka þeg'ar ég vann við hrærivél suður í Silfurtúni endur fyrir löng'u. Á kvöldin tíndi ég svo saman sneplana, þetta var ódýr pappír og sterk- ur — að síðustu varð úr þessu bók. Ég held að aðstaða manna geti ekki drepið þetta niður, jafnvel ekki þó þeir vilji það sjálfir. Ég brenndi einu sinni öllu, sem ég hafði skrifað — það var á erfiðum tímum. Það verður þögn. Kristján starir fram fyrir sig, eins og eitthvað sé honum mikilvæg- ara en þetta viðtal. Eg var að spyrja um síðustu bók þina. Hvað vilt þú segja mér um hana? spyr ég eftir drykklanga stund. Mér hefur verið sagt að hún seljist sæmilega, það er víst aðalatriðið. Við lifum í heimi mikillar kaupmennsku, mikillar auglýsingastarfsemi og mikilla skrípaláta, að mér finnst á stundum. Þegar allt þetta er liðið hjá, lifir bókin sínu sjálf- stæða lífi eða deyr sínum hljóð- láta dauða, það er allt og sumt, Já, þú segir það. Hvað svo um framtíðina? Hefur þú ekki mikil verk á prjonunum? Ég stefni að vissu marki, en það er löng leið frá íslandi til Himnaríkis, seg'ir kerling'- in í leikriti Davíðs. ★ Blaðamaðurinn spyr um upp- runa Hannesar og fær það svar að hann sé Reykvíkingur, en íoreldrar aðfluttir frá Akur- eyri og' Snæfellsnesi. Eru þér minnisstæð einhver sérstök atvik frá fyrri árum? spyr blaðamaðurinn eins og hgpn sé að tala við nír&tt afmælisbarn. Ég man brot af kreppunni, segir Hannes með þrítugu brosi — landbrot uppi á Kópavogs- hálsi 1939, grjótburð i frosti af nokkrum hektörum lands fyrir fáeina aura á fermetr- ann. Ég man að það var mik- ið af grjóti og lítið um aura í þann tínia — gott ef maður átti fyrir mjólkurpela og vínr arbrauði eftir dagsverkið. *— Næst man ég 10. maí 1940, og hvað ég var hissa þegar ég úrur keppast við að berja hæl- unum niður í malbikið — þær minntu mig strax á Nútímann eftir Chaplin. Og það var ekki Hannes Sigfússnn út í hött. Að lokum man ég 1951 þegar ég kom heim frá Noregi með Imbrudaga og nýfengna eiginkonu og komst að raun um að það var ný kreppa á íslandi af því vélbrúðurnar höfðu brugðið sér frá og voru ekki komnar aftur að marki. Sjálfur varð ég að flýja land með konuna um haustið og leita mér vinnu annarsstaðar — en ég skildi bókina eftir. Kreppan ’51 kostaði mig hálft þriðja ár af ritliöfundarferli mínum, en ég skyldi glaður fóma afganginum og byrja sem grjótpáll á ný ef það mætti verða til þess nð ísland losn- aði við viðbjóðinn. Þú segist nafa orðið að flýja land. Ilvert? Til Noregs. Ég starfaði þar í hálft þriðja ár sem pakkhús- maður, fyrst í Stafangri, síðan Osló. Vinir minir hér heima bjuggu til þulu mér til heið- urs: Lagerlöf Lagerkvist Lag- ermann. Þegar mér lánaðist að kom- ast heim vorið ’54 var ég orðinn langþreyttur á útivist- inni. Hefurðu ekki átt kost á að ferðast víðar en til Noregs? Ég dvaldi vetrarlangt í Stokkhólmi 1945—6 og vann að þýðingum, og til Englands og Danmerkur hef ég komið, en þá er upptalið. Það þykir nokkur nýlunda að þú skulir hafa lagt þig eftir skáldsagnagerð. Þú byrj- aðir sem ljóðskáld. Nei, ég byrjaði sem sagna- skáld. Ég samdi smásögur frá 15 ára aldri og birti örfáar. Svo var meiningin að slá í gegn með skáldsögu, og ég fluttist í því skyni austur í Hveragerði og bjó þar eitt ár, ’44—’45, en tíminn sóaðist helst í pókerspij upp á bréf- snepla við Kristmann Guð- mundsson, Elías Mar og einn heldrimann þar eystra, og ég samdi aldrei meira en fyrsta kaflann. Ég man að Guðmund- ur Daníelsson kom einhverju sinni í heimsókn þangað aust- ur og fékk að hevra kaflann og lauk lofsorði á hann, en mér leizt ekki á fyrirtæKiö og tók pókerspilið framyfir skáld- söguna. í annað sinn reyndi ég við skáldsögu að Reykja- nesvita haustið ’48, skrifaði tvo kafla, en gafst upp og orti Dymbilvöku í örvæntingu vegna misheppnaðs rithöfundarferils og tiltölulega mislukkaðs heims. Um tíma hallaði ég mér svo að ljóðinu í þeirri trú að það væri mitt form en eI--ki skáldsagan. En nú veit ég ekkl. — Nema hvorttveggja se. Hvenær byrjaðir þú á Strandinu? í janúar síðastliðnum. Þá fékk ég óvænt betra næði til ritstarfa en verið. hafði um langt skeið, og ég skrifaði bókina á þrem mánuðum. Þeg- ar ég stóð upn að verkinu loknu var ég' mjög hissa. Hvaða skáld og rithöfundar hafa haft mest áhrif á þig? Mér þykir vænt um að fá tækifæri til að votta Dosío- jefskí virðingu mína og þakk- læti, og síðan Hamsun. Engir höfundar hafa orðið mér eins kærir — með kostum sínum og löstum. Og ég er hrædclur um að ég deyi áður en öðrum höfundum tekst að víkja þeim úr sessi. •— Af inriléndum' skáldum heíur Steinn Steinarr' tvímælalaust orðið mér efst í huga. Ég' á honum mikið að þakka bæði sem skáldi og, manni — og það er vafas&mt að mér hefði enzt sjálfstraust sem rithöfundur ef uppörvunar hans hefði ekki notið við þeg- ar verst gegndi. Verður næsta bók þín skáld- saga eða Ijóð? Það er erfitt að svara svo- leiðis spurningu •— kannskr ráðlegast að slá gamlan var- nagla og segja: Ef guð lofár — verður það skáldsaga. Ég hef hugsað mér að skrifa um fávitahæli sem er rekið sem gróðafyrirtæki skinhelgs „upp- eldisfræðings". Ég hef dýrmæta reynslu úr þeirri átt, Hvað hefur reynzt þér lær- dómsríkast á rithöfundarbraut þinni? Það, hvernig hugmyndirnar seytla milli fingra manns og hverfa — þangað til maður finnur þær einn clag á öðru landshorni, kornnar í einn far- veg. Að minu viti er það mik- ilvægast hverjum rithöfundi, að kunna að bíða. <S>- Sósíalisfar í Kópavogi FUNDUR veröur haldinn í Sósíalistafélagi Kópa- vogs, í kvöld 7. desember klukkan 8.30 í barnaskólanum. Á fundinum mæta þeir Brynjólfur Bjamason og Björn Svanbergsson — Ennfremur verða rœdd félagsmál. FÉLriGAR! FJÖLMENNIÐ STUNDVÍSLEGA. STJÓRNIN. Vidtnl við tvö --------'...........—..... ■ Miðvikudagur 7. desember 1955 — ÞJÓÐVILJINN — (7 skáld sé aldrei i yerulegri leit upp úr hreingerningaföt- hættu fyrr en það er ánægt unni og sá þessar hlálegu fíg-

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.