Þjóðviljinn - 09.12.1955, Blaðsíða 12
Þmg SÞ samþykkti inntöku
B 52:2
Þó eru enn horfur á crð Sjang Kajsék muni
hindra oð vilji þess nái fram oð ganga
Allsherjarþing SÞ samþykkti í gær með yfirgnæfandi
meirihluta atkvæöa að leg'gja til við Öryggisráðið aö þaö
samþykld allar þær 18 inntökubeiönh- sem fyrir því liggja.
Atkvæði féllu þannig að full-
trúar 52 ríkja greiddu atkvæði
með inntöku þessara 18 ríkja,
en 2 á móti, fulltrúar Formósu-
stjórnarinnar og Kúbu. Fimm
ríki sátu hjá við atkvæða-
greiðsluna: Bandaríkin, íBelgía,
Frakkland, Grikkland og ísrael.
1 fýrrakvöld liafði hin sér-
staka stjórnmálanefnd þings-
ins samþykkt sömu ályktun og
féllu atkvæði á sama veg þar.
Nó fyrir Öryggisráðið.
Öryggisráðið mun koma sam-
an á fund á morgun til að af-
greiða málið. Enn eru horfur á
að fulltrúi Sjangs Kajséks í
ráðinu muni beita neitunarvaldi
sínu til að koma í veg fyrir upp-
„Kvæðabók44 Hannesar
Péturssonar kontin út
í dag sendir Heimskrmgla á markaðinn bók sem marg-
ir hafa beðið meö nokkurri eftirvœntingu um sinn:
Kvœðabók Hannesar Péturssonar. Það fer ekki mikið fyr-
ir Ijóðum ungra höfunda í þessari jólakaupiíö, en hér er
þá safn eins þeirra — gjörið þið svo vel.
Hún heitir aðeins Kvæðabók,
en henni er skipt í þrjá kafla.
Hinn fyrsti, sem er lengstur,
heitir Hjá fljótinu; annar kafl-
inn er nafnlaus, en ber til
,,skýringar“ ljóðlínur eftir
Hesse. Er hér í rauninni um
að ræða eitt ljóð i átta þátt-
um. Síðasti kaflinn heitir
Menn sá ek þá; — bera ljóð
þar mannanöfn allt frá Kor-
máki og Snorra Sturlusyni um
Kopernicus til Marie Antoin-
Meitihluii eiri deildar
hlynntur ættar-
nöfnum
Á fundi efrideildar i gær
voru greidd atkvæði um
mannanafnafrumvarpið til 3.
umr. Komið höfðu fram marg-
ar breytingartillögur og voru
flestar á þá leið, að banna
ættarnöfn.
Voru tillögurnar frá Páli
Zóphóníassyni og Gísla Jóns-
syni. Við atkvæðagr. voru
þær felldar með 6—7 atkv.
gegn 3—4. Breytingartill. við
aðal ættarnafnagreinina var
t.d. felld með 7 gegn 4, en
einn sat hjá. Fór frv. þannig
lítt breytt til 3. umr.
Hraðskákmótiiiu
lýkur í kvöld
Undanrásir í hraðskákmótiiut
fóru fram í gærkvöld. Þátttak-
'endur voru 60.
Keppt var í 6 riðium og' koma
■3 úr hverjum riðli í úrslit og
voru það þessir:
A-riðiII: Guðjón M. Sigurðs-
spn, Ársæli Júlíusson og' Haukur
Sveinsson.
B-riðill: Jón Einarsson, Ingi lí.
Jóhannsson og Grétar Haralds-
soii.
C-riðill: Guðmimdur Ágústs-
son, Freysteinn Þorbergsson og
Birglr Sigurðsson.
D-i'iðiIl: Benóní Benediktsson,
Jón Þorsteinsson og Eggert Gilf-
er.
ette. Bókin öll er 71 blaðsíða,
auk efnisyfirlits; og flytur milli
40 og 50 kvæði, ef miðkaflinn
er reiknaður eitt kvæði.
Meirihluti ljóðanna hefur
ekki birzt áður, en þau sem
birzt • hafa valda þeirri eftir-
væntingu sem getið var í upp-
hafi. Mun það margra manna
mál að jafnungur íslendingur
liafi ekki öðru sinni kveðið
betur en Hannes Pétursson
gerir nú. Dæmi nú hver íyrir
sig: bókin er komin.
Saniband kolanámumanna í
Bretlandi krafðist í gær að
lágmarkslaun í námunum yrðu
hækkuð um eitt steriingspund
á viku. Það hefur áður krafizt
ýmissa annarra kjarabóta.
töku Ytri Mongólíu. Enn í gær
var ítrekað af talsmanni For-
mósustjórnarinnar í Taipei, að
hún hefði ekld sldpt um skoðun
á þessu máli. Fari svo, mun
sovétstjórnin beita neitunar-
valdi sínu gegn upptöku ann-
arra ríkja.
Reynt að blíðka Sjaug.
Fréttaritarar skýra frá þvi að
fulltrúai' sumra þeirra ríkja sem
styðja tillöguna um að rikjun-
um 18 verði öilum veitt upp-
taka í SÞ samtímis hafi und-
anfarið lagt fast að fulltrúa
Formósustjórnarinnar að láta
hjá líða að beita neitunarvald-
inu. Er sagt að Formósustjórn-
inni hafi verið lofað, að ef liún
léti sér nægja að sitja hjá við
atkvæðagreiðsluna í Öryggis-
ráðinu, myndi hún fá að fara
áfram með umboð Kína í sam-
tökunum a.m.k. næstu tvö árin.
Ríkin 18 sem sótt hafa um
inntöku í SÞ eru: Albanía,
Austurríki, Búlgaría, Ceylon,
Finnland, írland, Italía, Japan,
Jórdan, Kambodja, L>aos, Libya,
Nepal, Portúgal, Rúmenía,
Spánn, Ungverjaland, Ytri
Mongólía.
Sovétleiðtogar fá
tígrisunga
Þeir Búlganín og Krústjoff
komu í gær ásamt fylgdarliði
sínu til borgarinnar Sharanpur
í Norðvestur-Indlandi. Mikill
mannfjöldi tók á móti þeim og
voru þeim færðar margar gjaf-
ir, m. a. nokkrir tígrisungar.
1 dag fara þeir til Kasjmír,
þar sem þeir verða í tvo daga,
en fara síðan til Nýju Delhi
til frekari viðræðna við Nehru.
IÓÐVILJINM
Föstudagur 9. desember 1955 — 20. árgangur — 280, tölublað
Þetta er ein af myndunum á málverkasýningu Orlygs
Sigurðssonar sem nú stendur yfir í Bogasal Þjóðminja-
safmim. Heitir hún Viö höfnina. Aðsókn hefur verið góð,
og 17 myndir voru seldar síðdegis í gœr. — Ætlar þú
nokkuð að kaupa málverk fyrir jólin?
Að vsstan — Minningar vesturfara
Tvö bindi eru nýkomin út í ritsafninu er ber samheit-
iö: AÖ vestan. í ööru þeirra eru Sagnaþættir Sigmundar
Matthíassonar Long, en í hinu endunninningar Guö-
tnundar Jónssonar frá Húsey.
Útgefandi ritsafnsins er
Norðri. Ætlunin er að safnrit-
ið Að vestan verði samtals 16
bindi. Þar á að „safna saman
í eina beild öllu því helzta
sem Islendingar í Vesturheimi
hafa skráð af þjóðsögum og
sagnaþáttum, ferðaminningum
vesturfara og sjálfsævisögum,
þáttum úr lífi íslenzku land-
nemanna, minningum þeirra
heiman frá Islandi, alþýðu-
kveðskap o. fl. o. f).
Slíkt verður án efa vinsælt
lestrarefni. Áhugi á bókum er
E-riðilI: Sigurgeir Gíslason,
Árni Snævarr og Guðm. Pálina-
son.
F-riðill: Gunnar Gunnarsson,
Gunnar Ólafsson os Margeir Sig'-
urjóiisson.
Keppt verður til úrslita í kvöld
og auk framangreindra þátttak-
enda tefla þá eiunig Friðrik og
Pilnik.
Keppnin fer fram í veitinga-
sal Sjómannaskólaus og hefst kl.
8.
að einliverju leyti flytja þjóð-
legan fróðleik hefur verið gíf-
urlegur og virðist sízt í rénun.
Sósialistar i Mópavogi ræða
st|érMiiiálavióli©rlió9 P|óó-
viljaaat hðe|arinálin
ágætur fundur Sósíalistafél&gsins þar s.l.
miðvikudagskvöld
Sósíalistafélag Kópavogs hélt ágætan félagsftmd í
bamaskólahúsinu s.l. miövikudagskvöld. Rætt var um ný-
afstaöiö flokksþing, stjórnmálaviöhorfið, útbreiðslu
Þjóö'viljans og fjárhagslega eflingu blaösins og aö lok-
um um bæjarmál KópavogskaupstaÖar.
Brynjólfur Bjarnason alþingis-
maðör mætti á fundinum og
flutti ágæta ræðu um flokks-
þingið og stjórnmálaviðhorfið í
landinu. Dvaldi hann sérstak-
lega við stjórnmálaályktun
flokksþingsins, skýrði viðhorfið
í stjórnmálunum og' rakti tilraun-
irnar til myndunar nýrrar ríkis-
stjórnar svo og hugmyndirnar
um myndun kosningabandalags
vinstri flokkanna gegn íhaldinu.
Var ágætur rómur gerður að
ræðu Bryjólfs og tóku ennfrem-
ur til máls Emii Tónrasson, Hall-
dór Pétursson og Guðrún Gísla-
dóttir.
Þá ræddi Björn Svanbergsson,
framkvæmdastjóri Þjóðviljans
um happdrætti blaðsins, fjárhag
þess og -útbreiðslumöguleika.
Tóku ýmsir íundarmenn til máls
að ræðu hans lokinni og lýstu
yfir eindregnum vilja til dug-
Hiustað á vindinn
Koniin er út ný bók effcir Stefán Jónsson rithöfund. Er það
smásagnasafn er nefnist Hlustað á vindinn, Útgefandi er ísa-
foldarprentsmiðja.
Sögurnar eru 12 að tölu og
heita svo:
Skugginn, Dans, Vitið sigrar,
Svar við bréfi, Eitt par fram,
Bænin má aldrei..... Ur aldar-
hætti, Fyrirgefning, Far á
skýjum, Reykur, Eftirmáli, í
veizlulok. Bókin er 221 blað-
síða að lengd.
Eins og kunnugt er hefur
Stefán Jónsson áður gefið út
nokkur smásagnasöfn, og er
hann einn listfengasti smá-
sagnahöfundur okkar, þó bæk-
ur hans um unglinga kunni
að liafa aflað honum enn meirí
vinsælda. Það er alltaf fögn-
uður að nýrri bök eftir Stefán
Jónsson.
Jan Síbelíus, sem varð níræður
í g'ær, bárust árnaðaróskir frá
flestuiri löndum heims og verk
hans voru víða leikin á sérstök-
um hótíðatónleikum. Einnig fékk
hið aídna tónskáld margar gjaf-
ir, einkum mikið af vindlum,
en hann er sagður reykja 10
sterka vindla á hverjum degi.
Brynjólfur Bjarnason
mikils starfs fyrir happdrætti
blaðsins og að aukinni útbreiðslu
þess í byggðarlaginu.
Að lokum tók Ólafur Jónsson,
bæjarfulltrúi til máls og ræddi
um málefni kaupstaðarins og
starf flokksins á þeim vettvangi.
Fór fundurinn í alla staði hið
bezta fram og áhugi fundar-
manna mikill fyrir þeim málum
er á dagskrá voru.
Kveitfélag
j Munið fundinn, sein liald- j
: inn verður í kvöld í Tjarn- j
j argötu 20. Elín Guðmunds- •
j dóttir flytiir ferðaminningar j
[ og spiiuð verður félagsvist. •
5 KONUR, takið eiginnienn- •
i ina með ykkur eða aðra gesti. !
j STJÓRNIN í