Þjóðviljinn - 05.01.1956, Qupperneq 12
Samtök ctlþýðmtitcir virnti ötnl»
legaað myndm vinstri st|órnar
¥eikalýðsíélag Skagastsandax lýsk stuðningi við yíirlýsingu A.S.I.
þJOÐVILJINN
Fimmtudagur 5. janúar 1956 — 21. árgangur — 3, tölublað
Skagaströnd.
Þjóðviljans.
Frá fréttaritara
Á fundi verkalýðsfélagsins hér
hinn 27. des. s.l. var tekið fyrir^"
erindi frá Alþýðusambandi ís-
Jands varðandi stefnuyfirlýsingu
þess um samstarf vinstri flokk-
anna. Málinu var frestað til
næsta fundar, sem haldinn var
31. des. Urðu þá allmiklar um-
Tæður um málið og lýstu allir
ræðumenn sig fylgjandi stefnu-
yfirlýsingunni.
Eftirfarandi ályktun var sam-
þykkt einróma á fundinum:
„Fundur í Verkalýðsfélagi
Skagastrandar, haldinu 31.
desember 1955, þakkar mið-
stjórn Alþýðusambands ís-
lands frumkvæði hennar að
stjornmálasamstarfi vinstri
aflanna og lýsir fundurinn
cindregnum stuðningi sínum
við stefnuyfirlýsmgu Alþýðu-
sambandsins. Fundurinn
væntir áframhaldandi forystu
af Alþýðusambandinu fyrir
myndun vinstri stjórnar, er
njóti stuðnings allra vinnandi
stétta. Jafnframt skorar fund-
urinn á vinstri flokkana og
öll félagasamtök alþýðunnar
að vinna ötullega að myndun
vinstri stjórnar í Iandinu.“
Friðrik vann Golombek en é
biðskék við Fuller
Korisnoj er enn eístur með 5 V2 vinning,
Ivkofí hefur 5 og Friðrik 4 ¥2 og biðskák
í sjöundu umferð skákmótsins í Hastings í gær varö
biöskák hjá Friörik Ólafssyni og Fuller og hefur Friörik
litla vinningsmöguleika. Golombek gaf biöskák sína viö
Friörik úr sjöttu umferð.
Vantar kennara
fyrir 204 börn
Á fundi fræðsluráðs Reykja-
víkur fyrir skömmu var lögð
fram skýrsla um tölu nemenda
og kennara í barnaskólum bæj-
ariná á yfirstandandi vetri. Eru
nemendur nú 6790 og kennarar
187. Samkvæmt skýrslunni vant-
ar kennara fyrir 204 börn. Er
þessi skortur á kennurum einn
vitnisburðurinn um afleiðingar
þeirrar skoðanakúgunar og rang-
sleitni í veitingu kennarastarfa
sem hefur stórum færzt í auk-
ana í tíð núverandi menntamála-
ráðliefrá.
Aðrar skákir í sjöundu umferð
fóru þannig, að Tajmanoff vann
Darga, Krotsnoj vann Golombek,
Persítz vann Penrose og Ivkoff
vann Del Correl.
Vegir færir í
nágrenxii
Rvikur
í gærkvöld var fátt að frétta
hjá Vegagerðinni. Allir aðalveg-
ir í nágrenni Reykjavíkur voru
þá færir og höfðu hríðarbylj-
irnir síðdegis í gær ekki valdið
vegamönnum neinum sérstök-
um erfiðleikum.
Gjaldeyrisforði
Breta þverr
OSrezka fjármálaráðuneytið
skýrði frá því í gær að gull- og
dollaraforði Bretlands liefði
minnkað um 163 millj. dollara í
síðasta mánuði. í nóvember
minnkaði forðinn um 14 millj.
Ástæðan til þess hve mjög hef-
ur gengið á dollaraforðann í
desember eru vaxtagreiðslur af
bandarískum og kanadiskum
lánum.
Tillögur
hagfræðinganna
Framhald af 1. síðu.
fræðilegt nýmæli að ræða. Hefur
það sennilega hvergi í heinii
verið taiin tiltækileg ráðstöf-
un fyrr að binda kaup á sama
tíma og ekkert eftirlit er haft
með verðlagi! Má því segja að
tillögur þessara íslenzku bakka-
bræðra marki spor í sögu hag-
fræðinnar ofan á allt annað.
Eins og áður er sagt hafa
hagfræðingarnir unnið þessi
störf sín fyrir ríkisstjómina.
Hitt á svo eftir að sýna sig
hvað stjórnarflokkarnir þ<jra að
taka upp sem sínar tillögur af
þessari kynlegu speki.
Leikar standa nú þannig að
Kortsnoj er enn efstur m. 5% v.,
Ivkoff annar með 5 vinninga,
Friðrik Ólafsson þriðji með 4%
og biðskák, í fjórða og fimmta
sæti eru Tajmanoff og Ðarga
með 4 vinninga hvor, Penrose er
sjötti með 2% v., Fuller sjöundi
með 2 og tvær biðskákir, Persitz
áttundi með 2 vinninga og bið-
skák, Del Correl níundi með 1%
og tvær biðskákir og Golombek
rekur lestina með 1 vinning.
Skálaf erð
Farið verður í ÆFR-skálann
á laugartlaginn kl. 2 og 6
síðdegis. — Skemmtiatriði
verða og dans. Tilkynnið
þátttöku á skrifstofunni eða
í síma 7513.
Skálastjórn.
Jélaglaðningyr óbreyttur — Hækk-
un framfærslnstyrksins í fram-
haldsathngnn!
Ekki sá íhaldið ástæðu til að bæta styrkþegum bæj-
arins upp sívaxandi dýrtíð með hækkun jólaglaðnings
eins og sósíalistar höfðu lagt til í bæjarstjórn. Var þeirri
tillögu vísað til framfærslunefndar sem afgreiddi hana
rétt fyrir jólin með þeim hætti að jólaglaðningurinn
skyldi vera sá sami og í fyrra!
Ekki hefur íhaldið heldur komið því í verk ennþá að
hækka hinn fasta framfærslustyrk sem verið hefur ó-
breyttur í mörg ár. Hafa sósíalistar margsinnis krafizt
hækkunar styrksins til samræmis við aukna dýrtíð. Hef-
ur málið enn borið á góma á fundi framfærslunefndar
20. des. og þar verið samþykkt að „vísa því til yfirfram-
færslufulltrúans til framhaldsathugunar"!
Verður fróðlegt að fylgjast með hve langan tíma sú
, ,fra mhaldsathugun" þarf að taka íhaldið áður en það
sér sóma sinn í að hækka framfærslustyrkinn.
Tillaga um inn-
flutningskvóta í
todaríkjunum
Bandaríkjaþing kom saman í
fyrradag. í gær lögðu áhrifa-
menn úr báðum flokkum fram
frumvarp um að taka upp
kvótatakmarkanir á innflutningi
erlends varnings til Bandarikj-
anna. Segja þeir í greinargerð
að tollaálögur hafi reynzt al-
gerlega ónógar til að hindra að
bandarískir framleiðendur verði
undir í samkeppninni við inn-
fluttar vörur. Nú er forsetan-
um heimilt að hækka tolla ef
bandarískir framleiðendur geta
sýnt fram á að innflutningur
baki þeim tjón, en samkvæmt
frumvarpinu á að takmarka
innflutning alls varnings, hvort
sem hann spillir fyrir sölu
bandarískrar framleiðslu eða
ekki.
|
I Álall fyrf r
. Vesturveldin
í Bandaríski fréttaskýrandinn
Walter Lippmann segir í grein
um Asíuför Búlganíns og Krús-
tjoffs að hún hafi verið mikill
I diplomatiskur sigur fyrir Sovét-
I ríkin. Forystumenn þeirra hafi
i hlotið stuðning mestu áhrifa-
■ manna Suður-Asíu, Nehrus og
U Nu, við ýmis helztu atriði
utanríkisstefnu sinnar. Vestur-
veldin hafi sett ofan að sama
í skapi.
Jón Magnússon stendur við nótakeflið á v.b. Svani
(Sjá frétt á 3. síðu).
Enn mikið ógert í réttarrann-
sókninni um okurstarfsemi
Fjármálaráðuneytinu gengur seint að
rannsaka plögg séra Ingimars
Rannsókn á málum sjömenninganna sem kæröii' voru
í liaust fyrir okm’starfsemi á enn langt í land, sagði
Þórður Björnsson fulltrúi sakadómara 1 viðtali við t>jóð-
viljann í gær.
— Ég hef elíki sinnt öðrum
málum en þessum síðan seint
í nóvember og enn er eftir
mjög mikið af yfirheyrslum.
Það fundust miklar upphæðir í
víxlum hjá sakborningum, sér-
staklega hjá Sigurði Berndsen,
og á bak við hvern víxil er
mikil saga sem þarf að sann-
prófa.
— En hvað líður máli séra
Ingimars Jónssónar?
— Það stendur enn á endur-
skoðanda fjármálaráðuneytis-
ins, og er ég satt að segja orð-
inn nokkuð óþolinmóður að bíða
eftir að því verki ljúki. Saka-
2407 nemendur í
gagnfræðaskól-
unum
Samkvæmt skýrslu sem lögð
var fram á fundi fræðsluráðs
Reykjavíkur nýlega um tölu
nemenda við gagnfræðaskóla
bæjarins eru nemendur í vetur
2407. Kennarar við gagnfræða-
skólana eru 89 og eru þá skóla-
stjórarnir taldir með.
■
dómaraembættið lauk yfir-
heyrslum sínum í ágústmánuði.
Aðalsteinn Eiríksson skilaði
sínum hluta endurskoðunarinn-
ar í októberlok. En rannsókn-
inni er ekki hægt að ljúka fyrr
en f jármálaráðuneytið liefur af-
greitt sína endurskoðun.
Farþegatalan
jókst um rúml.
50% 1955
Árið 1954 fluttu ílúgvélar
Loftleiða 11 þúsund farþega
landa í niilli, en fyrir sl. ára-
mót kom í ljós að árijS 1955
höfðu 16.800 farþegar ferðazfc
með flugvélum Loftleiða, og er
aukningin 52,7%, miðað við
fyrra ár.
Flugferðir lágu niðri um jól-
in, og á annan í nýári hófust
þær aftur. Þrem ferðum er nú
haldið uppi í viku hverri milli
meginlanda Evrópu og Amer-
íku og verður svo þangað til
1. apríl, en þá verður ferða-
fjöldinn aukinn á ný.
„Til sjós eða lands" |
•i
•i
•i
Björn Andrésson,
bóndi í Leynimýri og burstagerðarmaður
•i
m
kaus í Sjómannaféiagi Reykjavíkur nýlega. Jafnframt ii
verður að biðjast afsökiuiar á því að við skildum gleyma ji
því að .
Ólaíur Þorkelsson, bllstjóri
hjá Eimskipafélagi: Islands, til margra ára, væri jafn- s
framt stjórnarméðlimur í Vörubílstjórafélaginu Þróttur. j
Auk þessara hafa nýlega kosið ýmsir opinberir emb- j
*
ættismenn, forstjórar, veitingahúsaeigendur, sem flestir :
hala ekki komið til sjós í tuttugu til þrjátíu ár eða leng- j
ur. — Sjómenn takið Sjómannafélagið í hendur ykkar j
sjálfra. — Fjölmennið á kjörstað og kjósið B-listann. •
— Kosið er daglega í skrifstofu félagsins, Hverfisgötu i
8-10, sem er opin frá klukkan 3 til 6 e.h. :
X B-listi.
■■■■■■■■■•■■■■■■■•■■■■••■■■■■■■■■■^■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■•■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■•■••■■■•••>