Þjóðviljinn - 23.08.1956, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 23.08.1956, Blaðsíða 8
Suðuilandssíldin um síðustu helgi: Frystar 35 þús. tunnur og saltaðar 13219 tunnur á svæðinu frá Vestmannaeyjum til ísa- • fjarðar, að báðum stöðum meðtöldum Á laugardaginn var höfðu verið saltaðar rúmar 13 þús. tunnur af Suðurlandssíld og frystar um 35 þús. tunn- ur. Er þetta á svæðinu frá Vestmannaeyjum til ísafjarðar, að báðum stöðum meðtöldum. Frystingin var sem fyrr segir um 35 þús. tunnur, mest við Breiðafjörð en minnst í Vest- mannaeyjum. Af söltunarstöðunum er Akra- nes hæst með 3131 tunnu og Ólafsvík með 2407 tunnur, en staðir eins og Vestmannaeyjar og Gríndavík höfðu ekkert salt- að sl. laugardag. 65 þús. tunnum f’axasíldar, svo enn hefur ekki verið saltað nema upp í fimmta hluta þeirra samn- inga, og ekki mun talið ósenni- lengt að hægt myndi að selja meira af síld. Hilmar oq Vilhiálmur fil Búkaresf Á fundi sínum 17. þ.m. valdi FRÍ eftirtalda keppendur á al- þjóðlegt meistaramót Rúmeniu, sem haldið verður í Búkarest dagana 15., 16. og 17. sept- ember n.k., en þangað hafði íslendingum verið boðið að senda tvo keppendur og farar- stjóra, sér að kostnaðarlausu. Hilmar Þorbjörnsson, Á, 100 og 200 m hlaup. Vilhjálm Einarsson, ÍR, lang- stökk og þrístökk. Fararstjóri verður Bjöm Vil- mundarson, en hann er fyrsti varamaður í stjórn FRÍ. Sumarslótrun hefst 29. þ. m. Fjárskiptum á að ljúka í Daláhólfinu Söitunin ó einstökum stöðum er sem hér segir: Tunnur Bolungavík Stykkishólmur Grafarnes ísafjörður Súgandafjörður Hafnarfjörður Hellissandur Sandgerði Reykjavík Keflavík og nágrennx Samið hefur verið um 1698 1560 1357 1177 970 301 293 241 153 111 sölu á Sumarslátrun. sau'ðfjár hefur verið leyfð 29. þ.m. Fjár- skipti eiga að fara fram í nokkrum hluta „Dalahólfsins i haust og stendur bændum á því svæði til boða aö hefja slátrun 29. þ.m. Kjöt mun énh til nægjanlegt í landinu, svo búast má við að sumarslátrun dilka verði minni nú en undanfarin ár. Á niðurskurðarsvæðinu í Dala- hólfinu, þ. e. Fellsstrandar, Klofnings-, Skarðs- og Saurbæj- arhreppum, svo og Bæjarhreppi í Hrútafirði, mun. nú vera um 30 þús. sauðfjár. Á þetta svæði að vera sauðlaust næsta sumar. í íyrrahaust var skorið niður í Laxárdal og Ilvammshreppi og eiga bændur þar að fá lömb af Vestfjörðum í haust. Ýmsir eru samt uggandi um að slík fjár- skipti innan sömu girðingarinn- ar takjst ekki sem skykli, því í hreppum þeim þar sem nið- urskurður var íramkvæmdur á Súezskurðurinn Framhald af 1. síðu. Það er með engu móti hægt að segja að ráðstefnan hafi horið þann árangur sem vest- urveldin höfðu vonazt til. Til- lögur þær sem þau báru fram og fengið hafa stuðning mikils meirihluta þátttökuríkjanna eru þess eðlis, að óhætt er að full- yrða, að egypzka stjórnin tek- ur aldrei í mál að hefja samn- inga á gnmdvelli þeirra. Það er eins víst að hún m.a.s. neiti að taka á móti nefnd eins og þeirri sem áður er getið. Hún hefur hins vegar lýst yfir, að hún geti fullkomlega sætt sig við indversku tillögurnar sem samning&grundvöll. Mönnum bgy hinsvegar sam- an um, að erfiðara verði fyrir vesturveldin eftir hinar frið- samlegu viðræður í London að gera alvöru úr hótunum sínum að beita Egypta valdi, ef þeir láta ekki að óskum þeirra. NeJiru, forsætisráðherra Ind- lands, sagði í Nýju Dellií í gær, að hann teJdi enga hættu á að gripið yrði til vopna þó að Eg- yptar höfnuðii tillöguin vestur- veldanna. Það hefði minizt með Lundúnaráðstefnuiuii, að þau ríki sein heiðu rnestra hags- inuna að gæta í sambandi við skurðinn, væru nú orðin sann- færð um að forðast yrði vald- beitingu. „Það er ekki tit neiini meðalvegor milli leiða valds og sanminga. Engum mun takasi að neyða neiim upp á Egypta“, sagði Nehru. Ilart á nióti hörðu Áður en fundur hófst á ráð- stefnunni í London I gær, rædd- ust hinir ýmsu fulltrúar við ínnbyrðis. Sépiloff, utanríkis- ráðherra Sovétríkjanna, ræddi þannig alllengi við AIí Sabrí, sem hefur verið áheymarfull- trúi egypzku stjórnaxinnar á ráðstefnunni. Allt frá því að egypzka stjórn- in þjóðnýtti Súezskurðai'félagið fyrir tæpum mánuði, hafa Bret- ar og Fakkar haft í hótunum um að lama alla umferð um skurðinn með því að sjá svo um að brezkir og franskir liafn- sögumenn sem stjórna siglingu skipa um hann hætti störfum. I gær tilkynnti formaður stjómar hins þjóðnýtta félags, að ef gerð verði alvara úr þess- um hótunum, muni þær tafir á siglingum um skurðinn sem af því mundu hljótast látnar bitna einvörðungu á brezkum og frönskum skipum, og þau ekki verða afgreidd fyrr en á eftir skipum annarx-a þjóða. Lokað fyrir olíuna Sendilherra Egyptalands í París gaf í gær út tilkynningu, þar sem sagt er, að Saud kon- ungur í Saudí-Arabíu hafi í hyggju að vara Bandaríkja- stjórn við afleiðingum þess, að vesturveldin beiti Egypta valdi. í tilkyiminguniij er því lialdið fram, að konungur muni gera Bandaríkjastjórn ljóst, að vesturvehlin niuni ekki geta gert sér vonir um að fá að halda áfram olíu- vinnslu i löndunum við Persaflóa, ef þau fara með stríði á hendur Egyptuin eða reyni að beita þá þvingunum á annan hátt. Saud konung- ur er sagður Jiafa tekið þessa ákvörðun eftir tveggja \ikiia viðræður vð í'ulltrúa egypzku stjórnarinnar. Telja má líklegt að þessi hót- un Saud konungs muni lægja mesta ofsann í þeim mönnum í vesturlöndum, sem hæst hafa hrópað á stríð á hendur Eg- yptum. Allt atvinnulíf Bret- lands %g Frakklands myndi lamast eftir örfáa daga, ef lok- að yrði fyrir oliuna í löndun- um við Persaflóa. s.l. hausti kom fram fé í vor, sem ekki hafði fundizt í fyrra- haust, en gengið úti um vetur- inn. Telja margir að framkvæma hefði þurft niðurskurð í öllu hólfinu samtímis. lliifidknaít- leiksmóÉid Á handknattleiksmótinu í Hafnarfirði hafa nú ísfirðingar lokið öllum leikjum sínum í kvennaflokki. Eru þá eftir tveir leikir í þeim flokki: Ármann— Þróttur og Ármann—KR. Fara þeir fram um næstu helgi. Stað- an í kvennaflokki er nú þessi: L u j t m st. Þróttur Ármann ÍBÍ KR f flokki karla FH Ármann ÍR KR Þróttur Fram Mótinuu hé 2 2 0 0 7:3 4 1 1 0 0 4:2 2 3 1 0 2 8:10 2 2 0 0 2 4:8 0 er staðan þessi: L u j t m st. 2 2 0 0 41:19 4 2 2 0 0 35:26 4 2 1 0 1 36:22 2 2 1 0 1 30:27 2 2 0 0 2 20:40 0 2 0 0 2 15:49 0 t svo áfram í gærkvöld (karlaflokkar) og urðu úrslit þeirra leikja þessi: FH—Ármann 20:10 og Fram— Þróttur 16:16. f kvöld keppa svo (karlafl.): KR—ÍR og FH—Þróttur. Frá 30-131 tunnur á bát í gær f gær komu 17 bátar til Akra- ness með frá 30 til 130 tunnur á bát. Til Sandgerðis komu 16 bátar með samtals 470 tunnur, aflahæsti báturinn hafði 94 tunnur. Til Grindavíkur komu 18 bátar með samtals 584 tunn- ur. Aflahæsti báturinn var með 98 tunnur. _ tuðÐinumii Fimmtudagur 23. ágúst 1956 — 21. árgangur — 190. tölublaoC Síöasta sumarleyfisferð Ferðafélags fslands hefst á næstu helgi Auk þess efnir Ferðafélagið til f jöguira annarra ferða um helgina Á næstu helgi efnir Ferðafélag íslands til 5 ferða — og er ein þeirra síðasta sumarleyfisferðin á þessu sumri, norður Kjöl til Húnavatnssýslu. Þáttaka í ferðum Ferðafélags íslands í sumar mim hafa verið meiri en nokkurt annað ár. Síðasta sumarleyfisferðin í sumar er norður um Kjöl og Auðkúluheiði norður í Húna- vatnss,, en þaðan verður farin þjóðleiðin til Reykjavíkur. Hinar fjórar ferðir Ferðafé- lagsins eru helgarferðir, ein i Þórsmörk, önnur í Landmanna- laugar, Þriðja til Hveravalla, Kerlingafjalla og Hvítámess og in fjórða er gönguferð á Esju. Lagt verður af stað í allar ferð- ii-nar kl. 2 á laugardag, nema Esjuferðina, hún hefst kl. 9 á sunnudagsmoi'gunn. Þátttaka í Þórsmerkur- og Landmannalaug- arferðum Ferðafélagsins í sumar hefur verið mjög mikil, enda geta menn á báðum þessum stöð- um gist í ágætum sæluhúsunra félagsins. Þrjátíu rnanna hópur á vegum Ferðafélagsins er nýkominn heinx úr ferð þvert norður yfir há- lendið. Lagt var upp að sunnaft og farið noi'ður Sprengisand, um Nýjadal (Jökuldal), Gæsavötn, Trölladyngjuháls, Öskju og Herðubreiðarlindir og þaðan ti) Mývatns og síðan alfaraleið til Reykjavíkur. Veður var ágætt og þátttakendur hinir ánægðusta með ferðina. — Fararstjórau voru Jóhannes Kolbeinsson og Eyjólfur Halldórsson. Norrœna bindindisþingið var haldið í Árósum í síðasta mánuði Norræna bindindispingið, hið 20. i röðinni, var háð j Árósum dagana 8.—12. ágúst s.l. Á hátíðafundi, sem fram fór í ráðhúsi borgarinnar, daginn fyrir þingsetningu, fluttu þeir, innanrikisráðherra Dana og full- trúi borgarstjórans í Árósum, en borgarstjórinn var forfíallaður vegna veikinda, ávörp, þar sem þeir buðu hinn fjölmenna full- trúahóp norrænna bindindis- samtaka velkominn til Danmerk- ur og ámuðu þinginu allra heilla í störfum þess. Þá fluttu og á- vörp við þetta tækifæri, fulltrú- ar annarra ríkisstjóma. Fyrir hönd ríkisstjórnar fslands talaði áfengisvarnarráðunautur Bryn- leifur Tobíasson stórtemplar, flutti hann kveðjur ríkisstjórn- arinnar og hinnar íslenzku bind- indishreyfingar. Daginn eftir var svo þingið sett í hátíðasal Ár- ósaháskóla, sem var fundarstað- ur þess. Forseti og varaforsetar kjörnir, Brynleifur Tobíasson var kjörinn einn af varaforset- um þingsins. Að kjöri þingfor- seta loknu, flutti rektor háskól- ans ræðu. Bauð hann þingið vel- komið til starfs í húsakynnum Árósaliáskóla. Ræddi síðan m.a. um hið rnikla menningai- og félagslega gildi bindindishreyf- ingarinnar fyrir þjóðfélagið. Þar flutti og innanríkisráðherrann ræðu. Á þinginu voru flutt mörg er- indi um áfengismálið, frá hinum ýmsu sjólnarhólum. Brynleifur Tobíasson flutti m. a. erindi urn áfengislöggjöfina (að mestu bundið við ísland). Mjög eftir- tektarvert erindi var þarna flutt af Rune Andreasson fram- kvæmdastjóra frá Svíþjóð um, Umferð og áfengi, urðu miklar umræður um erindi þetta. En áfengisneyzlan í sambandi við hina miklu og síauknu umferð og hraða nútímans, er eitt hið rriesta vandamál sem þjóðfélögin hafa við að glíma, eins og sakir standa. Þá flutti Archer Tongue gott og skýrt yfirlitserindi um hag bindindishreyfingarinnar 1 heiminum nú. Meðal annara fyrirlesara nefna Ramndal stórþingsmanai frá Osló, Kullgren prest frá Stokkhólmi, Oscar Franzén fram« kvæmdastj. s. st., og prófessos? Strömgren í Árósum. f sambandfi við þingið voru svo háðir margs- konar sérfundir, svo sem kenn« ara, ökumanna o. fl. Þá vai’ fundur haldinn með fulltrúuro hinna ýmsu templarareglna á. Norðurlöndum, undir forsæti Hátemplara Ruben Wagnsson, landshöfðingja, og nefnd kosin til að styðja að aukinni sam« vinnu þessara reglna. Af íslanda hálfu var kjörinn í nefnd þessa, Brynleifur Tobíasson stórtempi- ar. Fjölmennur útifundur var haldinn í sambandi við þingið. Þar talaði m.a. sér Magnús Guð- mundsson frá Ólafsvík. Þá fóru* fulltrúar í ýms ferðalög og sátu góðar veizlur bæði Árósaborgai' og bindindissamtaka þar. Næsta þing verður háð í Noregi árið 1959. Fulltrúar islenzkra bindindis- samtaka voru þessir: Frá Áfengisvamari'áði og sero fulltrúi ríkisstjórnarinnar, Bryn-. leifur Tobbíasson, áfengismála- ráðunautur og stórtemplar. Frá Stórstúku íslands: Kristján Þor- varðarson, læknir, Jón Gunn- laugsson, stjómarráðsfulltrúi og Þorsteinn J. Sigurðsson, kaup- maður. Frá Bindindisfélagi öku- manna: Pétur Sigurðsson ritstj. Frá bindindisfél. þingmanna: Pétur Ottesen alþm. Frá bind- indisfélagi presta: Séra Kristinn Stefánsson fríkirkjuprestux'. Frá bindindisfél. kennara: Hannes J,’ Magnússon, skólastjóri. Frá Landssambandinu gegn áfengis- bölinu: Séra Magnús Guðmunds- son frá Ólafsvík. Frá bindindis- samtökum kvenna: Frú Sigríður Bjömsdóttir.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.