Þjóðviljinn - 31.08.1956, Blaðsíða 5
FöstiKfegui' 31 ágúst J956 — ÞJÓBVILJINN — (5
Hafnargerð við Stapa.
Bjarnar, kærði vígið til kon-
ungs, en hann lét taka ensk
skip á Éyrarsundi árið eftir
og loka því fyrir enskum sigl-
ingum um nærfellt 30 ára
skeið. Einnig voru allar eignir
Éngíendinga gerðar upptækar
í danska ríkinu utan íslands,
og danskar og þýzkar eignir
í Englandi. Friðarsamningar
tókust með konungum Engla
og Dana 1473, en enskar sigl-
ingar um Eyrarsund hefjast
ekki að nýju fyrr en um
1500, svo mikilvæg var ver-
stöðin á Rifi í þann tíð.
Nú er fátt annað en Björns-
steinn, sem minningar eru
tengdar við um forna dvöl
Englendinga á Rifi. Þó segir
heimilisfólk, að þar séu feiki-
stórir ánamaðkar í jörð, taldir
enskir, fluttir af enskum lax-
veiðimönnum til landsins á
Výsköpun og stórveldastríö
á Rifi á Snæíellsnesi
dögum Björns hirðstjóra.
Einnig bendir það á Virkishól
og Virkisklett, en þar á ein-
hver Oddur lögmaður að hafa
hlaðið virki gegn Englending-
um.
En það má í frásagnir færa-
að næsti bær við Rif er
kirkjustaðurinn Ingjaldshóll,
kenndur við Ingjald í skinn-
feldi, sem reri eitt sinn einn
á báti og kom aldrei aftur.
Við þann stað er sú sögn
tengd, að þar hafi Kólumbus
haft vetursetu, áður en hann
sigldi vestur um haf og
fann nýja heimsálfu. En vera
má, að hann hafi aldrei aug-
um litið þann stað fremur en
Kólummbíu, sem ber þó nafn
hans.
FEGURSTA HÖFN A
ÍSLANDI
Á Snæfellsnesi eru margs
konar náttúrufurðuverk, eins
og kunnugt er, Lóndrangar,
Svörtuloft að ógleymdum
jöklinum. Við Stapa er unnið
að hafnargerð, en þaðan mun
skemmmst að sækja á mið frá
Snæfellsnes er með fjöl-
breytilegustu og sögufræg-
ustu héruðum á íslandi og
væri langra frásagna vert, en
að þessu sinni vill blaðið ein-
ungis vekja athygli lesenda
sinna á því, að þar hefur mik-
il saga gerzt og er enn að
gerast.
„ÁBURÐARVERKSMIÐJA“
A RIFI
Nu er kominn ágætur vegur
fyrir jökul og alla leið að
Háarifi eða Rifi, eins og það
er venjulega nefnt. Þegar
ferðamaður nálgast þann
sögufræga stað, fagna hon-
um herskarar af kríum. Tíð-
indamaður blaðsins undraðist
mjög kríugerið á dögunum
og innti aldurhniginn mann,
sem stóð við slátt í kafagrasi
rétt utan túns, hverju þetta
sætti. — „Blessuð krían, hún
hefur gjörbreýtt jörðinni. Þú
hefðir átt að koma, hingað
fyrir 20 árum. Þá varð mað-
ur að standa myrkranna á
milli við slátt og hafði varla
að berja á einn hest, en þá
sást hér varla kría.“
Rétt utar stóð hóndinn,
Friðþjófur Guðmundsson, á
teig umkringdur gargandi
ræktunarráðunautum, og enn
berst talið að kríunni. —
„Krían er svo mikill nytja-
fugl að því trúir enginn mað-
ur.“
■ —Hvað er langt síðan hún
tók að verpa hér?
1 „Það eru rúm 20 ár, síðan
varp hennar glæddist að
marki. Þegar ég kom hingað,
var dálítið kríuvarp utar með
sjónum, en þar hömuðust
menn og vargar í því, en ég
friðaði varpið og síðan hafa
landgæði gjörbreytzt.“
Þegar aðrir bændur aka
skarai á völl að vorinu og
kaupa rándýran áburð, vakt-
ar Friðþjófur kríuvarpið, og
hér sést árangurinn.
Annars var það ekki ætlun-
í in að fara að Rifi til þess að
[ horfa á kríur; þær eru Reyk-
víkingum engin nýlunda.;
heldur skyldi þetta verða. píla-
grímsfei-ð til þess staðar- þar
sem Bjöm Þorleífsson féll
1467.
Snæfellsnes geymir ekki ein-
ungis forna sögu, heldur era
þar miklir atburðir að ger-
ast. Frá Rifi var mikil út-
gerð í gamla daga, en lagðist
niður um a.ldamót, af því að
jökullækur lagðist í ósinn, þar
sem skip lögðust, og fyllti
hann. Nú er unnið þar að
miklum hafnarmannvirkjum
og eru gerðir út þaðan fjór-
ir vélbátar, en aflann verður
að flytja í frystihús á Hellis-
sandi. Sjómenn þar töldu að
bráða nauðsyn bæri til þess
að reisa frystihús á staðnum,
af því að flutningar aflans að
Sandi væra of kostnaðarsam-
ir.
STÓRVELBASTYRJÖLD
HEFST A RIFI
Mikilvægustu atburðir, sem
orðið hafa á Snæfellsnesi,
gerðust um mánaðamótin
ágúst—september 1467. Þá
hafði Danakonungur átt í all-
löngu stappi við Englendinga
út af Islandi, og að lokum
bannað þeim algjörlega verzl-
un og siglingar þangað, en
Englendingar sigldu engu að
síður og var ein af helztu
höfnunum, sem þeir sóttu,
við Háarif. Þangað komu skip
frá Biskups-Lynn á Engiandi,
sumarið 1467, en Björn Þor-
leifsson ríki hirðstjóri á
Skarði á Skarðsströnd hélt
þangað með flokk manna um
fyrrnefnd mánaðamót og
hugðist fylgja fram konungs-
boðskap. Englendingar brugð-
ust illa. við komu hirðstjór-
ans, réðust móti honum og
nístu til bana við Björnsstein.
Enn þá eru munnmæli tengd
við klett ofan við fjöruna á
staðnum, og herma þau. að
Bj"rn hafi hopað undan sókn
enskra af bjargi í túnfæti nið-
ur á steininn, en þar hafi
Englendingar tekið hann
og hálshöggvið, og á skarð í
ofanverðan steininn að vera
eftir böðulöxina, því að fast
var fylgt eftir.
Ölöf Loftsdóttir ríka, kona
Bjömssteinn séður að ofan; holan er tálin vera axarfar.
Stendur orðlaus enn, — og
reyndar
aldir má hann þar velli
halda, —
mælir þó fleira málgu skjalli,
minnisvarðinn í Rifi harður,
nafnið eitt þylur nóglegt
efni,
neinum stutt ei leturgrein-
um, —
enn er á tungu og í máli
manna
minning hreitt, — á Bjarnar-
steini.
FORNÓLFUR
==Sffi5==:
Björnssieirin,. Björn Þorleifsson á að hafa hopað undan sókn Englendínga af klettin-
um undir x-merkinu ofan á steininn, en þar gripu EnglencLingar hann og hjuggu.
íslenzkri höfn, þegar verkinu
lýkur. Einnig verður þar ein-
hver fegursta höfn á landinu.
SKÖLI !
■
■
fsaks Jónssonar
:
| hefst um miðjan september. »
I Nánar tilkynnt síðar.
Skóla.stjórinn.
TÖKUM FRAM
Nýja búta j
■
■ *
■ hentuga í kjóla, blússur:
: skoltka, pils o. fl. Mjög lágt ■
I verð. — Heilt kjólaefni á •
kr. 45,00.
:
H. T0FT j
Skólavörðustíg 8.
■
■
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■<
Nýir kjólar
teknir fram í dag.
BEZT
Vesturveri.
I