Þjóðviljinn - 07.09.1956, Síða 11

Þjóðviljinn - 07.09.1956, Síða 11
James M. Cain Msldred Pierce 96. dagur „Eruð þér að gefa í skyn að dóttir mín sé slangá?“ „Nei —er coloratura sópran, miklu verra. Lítil slanga elskar mömmu, gerir það sem pabbi segir kannski, en coloratura sópran elska engan nema sjálfa sig. Er til- finningalaus, verri en nokkur slanga. Frú, þér látið stúlkuna eiga sig.“ Meðan Mildred sat agndofa og reyndi að átta sig á þessari nýju og óvœntu hliö á málinu, fór lierra Treviso aftur að stika um herbergiö, en svo vircist hann fá meiri áhuga á málinu en hann hafði ætlaö sér. Hann settist niður og augu hans glóðu á sama hátt og þegar Mildred sá.hann fyrst. Hann snerti hné hennar aftur sagði: „Þessi stúlka, hún coloratura, utan og innan, öll sömul.“ „Hvað er coloratura sópran?“ „Frú, sérstakt afbrigði eins og blár persneskur kött- ur. Kemur einu sinni á mannsævi, syngja allar trillur, stakkató ha-ha-ha, cadenzur, þaö erfiðasta —“ „Nú skil ég“. „Dýrari en fjandinn. Ef ósvikin coloratura, þá ópera græða meira á hehni en stórum ítölskum tenór. Og þessi stúlka öll coloratura, beinin meira að segja coloratura. Fyrst og fremst veröa að þekkja ríkt fólk. Ekki ríkur, ekki þekkja.“ „Hún hefur alltaf umgengizt gott fólk.“ „Kannski gott, en veröur vera ríkt. Allar coloratura eins. Alltaf taka, aldrei gefa. Allt í lagi, þér eyöa mikl- um peningum í þessa stúlku, hvað gera hún fyrir yö-®- ur?“ „Hún er ekki annað en barn. Þaö er ekki hægt aö ætlast til —“ „Skp — hún gera ekkert fyrir yður. Sko!“ Herrá Treviso hnippti aftur í hné Mildredar og brosti. „Hún meira að segja fitla hálsfesti eins og coloratura, sitja eins og hertqgafrú fitla hálsfesti." Og hann hermdi ótrúlega vel eftir Vedu þar sem hún sat teinrétt og dremtilát og fitlaði við hálsfesti sína. „Þe';ta hefur hún gert síöan hún var lítil telpa!“ „Já — er mjög skrýtið.“ Nú var herra Treviso fariö aö hitna og hann hélt á- fram: „Allar coloratura elta ríkt fólk, bara taka aldrei gefa, allar eins og hertogafrúr fitla hálsfesti, allar eins, hver eixíasta. Allar fá lánaöa tíu þúsund dali, fara til Ítalíu, læra söng, borga aldrei peningana, halda sé bara vinátta. Syngja 1 óperunni, giftast bankastjóra, fá pen- ingana. Þá sparka 1 bankastjórann, giftast baróni, fá titilinn. Hafa líka kærasta, til aö sofa hjá. Og svo ferð- ast öll saman um Evrópu frá óperu til óperu, baróninn ; í klefa, C, passa hundinn. Bankastjórinn í klefá B, passa : faranguí. Kærastinn, hann í klefa A, passa coloratura — allt í lukkunnar velstandi. Svo koma orö frá Belgíu- kóngi — fyrst hátíöaópera, Theatre de la Monnaie, svo orða. Allar coloratura hafa oröu frá Belgíukóngi, fyrst hátíöaópera Theatre de la Monnaie, svo oröa, Ailar coloratura hafa orðu frá Belgíukóngi, það sem eftir er ævinnar fitla hálsfesti, tala um orðu.“ „Það er nú spölkorn frá Los Angeles til Belgíu — „Nei, enginn vegur. Þessi stúlka, trúið inér, er mikið efni. Þér vitiö hvað skapa söngvara? Fyrsta lagi rcidd, öðru lagi rödd, þriðja lagi rödd — já, þetta þekkja allir. Rossini sagði það, en jafnvel Rossini geta sagt vitleysu. Verður að hafa rödd, já. En það skapa ekki söngvara. Veröa aö hafa músik, músik í sálinni. Caruso, hann ekki lesa eina nótu, er hann hafa músik í sálinni sem heyrist í. hverjum tóni. Veröa hafa hljóðfail, finna takt- inn í músikinni áður en hljómsveitarstjórinn lyfta stafnum. Og sérstaklega coloratura — ekkert hljóðfall, enginn undirleikur, allt þetta ha-ha-ha meö röddinni, ekkert meira. Allt í lagi, þessi Veda. Eg reyna við stúlk- una eina viku. Hún syngja fullum hálsi. mjög ljótt, eins og karlmaðui-. Eg hækka tóninn, hljómar vel, ég hugsa, já, hérna er rödd. Hér er ein rödQl af milljón. Svo fer ég að tala. Eg tala um tónlist, tóiilist, tónlist. Ég segja henni hvar hún á aö læi’a lesa nótur, hvai’ læra tónfræði, hvar læra á píanó. Hún hlæja, segir ég hafi Fimmtudagur 7. september 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (11 kannski eitthvað sem hún geta lesið. Á pía.nóinu er Stabat Mater, er erfitt, varasamt, er Rossini, kemur inn í öðrum takti, syngur móti undirspilinu, ruglar alla söngvara. Eg segja, allt 1 lagi, hér er lag sem ég geta lesið og sungið. Og ég byi’ja leika Infiammatus úr Stabat Mater eftir Rossini. Frú, þessi stúlka hitta G-iö upp á hár, syngja allan Inflammatus eftir nótum, hlaupa upp á C eins og ekkert sé — sleppa engri nótu. Eg þjóta á fætur, segja Jesús Kristur, hvaðan kemur þú? Hún skellihlæja. Spyrja hvort hún á kannski að læi’a tónfræði. Þá segja hún frá Charl og ég muna eft- ir henni. Frú, ég hafa stúlkuna hjá mét í tvo tíma þennan dag og hún vita meira um tónlist en ég. Þá skoða ég stúlkuna í alvöru. Eg sjá þennan háa brjóst- kassa, stóra barm, háa nef. Þá vita ég hvað ég sjá. Eg sjá það sem kemur einu sinni á mannsævi — stóra coloratura. Eg byrja að vinna. Eg kenna henni einn tíma á dag. Eg kenna henni fljótt. Fljótt, fljótt. Eg muna Malibran var listakona fimmtán ára, Melba var listakona sextán ára. Þessi stúlka fæöast með músik í sálinni, hún gleypa allt í sig strax. Allt 1 lagi, þér heyra Hank Somerville dagskrá?“ „Já.“ „Polonaise úr Mignon er erfið. Hún syngja eins og Tetrazzini. Nei, frú, er ekki langt frá Los Angeles til Belgíu fyi’ir þessa stúlku. Er engin góö söngkona, Er stórkostleg söngkona. Allt 1 lagi, spyrja íólkið. Spyrja fólkið sem hlustaði á Hank Somerville dagskrá.“ Mildred sem haföi hlustað á þetta eintal eins og það væri endurnæi’andi orgeltónlist, áttaði sig nú og taut- aði: „Hún er dásamleg stúlka,“ „Nei — er dásamleg söngkona,“ Þegar hún leit á hann særð og undrandi, gekk herra Treviso nær til að skýi’a mál sitt enn betur. „Stúlkan er slæm. Hún er óþokkki. Söngkonan er góö.“ Þetta virtist vera niðui’staða hans, og Miídred stóö á fætur. „Jæja — hverjum er frjálst að hafa sitt álit, en mér þætti vænt um ef þér vilduö framvegis senda reikninga hennar til mín —“ „Nei, frú.“ Floð í Tyrklandi í flóðum í Tyrklandi í lok águstmánaðar létu 79 menn lífið, samkvæmt síðustu frétt- um. Flóðin komu í kjölfar ský- falls á Adiyama-hásléttunni i suðaustanverðu landinu. Meðal þeirra, sem fórust voru tveir hópar sígauna, sem bjuggu í tjöldum og lifðu hirðingjalífi. Fer frá Reykjavík miðviku- daginn 12. þ.m. til Akureyrar H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS. SKSPflUTGCRÖ RIKISINS austur um land til Bakka- fjarðar hinn 11. þ.m. Tekið 4 móti flutningi ti! Hornafjarð- ar, Breiðdalsvíkur, Stöðvar- fjarðar, Mjóafjarðar, Borgar- fjarðar, ■ Vopnafjarðar og Bakkafjar'ðar í dag. Farseðlar seldir á mánudag. Munið Kaffisöluna I ílafnarstræt! ] 6 KðffMrybkið ei ekki allSaf skaileg Fyrir skömmu var haldinn fyrirlestur í norska útvarpið um kaffidrykkju. Bent var á að hjartveiku fó!ki væri ráðleg- ast aö drekka. kaffi í miklu hófi. Þetta munu flestir vita, margir telja þá óhætt að drekka te í staðinn. Svo er þó ekki, því koffeininnihald tes- ins er nærri því það sama og kaffisins. Einnig var á það bent að sumt gamalt fókí getur beinlín- is haft gott- af því að drekka kaffi á kvöldin. Kaffið vinnur móti því að blóðþrýstingurinn lækki að nóttu t.U, en það gerir það oic að verkum að gamalt fólk á bágt með svefn. Konur í Sovétríkjunum• (og karlar reyndar líka) hafa ekki átt kost á jafnvönduðum og fallegum fötum og viö vesturlandabúar. Nú er aö veröa breyting á þessu. Brezk tízkuhús sendu í sumar nokkrar stúlkur austur til Moskva til aö sýna. brezkan kvenfatnaö og vakti sú sýning mikla ai- hygli þar fyrir austan. Þrjár stúlknanna sjást hér á myndinni. SeguII á eMlrasv©ggmn Erlendis er nú hægt að fá segla sem festa má á eldhús- vegg. Á þá er J.ægt að festa hnífa, skæri og onnur áhöld úr stáli og geta verið mikil þæg- indi af þessu ef seglinum er komið fyrir á hantugum .stað. PlOÐVlUlNN Útíefandi: SameinlnBorflokkur alþíð'u - Sósialistaflokkurinn. — Ritst.iórar: Magnús Kiartansson ™ (áb ), Siguiður Guðmundsson. — Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason. ■ Blaðamenn: Ásmundur Sigur- , , jónsson, Bjarni Ben.eciik.t£Son, Guðmundur Vigfússon, ívar H. Jónsson, Magnús Torfi Ólafsson. — Auglysingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. — Ritstjórn. afgreíðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. — Simi 7500 (3 línur). — Askriftarverð kr. 25 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 22 annarsstaðar. — Lausasöluverð kr. 1. — Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.