Þjóðviljinn - 26.10.1956, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 26.10.1956, Blaðsíða 3
Flugvélar „Þji:s“ og nokkurra einstaklinga standa Flngbjörgunarsveitinni til reiðu er þörf gerist. — Frá æfingunni á sunnudaginn. Flugbj örgunarsveitir eru nú starfandi á sex stöðum á landinn Flugbjörgunarsveitin hef.nr nú veriö starfandi í 6 ár og auk sveitarinnar hér, sem er elzt og fjölmennust, eru einnig deildir á 5 ö'örum stööum úti á iandi. ‘Eftir Geysisslysið á Vatna jökli varð mönnum ljós hver nauðsyn það er að til sé sveit þjálfaðra manna í bj"rgunar- starfi ef flugvélum hlekkist á, og varð þá af því að Flug- björgunarsveitin væri stofnuð Reykjavíkurdeildin er stærst, telur um 130 menn, á Akur- eyri em félagsmenn 60—70, í Vík í Mýrdal er 15 manna deild og deildir eru undir Eyja- fjöllum, að Hellu á Rangár- “völlum. og ein á efstu bæjum Rangarvalla (Hekludeildin). Sunnudaginn 21. þm. hafði Flugbjörgunarsveitin æfingu á R.eykjavíkurflugvelli, er fram- kvæmd var eins og flugvél væri í alvöru týnd. Áður en æf- ing hófst fluttu ræður Björn Björnsson formaður sveitar- innar og Agnar Kofoed Hansen flugmálastjóri. Ræddi hann einkum nauðsyn þess að hægt væri að senda slíkar björgun- -arsveitir á vettvang hvenær sem nauðsyn bæri til. Reykvíkingar voru fremur tómlátir um æfingu þessa, en yfirmenn bandaríska hersins á Keflavíkurflugvelli f jölmenntu á sýninguna, enda hefur Flug- björgunarsveitin einkum þurft að starfa fyrir þá og leita að týndum flugvélum þeirra, síðast í Akrafjalli, en áður á Mýrdalsjökli og Eyjafjalla,- jökli, éins og menn rekiir minni til. Frá b'andaríska hernum'hef- ur Flugbjörgunarsv. líka fengið margt af útbúnaði sínum m.a. „spítalatjald", þar sem hægt mun að koma fyrir 30 sjúkra- börum, ennfremur hefur sveit- in um 30 lítil tjöld. Félagið á 2 vísilbíla (beltabíla), ennfrem- úir getur það fengið að láni snjóbíl Guðmundar Jónassonar, vísil Jöklarannsóknafélagsins og snjóbíla einstaklinga, þann- ig að það getur gripið til 8 £ *: •*. 'mmm " '. '■ / ■•■ 'V . Hér sést nokkuð af útbúnaði sveitarinnar, annar vísillinn, eld- húsbíll og tjöld, — brúna tjaldið er „spítalinn". B ■ | Nauðuxigcinippboð ■ sem auglýst var í 20., 21. og 22. tbl. Lögbirtinga- blaðsins 1956 á húseigninni nr. 39 við Efstasund, hér í : bænum, eign Sigurðar Finnbjörnssonar, fer fram eftir : kröfu tollstjórans í Reykjavík og bæjargjaldkerans í Reykjavík á eigninni sjálfri þriðjudaginn 30. október : 1956 kl. 3 síðdegis. j BoxgaEÍógelinn í Beykjavik AÐALFUN DIIR Aðalfundur NEYTENDASAMTAKAJVNA verður hald- inn í Tjarnarcafé laugardaginn 27. október og hefst kl. 2 e.h. Venjuleg aðalfundarstörf. Lagabreytingar. Framkvæmdanefndin. snjóbíla ef þörf krefur. Þá hefur félagið „eldhúsbíl" þar sem hægt er að matreiða fyrir um 50 manns. iFlugskólinn Þytur lánar litl- ar flugvélar þegar þörf gerist ennfremur einkaflugmenn. Að- staða til björgunarstarfs ef flugvél hlekkist á er því öll önnur en var fyrir nokkrum árum. Stjórn Flugbjörgunarsveitar- innar er þannig skipuð: Björn Björnsson formaður, Úlfar Jakobsen gjaldkeri, Sigurður Þorsteinsson ritari, Árni Kjart- ansson og Sigurgeir Gíslason meðstjórnendur. — Úlfar Þórð- arson er læknir sveitarinnar. Föstudagur 26. október 1956 — ÞJÓÐVILJINN (3 á næsta ári N ató—sty rkir Norður-Atlantshafsbanda- lagið (NATO) veitir í apríl á næsta ári nokkra styrki til náms- og fræðimanna. Tilgarigur NATO-styrkj- anna er að stuðla að auknu námi og rannsóknum á sögu aðildarríkjanna, stjórnmálum þeirra, stjórnarskrá, lögum, félagsmálum, menningarmál- um, tungu, efnahagsmálum, vísinda- og varnarmálum þeirra, einkum með tilliti til sameiginlega erfða og sögu- legrar reynslu Norður-At- lantshafsríkjanna sem samfé- lags og athugana á núverandi þörfum þess og samstöðu aðildarríkjanna í framtíðinni. Styrkirnir eru tvenns kon- ar, auk ókeypis ferðakostnað- ar. 1) Námsstyrkir til ungra námsmanna að upphæð 500 þúsund franskir frankar fyrir skólaárið 1957/58 eða jafn- gildi þeirra upphæðar innan annars aðildarríkis í Evrópu eða 2000 dollarar fyrir sama tímabil í B^ndaríkjum Amer- íku eða Kanada. 2) Rannsóknarstyrkir fyrir 96 neiiiemiur í Skógaskóla Héraðsskólinn að Skógum var settur sunnudaginn 21. okt. með hátíðlegri athöfn. Athöfnin hófst með guðsþjón- ustu og prédikaði sóknarprest- urinn, sr. Sigurður Einarsson, skáld í Holti. Skólastjórinn, Jón R. Hjálmarsson, flutti skólasetn- ingarræðu og lýsti skólastarfinu. Kennsla hófst fyrir nokkru og komú nemendur'' 3. bekkjar í skólann 2. okt. en nemendur 1. og 2. bekkjar 16. okt. Nýr kennari í ensku hefur verið ráðinn Jón Einarsson, en frá því starfi hvarf Guðmundur Jónsson. í skólanum eru alls 96 nemendur og hann fullskipaður að vanda. Aðsókn að skólanum ' * ÚTBREIÐIÐ V ■* * * ÞJÓDVILJANN * er mjög mikil og varð að synja nálega eins mörgum og að kom- ust. Úr skólahéruðum skólans er rúmlega helmingur nemenda. Miklar byggingaframkvæmdir eru yfirstandandi og mun hagur skólans batna mjög í náinni framtíð, en þrengsli og húsnæðis- skortur hafa nokkuð háð starf- semi hans. Fyrirhuguð sundlaug skólans stendur hálfsmíðuð og er stofnuninni hin mesta nauð- syn á að hún verði fullgerð sem fyrst. Formaður skólanefndar Björn Björnsson, sýslumaður, flutti ræðu og árnaði skólanum heilla. Á milli ræðuhalda voru sungnir sálmar og að síðustu voru sung- in ættjarðarljóð. Að athöfninni lokinni var safnazt saman í borðstofu skólans að kaffi- drykkju. fræðimenn að upphæð 200 þúsund franskir frankar á mánuði í 2-4 mánuði eða jafn- gildi þeirrar upphæðar innan annars aðildarríkis í Evrópu. Styrkþegar til vísindarann- sókna verða valdir með til- liti til rannsóknarefnis og hæfileika. Stúdentar verða valdir eft- ir námsafrekum, eftir því hvar þeir vilja stunda nám. og hvert námsefnið er. Styrkþegum ber að gefa skýrslu um rannsóknir sínar eða nám á ensku eða frönsku og afhenda Norður-Atlants- hafsbandalaginu eigi síðar en þrem mánuðum eftir að styrktíma lýkur. Umsóknar- frestur er til 1. janúar 1957. Umsóknir ber að senda til utanríkisráðuneytisins, sem lætur umsóknareyðublöð í té og veitir allar nánari upplýs- ingar. (Frá utanríkisráðuneytinu). í“ Essn týnist maður í Reykjavík Rannsóknarlögreglan auglýsti í gærkvöldi eftir Þórði Georgs- syni, Múlakamp 12. Hann fór heiman frá sér s.l. þriðjudag, en síðan hefur ekkert til hans spurzt. Þórður er 18 ára, hár og grannur. — Hann er þriðji maðurinn sem týnist hér á fá- um dögum. Sliemmtifundur sovétgestnni Sovézka æskulýðssendinefndin, sem hér hefur dvalizt að undan- förnu, mun halda heimleiðis í næstu viku. ÆFR efnir til skemmtifundar með nefndinní annað kvöld í Tjarnargötu 20, og hefst hann kl. 9. Allir félagar í ÆFR eru velkomnir, og er þess vænzt að þeir fjölmenni. í blað- inu á morgun verður sagt frá dagskrá samkomunnar. Allir vilja eignast híl r&n&***cvr~~ Isskápar eru ómissandi á hverju heimili, Þetta getið þið fengið í happdiætti Þjóðviljans, dregið 2. nóvember AÐ VERZLA / KJORBUÐINN/ í AUSTURSTRÆT/

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.