Þjóðviljinn - 24.02.1957, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 24.02.1957, Blaðsíða 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Sunnudagur 24. febrúar 1957 ÞlÓÐyiUINN Útgefandi: Sameiningarflokkur alpýðu — SósíalistaflokJcunnn Vetrarbað Bidstrup teikjaði Asrentar íhaldsins o IVegar núverandi ríkisstjórn * var mynduð var augljóst mál að vinstri menn færðust mikið í fang. Samtök auð- manna á íslandi eru mjög sterk, hafa safnað auði og áhrifum á langri valdatíðí, gagnsýrt embættismannakerfið og smalað saman miklu fylgi í skjóli þessarar aðstöðu með linnulausu lýðskrumi og full- komnu áróðurskerfi. Eitt meg- inverkefni vinstri stjórnar hlaut að vera að gera upp við auðmannaflokkmn, færa þjóð- inni aftur fjármuni og völd sem hann hefur sölsað undir sig. En t:l þess að ná árangri í þeirri baráttu þurfti einlægni og órjúfandi samheldni vinstri flokkanna; þeir þurftu að láta ágreiningsmál sín víkja fyrir þeirri sameiginlegu nauðsyn að lægja hrokann í auðmanna- stéttinni; þeir þurftu í verki að fylgja því gamla kjörorði að allt er betra en íhaldið. Ij’n því. miður hefur komið eftirmmnilega í ljós að auðmannaflokkurinn átti ag- enta innan þeirra flokka, sem sækja fylgi sitt til vinstri manna, og þá fyrst og fremst innan Alþýðuflokksins, og hef- ur bað að undanförnu birzt á ósvífnastan hátt í kosningun- ■um í verklýðsfélögunum. Al- þýðublaðið hefur reynt að halda því fram að það fram- ferði sé aðeins afleiðing af framkomu Alþýðubandalags- manna á síðasta þingi A.S.Í., en þar er um algera fölsun að ræða. Agentar íhaldsins í Al- þýðuflokknum greiddu atkvæði gegn myndun vinstri stjórnar. þeir fluttu tillögu um að sam- starfinu yrði slitið áður en Al- þýðusambandsþing var haldið. Sú reynsla sannar bezt að einn- ig í stjóm Alþýðusambandsins hefðu þeir orðið íhaldsagentar, og það sem síðar hefur gerzt staðfestir þá ályktun gersam- lega. Það verður ekki hjá því komizt að líta á hægri klíku Alþýðufloksins sem handbendi íhaldsins, er æfinlega sé reiðu- búin til að torvelda störf og stefnumið núverandi ríkis- stjómar. ¥jegar svo er ástatt verður samheldni vinstri flokk- anna óhjákvæmilega á annan veg en nauðsynlegt hefði verið og einnig árangurinn af stjórn þeirra. Ef agentum íhaldsins tekst að vaða uppi með árangri hlýtur það að hafa áhrif á stjórnarsamstarfið; það var sannarlega ekki tilgangurinn með því að efla völd íhaldsins, hvorki í verklýðshreyfingunni né annarstaðar. Verndarar milliliðagróðans ¥^að er þess vert fyrir al- * þýðu manna að veita því athygli hvernig blöð Sjálf- stæðisflokksins hafa brugðizt við þeirri sjálfsögðu og nauð- synlegu ráðstöfun verðlagsyf- irvaldanná að draga verulega úr milliliðakostnaði við verzl- un og vörudreifingu. Það er á ailra vitorði að gróði heild- verzlana og ýmissa annarra raiililiða hefur verið gífurleg- ur á undanförnum árum. Hin ftjálsa og eftirlitslausa 'á- lagning sem sigldi í kjölfar þess að svo að segja allt verð- lagseftirlit var afnumið að frumkvæði íhaldsins hefur ver ið notuð út í æsar af ýmsum ófyrirleitnum bröskurum og milliliðum. Allur almenningur Hefur verið ofurseldur gróða- fíkn braskaranna. Afleiðing þessa hefur orðið **■ sú að fjármagn og vinnu- afl hefur sótt óeðlilega út í verzlunina. Hver heildverzlun- in hefur hafið starfrækslu af annarri og virzt hafa ótrú- lega greiðan aðgang að fjár- magni lánastofnananna á sama tíma og fáum hefur þótt álitlegt. að gefa sig að sjálfri framleiðslunni sem er undir- staða að lífi og tilveru þjóð- arirmar í landinu, enda henni búinn annar og þrengri kost- ur en þeim sem verið hafa á þönum eftir hinum fljóttekna verzlunargróða. Óeðlilegur milliliðakostnaður í verzlun- inni hefur einnig átt sinn af- drifaríka þátt í að auka dýr- tíð og verðbólgu sem kemur af mestum þunga niður á vinn andi fólk og útflutningsfram- leiðslunni. Á þessu þarf að verða gagnger breyting og að henni er stefnt með þeirri lækkun á álagningu á vöru- verðinu sem framkvæmd hef- ur verið að undanfömu. CJú neyðarráðstöfun að þurfa ^ að leggja á þjóðina nýja tolla til að mæta hallarekstri sjávarútvegsins gerði að sjálfsögðu alveg óhjákvæmi- legt að taka álagninguna til gagngerðrar endurskoðunar. ^ Hefði það ekki verið gert hlaut hækkað vöruverð að koma af langtum meiri þunga niður á almenningi en raun verður á. Verulegum hluta þessarar millifærslu til sjávar- útvegsins verður velt yfir á milliliðina með lækkun álagn- ingarinnar o g almenningi þannig hlíft við ríflegum hluta álaganna. Enginn efast um að þessir aðilar eru borgunar- menn fyrir því sem þeim er ætlað að gjalda til þess að famleiðslan geti gengið með eðlilegum hætti og brauðfætt þjóðina. En gegn þessu fer Sjálfstæðisflokkurinn hamför- um og lætur blöð sín hamast JOHANNESCARL sjötagur Sjötugur verður í dag Jo- hannes Carl Klein kaupmað- ur, Baldursgötu 14. Hann er fæddur í Kaupmannahöfn 1887, ættaður frá Svíþjóð að langfeðgatali. Hann stundaði nám við verzlunarskóla í Höfn, réðst ungur til sjós, og gerðist bryti á strandferða- skipinu Sterling og Austra, sem hingað sigldu upp úr aldamótunum. Einnig var hann um skeið á kaupskipum, sem sigldu til Ameríku. Þeg- ar elzti Gullfoss var keyptur hingað til lands, varð Klein „restauratör" á skipinu, rak þar veitingar á eigin reikning. Síðan tók stjórn Eimskipafé-. fyrir hönd heildsala og milli- liða. Öll þau skrif eru bein krafa um að gróði heildsal- anna verði ekki skertur en öll- um byrðunum velt yfir á al- menning. T* *essa afstöðu þarf þjóðin að * festa sér í minni til skiln- ingsauka á eðli og tilgangi Sjálfstæðisflokksins. Forkólf- ar hans hafa enn einu sinni sannað svo ekki verður um villzt að þeir eru umboðs- menn braskaranna og vernd- arar milliliðagróðans en skeyta í engu um hag almenn- ings. lagsins að sér rekstur veit- inganna, og varð Klein þá fyrsti bryti á íslenzku milli- landaskipi. Á Gullfoss-árum sínum kynnist Klein fyrri konu sinni, Elínu Þorláksdótt- ur, ættaðri frá Bygggarði. Þau eignuðust fjögur b;'rn, misstu fyrsta bam sitt, en þrjú eru á lífi: Carl Georg Klein og Jens Christian Klein, sem rekur verzlunina með föður sínum, og Huldu Ing- er, sem er gift Jóhanni Kristjápssyni kaupmanni, á Borgarholtsbraut, Kópavogi. Eftir giftinguna hætti J. C. Klein millilandasiglingum og gerðist bryti á björgunarskip- inu Geir, sem var hér við; land í mörg ár, en réðst síðan til Helga Bergs, forstjóra Slátur- félags Suðurlands, sem verzl- unarstjóri að Matarbúð Slát- urfélagsins við Laugaveg 42. Árið 1927 stofnaði hann svo kjötverzlun sína, sem fyrst var að Frakkastíg 16, en flutti að Baldursgötu 14 árið 1930. Kjötverzlun hans á því þrjátíu ára afmæli á þessu ári; Verzlun hans óx snemma, og á árunum milli 1930 og ’40 setti hann upp útbú inni í Laugarneshverfi (Hrísateig 14) og Leifsgötu 32. Elínu, fyrri konu sína missti Klein 1925, en giftist síðar systur hennar, Sylvru, sem þá var ekkja með tvo unga syni. Þau eignuðust einn son, sem dó á fyrsta ári. Sylvía lézt í ágúst 1954. Klein er einn af þeim Dön- um, sem hefur fest djúpar rætur í íslenzkum jarðvegi án þess að bera Islendinginn í sjálfum sér á ytra boifii. Hann er lítt mælandi á ís- lenzka tungu, talar sitt einka- tungumál, sem er stundum öðrum en kunningjum hans torskilið, en hann móðgast ef Islendingar tala við hann dönsku. Hann hefur fellt of- urást við íslenzkt afdalakot og íslenzka sveit og unir sér hvergi betur en upp við ræt- ur Heklu. Hann er ekki ís- lenzkur ríkisborgari, en að lokum vill hann hvergi liggja nema í íslenzkri mold. Hann hefur horft á þessa þjóð vaxa, lifað með henni ævintýraleg Framhald á 10, síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.