Þjóðviljinn - 06.09.1957, Blaðsíða 3
Föstudagur 6. septeanber 1957 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Vinna við byggingu sundlaugar
í Vesturbænum hófst í gær
Laugin verður við Hofsvallagötu
Fjárfestingarleyfi er fengið til fyrstu framkvæmda
við byggingu sundlaugar í Vesturbænum og var byrjað
aö grafa fyrir grunni laugarinnar í gærmorgun.
Nokkur ár eru nú liðin síðan
nefnd sex manna var skipuð til
að vinna að undirbúningi sund-
laugarbyggingar fyrir Vesturbæ-
inga. Réð nefndin Bárð Daníels-
son til að teikna laugina og
skipuleggja svæðið umhverfis
hana við Hofsvallagötu gegnt
Melhaga. Sérstök f járöflunar-
nefnd safnaði á sínum tíma 150
þús. kr. til byggingarinnar, en
auk þess fjár er nú 1 millj. kr.
framlag bæjarsjóðs handbært.
Þá hefur íþróttanefnd ríkisins
samþykkt að veita úr íþrótta-
sjóði styrk til byggingarinnar.
Útisundlaug — skemniti-
svæði
Þetta verður útisundlaug, að-;
allaugin 10x25 metrar, en út úr j
henni' gengur svo grynnri laug, i
ætluð börnum og ósyndum, einn- i
ig til sundkennslu. Næst lauginni
verða steinlagðar stéttir en gras-
svæði utar og allstórt skemmti-
svæði umhverfis.
Byggt verður laugarhús, þar
sem verða búningsherbergi og
baðstofur. í kjallara hússins
verður 5x10 metra laug, sem
fyrst og fremst er ætluð sjúkling-
um til baða og hressingar og
einnig til að kenna yngstu börn-
unum sund.
Nefndina, sem unnið hefur að
undirbúningi sundlaugarbygg-
ingarinnar, skipa Birgir Kjaran
formaður, Tómas Jónsson, Er-
lendur Ó. Pétursson, Jón Axel
Pétursson, Þór Sandholt og
Gunnar Friðriksson. Nefndarfor-
| maður tók fyrstu skóflustung-
j una, er vinna var hafin við
j byggingu Sundlaugar Vesturbæj-
I ar í gærmorgun.
Bókhlaðan, ný bókaverzlun,
fil húsa að Laugavegi 47
Bókaverzlunin Bókhlaðan h.f. opnar 1 dag og verða
þar á boðstóium flestar fáanlegai' bækur, innlendar sem
útlendar, og einnig ritföng. Sveinn Kjarval hefur séð
um einkar smekklega innréttingu.
Framkvæmdastjóri hinnar
nýju verzlunar verður Arnbjörn
Kriátinsson. en' verzlunarstjóri
Kristján Arngrímssón. Eins og
áður er getið er arkitekt Sveinn
Kjarval, trésmíði annaðist Öss-
ur Sigurvinsson. raflögn Finnur
Atliugasemdir
Óskar Norðmann, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins J.
Þorláksson & Norðmann, kom
að máli við Þjóðviljann í gær
og bað þess getið að fyrir-
tæki það sem hann veitir for-
stöðu hefði ekki átt neinn blut
að þeim blaðaskrifum sem orð-
ið hafa að undanförnu um sem-
entsskortinn. Ekki kvað hann
fyrirtæki sitt heldur hafa haft
neitt samband við íslenzka að-
alverktaka út af sementsbirgð-
um þeirra og ekkert um það
mál vita. Loks kvað Óskar
fyrirtæki sitt hafa reynt að
úthluta því sementi réttlátlega
sem það fékk með síðustu send-
ingu; hefðu þrir aðilar fAigið
40 tonn hver, þrír eða fjórir
30 tonn og aðrir þaðan af
minna.
Kristjánsson og miðstöðvarlögn
Lúther Salómonsson,
Lögð áherzla á ísleuzkar
bækur
Aðallega verður lögð áherzla
á að hafa sem fjölbreyttast úr-
val íslenzkra bóka og má telja
það athyglisvert, að verzlunin
mun selja allar bækur Norðra,
að íslendingasögunum meðtöld-
um, með afborgunum.
Einnig liggur frammi mikið
úrval enskra og norskra bóka í
vasaútgáfu ásamt vandaðri út-
gáfum erlendum.
$
Sérstök baruadeild
Barnabækur verða, ásamt ým-
iskonar leikföngum, í sér deild í
búðinni. Einnig verður lögð á-
herzla á að hafa sem flest blöð
og timarit til sölu.
Stórir útstillingargluggar
Verzlunin er smekklega og
haganlega innréttuð, gólfpláss
um 90 fm., og útstillingarglugg-
ar stórir og rúmgóðir svo vart
getur að líta stærri útstillingar-
glugga í bókabúðum hér í bæn-
um.
Engin leiðrétting lögbrota
Framhald af 1. síðu.
skoðunar að hún hafi farið að
öllu löglega við útsvarsálagn-
inguna í vor og væri þó ekkert
í umsögninni sem haggaði
þeirri staðreynd, að ekki hefði
verið farið að lögum. Þessvegna
verður ekki byggt frekar á um-
sögn nefndarinnar.
Ingi mótmælti því sem al-
gjörlega röngu og villandi að
„mjög ýtarleg athugun (hafi)
farið fram á útsvörunum“.
Nefndin ltafi einfaldlega teldð
til athugunar kærur einstak-
Iinga eins og undanfarin ár, og
lækkunin Iiafi orðið á útsvari
einstakra en ekki heildarfjár-
liæðinni. Um heildarlækkun út-
svaranna er því ekki að ræða.
Getur liaft örlagaríkar
afleiðingar
væri ekki hægt að réttlæta
hina ólöglegu útsvarsálagn-,
ingu nema síður sé.
Þó að bæjarstjórnarfundur-
inn í gær stæði yfir í fimm
klukkustundir tók enginn í-
haldsfulltrúi til máls um út-
svarsálagninguna, nema hvað
Gunnar Thoroddsen borgar-
stjóri stóð upp til að segja
þessi orð: „Ég vil aðeins vísa
til umsagnar niðurjöfnunar-
nefndar, sem hefur verið fjöl-
rituð og útbýtt á fundinum,
og sé ekki ástæðu til að ræða
þetta mál frekar“.
Tillögu Inga R. greiddu þess-
ir fimm atkvæði: Guðmundur
Vigfússon, Ingi R„ Þórunn
Magnúsdóttir, Þórður Björns-
son og Alfreð Gíslason. Nei
sögðu Bárður Baníelsson og ÓI-
aftur Björnsson (Bárður lét
fylgja atkvæði sínu þessa
greinargerð: Þar sem sýnt er
að áætluð upphæð fjárhagsá-
ætlunar mundi ekki nást ef
tillagan yrði samþykkt, segi ég
nei!), en atkvæði greiddu ekkl
Auður Auðuns, Einar Tliorodd-
sen, Guðmundur II. Guðmunds-
son, Gunnar Thoroddsen,
ííjörgvin Frederiksen, Magnús
Ásímarsson, Gróa Pétursdóttir
og Guðbjartur Ólafsson. Illaut
tillagan ekki nægan stuðning,
þar sein meirihluti bæjarfull-
trúa greiddi ekki atkvæði; til-
lagan hefði lilotið samþykki, e£
Magnús Ástmarsson hefði
greitt atkvæði, hvort lieldur
ineð eða móti.
ökuferð blinda fólksins
Þegar niðurjöfnunarnefnd hef-
ur störf fær hún uppgefna heild-
arfjárhæð álagðra útsvara. Við
þá upphæð má bæta allt að
10%. Við niðurjöfnun útsvara
þarf nefndin því að taka tillit
til tvenns: heildarfjárhæðarinn-
ar og efna og ástæðna gjald-
enda. Við álagninguna í sumar
fór nefndin hinsvegar fram úrj
heildarf járhæðinni samkvæmt j
lögum og ráðuneytisheimild ogj
fékk þannig 14 millj. kr. um-
fram það sem leyfilegt er og
löglegt. Nefndin átti því að
lækka útsvörin um 14 millj. kr.,
en hún gerði það ekki, kærði
sig kollótta og lækkaði útsvörin
aðeins um 7 millj. Ef þetta eru
lögleg vinnubrögð hjá niður-
jöfnunarnefnd þá eru líka á-
kvæði útsvarslaganna um há-
mark útsvarsupphæðar úr gildi
fallin, sagði Ingi.
Ef leiðrétting fæst ekki nú,
sagði Ingi ennfremur, getur það
haft þær örlagaríku afleiðingar
að útsvörin verði ekki lögtaks-
kræf og bæjarfélagið standi þá
uppi févana seint á árinu,
vegna sjálfskaparvítis.
Sl. þriðjudag bauð Volkswag-
en-klúbburinn blindu fólki í
Blindrafélaginu til ökuferðar
austur yfir fjall. Var fyrst ekið
til Þingvalla, þar sem séra Jó-
hann Haimesson þjóðgarðsvórð-
ur sagði fólkinu frá sögu staðar-
ins. Þaðan var ekið sem leið
liggur til Hveragerðis, þar seni
heildverzlunin Hekla innflytj-
andi Volkswagen-bílanna, bauð
hópnum kaffi. Heim var svo ek-
ið um Hellisheiði. 10 bílar tóku
þátt í ferðinni, en um 20 blindir
menn gátu þegið hið rausnarlega
boð; og létu þeir hið bezta af
ferðinni. Myndin er tekin bjá
Hóte! Hveragerði (ljósm. Sveinn
Guðbjartsson).
Hin ólöglega áláguing
verður ekki réttlætt
Þórður Björnsson tók mjög í
sama streng og Ingi.
Guðmundur Vigfússon skýrði
frá því, að hann hefði fengið
þær upplýsingar hjá formanni
niðurjöfnunarnefndar, Guttormi
Erlendssyni, á bæjarráðsfundi
í gær, að nefndinni hefðu bor-
izt munnlegar kvartanir vegna
útsvarsálagningar frá 1218
manns og kærur frá 2600. Er
það svipaður fjöldi og kærði og
kvartaði á sl. ári. lítsvarsgreið-
endur eru hins vegar 23722
talsins.
Guðmundur kvaðst kafa
spurt Guttorin, livort nefnd-
in hefði að öðru Ieyti farið
í gegnum útsvarsálagning-
uua, og hafi hann svarað neit-
andi. Með því að lækka út-
svörin vegna þessara kæra
Fyrsti styrkþeginn samkvæmt
Fulbright-samningi fer utan
Jón G. Þórarinsson kynnir sér tónlistar-
kennslu í Bandaríkjunum
Samkvæmt frétt frá bandaríska upplýsingaþjónustunnl
fór fyrsti íslendingurinn, sem stunda mun nám í Banda-
ríkjunum í samræmi viö nýgerðan „Fulbright-samning4*
um menningarsamskipti þjóðanna, vestur í fyrradag.
Fræðslustofnun Bandarikj-
anna á íslandi mun borga
ferðakostnað styrkþegans, Jóns
G. Þórarinssonar, tónlistarkenn-
ara í Reykjavík. Einnig mun
Jón fá laun frá Bandaríkja-
stjóm til þess að kynna sér
tónlistarkennsluaðferðir víðs-
vegar í Bandaríkjunum, en þar
mun hann dveljast í sex mán»
uði. j
Gagnkvæm náinsinanna-
skipti næsta ár
Samningurinn um stofnun
þessa var undirritaður af hálfu
íslands og Bandaríkjanna hina
Framhald á 5. síðu
Glæsilegt úrval af karlmannaskóm með leður- og svampsólum
Aðalstræti 8
— Garðastræti 6 — Laugavegi 38 — Laugavegi 20 — Snorrabraut 38