Þjóðviljinn - 06.09.1957, Side 7

Þjóðviljinn - 06.09.1957, Side 7
Föstudagur 6. september 1957 — ÞJÓÐVILJINN _ (7 MS er <zð hofa lungur tvær" Nýjasfa framlag Bjarna Benedikfsson- ar fil islenzkrar sfjórnmálabaráffu Gctt er að hafa tungur tvær og tala sitt með hvorri, seg- ir máltækið. Þetta orðtak hef- ur verið leiðarstjarna Bjarna Benediktssonar í stjórnarand- stöðunni, og hann hefur raun- ar ekki látið sér nægja að hafa tvær tungur heldur hafa þær oft verið býsna margar; hann hefur reynt að halda ölluin sjónarmiðum fram í einu sem stefnu Sjálfstæðis- flokksins. Það má vera að Bjama Benediktssyni þyki þetta ,,góð“ stjórnarandstaða en þó mun hann nú þegar haf; fundið óþyrmilega fyri r því að flokksbræður hans undrast stórlega hina marg- klofnu tungu aðalritstjórans. Hér skal minnt á nokkur dæmi um þessa kynlegu iðju Bjama Benedilttssonar síð- ustu vikumar. ★ Farmannadeilan 1 íarmannadeilunni byrjaði Bjarni Benediktsson á því að eggja fulltrúa sína meðal þeirra farmanna sem höfðu hæst kaup og bezt kjör til að hefja verkfall og setja frano sem óbilgjarnastar kröf- ur. 1 stjórn Eimskipaféíágs Islands beitti Bjarni B.ene- diktsson sér fyrir því að ekki yrði tekið i mál að semja'ý um kröfur farmanna. Og i Morgunblaðinu heimtaði hann að ríkisstjórnin leysti deiluna tafarlaust. Þarna var stefna Biarna sem sé sú í senn að farmenn skyldu fá hámarks- kauphækkun og að þeir skyldu enga kauphækkun fá! Og síð- an 'heimtaði hann að ríkis- stjómin leysti deiluna í sam- ræmi við bæði sjónarmiðin, eð eða færi frá clla! Þegar svo tókst að lokum að leysa deil- una fyrir atbeina Lúðvíks Jósepssonar, endurtók sama sagan sig. I stjórn Eimskipa- félags Islands heimtaði Biarni Benediktsson að farmgjöldin hækkuðu svo að þau bættu upp allan kostnað Eimski"a- féiagsins af deilunni, og þeg- ar ríkisst iómin heimilaði að- eins 'hélmingshækkun í saraan-1 burói við kröfurnar, tvinnaði Bjami Benediktsson svívirð- inga.i'nar í Morgunblaðinu vegna þess að stjórnin væri að hækka farmgjöldin og þar með vöruverðið. Bjarni Bene- di'ktsson heimtaði þannig í senn að farmgjöldin hækkuðu miklu meira en gert var og að þau hækkuðu ekki neitt, og síðan krafðist hann þess að ríkisstjórnin leystí vand- ahn í samræmi við bæði sjón- armiðin! ★ Bakaradeilan Morgunblaðið hefur farið hamförum gegn ríkisstjóminni út af bakaraverkfallinu. En hva.ð hefur ríkisstjórnin til saka unnið á því sviði, heríir hún gert verkfall, hefur hún neitnð meisturum um leyfi til að semja? Nei, sök ríkisstjóm arinnar er sú aö hún hefur ne:ír ð um leyfi til að hækka brauðverð. Morgunblaðio er þannig að heimta hækkað brauðverð, og enginn þarf að vera í vafa um að verði brauð- verðið hækkað mun sízt standa á hinum þyngstu á- fellisdómum Bjarna Benedikts- sonar. Hærra brauðverð, ó- breytt brauðverð er stefna Sjálfstæðisflokksins í senn. 'fc Gialdeyrismáliii Morgunblaðið hefur að und- anförnu lýst því með hávær- asta orðalagi hversu alvarleg- ur gjaldeyrisskorturimi væri, þjóðin væri sem sé að eyða um efni fram. I sarna tíma hefur verið óskapazt yfir því í öðrum greinum í Morgun- blaðinu að allt væri að verða vörulaust, það væri allt of lítið flutt inn. Minni innflutn- ingur — meiri innflutning- ur; minni neyzla — meiri neyzla: þannig syngja tungur Ðjarna Benediktssonar og flækjast einatt saman í ákaf- anum. •fa Verðlagsmálin Morgunblaðið talar mikið um það að dýrtíð sé að auk- ast í lanóinu og verðlag að liækka — og þykist nú allt í einu hafa áhuga fyrir kjörum almennings. En á sama tíma heldur Bjarni Benediktsson þvi fram að rikisstjórnin sé að gera út af við alla verzlun í landinu, vegna þess hve mjög hún haldi verðlaginu niðri. Og hundruð íhaldsfor-^ kólfa hafa vaðið uppi hjá verðlagsyfirvöldunum undan- farna mánuði og heimtað verð hækkanir á verðhækkanir of- an. Ihaldið er þannig í senn með og móti verðhækkunum, hvitt og svart er hrópað í einni síbylju. ■Jr Kaupgjaldsmálin Það þarf ekki að lýsa því hvernig íhaldið hefur ævin- lega snúizt gegn öllum kjara- bótum vinnandi fólks, verið á móti hverri kauphækkun og átt þau úrræði helzt að lækka raunverulegt kaup verkafólks. Þessi afstaða er ekki breytt, en á sama tíma er því nú haldið fram í Morgunblaðinu að sjálfsagt sé að hækka kaupið, og Bjarni Benedikts- son hefur reynt að beita öllum áhrifum sínum til að fá launa- fólk til að gera verkföll, eink- um þá sem hæst höfðu launin fyrir. Hærra kaup — lægra kaup, þannig kveða tungur Bjarna Benediktssonar, og með því þykist hann hafa sett undir hvern leka, fullnægt öllum sjónarmiðum. ★ Alger nýung Þetta er kynleg stjórnar- andstaða, og hún hefur vakið almenna furðu Sjálfstæðis- flokksmanna um land allt. Það er ekki hægt að segja að Sjálfstæðisflokkurinn sé stefnulaus, hann boðar allar stefnur í senn, hann er með og móti öllum verkum í senn. Þetta. er alger nýung í ís-’ lenzkum stjórnmálum, o* raunar trúlegt að ‘ erlendar hliðstæðar séu vandfundnar. Þessi stefna er við það mið- uð að almenningur hugsi eldd, það sé hægt að bjóða honum hvað sem er, þar á meðai kjósendum Sjálfstæðisflokks- ins. En þekking hans á eítir að aukast. Gömul skammsýni rifiuð upp Viðtal við Zantovský sendifulltrúa Tékkóslóvakíu sem nú er að hverfa af landi brott. Sendifulltrúahjónin tékk- nesku, Zantovský og kona lians, eru nú að hverfa af landi brott, en hér hafa þau dvalizt um tveggja ára skeið, og eignazt marga vini sem munu sakna þeirra. lason Ur- ban sendiherra Tékkóslóvakíu, sem hefur fast aðsetur í Osló, hefur dvalizt hér á landi að undanförnu, og hann hefur skipað nýjan sendifulltrúa, Vlastislav Kraus, sem einnig er kominn til landsins og er að hef ja störf sín hér. Jaroslav Zantovský sendi- fulltrúi hefur sem kunnugt er átt hinn bezta þátt í að auka menningartengsl og viðskipti íslendinga og Tékka á undan- förnum árum. í tilefni af brottförinni átti fréttamaður Þjóðviljans tal við hann: — Já, nú er ég að fara, segir Zantovský kíminn. Það er svo með okkur sem störf- um í utanríkisþjónustunni að við megum helzt ekki dvelj- ast lengur en tvö ár í hverju landi. Fyrra árið notum við til þess að kynnast landi og þjóð, síðara árið höfum við svo aflað. okkur það mikillar þekkingar að við getum starf- að að gagni. En þriðja árið viturn við oi’ðið of mikið og verðum að fara! — Það er alkunna að þér vitið orðið mikið um ísland og Islendinga. — Ég hef gert mér far um að kynnast sem flestum; til þess að skilja vandamál þjóð- ar verður maður að þekkja fólk. Áður en ég kom hingað reyndi ég að lesa sem mest um sögu Islendinga, menningu þijóðarinnar og raunir þær sem hún hefur orðið að þola á liðnum öldum; ég dáði þá þegar hugrekki íslendinga og þolgæði, og sú aðdáun hefur ekki breytzt við nánari ltynni. Ég minnist þess oft sem tékkneska skáldið Karel Capek sagði um aðra norræna þjóð: Það þarf enga styrjöld til að þetta fóllc sanni í verki að það er hetjur. Það hafa íslenzkir sjómenn og bændur sýnt kynslóð eftir kynslóð í baráttu við erfið náttúruöfl, einangrun og harðrétti. Mér virðist frelsisþráin og sjálfstæðisvitundin hafa ver- ið og vera sterkasti þátturinn í fari Islendinga, og ég skil nú baráttu íslendinga fyrir að halda máli sínu hreinu, fyrir því að varðveita og efla þjóð- menningu sína og tryggja sér fullt sjálfstæði á öllum svið- um, menningarlegt og stjórn- málalegt. Ég dái þessa bar- áttu þjóðarinnar, með henni hefur hún þegar sýnt í verki Framsóknarmönnum geng- ur erfiðlega að játa ranga afstöðu sína til nýsköpunar- stjórnarinnar, og fengu þeir þó eftirminnilegan dóm fyrir hana hjá þjóðinni í kosning- unum 1946. I gær hefur Tím- inn gamalkunnan s"ng og seg- ir: „Eitt fyrsta verk nýsköp- unarstjórnarinnar var að hætta við byggingu áburðar- verksmiðju, en undirbúningur þeirrar framkvæmdar var þá vel kominn á veg fyrir for- göngu Hermanns Jónassonar og Vilhjálms Þórs. Nýsköpun- arstjórnin ctakk jafnframt sementsverksmiðjumálinu und- ir stól. Hún hófst heldur ekki handa um neinar meiriháttar rafvirkjanir. Undir forustu hennar var stríðsgróðanum eytt án þess að nokkuð af honum væri notað til að byggja upp stóriðju." Áburðarverksmiðja sú sem Timinn talar um var al- gerlega vanhugsuð. Hún átti aðeins að framleiða brot af því magni sem notað er i landinu og hefði verið orðin. úrelt um leið og hún komst upp. Það átti að koma henni upp við Akureyri án þess að- nokkuð hefði verið hugsað- fyrir rafmagnsþörfum hennár. Allur sá málatilbúningur var svo skammsýnn að Tímamnrt mun hollast að gleyma hon- um. Nýsköpunarstjórnin und- irbjó hins vegar raunhæfar framkvæmdir á þessu sviði og öðrum, og hefur sá undir- búningur síðan verið hagnýtt- ur. Nýsköpunarstjórnin ,,eyddi“ stríðsgróðanum í nýja togara, stóraukinn bátaflota og skipa- kost og umfangsmikinn fisk- iðnað, þ. e. í þann atvinnuveg sem aflar þjóðinni gjaldeyr- is. Þessar framkvæmdir eru undirstaða velmegunar þjcð- arinnar í dag og allra þeirra athafna sem þjóðin fæst nú við. Svo nytsamar sem áburð- arverksmiðja, sementsverk- Framhald á 10. síðu. Zantovský að hún er þess megnug að lifa sjálfstæðu menningarlífi og leggja fram sinn sérstaka skerf til heimsmenningarinn- ar. — Samskipti Islendinga og Tékka hafa aukizt mjög síð- ustu árin. — Já, og mér er það mikið ánægjuefni. Ég held að við Tékkar vitum nú meira um Islendinga en nokkru sinni fyrr, og einnig hefur vitn- eskja íslendinga um Tékka aukizt til muna. Þar hafa blöðin lagt fram gcðan skerf. Þegar ég kom til íslands var ég þess fullviss að unnt myndi að auka viðskipti land- anna, enda hefur reynslan sannað það. Frekari þróun á því sviði er háð því að sam- vinna þjóðanna verði enn nánari; við þurfum að hag- nýta þá staðreynd að Tékkar þurfa á fiski að halda og ís- lenzkar fiskaíurðir njóta sí- vaxandi vinsælda í Tékkóslóv- akíu, og eins að Tékkar fram- leiða fjölbreýttan iðnvaming sem íslendingar þurfa á að halda. — Þið lijónin hafið ferðazt mikið um landið. — Já, það er margs að- minnast. Við höfum í feroum okkar lent í ýmsum æfin- týrum sem óhugsandi væru heima', komið að geigvænleg- um, óbrúuðum ám og fengið að vita að hægt var að láta bílinn ösla yfir þær með lagi. Ég minnist laxveiðá í Laxá og silungsveiða í Þingvallavatni og útreiðatúra á íslenzkum> hestum. Þá munu sumarkvöld- in íslenzku alltaf lifa í minn- ingu okkar, þegar sólin vairp- aði síðustu geislum sínum á fjöllin og litirnir urðu svo> æfintýralegir að þeir hefðir ekki verið teknir trúanlegir á neinu málverki. SkógleysiA hér hefur einkennileg áhrif á mann, sem vanur er að leita sér .hvíldar í skógum, en brátft fannst mér þetta tæra loft og skíra útsýni, einkum á kvöld- in, koma í stað skóganna, og ég hætti að sakna þeirra. Ég minnist staðanna sem þið sýn- ið ferðamönnum, Gullfoss, Geysis, Heklu, og þó minnisfc ég fyrst og fremst fólksins í landinu. Ég hafði mikið gagn af því að ég kunni norsku þegar ég kom hingað, ég gat gert mig skiljanlegan við bændur sem ég hitti út um. landið, ra.unar lærðt ég það mikið í islenzku að ég skil einfalt mál, þótt ég tali það ekki, — Þið farið utan með Gull- fossi. — Við komum hingað með Gullfossi og við förum með honum aftur. Ég gat ekki hugsað mér að yfirgefa land- ið með flugvél. Mér fannst ég verða að kveðja það af hafi eiga þá minningu síðasta er fjöllin hverfa.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.