Þjóðviljinn - 15.10.1957, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 15.10.1957, Blaðsíða 9
Þriðjudagiir 15. október 1957 — ÞJÖÐVILJINN — (9 r A þ* niTSTJÓRi FRtMANN HELGASON NefíMÍarkosniiigar á Alþingi Um síðustu mánaðamót munu handknattleiksæfingar hafa byrjað víðast hvar og mun þess skammt að bíða að þær verði komnar í fullan gang hjá öllum sem vilja og ætla að vera virkir í vetur. Það virðist sem í vetur verði mikið um að vera í hand- knattleiknum, utanfarir fleiri en eins félags og svo ekki sízt þátttáka okkar í heimsmeist- arakeppninni í Austur-Þýz'ka- landi. Það verður að álíta að æft verði með meiri ákafa en nokkru sinni -fýrr. Allir hand knattleiksmenn sem eru þess umkomnir verða að gera: sitt til þess að þessi þátttaka verði' handknattleiknum hér til eins mikils gagns og hægt er og þeir sem sendir verða standi sig sem bezt í þeirri hörðu við- ureign sem þeirra bíður þár. Lantlsliðsnefnd fylgist ineð æfingum manna. Iþróttasíðan hefur hlerað það að ekki verði nú þegar valdir sérstakir menn sem æfa eigi sérstaklega undir képpnina. — Hinsvegar er þess vænzt og því treyst að ’þetta verði tekið mjög alvarlega og menn æfi með mun meiri kostgæfni en venjulega. Stjórnum félaga mun hafa verið falið að halda skrá yfir þær æfingar sem fram fara og skrá yfir hverjir mæti þar. Verður að sjálfsögðu tek- ið tillit til þess þegar endan- lega verður valið í liðið. Að taka þátt í heimsmeist- arakeppni er verkefni sem verð- ur að taká mjög alvarlega og til þess duga engar 2x50 mifi á viku, og þó ekki séu slík stórverkefni þá er það líka of lítið, ef árangur á að nást. Það er því von þeirra sem að undirbúningi fararinnar til Austur-Þýzkalands vinna, að leikmenn aimennt leggi meira að sér og bæti 30 mín við þær 50 mín sem hægt er að vera inni og hlaupi úti áður og æfi þannig upp þol og sprett sem er krefjandi í hinum stóru sölum sem leikið verður í. — Þannig mætti fá 1 klst. og 20 mín hverju sinni, og gæti það mikið hjálpað til að undirbúa frekari þjálfun, sem verður að sjálfsögðu tekin upp eftir ára- mótin, á þeim mönnum, sem valdir verða til þeirra æfinga. Sennilega verður henni skotið inn á milli en þess krafizt að þeir æfi áfram með félögum sínum. Iþróttasíðan mun reyna að fregna hversu handknattleiks- menn æfa og undirbúa sig und- ir þau verkefni sem þeirra bíða. Tíminn til stefnu er iskyggi- lega st Vtur, mótið byrjar 27. febráar og brátt er kominn miður október síðan kemur kemur jólamánuðurinn með ö.ll- um þeim töfum sem honum fyigja. Það sjá því allir að hér duga engin vetlingatök, og tíminn nemur ekki staðar fremur en fyrri daginn. ísland leikúr \ið Tékkóslóvakíu 27. febrúar. Þátttökulöndunum er skipt niður í fjóra hópa og tvö efstu löndin í hverjum lióp komast í úrslitin. Dregið hefur verið um það hverjir leiki saman forkeppninni en það eru: 27. febfúar: Hópur A. Svíþjóð — Spánn; Pólland' Finnland. Hópur B. Þýzkalánd — Lúx- émborg; Noregur — Frakk- land; Hópur C. Tékkólsóvakía — Island; ' Ungverjaland — Rúm- enía. Hópur D. Danmörk — Bras- ilía; Júgóslavía —- Austurríki. 1. marz: Hópur A. Svíþjóð — Pólland; Spánn — 'Finriland: Ilópur B. Lúxemborg — Nor- egur; Þ3'zkaland ■— Frákk- land. Hópur C. Island — Rúmen- ía; Tékkóslóvakía — Ung- verjaland. Hópur D. Brasilíá — Austur- ríki; Danmörk —• Júgóslavía. 2. marz: Hópur A. Finnland —» Sví- þjóð; Pólland —- Spánn. Hópur B. Frakkland — Lúx- emborg; Noregur — Þýzka- land. Hópur C. Ungverjaland — Island; Rúmenía — Tékkóslóv- akía. Hópur D. Júgóslavía — Brasilía; Austurríki — Dan- mörk. Að því er séð verður mætir ísland stérkasta liðinu í fyrsta leiknum, því Tékkar hafa sýnt að þeir eíga mjög gott landslið" og komú mjcg a óvart í síð- ustu heimsmeistaraképpni. ’Sví- af líta' á Tékkana sem siná' aðalkéþpinauta í keppni þess- ari. Því má bæta hér við að þau átta lönd sem komast í úr- slitakeppnina mynda tvo lióþa sem leika einn við alla og allir víð einn, og svo kepþa sigur- vegararnir til úrslita. Fi-amhakr n'í 3. "Síðu. Björgvin Jónsson,, Björn Jóns- son, Eggert Þorsteinsson. Af b- lista: Jóhann Þ. Jósefsson, Sig- urður Bjarnason. Heilbrigðis- og félagsmála- nefnd: Af a-lista: KarlKristjáns- son, Alfreð Gíslason, Eggert Þor- steinssön. Af b-lista: Friðjón Þórðars'on, Sigurðiif Ó. Ólafsson. Iðná'ðarnefnd: Af a-lista: Björgvi'ri Jónsson,' Eggert Þor- steinsson, Björn Jónsson. Af b- lista: Gunnar Thoroddsen, Jó- hann Þ. Jósefsson. Memitámálanefnd: Af a-lista: Sigurvin Einarsson, Friðjón Skafphéðínsson, Fjnnbogi R. Valdimafsson. Af Ulista: Gunn- ar Thoroddsen, Sigúrður Ó. Ól- afsson. AHsherjarnefnd: - Af a-lista: Páll Zóphóníássón, Friðjón Skarþhéðinsson, Alfreð Gisiason. Af b-lista: Friðjön Þórðarson, Jón Kjartansson. Neðfi deild: F.iárhagsnefftd: Af a-listá 'Skúii Guðmundssön, Einar Ol- jgeirsson; Emil Jónss'on. Af b- Jista: Jóhann Hafstein, Ólafur BjöfnssóTi. Samgöngmnálanefnd: Af a- lista: Eiríkur Þorsteiiisson, Kar' GuSjónsson, Páll Þorsteinsson. Af b-Iista: Jón Pálmason, Ingók" ur Jónsson, Landbúnaðarnefnd: Af a-lista: Ásgeir Bjarnason, Gunnar Jó- hannsson, Ágúst Þorvaldfcson. Af b-lista: Jón Sigurðsson, Jón Páimason. Sjávarútvegsmálanefnd: Af á- lista: Gisíi Guðmundsson, Áki Jakobssóiþ Karl Guðjóilsson. 'Ai' b-lista: Pétur Ottesen, Sigurður Ágústsson. Iðnaðarnefnd: Af a-lista: Ágúst Þorsteinsson, Emil Jónsson, Pét- u-r Pétursson. Af b-lista: Bjarni Benediktsson, Ingólfur Jónsson. Heilbrigðis- og félagsmála- nefnd: Af a-lista: Steingrímur Steinþórsson, Gunnar Jóóhanns- son, Benedikt Gröndal. Af b- iista: Ragnheiður Helgadóttir, Kjartan J. Jóhannsson. Menntamálanefnd: Af a-lista: Páll Þorsteinsson, Benedjkt Gröndal, Einar Olgeirsson. .Af b-Iista: Ragnheiður Helgadöttir, Kjártán J. Jóhannsson. Allsherjarnefnd: Af a-lista: Gísli Guðmundsson, Gunnar Jóhannsson, Pétur Pétursson. Af b-lista: Bjarni Benediktsson, Björn Ólafssön. heimsmef & 5000 m. SOVÉZKI hlauparinn Vladi- mir Kuts setti nýtt heims- met í 5000 metra hlaupi á frjálsíþróttamóti, sem liáð var í Róm um heigina. Hljóp hann vegalengdina á 13.35,0 mínútum og bætti fyrra met- ið, sem Englendingurinn Gordon Pirie áttl, um 1,4 sek. 29 löndum hefur verið boðið að senda keppendur á EM að sumri og 11 hafa þegar tilkynnt þátttöku Eins og frá hefur verið sagt, fer Evrópumeistarakeppnin í frjálsum íþróttum fram að sumri í Svíþjóð, eða nánar til- tekið í Stokkhólmi dagana 19.- 24. ágúst. Gert er ráð fyrir að mót þetta verði stórt i snið- um og hafa boð verið látin ganga tii 29 landa um þátt- töku. 11 bafa tilkynnt að þau muni koma, en það eru: Belg- ía, Bretland, Sviss, Noregur, Lúxemborg, Þýzkaland, Sovéc- ríkin, Finnland, Holland, Spánn og Svíþjóð. Gert er ráð fyrir að um miðjan þennan mánuð verði línurnar skýrari og Sví- ar gera ráð fyrir að ekki færri en 25 lönd sendi keppendur á mótið. Þýzka frjálsiþróttasambandið hefur óskað eftir að fá komið fyrir 60 körlum og 30 konum, og Sovétríkin hafa einnig ósk- að eftir að fá inni fýrir 100 manna hóp og. fylgdi sú ósk að þeir fengju að búa í skóla þar sem íþróttavellir væru nálægir. Þeir munu koma um 5. ágúst til að venjast aðstæðum og eins til að æfa sig. Þýzkaland og Finnland hafa pantað fjölda aðgöngumiða fyr- ir áhugasama áhorfendur sem vilja fara til Stokkhólms og horfa á. Einnig munu margir koma frá Noregi, Danmörku, Hollandi og Frakklandi sem áhorfendur. Frá þvi segir einn- ing að áhorfendur muni koma alla leið vestan úr Kaliforníu, og frá því hefur verið sagt áður að ÍR hefur áætlanir um að koma á hópferð sem getur orðið nokkuð fjölmenn. Að- göngumiðasala að mótinu byrj- aði í þessum mánuði. Þessa 6 daga er gert ráð fyrir að seld- ir verði um 200 þús. aðgöngu- Framhald á 2. síðu. Kaupið SHELLZONE-frostlög tímanlega! Gleymskan getur orðið yður dýrkeypt! Ef þér viljið vera öruggir um kælikerfið í blíreið yðar í frostum vetrarins þá notið Shellzone frostlög. Fæst í gallon og lk gallon dósum á sölu- stöðum vorum um land allt. Einnig í lausu máli á „SHELL"-stöðvunum við deykjanes- og Suðurlandsbraut. MUNIÐ: Ein áfylling veitir kælikerfinu örugga frostvernd allan veturinn. Olíufélagið Skeljungur h.f.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.