Þjóðviljinn - 24.12.1957, Page 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 24. desember 1957
ÞlÓÐVlLllNN
Útgefandi: Samelnlngarílokkur alþýSu — Sósialistaflokkurlnn. — RttstJórar
Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson. — Fréttaritstjóri: Jón
Bjarnason. — Blaðamenn: Ásmuntiur Slgurjónsson, Guðmundur Vigfússon,
ívar H. Jónsson, Magnús Torfi Ólafsson, Sigurjón Jóhannsson. — Auglýs-
ingastjóri: Guðgelr Magnússon. — Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prent-
smlðia: Skólavörðustíg 19. — Sími: 17-500 (5 línur). — Áskriftarverð kr. 25 4
man. í Reykjavík og nágrenni; kr. 22 annarsst. — Lausasöluverð kr. 1.50.
Prentsmiðja ÞJóðviljans.
ílialdslistinn
■Vlargir sem hingað til hafa
kosið Sjálfstæðisflokkinn
munu hafa orðið meira en
Htið undrandi þegar framboðs-
listi flokksins við bæjarstjórn-
arkosningarnar í Reykjavik
var tilkynntur í útvarpinu í
fvrrakvöld. Munu þess fá eða
engin dæmi á síðari árum að
íhaldið hafi boðið fylgismönn-
um sínum upp á jafn veikt
fratnboð og að þessu sinni,
og þarf ekki að efa að það
endurspeglar hið raunverulega
ástand sem rikjandi er í her-
fcuðum flokksins.
Íefstu sætunum tróna fjórir
lögfræðingar með borgar-
stjórann í broddi fylkingar.
Þá kemur roskinn húsgagna-
kaupmaður sem setið hefur
um alllangt skeið í bæjar-
stjórn. Síðan kemur gjörsam-
lega cþekktur maður, sem hef-
ur sér það eitt til „ágætis“
að vera skósveinn Bjarna
Benediktssonar. í sjöunda sæti
•kemur svo Björgvin Frederik-
sen, sem frægastur hefur orð-
ið fyrir biöskýlaviðskipti sin
við bæinn og loks er Einar
Thoroddsen færður niður í
áttunda sæti og á nú að bera
uppi baráttuna fyrir áfram-
haldandi völdum. Verður vart
rneð sanni sagt að þetta sé
sígurstrangleg uppstilling,
enda hafa margir Sjálfstæðis-
rnenn haft orð á því síðan
listinn var birtur að hann
fceri á scr öil merki feigðar og
ósigurs.
Það fer ekkert á milli mála
að þessi furðulega sam-
setning á lista íhaldsins er
afleióing af hörðum átökum
að tjaldabaki. Gunnar Thor-
oddsen þurfti að bjarga
•Björgvin Frederiksen eftir á-
gjafir biðskýlamálsins og
Bjarni Benediktsson gaf þess
engan kost nema með hörðum
skilmálum. Gunnar Thorodd-
sen varð að lúta svo lágt
að samþykkja inn á framboðs-
listann, og það í sjötta sæti
hans, persónulegan umboðs-
mann Bjarna Benediktssonar,
sem ekki á nema eitt erindi
inn í bæjarstjórnarflokk í-
haldsins. Þriðja sætið sem
laust var gefið fær svo Þor-
valdur Garðar Kristjánsson,
ýtinn maður og framgjarn en
ekki að sama skapi vinsæll
eða fylgissterkur innan flokks
eða utan.
IT'ramboðslisti íhaldsins er af-
-*■ kvæmi ósamkomulagsins
og glundroðans sem rikjandi
er í flokksröðunum. Öllu er
fórnað til að reyna í lengstu
lög að halda sprekunum sam-
an. Það er jafnvel ekki hikað
við að bjóða fylgjendum í-
haldsins upp á frambjóðend-
ur sem allir ærukærir flokks-
menn töldu að ekki kæmu til
greina. Skrípaleikur „próf-
kjörsins“ hefur nú verið opin-
beraður öllum bæjarbúum og
úrslit þess að engu höfð til
þess að liðsoddarnir gætu vel
við unað. Og svo er meiri-
hluta Reykvíkinga ætlað að
falla fram og þakka Sjálf-
stæðisflolcknum fortiðina og
treýsta honum fyrir framtíð-
inni. Skyldi ýmsum ekki
þykja það til nokkuð mikils
mælzt eftir að búið er að
kynna skipshöfnina sem nú
er innanborðs á ihaldsskút-
unni ?
Friðarvon
U
m það mun tæpast deilt,
að friðvænlegra sé í
fceiminum um þessi jól en oft
iður frá þvi heimsstyrjöld-
ínni lauk. Friðarvílji fólksins
er að verða að afli sem læt-
’úr meir og meir til sín taka
: heirnsmálum, og knýr jafn-
vel þá ráðamenn, sem hingað
til hafa streitzt við að láta
aldrei slakna á köldu stríði,
til að ympra á að þar muni
stefnt til hins heita stríðs tor-
timíngar og glötunar. Um það
fcer ljóst vitni Parísarfundur
Atianzhafsbandalagsins. en
einnig þar virtist vera að
gjósa upp andúðin gegn hinni
trylltu hervæðingarstefnu og
herbúnaðarkapphlaupi. Sam-
þykktir þær sem birtar voru,
gefa að vísu takmarkaða hug-
mynd um uppreisn þjóða Vest-
ur-Evrópu gegn forystu Banda-
xíkjamanna á þessum braut-
■;m, en sjálfum er þeim ljóst
að sín forysta hefur beðið
hnekki sem trauðla mun bætt-
vr. Ekki er ólíklegt að þegar
á næstu mánuðum verði snúið
sér að því af meiri atvöru en
áður að ná traustara sam-
komulagi um helztu ágrein-
ingsmál í sambúð stórvelda
heimsíns og þar með efld von-
in um að mannkynið þurfi
aldrei að reyna ógnir nýrrar
heimsstyrjaldar.
T öngu fyrir kristni héldu nor-
rænir menn hátíð um það
leyti er myrkrið tók að þoka
og sólargangur að lengjast.
Myrkrið grúfir að vísu ekki
neitt svipað yfir borgarbúum
tuttugustu aldar með rafmagns-
Ijós i hverju skoti, né hinum
raflýstu bæjum í sveitum lands-
ins, eins og skammdegismyrkr-
ið í ljósleysi og strjálbýli iið-
inna alda á ísiandi. Enn reynir
þó myrkur og kuldi og skamm-
degi á þol og þrek norrænna
manna, og föst er í ísiending-
um dýrkun á sólskini og birtu.
Því eru jól og vetrarsólhvörf
enn timi vonar og fyrirheita.
Vonar urri frið á jörðu, vissu
um ósigítr myrkursins og
hækkandi sól.
AUKÍÐ BURÐARÞOL
Með sííelldum endurbótum í gerð og nákvæmni
hefur tekizt að auka til muna burðarþol nær allra
T
REGISTERED TRADE MARK: TIMKEN. Licensed user British Timken Lcd.
KEILULEGA
Notið því ávallt í tæki yðar
TÍMKEN-KEILULEGUR
Framleiddar aí
BRITISH TIMKEN LTD
Duston — Northampton — England
Aðaluviboð á íslandi: STÁL H.F.,REYKJAVÍK
Söluumboð:
FÁLKINN H.F.
VÉLADEILD
Sími 1-86-70 — Laugavegi 24.
Reykjavík.
REYK JAVÍK-KEFLAVlK
lóla- og áramótaferðir
Til Keílavíkur: Síðasta ferð á Aðfangadag kl. 16.00
— — Engar ferðir Jóladag
— — Fyrsta ferð Annan Jóladag kl. 11.00
— — Síðasta ferð á Gamlársdag kl. 16.00
— — Fyrsta ferð á Nýjársdag kl. 11.00
Frá Keflavík: Síðasta ferð á Aðfangadag kl. 16.00
— — Engar freðir Jóladag
— — Fyrsta ferð Annan Jólaaag kl. 11.00
— — Síðasta ferð á Gamlársdag kl. 16.00
— — Fyrsta ferð á Nýjársdag kl. 11.00
Að öðru leyti eru íerðir óbreyttar til og frá Keflavík.
Sérleyfisstöð Sieindórs Sérleyfisbifreiðar Keflavíkur