Þjóðviljinn - 23.01.1958, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 23.01.1958, Blaðsíða 3
Fimmtudagiir 23. janúar 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (3 f Morgunblaðinu í fyrradag er gerð veikburða tilraun til þess að sannfæra Reykvikinga um, hversu óendanlega mikla umhyggju bæjarstjórnanneiri- hluti íhaldsins hafi sýnt her- skálabúum og hve sannur bjargvættur Gunnar Thorodd- sen borgarstjóri hafi reynz't þeim í þrengingum þeirra. Þessu til staðfestingar er leidd- ur fram sem vitni maður, er fyrir tæpu ári fékk inni í rað- húsunum svonefndu fyrir miskunn íhaldsins og náð Gunnars Thor. Þessi maður hafði í fjórtán ár mátt þreyja þorrann og góuna í einhverju ömurlegas.ta húsnæði, sem hugsazt getur, herskálum Reykjavíkur. En hann er gam- all kosningasmali íhaldsins og svo sanntrúaður Sjálfstæðis- maður, að barnsleg einfeldni hans í trú sinni og langlundar- geð gágnvart herra. sínum minnir.-mest á Job þann, er frá er sagt í biblíunni, að drottinn gat aldrei slegið nóg- um kaunum eða búið nægjan- leg harmkvæli til þess, að mað- urinn missti trú sína á al- gæzku hans og. viturleik. • L. s, G. í vitnaleiðslu sinni í Morg- unblaðinu er Sveinn Þormóðs- son, en svo heitir maðurin/i, svo hrekklaus, að hann dregur enga dul á, hve hörmulega hafi verið að honum og fjöl- skyldu hans búið af bæjarins hálfu svo árum skipti. Um herskálann í Camp Knox, þar sem hann bjó áður um skeið, segir hanri t. d.: „Þar var yf- irleitt mjög kalt og mikill raki, ef þamúg viðraði, cnda má segja að heílsufar fjölskyld- unnar hafi breytzt mjög til batnaðar, eftir að við fluttumst í hia nýju húsakynni. I her- skálunum voru börnin til dæmis iðulcga með kvef á vet- uma og ýmsa kvilla aðra. Nú hefur þeim aldrei verið mis- dægurt síðan við fluttuni í nýju húsakynnin." Og sem dæmi um þjóðfélagslega nauð- syn þess að útrýma herskálun- um segir hann svo frá. veik- indum dóttur sinnar: ,,Hún varð fyrir því óláni að fá nýmabólgu, og álitu læknar að hún ætti rætur að rekja til kuldans og rakans í her- skálunum, en síðan hún kom í gott liúsnæði hefur hún ekki kennt sér meins.“ ; En Sveinn er j „hamihgjusam- ur maður og ánægður“, þótt bæjarstjórnarmeinhluti íhalds- ins hafi búið honum og fjöl- skyldu hans •. héilsútjón i 14 ár. Nýja íbúðin hans er sem sé svo kostuleg, að: „þama höfum við heitt og kalt vatn, meira að segja njótum við þeirra þæginda að hafa hita- veitu.“ Já, það er sannarlega meira en margir aðrir Reyk- víkingar geta sagt og von, að maðurinn segi í lok vitnis- burðar síns, að Gunnar borg- arstjóri og bæjarstjórnarmeiri- hluti íhaldsins eigi „þakkir skilið fyrir gott og vél unnið starf“ að lausn húsnæðismála herskálabúanna, Það tók herr- ann ekki nema 14 ára að koma auga á og bæta úr hörmungum þjónsins. Lof sé Gunnari. ® Sannleikurinn um rausn íhaldsins Þótt Gunnar borgarstjóri og bæjarstjórnaríhaldið liafi loks eftir margra ára bið verið neytt til þess að styrkja Svein Þormóðsson og fleiri herskála- búa tíl þess að komast í mannsæmandi íbúðir, eru þeir margfalt fleiri, sem erni verða 1 þessum herskálum elst upp fjöldi ungra Reykvíkinga. um sárlega gramir fyrir rang- hermi hans af afskiptum í- haldsins af málum þeirra og voru fúsír til að segja frétta- manninum hið sanna um rausn íhaldsins við þá og sýna hon- Heimsókn herskála se Gunnari að búa við slík húsakjTmi hér i bænum, að ekki eru mönnum bjóðandí. Þannig eru efndir í- haldsins á hátíðlegum loforð- um fyrir hverjar bæjarstjórn- arkosningar um að útrýma heilsuspillandi húsnæði i Reykjavík. Það eru heldur ekki allir herskálabúar, sem bera íhaldinu jafnvel söguna og Sveinn. í fyrradag lagði fréttamaður frá Þjóðvilanum leið sín í eitt herskálahverfið hér í bænum, hverfið, seui Sveinn Þormóðs- son átti heima í fyrir rúmu ári. Þeir eru ekki margir her- skálarnir þar, sem ekki er enn búið í, þrátt fyrir öll kosningaloforðin. Fréttaniaður- inn hitti nokkra skálabúa að máli. Allir þekktu þeir Svein og höfðu lesið vitnisburð hans i Morgunblaðinu og voru hon- um húsakynni þau, sem það býr þeim. • Vill borgarstjórinn deila kjörum með þeim? í einurn skálanum bjuggu hjón með átta böm, hið elzta 13 ára. Þau höfðu sótt um íbúð í raðhúsunum eins og Sveinri. Voru þeim gefnar góð- ar vonir í fyrstu og menn komu frá bænum og mældu íbúðina hátt og lágt og töldu ibúana. Var þeim sagt, að þau myndu að sjálfsögðu verða iátin sitja fyrir, þar sem börn- in væru svo mörg og ung og aðbúnaðurinn svo slæmur. — En þau fengu enga íbúð. Unir sókn þeirra var aldrei svarað. Þau hjónin hafa búið í 6 ár í þessum skála. í honum eru tvö lierbergi og eldhús auk Svona hreysi teljast til mannabústaða í Reykjavík. saleruis. Engar hurðir eru fyrir lierbergjunum, aðeins fyrir útidyrunum og salern- inu. I eldhúsinu er enginn vaskur en hins vegar á sal- erninu. Kónan sagðist hafa farið fram á það, að vaskur yrði settur upp í eldhúsinu, en fékk þau svör hjá bæjar- yfirvöidiumm, að það væri of kostnaðarsamt og svo væri svo stutt fram á salernið, að ekki tæki þvi að setja upp vask í eldhúsinu. Og auðvit- að þarf hún í annað hús til þess að þvo þvotta. Þarna er engin hitaveita og ekkert heitt vabi að fá og til upp- hitunar er aðeins einn olíu- ofn. Sagði húsfreyja, að olí- an til kyndingarinnar kost- aði um 800.00 krónur á mán- uði og rafmagnsreikningurinn væri einnig rnjög hár allt ár- ið, þar sean aiít vatn til hcimilisþarfa þyrfti að hita með rafmagni. Góifið í skálanum liggur undir stöðugum skemmdum af vatnselg, sem undir það flóir, hefur tvívegis verið gert við það á þessum sex árum. Hin.s vegar hefur fúinn læst sig upp eftir einum dyrastafnum, svo að úr lion- um er dottis stykki, en við það hefur ekki fengizt gert Bærinn á livorki ti! efni í það né þröskuld fyrir úti- dyrnar. Við þennan aðbúnað af hálfu bæjaryfirvaldanna á þessi 10 manna fjölskylda að búa. Elzta barninu hafa þau hjónin kom- ið fyrir uppi í sveit í vetur, það á að vera í skóla og ferm- ast í vor, en heimá eru ekki nokkrar aðstæður til þess að það geti rækt námið. En hann er fullsetinn Svarfaðardalur- inn, þótt einn sé fjarverandi af fjölskyldunni. Eitt barnið verð- Ur að sofa í eldhúsinu, annars staðar kemst það ekki fyrír. Hvernig skyldi borgarstjóran- um þykja að deila kjörum rn'eð , þéssari f jölskyldu svo sérri. eina viku? • Lóðin, sem ekki fannst Fréttámaðúrinn kom til ann- arra hjóna, sem einnig höfðu sótt um íbúð í raðhúsunum, fengið Hklegar undirtektir i fyrstu — en enga íbúð. Þau hafa búið fjórtán ár í herskál- um eins og Sveinn. Þau hjón eiga 7 börn og eru 4 þeirra innán við fermingu. Skálinn, sem þau búa í, er um flest líkur hintim, þó lítur hann öllu betur út, enda betur við haldið, þar sem þau eiga hann sjáif en ekki bærinn. Þó er hann orðinn svo lekm-, að t. d. á aðíangadag í vetur m-ðu þau að standa i stöðug- um vatnsáustri af þeim sök- um. í þessum skála eru þrjú lítil herbergi, sem þessi stóra fjölskylda verður að hafast við i, enda þurfa siunir að sofa á gólfinu. Þarna hitti fréttamaðurinn húsbóndann heima og sagði hann sínar farir ekki sléttar af viðskiptum sinum við bæjar- yfirvöldin. Fyrir nokkrum árum sótti hann um lóð í smáíbúða- hverfinu, Loks eftir tveggja ára bið fékk hann tilkynningu um, að honum hefði verið úthlutað lóð. En þegar til átti að taka fannst hún hvergi. Kom um síðir í 1 jós, að K.F.U.M. var búið að fá landið til sinna umráða. þar sem hún átti að vera. í september sama ár var honum þó úthlutað nýrri lóð, en framkvæmdir við hana töfðust þá um sinn af þeim sökum, að á henni var stærðar kartöflugarður í fullum bióma. Er kom fram á veturinn var honum tilkynnt, að hann missti lóðina, ef hann yrði ekki búinn að grafa grunninn fyrir mán- aðamótin febrúar—marz. Þau voru um helgí og var hann bú- inn að fá jarðýtu til að grafa grunninn á laugardaginn, en af óvi'ðráðanlegum orsökum gat ekki af því orðið og dróst það til mánudags. En nokkrum dögum síðar fékk hann til- kynningu um að búið væri að úthluta öðrum lóðinni — og þar við sat. Þannig er reynsia þessara hjóna af skiptum þeirra við bæjarstjórnaríhaldið. Nú er konan orðin heilsulítil, 14 síö- ast í vetur á sjúkrahúsi, og hefur fengið læknisvottorð um, að hún þoli ekki heilsu sinnar vegna, að búa í þvílíku húsnæði, en það stoðar litt að sýna Gunnari borgarstjóra slík bréf. ® Hvernig á ég að kaupa íbúð? Þéssar tvær' fjölskyldur/sem nú hefur verið sagt frá,'sótíu báðai-' um íbuðir í raðhúsun- um, én það eru ekki állir her- skálabúar, sem hafa treyst sér til þess af fjárhagsástæðum, því að það er ekki hrist fram úr erminni fyrir eignalaust fólk að afla þess fjár, sem þarf til kaupa á íbúðunum. Fréttamaðurinn heimsótti að lokum eina fjöiskyldu, sem þannig var ástatt um. Hún bjó í litlum herskála, þar sem Framhald á 9. siðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.