Þjóðviljinn - 21.02.1958, Síða 7
K«stt*d:t."«r 23. febrúar 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (7
Átak í vatnsveitumálunum
er óhjákvæmileg nauðsyn
Sleifariag og simiuleysi íhaldsmeirihlutans er
orsök vatnsskortsins í bænum
Á dagskrá bæjarstjórnar-
fundar, sem' haldinn var 16.
janúar s.L íékk ég tekna eftir-
farandi tillögu:
„Bæjarstjórnin telur með
öllu óviðunandi, að heil bæj-
arhverfi búi daglangt við al-
geran skort á. neyzluvatni, og
ákveður því að fela borgar-
stjóra og bæjarráði að láta
nú þegar undirbúa nauðsyn-
legar ráðstafanir til úrbóta í
samráði við vatnsveitustjóra“.
Það atvikaðist þannig að ég
gat ekkj mætt á þessum fundi
og fært þau rök er ég ætlaði
fyrir tillögunni. Henni var
hins vegar vísað frá með svo-
hljóðandi dagskrártillögu frá
Guðm. H. Guðmundssyni, bæj-
arfulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
„Þar sem upplýst er að
þær ráðstafanir hafa þegar
verið gerðar, er tillagan gerir
ráð fyrir, tekur bæjarstjórnin
fyrir næsta mál á dagskrá'*.
Ákvarðanir í íimm
liðum
Mér er ekki kunnugt um
hver rök bæjarfulltrúinn hefur
fært fram fyrir þeirri staðhæf-
ingu, er fram kemur í dag-
skrártillögunni. Staðhæfingin
er hins vegar ósönn og fjarri
lagi, eins og þorri bæjarbúa
veit af reynslunni. Við bæjar-
fuiltrúar Alþýðubandalagsins
höfum því ákveðið að taka
málíð upp að nýju og flytjum
þá tillögu í vatnsveitumálum,
sem hér liggur fyrir.
Tillagan gerir ráð fyrir á-
kvörðunum bæjarstjórnar í 5
Iiðum: í fyrsta lagi að ráðinn
skuli sérstakur vatnsveitu-
stjóri, er hkfi það starf eitt
með höttdum. Hefur því áður
verið hreyft hér í tillögu-
formi, en var þá Iiindrað af
háttv. meirihluta. I öðru lagi,
að liraðað verði ráðstöfunum
til flutnings á auknu vatns-
magni til bæjarins. I þriðja
lagi að byggðir skuli nauðsyn-
legir vatnsgeymar og dælu-
stöðvar. í fjórða lagi, að
vatnsveitunni verði séð fyrir
nægum starfskröftum til und-
irbúningsstarfa að aukningu
vatnsveitukerfisins, Og í
fimrnta lagi, að hafin verði
gaumgæfileg rannsókn á öllu
vatnsveitukerfi gamla bæjar-
hltitans og það endurnýjað
þar sem nauðsyn bcr til.
Óviðundandi ástand
Það er engjn nýlunda að
vatnsveitumálin séu rædd hér
í bæjarstjóminni. Þau hafa
vissulega oft verið á dagskrá
á undanförnum árum og venju-
legast í sambandi við umkvart-
. anir . bæjárbúa um svo alvar-
iegan skort á neyzluvatni að
ekki varð við unað. Enn er
þetta ástand í meginatriðum
óbreytt, þrátt fyrir fullyrðing-
ar um hið gagnstæða í dags-
skrártillögu G. H. G. Víða í
bænum er alvarlegur skortur á
vatni, daglangt. Jafnvel heil
hverfi hafa ekki af vatni að
segja frá því snemma morguns
og þar til líður að miðnætti.
Þetta ástand i vatnsveitumál-
um Reykjavíkur er alveg óvið-
unandi að áljti okkar bæjar-
fulltrúa Alþýðubandalagsins og
Ræða Guðmundar
Vigíússonar á fundi
bæjaistjórnar í gær
ég ætla að þorri bæjarbúa sé
einnig sömu skoðunar. Það er
skylda bæjarstjómar að gera
þær ráðstafanir sem duga til
að bæta úr neyzluvatnsskortin-
um. Bæjarstjórnin getur ekki,
sóma síns vegna, horft á það
sljóum augum að íbúar höfuð-
staðarjns eigi þess ekki kost að
halda uppi nauðsynlegri starf-
semi og viðurkgnndum hrein-
lætirráðstöfunum á heimilum
sínum, vegna þess að þeim er
ekki séð fyrir rennandi vatni.
Fátæk og fámenn bæjarfélög
og þorp út um landið telja það
eina af frumstæðustu og sjálf-
sögðustu skyldum sínum að sjá
íbúunum fyrir neyzluvatni. Og
hvað skyldi þá um sjálfan höf-
uðstaðinn, þar sem fleira fólk
er saman komið en á nokkrum
stað öðrum og skilyrði til
framkvæmda og góðrar þjón-
ustu óneitanlega bezt? Getur
yfirstjórn hans unað við að
ekki sé leitað allra tiltækra
ráða til þess að ráða bót á því
ófremdarástandi, sem ár eftir
ár ríkir hér í vatnsveitumál-
um?
Eg hygg að allir geti verið
sammála um, að svara þess-
ari spumingu neitandi, með
þeim fyrirvara þó, að menn.
neiti ekki staðreyndum, og
það því fremur sem engin
Aeila stendur um, að það sé
í verkahring bæjarfélagsins
og bæjarst,iórnar að s.iá bæj-
arbúum fyrir neyzluvatni og
annasf framkvæmdir og
rekstur vatnsvcitunnar.
V
Sleifarlag og
sinnuleysi
Vatnsveitan er vissulega ein
af lífæðum bæjarins og það
var mikið framfaraspor sem
stigið var með lagningu henn-
.ar- fyrir 50 árum. Aðfærsluæð-
ar vatnsveitunnar gátu í upp-
hafi flutt 38 1/sek. Utanbæjar-
kerfið hefur þrisvar verið auk-
ið, 1923, 1933 og 1946—1948.
Eftjr fyrstu aukninguna fluttu
leiðslurnar 96 1/sek., eftir aðra
aukninguna 240 1/sek. og.eftir
þá þriðju 530 i/sek. Árið 1916
var byggður vatnsgeymir á
Rauðarárholti og annar 1930.
Rúmar hvor þeirra um þúsund
rúmmetra af vatni. Þegar farið
var að byggja á stöðum, sem
liggja hærra en vatnsgeymarn-
ir, varð að loka einni .aðalæð-
innj frá geymunum og nota
hana til að fæða þessi hverfi
beint frá Gvendarbrunnum
Við það minnkaði flutningsgela
þeirrar æðar um 50 1 /sek.
Varla verður því í móti mælt
með frambærilegum rökum, að
ótrúlegs sleifarlags og sinnu-
leysjs hafi lengst af gætt í
vatnsveitumálum bæjarins af
hálfu forráðamanna bæjar-
stjórnarmeirihlutans. Um það
er hinn sífelldi vatnsskortur ó-
rækasti vitnisburðurinn. Að
vísu hefur Sjálfstæðisflokkur-
inn kippst við af og til, einkum
fyrjr kosningar, en minna orð-
ið úr framkvæmdum eða efnd-
um á gefnum loforðum. Þegar
vatnsskorturinn hefur keyrt
svo úr hófi .að við það varð
alls ekki unað, hefur vatns-
rennslið til bæjarins verið auk-
ið, seint og síðar meir. En þær
framkvæmdir hafa alltof oft
takmarkazt við auknjngu vatns-
magnsins ejna saman, en van-
rækt að gæta þess að halda
innanbæjarkerfinu við og
auka það að sama skapi og í-
búum fjölgaði. Þetta hefur ver-
jð látið reka á reiðanum með
þeim afleiðingum, að nú eru
fjölmörg bæjarhveríi þannig á
vegi stödd í þessum efnum,
að mannskemmandi er og al-
gerlega óviðunandi, og ekki
sæmandi siðuðu fólki.
Þau hveríi, sem
verst eru sett
í þessu sambandi má einkum
nefna Landakotshæð, Laugar-
ásinn, hluta af Illíðunum, efsta
hluta Rauðarárholtsins, byggð-
ina við norðanvert Skólavörðu-
h'olt, suðurhluta Melanna og
Grímsstaðaholt. Vafal-aust gæt-
ir vatnsskorts á fleiri stöðum,
þótt þessi hverfi séu verst sett.
Þarf ekki að lýsa þeim erfið-
le.kum, andstreymi og leiðind-
um, sem fylgja því að hafa
ekki nægilegt vatnsmagn á
heimilunum til neyzlu og þrifn-
aðarráðstafana. Þá er og al-
kunna, að þegar bruna bera að
böndum fer slökkvistarf oft
mjög í handaskolum vegna
vatnsskorts. Eru um það nær-
tæk dæmi, sem óþarfi er að
rifja upp.
Þetta vanldræðaástand verð-
ur ekki afsakað þótt. hægt. sé
að benda á . að heildarvatns-
notkunin hafi mikið auk.zt á
undanförnum árum. Fyrirsjá-
anlegt var að svo hlaut að
verða í vaxandi borg, með
fjölgun íbúanna og aukningu
ýmiskonar atv.nnustarfsemi og
þjónustu, sem krefst mikillar
vatnsnotku.nar. Hér þurfti því
á fyrirhyggju og framkvæmda-
dug að halda, til þess að
tryggja íbúunum og .atvinnu-
rekstrinum nægllegt vatns-
rnagn.
Sérstakur
vatnsveitustjóri
En á þetta hefur skort og
liggja til þess ýmsar ástæður,
m. a. úreltir starfshættir vatns-
veitunnar sjálfrar. En höfuð-
sökin er hjá bæjarstjórnar-
meirihlutanum, sem hefur van-
rækt að hafa þá forustu um
framkvæmdir og skynsamlegan
Guðmundur Vigfússon
rekstur vatnsveitunnar sem er
fyrsta skilyrði þess að þjón-
usta hennar geti verið í lagi.
Það er t. d. alveg óhugsandi
að ætla að hafa yfirstjórn
vatnsveitumála« Reykjavíkur
sem hjáverkastarf, ýmist með
stjórn Hitaveitunnar eða
slökkviliðsins. Framkvæmdjr i
vatnsveitumálum eru svo að-
kallandi, margþættar og um-
fangsmiklar, að skipulagning
þeirra og stjórn er áreiðanlega
fullkomið verkefni eins manns,
og það jafnt þótt hann sé
gæddur góðum hæfileikum og
dugnaði í starfi.
Þetta á ekki sízt við eins og
nú er komið, þegar verkefnin
blasa hvarvetna við og brýn
nauðsyn er á rösklegu átaki á
sem skemmstum tima. Það er
því fyrsti liður í till. okkar Al-
þýðubandalagsmanna að ráð-
inn verði sérstakur vatnsveitu-
stjóri, sem hafi það starf eitt
með höndum, og að embættið
verði auglýst laust til umsókn-
ar.
Aukið vatnsmagn
Annar liður ti’.lögunnar í’all-
ar um ráðstafanir til flutnings
á auknu vatnsmagni til bæjar-
ins.
Ekki ætti að þuría að deila
uni, að þessum aðgerðum þurfi
að hraða, bæði uppsetn ngu
dælustöðvarinnar við Gvendar-
brunna, sem ráðgerð hefur
verið til .að auka vatnsrennslið
til bæjarins, og svo rannsókn-
um og nýjum ráðstöfunum t.l
aukningar á vatnsmagni í
framtíðinni. Verður i þessu
sambandi að hafa í huga, að
talið er að vatnsmagnið í
Gvendarbrunnum verði íullnot-
að í þurrkaköílum eft.r að
dælustöðin tekur til starfa.
Þetta þýðir að hraða þarf
rannsóknum og aðgerðum til
öílunar á auknu vatnsmagni,
er verði tiltækilegt þegar hð
ágæta vatn, er nú fæst úr
Gvendarbrunnum. fu'lnægir
ekki lengur þörfinni, og þær
aðgerðir þurfa að m/ðast við
hraðvaxandi borg og langa
framtíð.
Vatnsgeymar og
dælustöðvar
En með auknum vatnsflutn-
ingi til bæjarins og aukinni
vatnsþörf verður ekki hjá því
komizt að byggja vatnsgeyma
og dælustöðvar. Vatnsgeymarn-
ir á Rauðarárholti eru langt
frá því að vera fullnægjandi,
og hefur það verið augljóst
fyrir löngu, þótt framkvæmd-
ir hafi verið dregnar ár frá
ári. Og dælustöðvar er óhjá-
kvæmilegt að reisa til að
tryggja nægilegt vatnsrennsli
til íbúðarhverfa, sem reist eru
á hæðum og þá ekki sízt með
tilliti til háhýsanna nýju, sem
í byggingu eru eða fyrirhug-
uð.
Þessar framkvæmdir mega
ekki dragast, frekar en aðrar,
sem nú eru aðkallandi í vatns-
veitumálum, eigi að bæta úr
því ófremdarástandi, sem alltof
margir bæjarbúar búa við og
fer þó enn liraðversnandi sé
ékki að gert.
Starískraítar til
undirbúningsstarfa
Hitt liggur svo í augum uppi,
að um leið og bæjarstjórnin og
bæjarbúar gera kröfur til
vatnsveitunnar um auknar og
hraðari framkvæmdjr verður
að sjá stofnuninni fyrir nægum
starfskröftum til rannsókna og
undirbúningsstarfa. Hygg ég að
fram að þessu hafi ekki verið
búið sem skyldi að vatnsveit-
unni í þessum efnum, enda
er það í samræmi við sofanda-
hátt og aðgerðaleysi bæjar-
stjórnarmeirihlutans í vatns-
veitumálunum almennt.
Þessi stofnun bæjarins, sem
á þó .að sjá öllum bænum fyr-
ir nægu neyzluvatni, hefur t. d.
aðeins ejnn verkfræðing í þjón-
ustu sinni, auk vatnsveitustjór-
ans, sem jafnframt og fyrst og
fremst er þó slökkviliðsstjóri
bæjarins.
Nauðsynleg undirbúningsstörf
í sambandi við þau marg-
þættu verkefni, sem leysa verð-
ur á næstunni á vegum vatns-
veitunnar, verða ekki unnin
Framhald á 10. siðu