Þjóðviljinn - 31.12.1958, Blaðsíða 9
íþaróttablöð 24 landa haia valið
Herb. Elliot íþrcttamann ársins
Það er orðin viðtekin regla
að íþróttablöð víða um heim
velja íþróttamanna ársins, bæði
í einstakri grein og svo án
tillits til íþróttagreina. Þar sem
ekki verður komið við mæli-
tæki til að vega og meta af-
rekin, þegar valinn er íþrótta-
maður ársins án tillits til
greina, er ekki hægt að gera
samanburð sem fræðilega get-
ur staðizt. Valið í því tilfelli
verður þá oft tilfinningamál,
þannig að þar ræður skoðun
hvers og eins. Það er ekki
hægt að gerr. samanburð á
langstökkvara og kappaksturs-
manni, sundmanni og skíðam.
Sem sagt: Það verður hver og
einn að láta persónulegar skoð-
anir ráða og þá er það ekki
nema eðlilegt að menn skoði
afrekin í ljósi áhuga síns á
hinum einstöku iþróttagreinum.
Þetta val verður því meir til
gamans -sem góð dægrastytt-
ing heldur en að hægt sé að
slá neinu föstu um það, hvaða
afrek sé mest og bezt.
Nú rétt fyrir jólin segir
Sportsmanden frá því, að 24
íþróttablöð frá 24 löndum hafi
valið 5 menn hvert, sem þau
telja beztu íþróttamenn ársins
1958. Á lista þess koraa morg
nöfn sem flestum mun finn-
ast varla þessleg að koma með-
al 5 beztu manna, en samt sem
áður eru langflest nöfnin ein-
mitt þau nöfnin sem til greina
koma, hlutlaust. á litið.
Úrslitin úr valj blaðanna eru
þessi:
Herbert Elliot Ástral. 99 st.
Rafer Johnson USA 53 —
Jolin Konrads Ástral. 53 —-
Roger Ri\úere Frakkl. 36 —
Toni Sailer Austurr. 12 —
Amrin Hary Þýzkaland 11 —
Z. Krzyszkowiak Pólland 10 —
H. Pereira Didi, Brasil. 9 —
Ilsa Konrads Ástral. 7 —
Iolanda Balas Rúmenia 6 —
klike Hawthorn England 6 —
Hér fer á eftir val nokkurra
biaðia eða þau fimm nöfn sem
tekin eru með, og er byrjað
á landi íþróttama nns ársins,
Ástralíu. Lætur íþróttablaðið
The Sporting Globe í Melbourne
sig ekki muna um að hafa alla
fimm frá Ástralíu:
Herbert Elliot
Ashley Coo]w?r
John IConrads
Gary paonpman
Stuart Mc Kenzie
B'rasilíublaðið O Globo de
•^anero hefur Brasilíumann í
efsta sæti en það er:
H. Peréira Didi
Herbert Eliiot
Rafer Jöhnsön
John Konrads
Ercola Baldini
World Sport í Englandi:
Herbert Elliot
Knattspyrmrmeistarar
Brasiliu
John Konrads
Mike Hawtliom
Ray Bol>son
í ’Fráírklahdi er það stórblað-
ið L’Enuipe. í París sem velur
og hefur 2 Frakka meðal 5
beztu;
Herbert Elliot
John Konrads
Roger Riviere
Reymond Kopa
Tony Sailer
Iþróttablaðið La Prensa í
Mexíkó virðist ekki hafa sér-
lega mikinn áhuga fyrir frjáls-
Herbert Elliot
um íþróttum, því það gíeymir
Elliott; annars lítur listi þess
þannig út:
Roger Riviere
Rafer Johnson
Just. Fontaine
Mike Hawthorn
H. Pereira Didi
Austurþýzka íþróttablaðið
Dsutches Sport Eclio sleppir
einnig Herbert Elliott, og setur
Austur-Þjóðverja í efsta sæti:
Gustaf Adolf Schur
Iolanda Balas
Boris Schachlin
S. Kryszkowiak
Armin Hary
Pólverjarnir virðast sannsýn-
ir í valj sínu en það er Sport-
owiec í Varsjá sem velur:
Herbert Elliot
Z. Kryszkowiak
John Konrads
Roger Riviere
Sama er að segja um Banda-
ríkjablaðið Stars and Strlpes
sem velur eft.irfarandi:
Herbert Elliot
R'afer Johnspn .
John Konrads
Pele
Armin Hary
Fjögur Norðurlandanna eru
með í Vali þessu, (ísland ekki
með) og eru þau öll sammála
um að hafa. Herbert með. Aftur
á móti koma þau með vetrar-
íþróttamenn sem ömiur lönd
liafa. elriki komið auga. á.
IJusi Suomi í Finnlandi:
Herbert Elliot
John Konrads
Ilsa Konrads
Juhani Kárkinen
Rafer Johnson
I Svíþjóð er það Stockholms-
tidningen sem velur, og taka
þeir ekki með hinn snjalla
skíðamann Jernberg,:svo tæp-
ast verður þeim brugðið um
hlutdrægni:
Herbert Elliot
John Konrads
Toni Sailer
Rafer Johnson
Stirling Moss
Berlinske Tidende setur tug-
þrautarmannirui Rafer Johnson
efstan á sinn lista, sem annars
lítur svona út:
Rafer Johnson
Herbert Elliot
Garrincha
Armin Hary
John Konrads
Sportsmanden í Noregi velur
þessa fjóra menn:
Herbert Elliot
Z. Kryszkowisk
Rafer Johnson
Sixten Jernberg
Blaðið getur ekki lista fleiri
lancia, en rekur að síðustu
nöfn þeirra ,,heimsmeistara“
sem áður hafa verið valdir,
en þeir eru:
1947 Alx Jany Frakkland
Sund.
1948 Fanny IIlankers-Koen
Holland, frjálsar íþróttir.
1949 Emil Zatopek Tékkó-
'slóvakíu, frjálsar íþrótt.
1950 Bob Mathias Bandaríkin
frjálsar íþróttir.
1951 Emil Zatopek Tékkóslóv-
akíu, frjálsar íþróttir.
1952 Emil Zatopek Tékkóslóv-
akíu, frjálsar íþróttir.
1953 Fausto Coppi Italíu,
Hjólreiðar.
1954 Rogcr Bjannister Eng-
land, frjálsar íþróttir.
1955 Saiulor Iliaros Ungverja-
land, frjálsar íþróttir.
1956 Vladimir Kuts Sovétr.
frjálsar íþróttir.
1957 A'ladimir Kuts Sovétr.,
frjálsar íþróttir.
1958 Herbert Elliot Ástralía,
frjálsar íþróttir.
Miðvikudagur 31. desember 1958 — ÞJÓÐVIUINN
^ledilegt nýár!
Þökkum viðskiptin á liðna árinu
Tóbaksverzluhin London, Austurstræti 14
Gleftilegt nýár!
Þökkum viðskiptin á liðna árinu ,
Landsmiðjan
(9
iileðilegt nysir!
Þökkum viðskiptin á liðna árinu
Kron
tíleíHlegt nvár!
Þökkum viðskiptin á liðna árinu
Korkiðjan h.f.
iisleðilegt nýár!
Þökkum viðskiptin á liðna árinu
Kjötbúðin, Langholtsvegi 17
GleMegt nýár!
Þökkum viðskiptin á liðna árinu
Kjöt & grœnmeti
SUNDLETT
BJAKGHKINGIK — NETABAUJUR,
NÓTAFLAR
og altskonar PLASTFLOT til fiskveiða
i'yrirliggjandi.
Kristján Ö. Skagf jörð
hií.
Sími 21120 — REVKIAYÍK