Þjóðviljinn - 25.09.1959, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 25.09.1959, Blaðsíða 10
H) — ÞJÖÐlVILJINN — Föstudagur 25. september 1959 Ef ég hef gieymt einhverjum ... Framhald af 6 síðu Gligoric séu orðnir of gaml- ir, að Petrosjan tefli of var- lega í unnum stöðum, ' að Benkö kunni ekki að með- höndla klukkuna, að Tal sé of ungur, að Fischer hafi kvef, og ef — bætir hann við brosandi, um leið og hann lítur á Friðrik, — ef ég hef gleymt einhverjum, þá er hann líka lé!egur.“ Við Ikveðjum Keres og fáum okkur morgungöngu á póst- húsið með bréf gærkvöldsinsr Afgreiðslustúlkan segir, að það verði að opna bréfið, ef það á að sendast í ábyrgð. Við skrifum utaná nýtt um- slag. Sinn er siður í landi hverju. Þetta er ekki verra en að láta ritskoða bréf sín að sér forspurðum. Við höld- um heimleiðis. Hérlend kona hrópar á okkur á götunni og talar/ móðurmálið, en ekki þýzku eins og svo margir hér. Hún vill fá enn eitt nafn á kortið sitt. Þegar við segj- um henni á rússneSku, að þetta sé aðeins fréttamaður, sem hún er að tala við, þá svarar hún, að það skipti engu máli. Efst á kortinu stendur 3krifað: S. Gligoric, og vita- skuld eru það keppendur sjálf- ir, sem mest eru umsetnir til áritana. Konan talar heil ósköp, og kemur í ljós, að hún er frá Belgrad, eða Beo- grad, eins og hér er sagt. Það er furða hvað fólk getur skilið hvað annað, þótt ann- að hvort orð missi marks. Fólk hér er yfirleitt mjög vingjarnlegt við útlendinga, eins og raunar í öllum Aust- ur-Evrópulöndunum. Við kveðjum konuna og höldum heimleiðis. Vatnið er freist- andi til sunds og róðra, en skyldan kallar. ,5. umferð. 14. september. Petrosjan—Tal, */2—r/2 iBenlkö—Keres, 0—1 Gligoric—Smisloff, 1—0 Friðrik—Fischer, biðskák. Tal teflir Tarrachvörn geg:i Petrosjan og tekst 'honum á skemmtilegan hátt að jafna taflið. Eftir aðeins 12 leiki sjá keppendur, að frekari bar- átta er tilgangslaus og semja jafntefli. Benkö leikiih ehska leiknúni' gegn Keresi, Helzt löngum lík staða í skákinni, en Beníkö er óspar á umhugsunartíma sinn. Loks á hann aðeins mínútu eftir fyrir 10 leiki. Keres reynir þá að sjálfsögðu að flækja taflið. Benkö ratar enn á réttu leikina, en sek- úndurnar líða ein af annarri. Þegar svo örin fellur, er Benkö leikur 39. leik, kemur það engum á óvart nema honum sjálfum. Benkö á erf- itt með að sætta sig við tap 1 svipaðri stöðu. Heldur 'hann því fram, að klukkan sé ekki góð, og örin hafi fallið þrem til fimm sekúndum of snemma. Síðar eru mótmæli hans tekin til umræðu í dóm- nefnd, þar sem sæti eiga, auk skákstjóra, þeir Ragosin, Friðrik, Gligoric og Nedelkov- ic. En allt kemur fyrir ekki, Ðenkö verður að sætta sig við fyrsta tap sitt í mótinu. Gegn Gligoric velur Smisloff slavnes'ka vörn, en hann er einmitt talinn manna fróðast- ur í þeirri byrjun. Svo fer og, að honum tekst að fá gott tafl út úr byrjuninni, einkum vegna sterkrar stöðu riddara á miðju foorðinu. I miðtaflinu nær Smisloff síðan hættulegri peðasókn á drottn- ingarvæng, en Gligoric er ekki aðgerðalaus. Tekst honum á lúmskan hátt að fylkja mönn- um sínum til kóngssóknar. Báðir keppendur eru nú að komast í timaþröng. Smisloff verður að veikja stöðu peða sinna kóngsmeginn og gefa eitt til þess að afstýra fyrsta áhlaupinu. Staða hans mun þó enn vera betri, en mjög er erfitt að finna rétta vöm á svo skömmum tima. Brátt fat- as iSmisloff. Eitt af peðum óvinarins kemur hlaupandi frá fimmtu til sjöundu reitalínu og drepur riddara í leiðinni. Smisloff á nú líf óvinadrottn- ingariranar í hendi sér, en kýs þó þann 'kostinn að leggja niður vopn, að öðrum kosti mundi jný drottning hryðja borð hans. Allt ætlar um koll að 'keyra 'hjá áhorfendum, er hylla landa sinn, sem hafði farið svo illa af stað í mót- inu, en tókst nú að leggja frægasta andstæðinginn að velli. Friðrik undirbýr kóngssókn gegn Sikileyjarvörn andstæð- ingsins. Án verulegrar um- hugsunar fórnar Fischer skiptamun í 15. leik, til þess að ræna miðborðspeði, minnka athafnarsvið biskups andstæð- ingsins og veikja peðastöðu 'hans. Fljótt á litið virðist fórnin réttlætanleg, enn fleinn sá, sem Friðriki tdkst að reka í kóngsstöðu andstæðingsins litlu síðar, foendir til þess að fórnin hafi verið vanhugsuð. Verkefni Friðriks er þó engan veginn létt. Aðeins með frá- foærri taflmennsku tekst hon- um að skapa hótanir, sem smám saman þyngir lóð hans á vog sigursins. Loks þegar Fischer sér hvert stefnir, knýr hann fram drottningakaup og byggir sína veiku von um björgun á endataflinu. Framhald í næsta folaði. Leiðbeiningastarf Framhald af 3. síðu. inga, enda hafi bygging eigi haf- izt fyrir þann tíma. Þó skal einn- ig heimilt að veita lán þeim, sem hyggja eftir teikningum þeirra aðila annarra, sem nú þegar hafa hlotið viðurkenningu viðkomandi byggingarnefnda, enda verði þeir einnig samþykkt- ir af húsnæðismálastjóra sam- kvæmt tillögum tækninefndar“. Allt betta, sagði Halldór Hall- dórsson að lokum, miðar að því að í framtíðinni verði betur vandað til undirbúnings að hús- byggingum en verið hefur. Mohair—kjólar MARKADURIHN Hafnarstræti 5. Valdimar Björnsson flyur fyrirlestur um Vestur-íslendinga Valdimar Björnsson, fjármálaráðherra flytur fyrirlestur á vegum íslenzk-ameríska félagsins í Veitingahúsinu Lídó, næst kom- andi sunnudag — 27. september kl. 3 e.h. Húsið verður opnað kl. 2.30. Fyrirlestur Valdimars mun fjalla um Vest- ur íslendinga, viðhorf þeirra og samband við Islandj Aðgangur að fyrirlestrinum er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir. íslanzk-ameríska félagið. t Tilkynning til rafmagnsnotenda á orkuveitusvæði B Rafveitu Hafnarfjarðar. " ' Um næstu mánaðamét verður breytt til um W fyrirkomulag innheimtu rafmagnsreikninga \ þannig að álestur og innheimta hjá hverjum ^ notanda fari fram 6 sinnu á ári. í stað 12 W . ^ m smnum nu. Þannig verður um næstu mánaðamót að- eins lesið á og innheimt í suðurhluta bæj- arins, utanbæjar sunnan og austan hans. Um mánaðamótin okt/nóvember verður að- eins lesið á mæla og innheimt í vesturhluta bæjarins og utan bæjar vestan og norðan hans. Síðan verður álestur og innheimta annan hvern mánuð hjá hverjum notanda. Hjá stórum iðnfyrirtækjum og stofnunum verður þó óbreytt fyrirkomulag, frá því sem TBt ' nu er, Þeir sem þess óska, geta þó greitt mánaða- lega upp í reikning á skrifstofu rafveitunnar Hafnarfirði, 21. september 1959. Rafveita Hafnarfjarðar. Auglýsing um sveinspróf Sveinspróf fara fram í þeim iðngreinum sem löggiltar eru, í október/nóvember 1959-, . Meisturum og iðnfyrirtækjum ber að senda formanni viðkomandi prófnefndar umsóknir um próftökii nemenda sinna, ásamt venju- legum göanum og prófgjaldi, kr. 600.00, fyrir 6. október n.k. Reykjavík, 22. september 1959. Iðnfræðsluráð. Heilsuhæli N1.F.I. Vantar 3 starfsstúlkur, — Upplýsingar í skrif- stofunni. — Sími 32' ’ — Hy'éra^érði,1 •'l J1'1 í " K)l/G ÞILPLÖTUR Harðar þilplötur (masonine gerð) 3,5 mm. 4x9 fet. JÓN LOFTSSON H.F. 1 Hringbraut 121 — Sími 10600. ' v ‘W Umsjónarmannsstarf j Njarðvíkingar - ] Starf umsjónarmanns við foarnaskóla Ytri Njarðvík- ur er lapst til umsóknar. Umsóknir skulu foafa borizt fyrir 30. sept. n.lc, á slkrifstofu Njarðvíkurhrepps Þórustíg 3, Ytri Njarð-. vik. — Upplýsingar um starfið veitir sveitarstjóri, Sveitarstjórinn í Njarðvíkurhreppi, .. 'U JÓN ASGEIRSSON. * J

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.