Þjóðviljinn - 18.11.1959, Page 12

Þjóðviljinn - 18.11.1959, Page 12
Svavar Guðnason með eitt af elztu málverkum sínum og eitt hið nýjasta. — Sjá 3. síðu. Vökuíhaldið fékk vilja sínum framgengt: Ekki má minnast á landhelgis- málið og herstöðvamálið í há- tíðahöldum stúdenta 1. des. Almennur stúdentafundur var haldinn í Háskólanum síðdegis á mánudaginn. Var þar rætt um ágreining þann, sem varð í stúdentaráði vegna undirbúnings hátíðahald- anna 1. des. n.k. Meirihluti stúdentaráðs, íhald og kratar, lögðu til, að dagurinn yrði sérstaklega helgaður efnahagsmálunum og aðalræðumaður dagsins yrði „fræðimaður á sviði efnáihagsmála". Höfðu þeir sam- þykkt þetta í stúdentaráði (með 5 atkvæðum gegn 4). Minnihlutinn fékk þá vísað málinu til almenns stúd- entafundar, og var hann haldinn s.l. mánudag sem fyrr segir. Vinstri menn í stúdentaráði lögðu hins vegar til, að dagur- inn yrði nú sem áður helgaður sjálfstæðisbaráttu íslenzku þjóð- arinnar og þá sérstaklega land- helgismálinu og hernámsmálinu. Hefði það verið mjög vel til fall- ið að helga 1. des. þessum mál- um, ekki sízt með tilliti til þess, að snemma á næsta ári verður háfdin alþjóðaráðstefna, sem að öljum líkindum tekur mikilvæg- ar ákvarðanir í sambandi við landhelgismál almennt. Og í sam- bandi við landhelgisdeiluna hefur fíestum skilizt hvers eðlis sú ^vernd" er, sem hið bandaríska hernámslið veitir okkur. Á stúdentafundinum tóku fyrst- ir iíil máls Jóhann Gunnarsson. ritari stúdentaráðs og Kristinn Kristmundsson, stud mag. Röktu þeir gang þessa máls í stúdenta- ráði og gerðu glögga grein fyrir sjónarmiðum vinstri manna. Þá talaði Árni G. Finnsson, formað- ur stúdentaráðs af hálfu íhalds og krata, en næstur kom í pont- Nóg er komið af kjarnavopnum Stjórmálanefnd SÞ sam- þykkti í gær írska ályktunar- tillögu þess efnis að ekki bæri að leyfa fleiri ríkjum að eign- ast kjarnavopn en þegar hefðu þau. Væntanleg er önnur til- laga frá Araba- og Asíuríkj- um ásamt Júgóslavíu, þar sem skorað er á kjarnorkuveldin að framlengja stöðvun kjarna- tilrauna og sérstaklega skorað á Frakka að hætta við sínar fyrirhuguðu tilraunir. una Ólafur Egilsson, stud. jur. Bar hann fram dagskrártillögu um að slíta umræðum og vísa málinu aftur til stúdentaráðs. Óttuðust íhald og kratar sýni- lega almennar umræður um mál- ið, þar sem þeir gripu til þess að bera fram frávísunartillögu strax að loknum framsöguræð- um deiluaðila og áður en almenn- ar umræður hæfust. Morgunblað- ið reynir í gær að breiða yfir þetta og segir, að tekizt hafi allmiklar umræður um málið að lokinni ræðu Árna G. Finnsson- ar. Þessar „allmiklu umræður“, sem Mogginn segir frá er ræða Ólafs Egilssonar, en hann flutti frávísunartillögu í formi rök- studdrar dagskrár og var um- ræðum þar með lokið. Tilgang- ur ilialdsins með þessu var að sjálfsögðu að koma í veg fyrir almennar úmræður fundarmanna og útiloka þá, sem þegar voru á mælendaskrá frá því að láta álit sitt í ljós. Rökstudda dagskráin var síð- an samþykkt með 106 atkvæðum gegn 66. íhaldið fékk þannig Framhald á 3. síðu. þlÓÐVIUINN Miðvikudagur 18. nóvember 1959 — 24. árgangur — 253. tölubl. H. C. Branner flytur fyrirlestur í háskólanum á fimmtudagskvöld í gærkvöld las hann upp úr verkum sínum á fundi í Dansk-íslenzka félaginu Hingaö til lands er kominn danski rithöfundurinn H.C. Branner og flytur hann fyrirlestur í háskólanum annaö' kvöld fyrir almenning. H. C. Branner er einn kunnasti núlifandi rithöf. Dana, eink- um er hann frægur fyrir smá- sögur sínar, en eftir styrjöldina hefur hann ritað skáldsögur og leikrit, sem hafa vakið mjög mikla athygli. Eins og áður var sagt, er Branner kominn hingað í boði Dansk-íslenzka félagsins og átti hann að lesa upp úr verkum sínum á fundi, sem félagið efndi til í til- sfni af komu hans í Þjóðleik- hússkjallaran- um í gærkvöld. Á fimmtudag mun Branner \ hins vegar flytja &*•'''' Eyrirlestur fyrir almenning í há- skólanum. Hefst hann kl. 8,30. GnMar Álfur Jónssou látinn taka á sig alla sök af skoðananjósnunum! Röggsemi félagsmálaráðherra — fyrir og eftir kosningar Eins og skýrt var frá í blað- inu í gær hefur félagsniálaráðu- neytið komizt að þeirri niður- stöðu að réttarrannsókn sú sem hafin var gegn tvéimur meðlim- um húsnæðismálastjórnar, Hann- esi Pálssyni og Sigurði Sig- mundssyni, hafi ekki „gefið til- efni til frekari aðgerða“ og taki þeir því upp störf að nýju. Ýms- um mun þykja þetta kynleg niðurstaða eftir að lögð hafa verið fram sönnunargögn um pótitískar njósnir Hannesar Páls- sonar í sambandi við umsóknir um lán til ibúðabygginga. Skýrinein er sú að í réttar- rannsókninni tók fulltrúi Hann- esar á Selfossi, Gunnar Álfur Jónsson, á sig alla sök á njósn- unum. Lýsti Hannis yfir því við rannsóknina að sér hefði aldrei til hugar komið að grennslast fyrir um stjórnmálaskoðanir manna; aðeins hefði hann viljað fá að vita um efnahag þeirra og aðstæður! Gunnar Álfur lýsti yfir því að hann hefði tekið al- gerlega upp af eigin hvötum að senda upplýsingar um stjórn- málaskoðanir umsækjenda og hefði enginn maður orðað slíkt við sig! Og Þráinn Valdimars- son, framkvæmdastjóri Fram- sóknarflokksins, staðfesti fram- burð beggja, og reyndust þeir þremenningarnir mjög vel sai%<- Framhald á 3. síðu Mun hann þar ræða um skáld- skap og raunveruleika. Þetta verður eini fyrirlesturinn, sem Branner heldur hér að þessu sinni, en hann fer héðan aftur á laugardag. í viðtali við fréttamenn í gær sagði Branner, að það væri erf- itt að þýða bækur sínar á önn- ur mál. Verk eftir hann hafa þó verið þýdd á öll Norðurlanda- málin nema íslenzku og einnig á fjölda annarra mála, svo sem ensku, þýzku, hollenzku o. fl o. fl. Leikrit hans hafa einnig verið leikin í mörgum löndum og vakið mikla athygli. Branner hefur auk sjónleikja samið nokkur leikrit fyrir danska útvarpið og leikrit eftir hann hafa einnig verið flutt í sjónvarpi, þótt hann hafi ekki samið leiki til sjónvarpsflutn- ings. Branner vildi 'fátt segja um þau verkefni, er hann hefði nú á prjónunum, en gat þess þó, að hann væri m. a. með leikrit í smíðum. Hann vildi hins vegar engar upplýsingar gefa um efni þess að svo stöddu, sagði að það setti eftir að taka svo miklum breytingum í sköpuninni. Adenauer fálega tekið í London Fáir urðu til að taka á móti Adenauer, forsætisráð- herra V-Þýzkalands, þegar hann kom til Lundúna í gær. Þó hafði dálítill hópur manna safnast saman fyrir utan Viktoríubrautarstöðina, en þeir hrópuðu að honum ókvæð- isorðum og sögðu honum að snáfa heim aftur. Adenauer rædldi við Macmillan og Sehy- yn Lloyd í gær. Hann verður 3 daga í London. Mikojan hefur stutta viðdvöl é íslanc’i Mikojan brá oft fyrir sig gam- ansemi í viðræðum við íslend- ingana sem tóku á móti honum. (Ljcsm. Sig. Guðm.) Framhald af 1. síðu. frábærri kappakstursbraut, skautahöll, já heilli iþróttamið- stöð. Áður höfðu Alexandroff og Gylfi skýrt Mikojan frá að ís- lenzka nefndin á þingi SÞ hefði lýst ánæg'ju fslendinga yfir af- vopnunartillögum Krústjoffs. Kjötát þar og hér Eftir stutta dvöl innivið var farið út og ekið niður í Keflavík. Gylfi var í bil með Mikojan. Ekið var fram og aftur um bæinn, en ekki farið út. Þegar komið var upp á flug- völl aftur. gengu menn um úti og ræddust við. Mikoian spurði um lífskjör íslendinea. Gylfi kvað þau ein hin beztu í heimi og nefndi sem dæmi, að íslend- ingar borðuðu meira kjöt á nef hvert en Bandaríkjamenn. Mik- ojan sagði þá, að úr því að fs- landi hefði tekizt að fara fram úr Bandaríkjunum á þessu sviði, ætti Sovétríkjunum, sem væru þó nokkuð stærra ríki, ekki að verða skotaskuld úr að ná því marki að fara fram úr Banda- ríkjunum á öllum sviðum. Kortér fyrir tólf kvöddu Mik- ojan og förunautar hans og silf- urgljáandi flugvél beirra hóf sig á loft á ný á leið til Gander. Gömul byltingarhetja Anastas Mikojan er 65 ára gamall og af armenskum ættum. Hann var settur i prestaskóla á unga aldri, en sneri sér fljótt að siórnmálastarfsemi í Bolsévika- flokknum. Á árum borgarastyrj- aldar og ihlutunarstyrjaldanna eftir byltinguna stóð hann fram- arlega í baráttunni í Kákasus og slapp nauðulega þegar brezkur innrásarher tók af lífi 25 aðra forustumenn bolsévika í Bakú. Mikojan hefur átt sæti í sovét- stjórninni síðan 1926, í miðstjórn Kommúnistaflokks Sovétríkjanna siðan 1925 og í forsætisnefnd miðstjórnarinnar síðan 1935. Mikojan er maður lágvaxinn og samsvarar sér vel, hvatlegur og beinn í baki. Hár hans er ekki mjög farið að grána, augun eru smá og fjörleg. Andlitsfallið er mjög armenskt, hörundsliturinn dökkur. nefið þunnt og íbjúgt. Honum liggur lágt rómur. Hann er mjög yfirlætislaus og vingjarn. legur en þó ákveðinn í fram- göngu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.