Þjóðviljinn - 24.12.1959, Page 1
Jón minn góður.
Það er nú orðið svo langt um
liðið, síðan ég hef sent þér
línu, að þú ért líklega búinn að
gleyma mér, eða ert kannske
farinn að halda að ég sé dauð-
ur. Svo slæmt er það nú ekki,
því það sannast á mér, sem eitt
sinn var kveðið um Jónas læri-
meistara minn frá Hriflu: Það
lifir lengst sem mönnum hvim-
leiðast er.
A ð ventuhugleiðingar
□-----------------------
Að þessu sinni mun ég þó
bregða út af venju og láta nið-
ur falla allan fréttaflutning
hér að norðan. Bæði er það að
hér gerist fátt fréttnæmt og
svo hitt, að sveitungar mínir
velflestir gleðjast næsta lítið,
þótt þeir fái fyrir mitt tilstilli
að komast í blöðin. Eg býst við
að það stafi aðallega af því, að
ég hef ekki komizt upp á lag
með að segja fréttir með sama
orðavali og Tíminn notar í sin-
um dálkum. En bændur eru
yfirleitt formfastir og vilja
þjónuðu fyrir altari og í pré-
dikunarstól, minntu einna helzt
á presta sem hefur verið fengið
það ömurlega hlutskipti, að
búa dauðadæmda menn undir
aftöku. Ekki verður annað sagt
en að kennilýður þessi hafi
rækt skyldur sínar sem slíkur
af mikilli samvizkusemi. Þeg-
ar réttlætinu hefði verið full-
nægt og glæpamennirnir, það
er að segia fólkið sem í land-
inu býr, hefðu tekið út refs-
ingu, myndu þeir lifa i miklum
fögnuði og mikilli velsælu, í
því himnaríki, sem ríkisstjórn-
in myndi skapa, eftir að rétt-
lætinu hefði verið fullnægt.
Hver var glcepurinn?
□-----------------------
Og hver var svo glæpurinn
sem þjóðin hafði framið og hún
hlaut nú að þola dóm fyrir? Jú,
hún hafði étið of mikið á und-
anförnum árum, það var allt
og sumt.
Lögmál kapítaliskrar hag-
fræði er nefnilega svo neyðar-
legt, að samkvæmt því er það
Skúli GuBjónssort:
Jólabréf að norðan
hafa allt í sama sniðinu.
í þess stað mun ég hripa nið-
ur nokkrar sundurlausar að-
ventuhugleiðingar, ef ske
kynni að þær mættu verða þér
og öðrum, er lesa vildu, til
nokkurrar uppbygg'ingar á hin-
um komandi jólum.
Aíessan mikla
□---------------:-------
Mér verður þá fyrst í hug
efnahagsmessan mikla, sú er
mér skilst að framin hafi verið
að tilhlutun ríkisstjórnarinnar
liinn fyrsta dag þessa mánaðar,
og mun vera lengsta messa,
sem útvarpað hefur verið á ís-
landi, því hún hófst með virki-
legri efnahagsguðsþjónustu kl.
11, að morgni, og stóð óslitið
allan daginn og endaði með
flimtan kl. tíu að kvöldi.
Það fer ekki hjá því, að þessi
mikla messa hafi meiri áhrif á
jólaskap manna en allt annað
sem sagt verður fyrir og ufn
þesisi jól. Venjulegt guðsorð,
jólasálmar og góðar bænir fá
þar engu umþokað. Messan
mikla, þann fyrsta desember,
yfirgnæfir allt.
7 því himnaríki . . .
□-----------------------
Eg hafði að vísu ekki tíma,
og raunar ekki vilja heldur, til
þess að hlusta á þessa miklu
messu frá upphafi til enda. En
það var sama hvenær skrúfað
var frá útvarpinu, hvort það
var að morgni, kvöldi, eða um
miðjan dagt Alltaf hljómaði
sami boðskapurinn. Þessi kap-
ellán ríkisstjórnarinnar, sem
alveg skaðlaust, að nokkrir
einstaklingar hafi meir en til
hnífs og skeiðar og safni ýstru.
En ef allir taka- upp á því að
éta meir en þeir þurfa og klæð-
ast eins og heldri menn, þá ríð-
ur þjóðfélagið til falls og hag-
fræðingar þess sjá fram af
brúninni og tala um að komin
sé óðaverðbólga.
Ef öllum umbúðum og vífi-
lengjum er flett utan af boð-
skap efnahagsmessunnar miklu,
er hann í stuttu máli þessi:
Hinir fátæku eru ekki
nógu fátækir og hinir ríku
eru ekki nógu ríkir. Þetta
verður að snúast til réttrar
áttar, annars er ekki liægt
að Iialda þjóðfélaginu gang-
andi.
Fróm ósk
□-----------------------
Þetta er jólaboðskapur ís-
lenzkra valdhafa á því herrans
ári 1959, sömu mannanna, sem
flest orð höfðu um jólagjöfina
fyrir aðeins þrem árum.
Er nú mál að linni um sinn
hinum efnahagslegu hugleið-
ingum og víkja til hinna and-
legu málanna, enda betur við
hæfi liinnar komandi jólahátíð-
ar.
Aðeins skal því við bætt, að
ég vil þá frómu ósk frambera,
að ríkisstjórnin okkar geri ekk-
ert það sem hún þarf eftir að
iðrast og sem gæti orðið henni
til áfellingar á dómsdegi.
Minna en einn heill
□-----------------------
Eg heyri sagt að þið Þjóð-
viljamenn hafið gert ykkur það
til dundurs á fyrsta sunnudag
í aðventu, að ganga í kirkjur og
telja kirkjugesti og síðan birt
niðurstöður talningarinnar í
blaðinu, og niðurstaða rann-
sóknarinnar var sú, að mér
skilst, að ef um sambærilega
kirkjusókn væri að ræða hér í
minni sókn, ætti fjöldi kirkju-
gesta að vera eitthvað minna
en einn heill, og stöndum við
sveitamenn ykkur Reykvíking-
um framar að kirkjurækni, sem
í ýmsu öðru.
Grunur minn er reyndar sá,
að hinum prestvígðu hafi ekki
meir en svo getizt að þessari
framtakssemi ykkar, og það
því fremur sem flestir prestar
munu ala í brjósti sér ugg um
það að léleg kirkjusókn muni
vera talin álitshnekkir fyrir
þá sjálfa.
Kirkjusókn þarf þó ekki að
vera neinn algildur mælikvarði
á gæði' prestsins. Margt annað
kemur þar til greina.
En það er annað, sem marg-
ir prestar flaska á, í sinni virð-
ingarverðu viðleitni að auka
trú íólksins.
Þeir eru í prédikunum sínum
sífellt að stagla og nudda um
trúleysi annarra. Þetta getur
sjálfsagt hljómað sem góð lat-
ína í eyrum þeirra sem telja
sig sterka á svellínu. En gagn-
vart hinum, sem eru nú veikir
í trúnni, er þetta til hreinnar
bölvunar. Þeir taka þessar
sneiðar um trúleysi til sín og
forherðast bara og koma úr
kirkju, eða frá útvarpinu, verri
menn en þeir áður voru.
Þung byrði á ungar herðar
□-----------------------
Eg sem er eins og bæði guð
og menn vita einn hinna lítil-
trúuðu, skal segja eina sögu af
sjálfum mér þessu til sönnunar.
Fyrir rúmu ári var ég við
fermingarguðsþjónustu í
Reykjavík. Mér fannst athöfnin
öll hin hátíðlegasta og ferm-
ingarræðan var svo yndisleg,
að ég fór að verða svolítið
heilagur innvortis.
Undir lokin fór svo prestur-
inn að telja upp ýmsar hættur
og freistingar sem bíða myndu
ungmennanna á lífsleiðinni og
vara þau við, og enn var ég
með á nótunum, sízt af öllu
var þó vanþörf á að vára bless-
uð börnin við freistingum lífs-
ins.
Að síðustu sagðist svo prest-
urinn ætla að vara þau við
einu, sem væri þó verra og
hættulegra en allt annað sem
áður var upptalið. Hann ætlaði
að biðja þau að forðast stjórn-
málaflokka, sem ekki tryðu á
guð. Nöfi^ vildi hann engin
nefna. Blessuð börnin áttu af
brjóstviti sínu að þekkja þessa
stjórnmáhíflokka og læra að
forðast þá. Og var þar með
mikil ábyrgð lögð á ungar
herðar, og hefði ekki mátt ætl-
ast til minna en að presturinn
birti nöfnin, börnunum til við-
vörunar, þegar svo mikið var í
húfi.
Trúir nokkur
stjórnmálaflokkur á guð?
□---------------------—
Eg hrökk við og allur heilag-
leiki hvarf mér í einni svipan
og spurningarnar ruddust fram
í huga minn.
Trúir nokkur stjórnmála-
flokkur á guð?
Og eru ekki til í öllum stjórn-
málaflokkum menn, sem eru
sannfærðir um tilveru guðs,
aðrir, sem telja hana sennilega,
enn aðrir sem efast, og kannske
einhverjir, sem afneita henni
alveg?
Og nær það yfirleitt. nokk-
urri átt, að" meta mannkosti
mannal og dyggðir eftir þvl
hvort þeir eru mikið eða lítið
sannfærðir um tilvist æðri
máttarvalda?
Og hver er svo þess umkom-
inn að mæla trúarstyrk manna?
Og enn fleiri spurningar munu
hafa komið í hug minn, þar
sem ég sat í kirkjunni í Reykja-
vík, eftir að hin furðulegu orð
prestsins bárust mér að eyrum.
Kötturinn — það er ég
□-----------------------
Og sem ég sat þarna í kirkj-
unni og hugleiddi það sem ég
hafði heyrt, flaug mér í hug
atvik, sem gerðist fyrir mörg-
um árum.
Við vorum á ferð inn sveit-
ina margir strákar og stóðum
á bilpalli, en gömul kona sat
frammí hjá bilstjóranum. Hjá
einum bænum kallaði bílstjór-
inn út, um leið og hann stöðv-
aði bilinn: Kastið þið kettinum
af! Gamla konan tók þetta bók-
staflega og sagði: Eruð þið
virkilega með kött á bílnum?
En þá gall við minnsti strákur-
inn og sagði: Kötturinn, það er
ég! Hann átti þarna heima.
Og ég sagði við sjálfan mig,
þarna í kirkjunni: Kötturinn,
það er ég. Blessaður presturinn
er auðvitað að meina bölvaða
kommúnistana, þegar hann tal-
ar um trúlausa flokka.
Það er nefnilega svo skrítið,
að það þykir fínt, þegar betri
borgarar eiga í hlut, að vera
trúlaus og enda látið óátalið.
En kommúnistarnir, þeir skulu
trúlausir teljast, hvað sem taut-
ar og raular, hvort sem þeir
vilja það eða ekki.
Guðspjöil og kalkleysi
□-----------------------
Svo bar til á einum vetri, um
það leyti sem ég var nýlega
Framhald á 14. síðu^