Þjóðviljinn - 03.03.1960, Síða 9
Fimmtudagi> 3. marz 1960 — ÞJÓÐVILJINN — (ð
iTT:
KS
1.
iÉ
nii!
cc
KiEl
g!,-2i|Uu5!
S . B
i 333
e§
'sss.
ÉS
£i
3:
uu:
nrng
§í|
£S
i
S2H
£r=
ci=;
SP!
m
Ritstjóri: Frímann Helgason
„Eriitt að fccnia á landsleifci*-
um hér meðcixi hús er ekki til"
„En við verðum að bua okkur undir það sem framund-
an er: HM næsta vetur6í, segir Asbjörn formaður HSÍ
Sundmót Ægis í Sundhöllinni á mánudagskvöld:
Þrjár stúlkur undir íslandsmetinu í 100
metra bringusundi . .
Nokkur blaðaskrif hafa orð-
ið um æfingar liðs þess, sem
valið var í desember af hand-
knattleikssambandinu til þess
að taka þátt í æfingum, ef til
þess kæmi að ísland þreytti
landsleik eða landsleiki í vet-
ur. Stjórn handknattleikssam-
bandsins hafði viðtal við
íþróttafréttamenn á sínum
tíma, þegar liðið var valið og
þá skýrði hún frá því að sam-
bandið væri að vinna að því að
ná sambandi við V-Þýzkaland
um landsleik, og yrði svarið
jákvætt væri ætlunin að ná
sambandi við tiltekin lönd önn-
ur og efna þá til keppnisfar-
ar íslenzka landsliðsins. Síðan
hefur ekki heyrzt frá stjórn
handknattleikssambandsins, —
Irvernig þetta mál stendur.
1 tilefni af þessum umræðum
og eins til að fá vitneskju um
það, hvernig málin við Vestur-
Þýzkaland standa sneri íþrótta-
síðan sér beint til formanns
HSÍ, Ásbjörns Sigurjónssonar,
og spurði hvað væri að frétta
um landsleik við V-Þjóðverja.
— Því miður er ekkert af
því að frétta, sagði Ásbjörn,
nema það að' Þjóðverjar hafa
ekki svarað okkur þrátt fyrir
ítrekanir með bréfum og skeyti.
Okkur er að vísu ljóst, að við
eru lágt skrifaðir hjá þeim
á meðan við höfum ekki stærra
hús að bjóða þeim uppá hér en
Hálogaland. Það er sama sag-
an með Áustur-Þjóðverja, þeir
vilja ekki leika í svo litlu
húsi eins og við höfum. Því
má líka bæta við að Danir
sögðu við mig nú í haust þeg-
ar ég var úti að það yrði ekki
um að ræða að landsliðið
danska kæmi hingað til lands-
keppnj (innanhúss) að
óbreyttum aðstæðum og væri
það sama um finnska landslið-
ið að segja. Það virðist því
vera ómögulegt fyrir okkur að
koma á gagnkvæmum sam-
skiptum í handknattleik á með-
an ekki er til stærra hús hér
í Reykjavík.
Hvernig æfa handknattleiks-
mennimir sem valdir voru
í vetur til æfinga?
Æfingar drógust nokkuð eða
MUNIÐ
Kaffisöluna
Hafnarstræti 16.
þar til í miðjan febrúar, þá
var hafizt handa með þær og
boðaðir til þeirra 16—18—23
og 25, en leikmenn hafa mætt
illa eða 7 flestir en oftast 2-3.
Það hefur heldur ekki verið
hægt að ná þeim saman til
fundar til umræðna um æfing-
arnar og annað sem þetta
snertir.
Var ætlunin að allir gengju
undir þolreynslu og voru fengn-
ir sérstakir tímar til þess und-
ir stjórn Benedikts Jakobsson-
ar.
— Því hefur verið haldið
fram að þið hafið ekki boðað
til æfinganna á formlegan
hátt, eða hver er venja ykk-
ar í því efni?
— Þegar við veljum menn
til æfinga, er það venjan að
við skiptum því á okkur í
stjórninni að skýra mönnum
frá því, að þeir hafi verið
valdir og hvenær æfingamar
verða. Fram að þessu hefur
áhuginn verið það mikill að
þetta hefur verið nóg.
Mönnum hefur þótt það vera
viss heiður sem þeim hefur
hlotnazt að vera valinn til þess
að taka þátt í æfingum sein
hugsanlegir landsliðsmenn síð-
ar.
Við í stjórninni vinnum þessi
störf okkar sem áhugastarf og
teljum að leikmenn eigi ekki
síður að sýna áhuga fyrir
handknattleiknum, sýna áhuga
á því að mæta til þeirra æfinga
sem þeir eitt sinn hafa fengið
tilkynningu um að fram eigi að
fara og auglýstar eru í blöð-
um. Að boða æfingar með
bréfaskriftum kemur ekki • til
mála, til þess höfum við engan
tíma, og ætti slíkt að vera
ástæðulaust, ef áhugi er fyrir
hendi að komast í landsliðið.
Hitt er svo annað mál, að
þegar landsliðið hefur endan-
lega verið valið, er þeim leik-
mönnum sem valdir hafa verið
sent bréfleg tilkynning um það,
og verður svo gert í framtíð-
inni.
Varðandi „Kandidat no. 18“
vildi ég segja, að hann mætti
vSvo gjarnan komast í stjórn
HSl, því að þá mundi hann
sennilega verða vægðarlausar
notaður til þess að annast
þessa dekurstarfsemi sem hann
vUl innleiða meðal handknatt-
leiksmanna.
— Hvað með æfingar karlr
anna í framtíðinni?
— Það er mtn skoðun að ef
við ætlum að taka þátt í hand-
knattleiksmeistaramóti í marz
næsta ár þá verður nú þegar
að fara að undirbúa það sér-
staklega, og þá má ekki vera
minna en ein sérstök æfing í
viku fyrir þetta. I sumar verð-
ur svo lialdið áfram og hert
á því þegar hausta tekur.
Eitt ár er fljótt að líða og
við verðum að gera allt sem
í okkar valdi stendur til þess
að senda eins sterkt lið og
mögulegt er, og þess vegna ber
að leggja áherzlu á grunnþjálf-
un mannanna til að byrja með
og herða síðan á.
— Hvernig æfa stúlkurnar?
-— Þær æfa mjög vel undir
handleiðslu Péturs Bjarnason-
ar og Benedikts Jakobssonar,
en í landsliðsnefnd kvennanna
eru Valgeir Ársælsson, Axel
Sigurðsson og Pétur Bjarna-
son. Stúlkurnar mæta mjög vel
á æfingar og er um miklar
framfarir að ræða hjá þeim.
- Sundmót Ægis fór fram á
mánudagskvöldið og var þátt-
taka góð og árangur 'i sumum
greinum mjög góður. Kom það
fram þegar í fyrstu keppninni
200 m bringusundi karla. Þó
ekki væri sett met í þeirri
grein var þó um hreint met að
að ræða, hvað snertir al-
mennan árangur hinna 4 sem
lu'ku keppninni. Sigurvegari i
sundinu varð Einar Kristinsson
og vann hann einnig styttu þá
sem um var keppt til eignar,
þar sem hann hafði unnið hana
tvisvar í röð áður, og var
Enar nú betri en nokkru sinni
fyrr, Tími hans er annar bezti
tími Islendings á 200 m, en Sig-
nrður Þingeyingur á metið
2.42,6. Þeir syntu saman Guð-
mundur Gíslason og hann og
var keppnin hörð, og hefur
Einar sýnilega lagt hart að
sér að láta styttuna ekki sér úr
greipum ganga. Tími Guðmund-
ar er þriðji bezti tími íslend-
ings. Þriðji varð Sigurður Sig-
urðsson frá Akranesi og var
tími lians fjórði bezti og
fjórði maður keppninnar
Guðmundur Sumarliðasoon
frá Akranesi var á fimmta
bezta tíma sem Islendingur hef.
ur náð! Hörður Finnsson varð
fyrir því óhappi að svelgjast
svo illa á að hann varð að
hætta, en hann var þá fyrstur
í sundinu.
Tímarnir voru mjög góðir og
er engin einstök sundgrein með
svo marga toppmenn.
Það virðist því sem þess verði
ekki langt að bíða að þessi
,,breiða“ sókn að meti Sigurð-
ar leggi að velli met, og eru
þar margir líklegir.
Hrafnhildur betri en nokkru
sinni.
Þá var 'keppnin I 100 m
bringusundi mjög skemmtileg
og allar stúlkurnar sem kepptu
syntu undir íslandsmeti! Hrafn-
hildur Guðmundsdóttir átti
gamla metið og hún var einnig
sú sem fór mest undir metinu
eða tæpar 3 sek., og er það vel
gert. Hinar sem syntu með
henni voru Sigrún úr Hafnar-
firði og Ágústa Þorsteinsdóttir,
og var árangur þeirra líka góð-
ur. Sigrún er alltaf í sókn og
Ágústa, sem hefur ekki gert
bringusund að neinu sérfagi,
sýnir að hún er snjöll og fjöl-
hæf sundkona.
Hrafnhildur Guðmundsdóttir
hefur aldrei komið svo vel und-
irbúin til sunds og í þetta sinn.
Hún er greinilega í mjög góðri
þjálfun. Það kom líka fram í
50 m skriðsundinu sem hún
synti síðar. Viðbrögð hennar og
sundtök voru með miklum meiri
hrafti en áður, og sannarlegá
hefur hún ekki sagt síðasta orð
sitt um sundmet kvennanna.
Árangur Guðmundar Gísla-
sonar i 50 m skriðsundi var á-
jgætur, þar sem hann jafnaði
met sitt, og það var engin til-
viljun því að hann synti ná-
kvæmlega á sama tíma í boð-
sundinu, sem var lokakeppni
mótsins.
Hann synti einnig 400 m
skriðsund, og var tími hans
góður, þó að hann væri 10 sek.
lakari -en met hans er. Hörður
Finnsson synti með honum, en
Guðmundur fékk ekki þá keppni
af honum sem til þurfti, enda
mun Hörður vera óvanur að
synda svo langar vegalengdir.
Ungir efnilegir menn
á ferðinni.
Á móti þessu voru mörg
unglingasund og mörg þeirra
skemmtileg og jöfn. Þar má
lí'ka sannarlega sjá menn sem
brátt ættu að verða meðal
beztu sundmanna okkar, ef
þeir stunda æfingar og taka
þjálfun. Má þar nefna Þorstein
Ingólfsson tR sem er góður
efniviður, bæði á skriðsundi og
bringusundi. Þá má geta Guðn
mundar Þ Harðarsonar. sem
hefur tekið miklum framförum
uppá síðkastið og ætti þar að
vera gott efni á ferðinni, bæði
á bringusundi og skriðsundi.
Þorkell Guðbrandsson lofar
lika góðu á bringusuíidinn.
Einnig Guðberg Kristinsson,
svo nokkrir séu nefndir. Verður
gaman að fylgiast með þeim
öllum S framtíðinni.
Árangur Sigrúnar frá Hafn—
- ; • • Framhald á 10. siðu.
Sigraði í skíðastökki
Síðasta keppnisgrein vetrarolympíuleikanna í Squaw
dal í fBandarikjuniun var skiðastökk. Þar sigraði mjög
glæsilega Austur-Þjóðverjinn Helmut Recknagel, sem
myndin er af.