Þjóðviljinn - 23.04.1960, Qupperneq 1
Laugardagur 23. apríl 1960 — 25. árgangur — 91. 'íölublaíí.
Deildarfundir
Funtlir í öllum deildura
n.k. mánudagskvöld.
SÓSÍALISTAFÉLAG
REYKJAVÍKUR
ÍSLAND SVI'KUR
12 MI'LNA RÍKIN
Ólafur Thors, Bjarni Ben. og Guðmundur í. gera smánarsamning
í Lundúnum um að styðja andstæðinga okkar í landhelgismálinu
Ríkisstjórn íslands heíur svikið i landhelgismálinu. Hún heíur gert sér-
samning við verstu andstæðinga okkar, þess efnis að íslendingar skulu
fylgja tillögu Randaríkjanna og Kanada en svíkja 12 mílna ríkin, aðeins ef
við fáum bær mútur að „sögulegi rétturinn" nái ekki til okkar. Tillaga þessa
efnis var flutt í Genf í gær af meirihluta landhelgisnefndarinnar, en Lúðvík
Jósepsson og Hermann Jónasson lýstu yfir fullri andstöðu sinni.
Þessi smánarlegu málalok eru niðurstaða af samningamakki sem Ólafur
Thors hefur átt við Bandaríkin og Breta undanfarna daaa í Lundúnum og
var endanlega gengið frá samningum í fyrradag, þeaar Bjarni Benediktsson
og Guðmundur I. Guðmundsson voru kallaðir til Lundúna frá Genf.
Ólafur Thors fór utan
nokkru fyrir páska og var
látið í veðri vaka að hann væri
aðeins að fara í frí; sagði
Morgunblaðið að hann myndi
aðallega halda sig í París. En
ferð hans var raunverulega
heitið til Lundúna á fund þeirra
manna sem hafa beitt okkur
svivirðilegasta ofbeldi í land-
helgismálinu. Var Ólafur
kvaddur þangað vegna þess að
Bretar og Bandaríkin leggja nú
á það ofurkapp að kaupa upp
eitt ríkið af öðru til stuðn-
ings við tillögu sína á sjórétt-
! arráðstefnunni — og nú skyldi
1 ríkisstjórn íslaiuls keypt. Boð-
ið til Islands var það — sem
Guðmundur í. Guðmundsson
hafði áður fiskað eftir — að
Island skyldi undanþegið á-
kvæðinu um „sögulegan rétt:‘
annarra ríkja, ef það vildi
svíkja bandamenn sína og taka
þátt í að samþykkja skerðingu
á rétti þeirra. Skýrði danska
útvarpið frá því fyrir nokkr-
um dögum að Ólafur væri í
slíkum samningum í Lundúnum
— en hér heima var allt kapp
lagt á að dylja tilganginn með
för hans, á sama tíma og
stjórnarblöðin bjrtu fjálglegar
greinar um „hina algeru sam-
stöðu þjóðarinnar“ í land-
helgismálinu og óþurftarverk
þeirra manna sem véfengdu
heilindi stjórnarinnar!
Bjarni og Guðmundur
laumast til Lundúna.
Á fimmtudagsmorgun gerð-
ust svo þau tíðindi að Guð-
mundur 1 Guðmundsson og
Bjarni Benediktsson hurfu báð-
ir frá Genf. Flugu þeir til
Lundúna á fund Ólafs Thors
og hinna bandarísku og brezku
samningamanna án þess að
skýra Lúðvík Jósepssyni og
Herinanni Jónassyni frá för
Framhald á 3. síðu
.11111! 1111111111111111111111111! 11111111111111111
i Á því telia þeir
I sig hafa ráð
Bretar hafa reynt að
spjara sig í hinni miklu
samkeppni stórveldanna um
■5 eldflaugar, en haía nú
neyðzt til að viðurkenna
að það sé þeim um megn.
•E t>að hefur verið tilkynnt
að hætt sé framleiðslu eld-
flaugarinnar Blue Streak
sem sést hér á myndinni,
og’ hefur sú ákvörðun vakið
mikið umtal i Bretlandi.
Hingað til hefur verið var-
ið tii þessarar eldflaugar
65 milljónum sterlings-
punda, sem er meira en
allar þjóðartekjur íslend-
inga á einu ári og þrefalt
útflutningsverðmæti is-
lenzkra sjávarafurða. Bret-
ar hafa talað mikið um
það áfall sem þeir myndu
verða fyrir ef þeir • gætu
ekki haldið áfram að;
ræna íslenzk fiskimið.
Sagan af Blue Streak sýn-
ir bezt af hve rniklum
heilindum það er mælt.
iiiiMiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiimimiiimiHiiiimuiiiiimiiiiimimiiimuiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiimiiiiiiii
Tlllaga um 12 mílna fískveiðilögsögu
/andamálinu um almennu landhelgina verSi
visacS aftur til Sameinu&u þjóSanna
f gær var borin fram á sjóréttarráöstefnunni í Genf
tillaga frá 10 ríkjum undir forystu Mexíkó um aö þegar
veröi samþykkt 12 mílna óskert fiskveiöilögsaga, en
vandamálinu um almennu landhelgina skuli vísaö til
sameinuðu þjóöanna.
El'tirtalin ríki bera tillöguna
fram: Indónesía, írak, Líbanon,
111111111111111111111111111111111111 ■ 11111 ji ;«111111111111111111111111111111111111111111111111111
Margt manna tók þátt í
hátíðahiildunum á sumar-
daginn fyrsta, þrátt fyrir
að frekar var kalt í veðri.
Mesta atliygli vöktu að
sjálfsögðu Vetur konungur
og Vorgyðjan (bls. 12) scm
tóku þátt í skrúðgöngun-
um. Á myndunum sjást
Vetur konungur og einn
hornablásari, 'en þeir eru E
ómissandi á degi sem þess- E
um. — (Ljósm. Þjóðv.) E
A sumardaginn fyrsta
Mexíkó. Marokko, Saudi-Arabia,
Sameinaða arabalýðveldið, Jem-
en og Venezuela.
Tillagan er svona: „Önnur sjó-
réttarráðstefna Sameinuðu þjóð-
anna telur að enn sé mikill á-
greiningur um landhelgi. og bein-
ir því þessvegna til fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna að taka á bráðabirgða-
dagskrá 20. reglulega allsherjar-
þings S.Þ. grein um það. hvort
ráðlegt sé að kalla saman á hent-
ugum tíma þriðju ráðstei'nu
Sameinuðu ]jjóðanna til þess að
athuga nánar víðáttu landhelg-
innar. Ráðsteínan beinir því til
allra ríkja á þessari ráðstefnu,
sem lýst hafa yfir sjálfstæðr
sínu og' fullveldi f.vrir 24. októ-
ber 1945 að færa ekki út land-
helgi sína þar til þetta mál hef-
ur verið athugað á áðurnefndu
allsherjarþingi S.Þ. (20. þingið
verður haldið 1965). Ráðstefnan
viðurkennir. án þess að nokkur
j aístaða sé tekin til viðáttu sjálfr-
ar landhelginnar. að þar til
allsherjarþingið hefur athugáð
þetta mál, sé hverju riki heim-
ilt að hafa á 12 sjómílna svæðl
frá grunnl'nu sömu réttindi!
varðandi fiskveiðar cg nytjar
lífrænna auðæía hafsins og' það
hefur í landhelgi sinni".
Hér er sem sagt lagt til að mí
þegar verði samþykktur réttiir
allra þjóöa til 12 mílna fisk-
veiðilögsiigu, frádráttarlaust.
Framhald á 3. síPu.