Þjóðviljinn - 23.04.1960, Page 6

Þjóðviljinn - 23.04.1960, Page 6
Ö) — ÞJÓÐVIL.JINN — Laugardagur 23. apríl 1960 ttirmipcnnnimfmi umttxz ÞIOÐVILIINN Utgefandi: Sameiningarflokkur albýðu — Sósíallstaflokkurinn. — Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Maenús Torfi Ólafsson, Sig- urður Guö'mundsson. — Préttaritstjórar: ívar H. Jónsson, Jón Bjarnason. — Auglýsíngastjóri: Guðgeir Magnússon. — Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. — Simi 17-500 (5 línur). - Áskriftarverð kr. 45 á mán. - Lausasöluv. kr. 3.00. Prentsmiðja Þjóðviljans. Frelsið” nc: ttr ad\ ■ Kf KU m s æ; gj »3 IH »•** zitl * >« U)> ar «■* =F di ir 9? Þá hefur alþingi fengið til meðferðar nýja skipan inni'lutnings og útflutnings, og stjórn- arblöðin hrópa hástöfum að nú sé að hefjast nýtt frelsistímabil á þeim sviðum. En auðvitað er ekkert frelsi fólgið í þessum umskiptum, held- ur aukin einokun; það verksvið. sem innflutn- ingsskrifstofan og útflutningsnefndin önnuðust er nú afhent ríkisstjórn-inni og 'bönkunum, fyrst og fremst seðlabankanum. Vald ríkisstjórnarinn- ar og bankanna er aukið stórlega frá því sem áður var; einkánlega má segja að Seðlabank- inn fái alræðisvald á ýmsum sviðum svo sem til þess að verðláuna Vilhjálm Þór fyrir heiðar- leik og þjóðhollustu í störfum. ¥/erfið felur þannig í sér aukið einræðisvald peningastofnananna í landinu, en „frelsið" á að vera í því fólgið að menn megi kaupa þorra innflutningsins þar sem þeim sýnist. Ekki munu þó aðrir geta annazt þau innkaup en þeir sem fá afhent til þess fjármagn og aðra aðstöðu; „frelsið“ verður bundið við fámenna klíku for- réttindamanna, sem fær stóraukin völd á kostn- að annarra. Hér er semsé um að ræða frelsi handa örfáum auðmönnum, sem eiga að fá að ráða því sjálíir í samræmi við hagsmuni sína og gróðaáform hvar þeir kaupa neyzluvörur al- mennings. En þessi tegund frelsis er stórhættu- leg fyrir allt efnahagskerfi iþjóðarinnar. Tlér í blaðinu hefur margsinnis verið bent á þá óbrotnu staðreynd að öll afkoma okkar veltur á því aö við getum selt afurðir okkar og fengið sem bezt verð fyrir þœr. Við verðum fyrst ið selja og síðan að kaupa. Þessi augljósu sannindi verða að móta utanríkisviðskipti okkar, ef nokk- urt vit á að vera í þeim. En með nýskipan ríkis- ;tjórnarinnar er gengið í berhögg við þetta grundvallaratriði. Samkvæmt henni er innflutn- ingurinn aðalatriðið, en útflutningurinn á svo að koma sem afleiðing! Hinir fáu forréttinda- menn, sem öðlast frelsið, eiga að ráða því sjálf- ir hvar við kaupum, en síðan verður að haga af- urðasölunni í samræmi við gróðahagsmuni þeirra. Pins og bent hefur verið á hér í blaðinu eru ^þessar afleiðingar þegar farnar að birtast í verki. Hinir frjálsu heildsalar hafa þegar dregið mjög verulega saman innkaup sín í löndum eins og Tékkóslóvakíu og Austur-Þýzkalandi, þar sem við höfum haft mjög hagstæðan markað fyrir afurðir okkar. Þessi lönd geta því keypt minna af íslenzkum afurðum en þau hafa hug á, með þeim afleiðingum að rætt hefur verið um að kasta verulegu magni af saltsíld í gúanó og fella algerlega niður vorsíldveiðar í Faxaflóa. Einnig er hið nýja kerfi nú þegar farið að valda örðugleikum í viðskiptum okkar við Sovétríkin. Þessar afleiðingar koma auðvitað engum á óvart, ýmsir ráðamenn stjórnarinnar hafa ekki farið neitt dult með það að einn megintilgangur kerf- isins sé einmitt sa að takmarka verulega við- skiptin við sósíalistísku löndin, skerða og eyði- !eggja þá markaði sem okkur hafa reynzt bezt. Hver íslendingur getur sagt fyrir afleiðingar slíkrar stefnu. t'yrir nokkra heildsala merkir hið nýja kerfi a frelsi til gróða, en öllum almenningi boðar það frelsi til öryggisleysis og fátæktar. — m. ua I Minning Arinbjörn Óiafsson Hafnarfiröi D. 13. apríl 1960 Þrátt fyrir breyttar að- stæður er þörf okkar nú hin sama og áður fyrir einlæga vináttu og tryggð, þess vegna finnum við ósegjanlega sárt til, þegar þeir samferðamenn okkar kveðja, sem veitt hafa okkur þetta í ríkum mæli. Þannig var mér farið þeg- ar ég frétti lát vinar míns Arinbjörns Ólafssonar aðal- bókara. Hann var á margan hátt óvenjulegur maður. I allri framkomu slíkt prúð- menni að fágætt var, seinn til kynna og flíkaði lítt tilfinn- ingum sínum, en þeim mun meiri og betri vinur vina sinna var liann. Og þeir, sem öðluðust vináttu hans og traust. vissu, að undir niðri bjó viðkvæmt og næmt til- F. 24. okt. 1895 - finningalíf, sem gerði mann- inn á margan hátt sérstæðan og eftirminnilegan. Ég nr'nnist naumast að hafa þekkt annan mann,. sem nota'egra var að vera sam- vistum með né verkaði betur á umhverfi sitt. Var hann þó að jafnaði ekki orðmargur, en jafnvel þögnin og lúð ein- stæða jafnvægi hugans, sem hann átti í svo ríkum mæli, verkaði róandi og ég vil segja bætardi á alla, sem hann urn- gekkst. — Er mér Ijúft að minnast margra siíkra stunda éj heimili hans og frá ógleym- anlegum sumarferða’ögum, sem við áttum saman. En hann hafði yndi af ferðalög- um og var næmur náttúru- skoðari. En þótt Arinbjörn væri að jafnaði fáskiptinn og orðfár, bjó hann þó yfir ríkri kímni, sem vegna óvenjulegrar hié- drægni naut sín ekki nema meðal nánustu vina. Kom þá í ljós hve prýðilega vel gefinn hann var og vel að sér á mörgum sviðum, enda las hann ætíð mikið og var m'k- ill bókamaður e:ns og bræður hans þeir Kristinn heitinn Ólafsson fulltrúi. sem lézt í okt. s.l. og Jóliann Gunnar Ó'afsson sýslumaður á ísa- firði, er einn . lifir þeirra bræðra. Arinbjörn var sonur hjón-. anna S'griðár Eyþórsdóttur og Ólafs Arinbjarnarssnar verzlunarstjóra. 1 bernsku átt-' hann heima í Reykjavík, Borgarnesi og Vik í Mýrdal, þar sem faðir hans hafði verz'.unarstörf með höndum. En ungur að árum fluttist hann t:l Vestmannaeyja og vann þar við verzlunar og skrifstofustörf allt til ársins 1942, er hann réðst til bæj- arfógetaembættisins í Hafnar- firði, fyrst sem gjaldkeri og nú síðustu árin sem aðalbók- ari. Hann vann öll sín störf af mikilli samvizkusemi og báruj þau vott um gcða kunn- áttu og vandvirkni, og svo fagra ritliönd skrifaði hann að sjaldgæft var. Framhald á 10 s>ðu Alþvðublaðið og þjóðle g menning Skósmiðurinn minn er krati og þegar ég fékk skóna mína frá honum úr sólningu voru þeir snyrtiiega vafðir inn i tvær arkir af Alþýðublaðinu. Ég fór þá lítillega að kynna mér innihald þessa virðulega stjórnarmálgagns og fyrst af öllu rak ég augun í Hannes á Horninu. Hann er áhyggju- legur á svip, enda ekki að ástæðulausu. Hann kveðsð nefnilega vera haldinn miklurn ótta um að „þjóðleg, andleg ís!enzk verð- mæti fari forgörðum hjá yngstu kynslóðinni". Segir hann að hún hafi „slitnað úr tengslum við mörg hinna góðu undirstöðuverð- mæta og týnt þjóðar og sögu- tilfinningu foreidra. sinna.“ Hannes byggir dóm sinn einkum á svörum, sem gagn- fræðaskólanemendur í Reykja- vík veittu við nokkrum spurn- ingum sem ritstjóri Vikunn- ar lagði fyrir þau nýlega. „Unga fólkið þekkti ekki Blessuð sértu sveitin mín“ og „Göbbe's var g!eymdur“ seg- ir Hannes og hver láir honum þó að kenni nokkurrar vand- lætingar. Eftir þennarv lestur þótti mér rétt að kynna mér efni blaðs- ins á þessum tveimur örkum, enda Alþýðublaðið mesta ný- næmi á míni! heimili. Forsíðumynriin er af henni Grace ICeily furstafrú cg manninum hennar honum Reinier fursta cg börnunum þeirra. Þá eru fróðlegar og merkar upplýsingar um dansparið Averil og Aurel og taldir upp næturklúbbar í mörgum lönd- um, þar sem þau hafa strípl- azt og tilgreint hve lengi í hverjum stað. Þá er einnig mynd af skrúðgöngu pólskra og amirb kana í Fifth Avenue í New York. Þá er sagt frá bíla- sýningu í Daiunörku, þar sem viðstaddur var Knútur prins og hin unga heilladís „Idræts- parkens.“ Þá er dramatísk frásögn af brezkum hermanni, er lengi hafði verið bersköllóttur, en með því móti að nota hor- mónalyf fyrir kr. 5700.00 á ári hefur honum tekizt að rækta flaksandi háriufsur á hausi sínum. Nú er spurningin: Borgar þetta s:g. Sagt er frá því, að Heming- way fái kr. 700 fyrir orðið í grein um nautaat, er hann skrifaði í amirískt tímarit. Blaðið hefur það eftir fróð- um mönnum, að hægt sé að verða ódauðlegur, sé fylgt vissum lífsreg'um, t.d. ef maður eltist ekki við kven- fólk og neitar sér um tóbak. Blaðið fiytur merkisfrétt frá Sidney í Ástralíu. Þar eru þeir svo frjálslyndir, að þeir leyfa afgreiðslustúlkum að ganga berlæruðum í verzl- unum, (skýringarmyr.d fylg- ir) og því fallegri læri, því meiri sala. Framhaldssaga er og í blaðinu og söguhetjan er kvenmaður í „svörtum undir- fötum, mjög fallegum". Lcks er íslenzk frétt af innbrotsþjófi, sem varð að gera sér að góðu að fara tómhentur heim og er frá- sögnin þrungin skilningsríkri samúð, svo sem vænta mátti. Margir munu samsinna því með Hannesi, að þjóðleg ^s- lenzk menning eigi örðugt uppdráttar um þessar mundir. En það er þó bót í máli, að á meðan Alþýðublaðið vérður ritað og gefið út sem nú horf- ir, eru þó einhverjir, sem fórna sér fyrir þá hugsjón að hlúa að þjóðlegum menning- arverðmætum. Það ætti að minnsta kosti ekki að véra hætta á að ungkratar og aðr- ir, sem sækja sitt andlega fóður i Alþýðublaðið slitni úr tengslum við hin þjóðlegu undirstöðuverðmæti. . ' E,

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.