Þjóðviljinn - 12.06.1960, Blaðsíða 5
Sunnudagur 12. júnl 1960 — ÞJÓÐVILJINN
Komið upp um félagsskap í USA
sem keypti og seldi ungbörn
Mjög umfangsmikil rannsókn
liefur verið liafin í New York
til að> uppræta glæpafélag sem
stunda-ð hefur verzlun með
ungbörn. Þegar hefur komið
í ljós að illa staddar ungar mæð
ur haf selt glæpafélaginu ný-
fædd börn sín fyrir þvottavél-
ar, ísskápa eða mánaðarlaun,
en það síðan grætt vel á að
útvega bamlausum hjónum
börnku
I Jersey City hefur komizt
upp um 9 tilvik þessa. Verðið
hefur verið frá 1000 upp í
7500 dollara, en mæðurnar hafa
orðið að láta sér nægja að fá
300 dollara eða borgað í fríðu.
Fyrsta vitnið, sem leitt var
Trúlofunarhringir, Stein-
hringir, Hálsmen, 14 og
18 kt gulL
fyrir rétt í New York var 33
ára gömul kona, sem hafði
eignazt barn, eftir að hún var
skilin frá manni sínum og selt
glæpafélaginu það fyrir 355
dollara.
Glæpafélagið hefur sett upp
bækistöðvar um allt landið.
Bezt hefur verzlunin gengið í
Kaliforníu, þar sem umboðs-
menn félagsins hafa notfært
sér unglingsstúlkur, sem komið
hafa til Hollywood með kvik-
myndadellu og siðan farið illa
fyrir þeim. En það hefur líka
fengið börn frá gleðikonum,
sem hafa verið í þjónustu þess.
Oft hafa kaupin farið fram
áður en börnin fæddust. Hin-
ir verðandi fóstunforeldrar
hafa þá borgað 200 dollara á
mánuði þar til barnið fæddist
og eftirstöðvarnar við afhend-
inguna.
Yfirvöldin skýra svo frá, að
fjöldi kvikmyndastatista, leik-
húsumboðsmanna, lækna, lög-
fræðinga o. fl. sé við málið
riðinn.
Verkfall á
Broadway
Öll leikhúsin á Broadway í
New York, 22 að tölu, hafa verið
lokuð síðan 2. júní vegna verk-
falls leikara og starfsfólks leik-
húsa, sem krefjast kjarabóta.
Þetta er í fyrsta sinn í 41 ár sem
slíkt verkfall er háð.
Stéttarfélag leikara og leik-
hússfólks ákvað að gera verk-
fall í einu leikhúsanna á dag
til þess að ýta á eftir kröfum
sínum um bætt laun og eftir-
laun handa öldruðu leikhús-
fólki. Leikhúseigendur svöruðu
með því að ioka öllum leikhús-
unum.
1100 leikarar og 5000 starfs-
menn leikhúsa taka þátt í verk-
fallinu. Báðir aðilar búa sig
undir langa verkfallsbaráttu.
Miimingarspjöld styrktarfélags
vangefiima fást á eftirtöldimi
stöðum: Bókabúð Æskunnar,
Bókabúð Braga Brynjólfssonar,
Bókaverzlun Snæbjarnar Jóns-
sonar, Verzluninni Laugaveg 8,
Söluturninum við Hagamel og
Söluturninum Austurveri.
— (3
BÆJAROTGERB
REYKJAVÍKUR
sendir sjómönnum beztu
kveðjur sínar og Iiamingju-
óskir í tilefni dagsins.
SJÓMENN - VERKAFÓLK
í staríi yðar á og við sjó, í misjöínum veðrum við misjaínar aðstæður,
er rétt val yðar á hlííðaríatnaði mjög mikilvægt, þar sem hann hefur
alltaf verið stór liður í útgjöldum yðar, og val yðar í þeim efnum vald-
ið meiri eða minniJ útgjöldum ár hvert.
MAX-SJÓFATNAÐUR er reyndur og viðurkenndur fyrir slitþol og góð-
an frágang, hann er mjúkur, léttur og þægilegur.
Framleiðum einnig
KEGNÚLPCR,
REGNFÖT,
SlLDARPILS,
S V U N T U R
og fleira úr beztn fáanlegum
efnnm.
VERKSMIÐJAN MAX H.F.
Reykjavík
a