Þjóðviljinn - 21.06.1960, Page 7

Þjóðviljinn - 21.06.1960, Page 7
I) L> Þriðjudagur 21 juiií 1960 — ÞJÓÐVÍLJINN — (7 Ávarp Einars Braga oð upphafi Keflavikurgöngunnar Góðir samherjar. Haft er eftir einum þeirra mörgu yfirgangsseggja, sem sagan kann frá að greina, að engiu borg sé óvinnandi, ef asni klyfjaður gulli komist gegnum borgarhliðin. Því miður hefur margsann- azt, að hann hafði allt of rétt fyrir sér, þrællinn. Þau eru mörg hliðin á Is- landi. Eitt' þeirra hefur þó algjöra sérstöðu: hliðið sem nú stönd- um við hjá. Öðrum megin við það hafa erlendir vígamenn hreiðrað um sig í umboði auðugasta hervéldis heims, og enginn ís- lendingur veit hvaða vopnum þeir eru búnir. Hinum megin tekur við þjóðvegurinn heim í traðir á Ingólfsbæ hinum foma, þar sem helmingur þjóðar okkar á nú heimili sín. Um hliðið atarna kæmust hæglega f jórir asnar fullklyf j- aðir samtímis. Það getum við sannfærzt um af eigin sjón, nú þegar við hccum það fyrir augum, mörg í fyrsta sinn. Við vitum líka vel, að gegn- um þetta hlið hefur hátt á annan á.ratug gengið óslitin lest gullklyfjaðra burðarjálka, misjafrlega margfættra, frá aðalbækistöð bandarískra á Islandi til liöfuðborgar lýð- veldisins — og síðan áfram út um alla landsbyggðina. Ekki hefur vantað viðtak- endur, því er verr. Við þekkj- um hvert og eitt ófá dæmi um íslenzka karla og konur, sem virtust efni í nýta menn, en urðu »f aurum apgr, eins og segir í fornu kvæði. Og nú á þjoðin öll t— að undanskild- um örfáum hrconum — að súpa se’vðið af þeirri botn- lausu spiliinau og fjármála- óreiðu sem hermangsgróðinn innleiddi í íslenzkt þjóðlíf: h’ð beiska seyði sárustu fátæktar og ncprustu smánar. he.ga. Minnumst þá komm- unistans Árna lögmanns sem grét i nauðvörninni gegn her Friðriks þriðja. Mmnumst þá kommúnistans Jóns forseta sem fastast stóð þegar ber- legast ógnaði her Friðriks sjöunda. í dag hafa liðnar kynslóð- ir með þessa ódauðlegu ís- * lendinga í fylkingarbrjósti stigið fram úr djúpi aldanna og sv'fið á uhdan Keflavikur- göngunni — aðvarandi, tár- fellandi, eggjandi benda þær á krabbamein landsins, hinn erlenda her, 6g hrópa með oss: . Vér mótmælum allir. Við höfum margan ósigur beðið í viðureign við h'ð er- lenda vald og skósveina þess, sa.tt er það. En borgin er ekki uhnin. Það sannið þið, borgarbú- ar sem hér standið í morguns- ári þessa júnídags, brjózkir og viliafastir, staðráðnir að ganga brautina frarn i friðar- ins nafni, en neita þif-instu' við vopnavaldið sem búvzt hefur um bak við þessa girð- ingu. Borgin er ekki unnm. Það munu sanna þúsundir samheria ykkar, sem koma til móts við gönguna á ýmsum skeiðum. Það sannar eirnig ctalinn fjöldi í öllum bvggðum landu- ins, sem fylgist af fögnuði með þessari göngu. Og enn vfleiri eru með ykk- ur i för. Þið munuð á þessum degi heyra þungt fótatak horfinna ættliða sem á þrautagöngu um myrkar aldir gáfu aldrei upp vonina um óskert frelsi sinn- ar þjóðar. Þið muruð heyra fótatak óborinna kynslóða, sem for- dæmi ykkar verður til örvun- ? m % j % rt |ÍIÍÉg| íI^'Vv '• Einar Bragi ávarpar hépinn áður en Iagt er af stað í gönguna til Reykjavíkur. (Ljósm. Þjéðv, ar þegar íslenzk þjóð á í vanda á ókomnum tímum. Það voru fáir ónafngreindir einstaklingar, sem fyrstir tóku ákvörðun um að þreyta þessa göngu til að vekja þjóð- ina af háskalegum sinnuleys- issvefni. En við hlið hvers eins þeirra fylkja margir tug- ir liði þegar í dögun, og þeir verða þúsundir að kvcldi. Forvígismenn göngunnar hafa orðið ásáttir um sam- eiginlega yfirlýsingu, einkunn- arorð þeirrar baráttu sem bíður okkar: Vér viljum ævarandi hlut- leysi Islands. Vér viljum engan her hafa í landi voru, og engar herstöðvar. Vér krefjumst þess, að Island segi upp varnarsamni.igi við Bandaríki Ameríku, að herstöðvar allar hér á landi séu niður lagðar og hinn erlendi her verði á brott úr landinu, að Island gar.gi úr Atlantshafsbandalagi og lýsi yfir þvi, að það muni aldrei fram- ar gerast aðili að hernaðarsamtökum. Þessa viljayfirlýsingu gefst ykkur fyrstum allra kostur á að staðfesta með undir- skrift ykkar, og síðan hverj- um íslendingi sem þess cskar. Góðir samherjar. Af viti og seiglu háði ís- lenzka þjóðin um aldir bar- áttu fyrir frelsi sínu og’ sjálfstæði. Viti og seiglu mun húnt öðru fremur þurfa á að halda til að varðveita heiður sinn í framtíðinni. Af viti og seiglu skulum við þreyta þessa göngu leið- ina á enda: Fara hægt af stað en síga á og ætla okkur þó jafnan af. Snúum baki við smáninni og biðjum hana aldrei þrífast. Göngum á brott heim — heim til íslands hins góða. Elzta konan í göngunni Sigríður Saeland Elzta konan í Keflavíkur- göngunni var Sigríður Sæland ljósmóðir i Hafnarfirði. Sig- ríður er komin yfir sjötugt, en engu að síður lagði hún land undir fót og gekk alla leið frá hliði Keflavíkurflugvallar til Reykjavíkur, til að votta stuðn- ing sinn við kröfuna um afnám herstöðva á íslandi. Daginn fyrir gönguna sendi Sigríður Þjóðviljanum eftir- farandi pistil, en . hann barst ekki fyrr en súnnudagsblaðið var komið í prentun. Það sem þessi hafnfirzki kvenskörungur hefur. að segja hefúr þó sama gildi úú og fyrir helgi. Keflavíkurgangan er engin skemmtiganga eins og sumir vilja vera láta; á bakvið hana er mikil og djúp alvara hjá þeim sem ganga. Nokkrir landleysingjar eru að ge.ra mikið grín að þessu fólki. Senda því tóninn í ýmsum myndum og kasta til þess ýmsu sem siðuðu fólki heíði ekki þótt einhvern fma sæma. En það fólk er búið að fá of- birtu í augun af öllu glysinu sem fengizt hefur af hernám- inu. En þvi miður er sú of- birta innantóm og íær ekki staðizt dóm sögunnar. Við sem göngum viljum ekki búa lengur i tvíbýli. Tvíbýlið mergsýgur æsku þessa lands. Sviptir hana dómgreind, æsir hana þangað til hún veit ekki að hún er það sem á að taka við þessu landi og bera ábyrgð á að hér búi íslenzk þjóð við íslenzka staðþætti, en ekki jórtrandi eiturlyfjáheytendur. Því er mikið haldið á lofti, hvað vferið sé að afkristna þjóð- ina. Er það að afkristna þjóð- ina að fá byggð fléiri sjúkra- hús, gamaímennahæli, barna- heimili til að liftu börnin géti fengið aðhlynningu þegar móð- irin getur ekki hugsað um barnið sitt? Er það að af- kristna æskuna að vilja ekki láta verðandi mæður verða eiturlyfjum að bráð? Hver hef- ur flutt bau inn í landið? Aldrei man ég eftir að ég heyrði eða sæi svoleiðis móður, áður en hcrinn kom hér. En hve margar nú? Svona mætti lengi telja. Er ekki komið nóg, íslenzka þjóð? ■ görfo • • ; ' ? I ^ ' Er ekki mælirinn senn fullur? Hv'dr er guð? spurði heimsk- ingi nokkur. Ekki í hjarta þínu, svaraði vitringurinn, þá muudirðu ekki spyrja hvar hann væri. Hvers vegna allt þetta moldviðri um Keflavíkur- gönguna? Má ekki nefna ósóm- ann? Þá ærast þeir, sem fleytt hafa rjómann af öllu þessu,. Nú, eða öfunda þeir þá sem hafa ennþá manndóm að þora að standa við skoðun sína? Sigríður E. Saéland. HVERS VEGNA GENGUM VIÐ? Framhald af 4. síðu. að fylgja Franco á Spáni sem brauzt til valda og drap sína eigin landa með aðstoð þýzkra nazista. Við eigum ekki að vera í bandalagi við franska stjórn, sem hefur orðið sér það helzt til frægðar að ætla að drepa alla Alsírbúa, og við ætlum okkur ekki að vera í bandalagi við Bandaríkjastjórn sem stendur á bak við alla ný- lendukúgara og styður þá hern- aðarlega og ætlar sér með því að vernda dauðadæmt skipu- lag. Þjóð vor er of stolt af sögu sinni og fornum afrekum, bæðí. bókmenntalegum og líkamleg- um, til að þola smán erlendra fjandmanna og innlendra leppa þeirra mótaðgerðalaust, og' and- stæðingar hernámsins er afí, sem á ekki að letja aðgerða. Tökum höndum saman ogr notum hvert tækifæri sem gefst til virkrar baráttu, svo ísland megi aftur verða al- frjálst, Gúimar Bj. Guðmundsson.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.