Þjóðviljinn - 23.06.1960, Page 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 23. júní 1960
Fylkingarfélagar í Breiðafjarðareyjum
Fyrir framan skólaliúsið í Flatey. Hinn óþreytandi fræðari
ferðarinnar — Jón Böðvarsson — rifjar upp sögu Flateyjar.
um. Og fyrir sjálfstæði ís-
lands. Frá aðstandendum þessa
félags fékk Jón Sigurðsson for-
seti öflugan stuðning, þegar
aðrir brugðust honum í hinni
langvinnu og erfiðu baráttu
fyrir endurheimt sjálfstæðisins.
• FRAMFARIR —
AFTURIIALD
En Fylkingarfélagar kymt-
ust líka Flatey eins og þar
er umhorfs í dag: mannlaus
hús, sum nýbyggð, og nýtízku
atvinnutæki, sem drafna niður
og eyðileggjast. Á þessari öld
hefur Flateyingum fækkað um
rúrnlega helming og fækkar enn
ört, og er engu um að kenna
nema dugleysi og ræfildómi
þess afturhalds, sem hér hefur
setið að völdum og ekki hugsað
um að efla byggðir landsins og
atvinnuvegi, heldur smalað
landsbúum suður á Miðnesheiði
til að sópa gólf fyrir amer-
íska soldáta.
Frystihúsið í Flatey hefur
ekki verið sett í gang í sex
ár. Þessi milljónafjárfesting,
gerð til að festa Gísla Jónsson,
þingmann íhaldsins í Barða-
strandarsýslu, í sessi. stendur
sem ömurlegur minnisvarði um
fæfildóm íslenzka íhaldsins
fyrr og síðar.
• HERGILSEY —
SVEFNEYJAR
Um hádegisbil var Flatey
kvödd og stigið um borð í
Straumnesið, en svo hét bátur-
inn, sem fenginn var { Stykk-
ishólmi og var aðalfarkostur
hópsins þennan ógleymanlega
dag. Rignt hafði daginn áður,
en nú var komin glampandi
sól og hiti og hélzt svo allan
daginn.
Fyrst var fanð til Hergils-
ej'jar. Var ekki géngið á land,
en lagzt skammt undan bjarg-
inu, þar sem Ingjaldur stóð,
þá er þeir kölluðust á, hann og
Börkur hinn digri, svo sem frá
er sagt i Gísla sögu Súrssonar.
Rakti Jón Böðvarsson stuttlega
þennan kafla Gísla sögu, þátt-
takendum til fróðleiks og
ánægju.
Síðan var haldið til Svefn-
eyja. Þar tók á móti hópnum
Jens bóndi Nikulásson og ferj-
aði hann í land með aðstoð
Nikulásar sonar s:ns. Var fólk-
Jens Nikulásson, bóndi í
Svefneyjum. — Höfðingi
heim að sækja.
ið sett í sfóran héyflutninga-
bát, sem dreginn var af litlum
mótorbát og höfðu menn gaman
af þessu.
í Svefneyjum var litið á æð-
arvarp og annað fuglalíf. Þá
rifjaði Jón Böðvarsson, hinn ó-
þreytandi fræðari ferðarinnar,
upp það helzta um Eggert Ól-
afsson, en hann fæddist í
Svefneyjum eins og kunnugt er.
Einnig rakti Jens bóndi ýmsan
Framhald á 10. síðu.
Eystrasaltsvikan 1960
örfá sœti enn
laus
Þarna vorum við sniðug! Héðan er gott útsýni yfir sund
og eyjar.
Um hvítasunnuna efndu ÆF-
deildirnar í Reykjavík og Kópa-
vogi til hópferðar í Breiðafjarð-
areyjar. Þátttakendur voru yf-
ir 60 og var farið á laugardag
í tveim stórum langferðabifreið-
um til Stykkishólms, eri þar var
íenginn bátur til að flytja
ferðalangana út í Fiatey. Þang-
að var komið laust í'yrir mið-
nætti, en lagt var af stað úr
Reykjavík um kl. hálf þrjú.
• í FLATEY
Ætlunin var að slá upp tjöld-
um í Flatey, en gestrisni er
aðalsmerki Breiðfirðinga. Fyrir
því áttu hópurinn raunar eftir
að fá enn áþreifanlegri sönnur
síðar. í Flatey buðu húsbændur
hópnum að búa um sig í skóla-
húsinu og var það þegið með
þökkum.
Daginn eftir, hvítasunnudag,
var Flatey skoðuð. Um kl. 10
um morguninn söfnuðust allir
þátttakendur saman í brekk-
unni fyrir framan skólahúsið,
en þar sagði Jón Böðvarsson
stud. mag., sem var með í för-
inni, stuttlega frá sögu Flat-
eyja.r. Síðan var gengið að
skoða Flateyjarbókasafn.
Flateyjarbókasafn var fyrrum
Til þátttakenda í hvítasunnu-
ferðinni; MYNDAKVÖLD vcr'-
ur í kvöld kl. 9 í Tjarnarsötu
20. Takið allar myndir úr ferð-
inni með ykkur. Mætið stnnd-
víslega. — Ferðanefnd.
hluti úr ,,Flateyjar framfara-
stiftun", sem sr. Ólafur Sí-
vertsen stofnsetti árið 1836. Er
það því 124 ára gamalt og mun
vera eitt elzta starfandi bóka-
safn landsins. Var það hinum
ungu sósíalistum sérstök
ánægja að kynnast þessum
hlutum, því að „Flateyjar
framfarastiftun“ er eitthvert
elzta dæmið um róttæk, fram-
sækin samtök íslenzkrar al-
þýðu, ætluð til að sameina
framfarasinnað fólk til sóknar
fyrir aukinni tækni, betri al-
þýðumenntun og bættum kjör-
Er móðurástin óháð tegundaflokkum dýrafræðinnar? Gælt
við flateyskan heimalning.
Nú er aðeins rúm vika til
Eystrasaltsvikunnar 3.—10. júlí
nk. Farið verður héðan með
flugvél 1. og 2. júlí og komið
heim aftur — einnig flugleið-
is _ 12. og 13. júlí. Hópurinn,
sem fer héðan verður um 80—
90 manns og eru enn örfá sæti
laus. Þátttökugjaldið er kr.
7500,— allt innifalið. Þeir, sem
vilja fara í ódýra og ógleyman-
lega sumarleyfisferð út fyrir
landsteinana, ættu ekki að láta
þetta einstæða tækifæri fara
framlijá sér. Tilkynnið þátttöku
sem fyrst til undirbúnings-
nefndarinnar, Tjarnargntu 20,
sími 17513.
Svipmyndir úr hváfasiinnpferS
osturinn
• Or vísnasyrpu Þ
Bæjarpóstinum hafa borizt
allmargar vísur frá manni, sem
nokkrum sinnum áður hefur
sent bréf og kveðskap. Hann
segir, að þetta sé samtíningur,
sem birta megi með undir-
skriftinni Þ. Vísurnar eju ortar
við ýmis tækifæri síðara hluta
vetrar og í vor og verða hér
birtar nokkrar þeirra.
SJÓRÉTTARRÁÐSTEFNAN
Söguleg er sóknin enn,
söguleg er fréttin.
Sögulegan segja menn
sögulega réttinn.
BJARNI HÆLIR SÉR
Bjarni hælir sjálfum sér
á sjálfstæðinga fundum.
Nýmæli það oftast er
og öfugmæli stundum.
BJARGRÁÐIN
Þjóðinni er þjónkun veitt,
þó með brögðum véla.
Hún má aldrei eignast neitt,
sem ekki er hægt að stela.
Sorgleg eru syndagjöld,
saurug ráð og vinna.
Illindi um auð og völd
aldrei skulu linna.
UNDRUN MORGUNBLAÐSINS
Missögn augljós og myrk í senn
mörg var úr þeirra penna
hnigin,
því kom það flatt upp á þessa
menn,
þegar Hermanni ofbauð lygin.
TYRKLANDSFORIN
Guðmundur ís og Bjarni bés
bregða sér milli landa,
en menntunin hjá Menderes
mátti ekki tæpar standa.
Hundtyrkjans vitur heillaráð
hingað urðu dregin
af því þeir gátu í hann náð
óskastundarmegin,
Söm er þessi sagan öll,
sár er óláns kraftur.
Báðir fengu þeir boðaföll,
báðir komú þeir aftur.
EYÐSLULÁNIÐ
Það er talin Thórsleg vinna
að taka að láni dýran sjóð
skipta honum milli sín og sinna,
svo skal gjalda félaus þjóð.
HEIMKOMAN
Eins og hundur upp af sundi
' dreginn
Eisenhower fögnuð fann:
Fjöldinn sá — og studdi hann.
STJÓRNMÁLANÁMSKEIÐIÐ
Stjórnmálanamskeið Neista
nú er að kvekli sett,
hér má að engu hrapa
þó hjörðin sé komin í rétt.
En það dr’égúr enginn í efa
að afloknum fundi þeim.
að rétt verðúr rúið og rfúrrkað
og reifunum skilað heim.
NJÓSNAFLUGVÉLIN
Váleg eru guma geð
græðginnar í kífi,
etós og’ gétii enginn séð
annan mann á lífi.
Hór verður látið staðar num-
ið að sinni, en vera má, að síð-
ar verði birtar fleiri vísur úr
syrpu þeirri, er Þ sendi.