Þjóðviljinn - 23.06.1960, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 23.06.1960, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 23. júní 1960 ÞJÓÐVILJINN — 9)' ITi 5i í .ta ing %IT ÍE jg. S I fr.gjl-.nrgft JT . ra {raí55g?B5S5l . -• H íu: 1 p ir«r w- 131^ frm L&a «5% 3-VE SH Ritstjóri: Frímann Helgason Hinir fjórir stóru Það eru fjórir Bandaríkja- menn, sem hafa kastað kúlu yfir 19 metra á þessu ári, en það verða aðeins 3 þeirra sem komast til Rómar. Skráin hér fyrir neðan er tekin saman 1. maí. Margt þykir benda til að Dallas Long verði innan skamms heimsmeistari í þess- ari grein, þar eem hann er þeirra yngstur og að mörgu leyti efnilegastur. En við sjá- um hvað setur. Evrópumethafi í kúluvarpi er Bretinn Arthur Rowe, kastaði 18,59 m 1958. Bezti Nafn árangur Dags. Aldur Bill Nieder ............ 19,99 m 2.4 ’60 26 ára Dallas Long ............. 19,67 26.3. ’60 20 ára Parry O’Brien ......... 19,33 m 2.4. ’60 22 ára Dave Davis ............ 19,11 m 23.4. ’60 22 ára íþróttir í stuttu máli Liðið „Rauðu dren,girnir“ sem keppir liér 6 leiki. Forráðamenn Knattspyrnufé- lagsins Þróttar kvöddu blaða- menn á sinn fund í fyrradag. Á fundinum skýrðu þeir frá komu knattspyrnuliðsins RED BOYS frá borginni Differdange í Lúxemborg, en liðið er vænt- anlegt með flugvél Flugfélags Islands í kvöld. Liðið mun leika alls sex leiki í ferðinni, fjóra í Reykjavík og tvo á Akureyri. Fyrsti leikurinn í ferðinni verður á föstudagskvöldið á Laugardalsvelli gegn íslands- meisturum KR og hefst sá leikur klukkan 8.45. Annar leikurinn á sunnudag sömuleiðis á Laugardalsvelli á sama tíma gegn Akurnesingum. Þriðji leikurinn fer fram á Melavellinum kl. 8.30, en þá verður leikið við úrval úr Þrótti-Fram-Val. Fjórði og síðasti leikurinn í Reykjavík verður við SV-úrval- ið. Sá leikur fer fram á gras- inu í Laugardal kiukkan 8.45 á fimmtudagskvöld. r Urslitin í yngri (lokkunum Um síðustu helgi urðu úrslit í yngri flokkunum sem hér seg- ir: 2. flokkur A Þróttur — Víkingur 8:1, Val- ur — Fram 4:2. 2. flokkur B Fram — Valur 4:1 3. flokkur A Fram — Valur 3:1 3. flokkur B Fram — Valur 1:0 4. flokkur A Fram — Valur 1:0 Þróttur — Víkingur 3:1 4. flokkur B Fram — Valur 4:0 5. flokkur A Vikingur — Þróttur. Þróttur mætti ekki til leiks. Fram — Valur 3:1. 5. flokkur B Fram — Valur 5:0 Það sem vekur mikla athygli við leiki yngri flokkanna eru sigrar Fram-liðanna yfir Val. Fram vann átta leiki af níu, yfir þessa helgi, gegn Val, — skoraði 25 mörk gegn 8 Vals- aranna. Það var ranghermi hér á síð- unni í gær að Fram hefði unnið alla níu leikiná. Valur vann leikinn í 2. flokki A með 4:2. í þrem yngri flokkanna eru úrslit kunn. Fram varð Reykja- víkurmeistari d 2. flokki B, — vann báða sína leiki, Val með 4:1 og KR 4:2. 1 3. flokki B vann KR. Sigraði Val með 3:2 og Fram með 6:3. Reykjavíkurmóti 5. flokks B er enn ekki lokið en sigurveg- ari í þvi móti verður örugglega Fram, þareð þeir hafa leikið alla sína leiki án þess að tapa einu einasta stigi. Margir landsliðsmenn í liðinu. Lið RED BOYS, sem hingað er eent hefur staðið sig mjög vel í Lúxemborgarkeppninni, varð annað í þeirri keppni, en þess má geta að landslið Lúx- emborgar gat sér gott orð í undankeppni ÓL í fyrrasumar. Þá varð Lúxemborgarliðið ann- að í sínum riðli, á eftir Frakk- landi en á undan Sviss. Af 14 leikmönnum, sem hing- að koma hafa fjórir leikmenn leikið í A-landsliðinu samtals 81 leik. Sá leikmaðurinn, sem mesta leikreynslu hefur af öllum þeim leikmönnum, sem hingað koma heitir Léon LCisch. Hann hefur leikið 53 leiki í A-lands- liðinu og sex leiki í B-landslið- jnu, og var auk þess í atvinnu- mennsku í Frakklandi um skeið. Sinn fyrsta atvinnuieik lék hann gegn RACING DE PARIS, en þá lék Albert Guð- mundsson með Racing. Létsch skoraði bæði mörkin fyrir iið sitt, og leikurinn vannst með 2:1. Létsch ieikur framherja í liði sínu, og getur leikið hvaða stöðu sem er í framlínu. Spartz framherji í liðinu hefur leikið 19 sinnum í landsliði. Fcrdnand Wambacli 23 ára gamall hefur leikið fjölmarga leiki í Ung- lingalandsliði, 5 leiki í A-lands- liði og 8 í B-landsl. Wambach leikur innherja í liðinu. Kemp markvörður R.B. er talinn mjög góður og hefur fjóra landsleiki að baki. Einnig hafa nokkrir leikmenn leikið í öðr- Framhald á 10. síðu London — Móskva Síðan 1958 hafa hnefaleik- arar frá London og Moskvu háð árlega keppni sín á milli. Fyrir rúmri viku var þessi keppni háð í ár. Moskva sigr- aði 7:3. Lundúnarbúinn L. Hobbs sigraði í þungavigt. Rúmenía vann Rúmenska liðið í heims- meistarakeppni í handknatt- leik vann Austurríki í úrslit- um 10:2. Þýzkaland var í 3ja sæti, Holland í f jórða og Dan mörk í fimmta. Evrópume4 í sundi Austur-Þjóðverjinn Egon Henninger setti nýtt Evrópu- met í 200 metra bringusundi. Tími 2.37,4. Góður árangur George Kerr, Jamaiea, hljóp nýlega 800 metra á 1.46,4 mínútum sem er bezti tími í ár. Bandaríkjamaður- inn Ted Woods hljóp 400 m á 45,7 sek. í frétt hér á síðunni, að Mo- ens hafi náð bezta tímanum í ár í þessari grein. Moens á 3,41,4 í 1500 m hlaupi Belgíumaðurinn Roger Mo- ens, sem er á keppniferðalagi hér, keppti á móti í Antwerp- en skömmu áður en hann kom hingað og sigraði þar í 1500 m hlaupi á bezta >ííma ársinr. 3,41,4 mínútum. Frakkinn Bernard var annar á 3.42,0. Moens keppir í. 1500 metra þlaupi á KR-mótinu í kvöhl. Hörður: 10,8 í sambandi við frjálsíþrótta- vikuna keppti Hörður Haralds- son í 100 m hlaupi og náði ágætum tíma, hljóp á 10,8 sek. Hörður hefur æft mjög vel undanfarið og virðist vera kominn aftur á „toppinn". Peter Radford Einn bezti hlaupari Breta hljóp nýlega 100 metrana á 10,3 sek. og 200 m á 21,0. — Iþróttasíðan mun birta grein um þennan merka hlaupara á næstunni. Nýr toppmaður í hástökki Rússinn Viktor Boltjoff stökk 2,15 m á móti sl. sunnudag. Landi hans Kim Bukhantseff kastaði kringlu 56,24 m, 3.40,2 í 1500 metrum. Á íþróttamóti í Prag s.l. sunnudag hljóp Rúmeninn Vamos 1500 metrana á 3.40.2 mínútum, sem er bezti tími í heiminum í ár og nýtt rúm- enskt met. Það er þá ofsagt BARNA- RC M Húsgagnabúðin h.f. Þórsgötu 1 Jén og Guðm. keppa í Rostoek Í.S.Í. hefur verið boðið að senda tvo keppendur og farar- stjóra á alþjóðlegt íþróttamót, sem haldið verður í Rostoc-k 3. júlí n.k. fþróttamót þetta er einn liður í hótíðahöldum Eystrasalts- vikunnar svonefndu. Hefur verið ákveðið að senda Jón Péturssor. í hástökkskeppni og Guðmund Þorsteinsson, hinn unga og efnilega hlaupara, í 800 m hlaup. Fararstjóri verður Haraldur Sigurðsson, frá Akureyri. Leiðlr allra sem ætla að kaupa eða selja BlL liggja til okkar. BÍLASALAN Klapparstíg 37. Síml 1-90-32. Til sölu Allar tegundir BÚVÉLA. Mikið úrval af öllum teg- undum BIFREIÐA. Bíla- og Búvélasalan Ingólfsstræti 11. Símar 2-31-36 og 15-0-14. MUNIÐ Kaffisöluna Hafnarstræti 16. Útbreiðið Þjóðviljann n

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.