Þjóðviljinn - 16.04.1961, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 16.04.1961, Blaðsíða 9
Sunnudagur 16. apríl 1961 — ÞJÓÐVILJINN Af öllum sigurvegurum OL í Róm er Bikil-e Abebe lang vin- sælasti sigurvegarinnt enda lit- ríkasti, sérstæðasti og ekki hvað sízt óvæntasti sigurvegar- inn. Maraþonlilaupið örlagar'k- asta grein OL. Það er öllum kunnugra en frá þurfi að segja, að mara- þonhlaup OL hefur frá upp- hafi verið örlagaríkasta greinin á OL. . . . Á fyrstu leikunum í Aþenu vann ge!tahirðirinn Spiridon Louis og varð að launum þjóð- hetja í landi s'ínu, Grikklandi, en Grikkir lögðu að vonum of- urkapp á að sigra þessa al- grísku íþróttagrein. . . . 1904 ,,vann“ Bandaríkjamaðurinn Lorz, haim varð a.m.k. fyrstur að marki, en upp komast svik um síðir. Lorz hafði sem sé tekið sér far með bifreið meg- inhluta leiðarinnar (ber vott um nýjungagirni Lorz, þvi bíl- arnir voru þá í frumbernsku). Landi Lorz, T. J. Hicks vann 1. verðalunin. . . . Maraþonhlaupið 1908 i London er frægt orðið, en þá varð ítalinn Pietri fyrstur, en einhverjir starfsmenn höfðu aumkvað sig yfir þennan þreytta að þjakaða hlaupara og stutt hann s'iðustu metrana í mark, Þetta kostaði Italann s!gurinn, sem féll í skaut. Hayes frá Bandaríkjunum ítalinn varð hetja í augum almenniíigs þrátt ifyrir ósigur sinn. . . Sigurvegarinn 1928 var E1 Ouafy frá hinni frönsku N-Afríku. Hann mátti 30 ár- um síðar finna í eymd og vol- æði í Afríku, yfirgefimi og vinalausan. . . . í London 1948 var það Belginn Gailly, sem hlaut sam- úð allra. Hann kom langfyrst- ur inn á Wembley leikvanginn, en honum sóttist róðurimr seint og tveir keppendur fóru fram úr honum og urðu á undan í mark. Og nú kom berfættur sigur- vegari að marki. Undrun áhorfenda og sér- fræðinga var ekki svo lítil er það spurðist næst siðasta dag OL í Róm í fyrrasumar að gjörsamleg óþekktur negri 'frá Eþíópíu hefði borið sigur úr býtum í þessari erfiðu grein. Abebe er þó ekki að neinu leyti á sama báti og þeir maraþon- hlauparar sem hér voru á und- an taldir. Hann hafði ekki frægð Zatopeks, né heldur að hann væri sárþjáður er hann kom að marki. Abebe var eins og hann á að sér, er haon kom að markinu. og jafnvel fætur hans létu ekki á sjá, enda þótt það hljóti að vera heldur sárt að hlauDa eftir hinum smá- steinda Via Appia, sem er forn- frægur vegur í Róm og lagður fyrir hundruðum ára. Sigur Abebes skýtur einnig skökku við því sem sérfræðing- ar halda réttilega fram — „að það er ekki liægt að koma með öllu óþekktur á olymp'íuleika og sigra“. Þetta gerði Abebe þó og þetta skýra menn þannig — „Statistikkerar" hafa ekki van- ið sig á að gera skýrslur um maraþonhlaup margra ástæðna vegna, þessvegna getur oft verið um góða maraþonhlaup- ara að ræða, þó iþeir séu ekki nafnfrægii'. Abebe kemur frá landi sem er með öllu óþekkt i íþróttaheiminum. Lífvörður Haile Selaisse. Bikile Abebe .er fæddur í Mout í Eþíópíu fyrir 28 árum, þann 7. ágúst 1832. Snemma vann hann sveitastörf, en 19 ára að aldri gerðist hann keis- Hlaupið eftir Via Appia. Og nú víkjum við að sjálfu hlaupinu, sem gerði Bikila Abebe heimsþekkt nafn á svip- stundu. Eins og allir munu efláust vita, hljóp Abebe skólaus. Á æfingum liafði hann lilaupið ýmist skólaus eða skæddur. Tilraunir sýndu þó að hann hljóp talsvert hraðar skólaus, og það réði að hann bar ekki skó á fótum í Róm. Blaðamenn töluðu mikið um Maraþonið daginn fyrir hlaup- ið svo og í blaðastúkunni við Konstantínbogann, þar sem hlaupinu lauk. Almennt var búizt við sigri Rússans Popoffs, Marokkomannsins Rhadi, og Danir töluðu jafnvel um sinn mann, Tögersen, sem vætanleg- an sigurvegara, en Tögersen er íþróttaunnendum hér á landi að góðu kunnur. Nafnið Abebe hafði enginn heyrt mefnt, hvorki 'í sambandi við maraþonhlaup né annað. Þegar fréttir bárust af fyrstu 20 kílómetrum hlaupsins voru það þeir Afríkanarnir Abebe og Rhadi, sem leiddu hlaupið. 25 30 35 og 37 km hlupu Rhadi sjónum út ‘i myrkrið. i stjórn Mussolinis. I skugga Colosseum birtistí 500.000 mann tóku á mótl hlauparinn blaðamönniim, þjóðhetju sinni á flugvellinum hlaupandi sömu léttu skrefun-1 og meðfram allri leið hans til um og er hápn lagði upp í keisarahallarinnar stóð. mann- hlaupið. Hann hafði hlaupið hraðasta Maraþonhlaup, sem nokkru sinni hafði ver:ð hlaup- ið, 2.15.16,2 klst. Abebe band- aði frá sér teppum og afþakk- aði alla hjúkrim. Hann fann ekki til óþæginda og lýsti yfir að hann hefði getað hlaupið hraðar. Rliadi með keppninúmer úr 1000 m hlaupinu. Það er sagt að sá keppi- nautur, sem Abebe hefi borið mesta virðingu fyrir sem lilaupara hafi verið Rhadi, Marokkóbúinn, sem veitti hon- um hörðustu keppnina, Abebe vissi þó aldrei hver það var sem veitti honum eftirför, því liann heyrði aðeins fótatakið fyrir aftan sig. Einnig villti Rhadi nokkuð á sér he!mildir. Keppninúmer hans í Maraþonhlaupinu var 26. Númerið, sem liann bar var hinsvegar 185, númer hans í 10000 m. hlapinu tveim dögum Slgurvegarínn beríætti Vinsœlasti sigurvegarinn á OL i Róm var EþiópiumaSurinn Abebe aralegur lífvörður og þáð er hann enn. Svíi slendur á bak við frama Abebe Það er ekki úr vegi að skyggnast nokkuð ofan ‘í kjöl- inn og athuga hvað olli sigri Abebe. Fyrst er það að athuga, að þjálfari hans er sænskur major, Onnie Niskanen að nafni, fyrr- um göngumaður, hlaupari og skíðakappi, en nú íþróttaþjálf- ari í Eþíópíu. Niskanen hefur Dimmu náð þessum góða árangri með nemandá sinn með óhemju vinnu og ástundun og hann einn allra í óhorfendahópnum við hinn upplýsta Konstantún- boga í Róm, var ekki 'i efa um að Bikile Abebe murjdi koma með alfyrstu mönnum í mark, e.t.v. fyrstur. Þetta vissi þjálfarinn vegna þess áð hann hafði hvað eftir annað tekið tíma af Abebe í mara- þonhlaupum við svipuð skilyrði og voru i Róm (en Niskanen fann út hlaupaleið, sem var nokkuð svipuð og þar æfði Abebe). Náði stórkostlegum árangri réit fyrir Rómarleikina. Skömmu fyrir Rómarleikma náði Abebe mjög góðum árangri í 32 km hlaupi (maraþon er rúmir 42 km). Hann hljóp | vegalengdina á 1.42,36 og Naskinen heldur fram að ef | Abebe hefði lokið maraþon- ! vegalengdinni hefði liann slegið ; óopinbert heimsmet Rússans Popoffs, en það er 2.15,17 i klst. En Svíinn leyfði nemanda | sínum ekki að halda áfram hlaupinu og lét hann þess í stað bíða síns vitjunartíma. þeir' nær því samsíða, ógnað af aðeins einum keppanda, Ný- sjálendingnum Magee. Þeir hlupu eins og samvaxnir tví- ! burar framhjá hinni frægu kirkju Domine Quo Vadis? (þar sem helgisögnin segir Krist hafa hitt Pétur Postula á flótta sínum), en er þeir voru* innan við kílómeter frá Konstantínboganum og Rhadi ha.fði gert síðustu örvænting- arfullu tilraunina til að „stinga" Abebe ,,af“, spretti berfætti pilturinn frá Álfunni ►« áður, en af einhverjum ástæð- um gleymdist að breyta um númer. Sigur Eþíópíumanns á 25 ára afmæli hernáms Itala. Heima í Eþíópíu ætlaði allt um koll að keyra við fréttina um sigur Abebe. Og þó að 'íþróttir og póhtík séu tvennt gjörólíkt og eigi aldrei saman, freistuðust Eþíópíumenn þó til að minna á að sigur Abebe í Róm var unnkm sama ár og 25 ár voru liðin frá því ítalir Ur spori og hvarf hernámu land þeirra undir fjöldinn og fagnaði. Næstu vikurnar voru vikur hátíða og veizluhalda. Haile Selaisse heiðraði þennan fræga starfsmann sinn og hækkaði hann í tign, Kona Abebe ól honum fyrsta soninn, Geremo. Forseti Gríska Félagsins f Eþícpíu. afhenti Abebe- olíuvið- argrein, sem skorin hafði verið af sama tré og olíuviðarkóróna Spíridon Louis hafði verið unnin úr 54 árum áður. Sem sagt' allt lék í lyndi og' lífið ein skemmtun; jafnvel voru öfundgjarnar tungur farnar að efast um áhugarétt- indi Abebe svo mikið barst. honum af alls kyns gjöfum. Fómarlamb uppreisnar. Abebe var 'í sjöunda himni þann 2. nóvember er minnst var með athöfn 30 ára afmæli. keisarakrýningar Selaisses. Þann 14. desember var Abebe hins vegar ekki jafn glaður og' reifur. Þann dag braust út uppreisn gegn keisaranum, sem þá var erlendis. Uppreisnin var gerð af flokki þeim sem Abebe- tilheyrði og hann fann sig allt 'í einu mitt í byltingú gegn vel- gjörðarmanni sínum og vernd- ara íþróttamálanna í landinu. Nokkrum dögum síðar kom keisarinn úr ferðalagi sínu og byltingin fór gjörsamlega út um þúfur. Abebe var fundinn saklaust fórnarlamb þessarar- byltingartilraunar og sýknaður af öllum ákærum. .1 Framtiíðin? Fer Abebe í styttri hlaup? Um framt'íð Abebe á lilaupa- brautinni er ekki gott að segja fyrir um. Sjálfur hefur hann sagt í viðtali, áð hann ætli að stefna að sigri í Tokyo .1964 og einnig á OL 1968, hvar sem þeir nú verða haldnir. Einnig hefur því verið hreyft hvort liann muni ekki taka. þátt í styttri hlaupum eins og 5000' og 10000 metra hlaupunu Framh. á 10. siði» Miiiiiiiiiiiiiiii(iiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiii!iiiiiiiimiiiiiiii(|iiiiiiiiiiiii|iiiiii{[[iiiiiiiiiiii||||||iiiiiiiiiiiiii||||||(|mi||n(p Fatnaður fró Póllandi C00PEXIM sýnir tilbúinn fatna'ð í Reykjavík dagana 17.—21 .apríl. Til sýnis eru alls konar ytfi fatnaður og nærfatnaður fyrir dömur herra og börn. Hr. Kazimierz Ignatowski , forstjóri verður til viðtals og samninga um vörukaup. Sýningin er haldin í skrifstofum umboðsmanna ofangreinds fyrirtækis. IÍRISTJÁNSSON HF., Ingólfsstræti 12, Reykjavík. Símar: 12800 og 14878.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.