Þjóðviljinn - 13.05.1961, Síða 2
Smurt brauð
! snittur
íyrir ferminguna.
MÖJGARÐUR
ÞÓRSGÖTU 1.
Þórdur
sjóari
Kafbátsforinginn var erjn staðráðinn 'i að koma fyr-
irætlun sinni í framkvæmd: sprengja upp kafbát-
inn og skipakvína um leið. Olga og Þórður voru
enn lokuð inn í klefanum og heyrðu köll kafbáts-
foringjans fyrir ofani. ,,Hvað getum við gert?“ spurði
Þórður. „Þú þekkir kafbátinn út og inn og þú verð-
ur að bjarga okkur úr þessari klípu.“ Olga hugs-
aði sig um andartak. „Maðurinn er ekki með réttu
ráði,“ sagði hún. „Viltu hjálpa mér til að ryðja
honum úr vegi?“ Þórður kinkaði kolli til samþykk-
is. Olga sýndi honum þá neyðarútgang.
Trúlofunarbringir, stein-
hringir, hálsmen, 14 og 18
kt. guIL
:-'>'.u..r 'fí ii: ifi'v ■ ...
2) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 13. maí 1961
Ingibjörg Haildérsdéffir
'tí 4 S 1961í:
« m
1 rtag^verfeur til moldar líörí
in Ingibjörg Halldórsdóttir
fyrrum húsfreyja á Geir-
mundarstöðum í SkagaXirði.
sem lézt í sjúkrahúsi Sauðár-
króks 4. þ.m.
Ingibjörg var dóttir hjón-
anna Halidórs Björnssonar og
Margrétar Sölvadóttur, sem
bæði voru Skagíirðingar að
ætt og uppruna. Hún fæddist í
Rcykjavík en missti móður
sína í æsku og faðir hennar
fór til Amefku. Sjálf fluttist
hún íimmtán ára gömul að
Stóra-Vatnsskarði i Skagafirði
fil móðursystur sinnar Salvar-
ar og manns hennar. Þar
kynntist hún Sigurði Sigurðs-
syni, stjúpsyni Salvarar, en
hann varð maður hennar sex
árum síðar. Þau bjuggu fyrst
tvö ár í Valadai, en fiuttust
1894 að Geirmundarstöðum í
Sæmundarhlíð og bjuggu þar
síðan ailan sinn búskap eða
þangað til Sigurður bóndi
hennar lézt 1925.
Börn þeirræ hjóna voru
fimm: Ingibjörg, gift Árna
bónda Hafstað i Vík, Margrét,
kona Jóns bónda Sveinssonar
á Hóli í Sæmundarhlíð, Sig-
urður yngri, bóndi á (Vdr-
mundarstöðum. Pétur tónskáid,
síðast á Sauðárkróki. og Ilall-
dór, sparisjóðsstjóri í Borgar-
nesi. Öll uxu þessi systkin upp
og urðu hin mannvænlegustu,
og líður mér sá hópur seint úr
minni eins og ég man þau írá
æskuárum. bæði sakir glæsi-
ieika og óvenjulegra mann-
kosta. Ingibjörg sá þau öll ná
fullorðinsaldri og fá góð gjaf-
orð, og hún eignaðist á fáum
árum stóran hóp barnabarna.
En þetta mikla barnalón fékk
sviplegan endi. Á tíu ára biii
átti hún á bak að sjá ekki að-
eins manni sínum heldur og
íjórum elztu börnum þeirra,
sem dóu öll á bezta aldri á ár-
unum 1922—’32.
í þessari mannraun sást bezt
hvað í Ingibjörgu var spunn-
ið. Þó að hún væri ekki mikil
fyrir mann að sjá var ekkert
henni fjær en að láta bugast
eða bera harma sína á torg.
Um langt árabil var hún stoð
og stytta Árna Hafstaðs
tengdasonar síns í Vík. eftir að
elzta dóttir hennar haiði daið
frá tíu ungum börnum. Síðustir
æviár sín átti hún heima á
Sauðárkróki þegar hún dvald-
ist ekki hjá Halldóri syni sín-
um eða einhverju barnabarna
sinna. en hjá þeim var hún
jafnan aufúsugestur.
Ingibjörg Haildórsdóttir var
(•írr* þbirrS Gtnöpglfí íslenzku
kvenna sem ekki hafa íarið aí
miklar sögur. utan fjölskyldu
þeirra. Þó skilaði hún — eins
og fleiri kynsystur hennar —
merkilegca dagsverki en marg-
ur sem meira hefur látið á sér
bera á veraldarvísu. Hún var
góð og gestrisin húsmóðir, vinsæl
á þæ og af bæ; hún ól upp
giæsilegan barnahóp sem varð
hennar mesta gæfa, en hlaut
þó að sjá af flestum þeirra
löngu fyrir aldur fram. Samt
bilaði kjarkur hennar aldrei.
og engin mæða fékk bugað það
glaðjyndi sem henni var með-
fætt. Á efri árum hlaut hún þá
raunabót að sjá barnabörn sín
vaxa úr grasi og verða nýta
þjóðfélagsþegna á margvísleg-
ustu sviðum, og hún sá hóp
barnabarnabarna sinna fara
sívaxandi, svo að hún var hætt
að hafa á þeim töiu, að því er
hún sagði sjálf. en þau munu
nú vera komin langt á fimmta
tuginn. Þessi fjölmenni hópur
mun varðveita minninguna um
ættmóður sína' löngu effir að
samtíðarmenn hennar eru
komnir undir græna torfu; þat-
á hún sér þann minnisvarða
sem hún mundi hafa kosið sér
beztan; minninguna um góða
konu sem alla ævi hugsaði
meira um aðra en sjálfa sig.
Jakob Benediktsson.
Saumavélaviðgeiðir
fyrir þá vandlátu.
Sylgja,
Laufásvegi 19. -
Sími 1-26-56
Ferðafélag
efnir
n — —--------, ----------- ------
ferð um Brennisteinsijöll. Lagt
af stað kl. 9 um morguninn. Hin
ferðin er gönguferð á Esju. Lagt
af stað kl. 13,30 frá Austurvelli.
Upplýsingar í skrifstofu félags-
ins, símar 19533 og 11798.
pjfascafyí
■1 \ nD\\Dar,DmDU.
fg^gÍ
ELDHtJSSETT
SVEFNBEKKffi
SVEFNSÓFAR
HNOTAN
húsgagnaverzlun
Þórsgötu 1
Ullargarn við
allra hæfi
Lfster’s Lavender
Prjónagarn
Tuckygarn
- Nakergarn
Carogarn
Golfgarn
Bandprjónar
VIÐTÆKJASALA
Hafnarstræti 7.
eign dánarbús Sigurðar Jóns Ólafssonar, fer frarn
eftir kröfu Kristins Ó. Guðmundssonar hdl., og Lands-
banka Islands á eigninni sjálfri miðvikudaginn 17.
maí 1961, kl. 3V-> síðdegis.
Bor.garfógetinn í Reykjavík.
Aðstoðrrmaður og ritari
óskast í Veðurstofuna í Reykjavík.
Aðstoðarmaðurinn þarf að vera á aldrinum 20 til 30
ára, hafa gagnfræðapróf eða hliðstæða menntun, vera
heilsuhraustur og reglusamur.
Ritarinn þarf auk vélritunar að annast símavörzlu.
Laun samkvæmt launalögum.
Umsóknir er greini aldur, mer.mtun og fyrri störf
sendist skrifstofu Veðurstofunnar, Sjómannaskólan-
um, fyrir 1. júní næst komandi.
VEÐURSTOFA ISLANDS.
Flugbjörgunarsveitin.
Fyrirhugað er að halda sameiginlega æfingu fyrir
allar deildir á Þingvöllum um hvítasunnuna.
D A G S K R Á :
Farið frá Reykjavík laugardag 20. ma'í, kl. 15.00.
Sunnudag 21. maí gengið á Botnsúlur. Átta-
vitaæfing o. fl.
Mánudag 22. maí, klifur, flutningur á slösúðum,
talstöðvaræfing og fleiri æfingar.
Félagar eru beðnir um að tilkynma þátttöku sína til
flokksstjóra eða stjórnar fyrir miðvikudag 17. maí,
en þá verður sameiginlegur fundur fyrir þátttak-
endur í birgðastöðinni.
Elskulegur eiginmaður minn, sonur, faðir, tengda-
faðir og afi
ÓSKAR KRISTJÁN BREIBFJÖRÐ KRISTJÁNSSON,
bifvélavirki, Melstað við Kleppsveg j Reykjavík,
andaðist 10. þ.m. á Landspítalanum.
Elín Anna Björnsdóttir,
Sigurveig Björnsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.