Þjóðviljinn - 17.05.1961, Síða 7
6; ' ÞJÓÐVÍÍJINN — .Miövik'udagiír il?!' ma'í 1961
plÖÐVILJINN |
Ctgefandi: Sameinlngarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. — Ritstjórar: =
Magnús Kjartansson (áb.), Magnús Torfi Ólafsson, Sigurður Guðmundsson. — =
F réttaritstjórar: ívar H. Jónsson, Jón Bjarnason. — Auglýsingastjóri: Guðgeir EEri
r.Iagnússon. — Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. r=s
Eími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 45 á mán. — Lausasöluverð kr. 3.00. ==
Prentsmiðja ÞJóðviUans h.f.
Alþýðublaðið fær málið g
j^ölísms í gær fær Alþýðublaðið málið um breytingar HH
þær sem nú er verið að framkvæma á hernámi ís- §1§
lands. Ekki er þó málflutningur blaðsins viturlegri en fs
þögn þess; það bregður fyrir sig skætingi í sambandi §§L
við leigusamninginn um Hvalfjörð og spyr hvort Þjóð* 11
xúljinn ’haidi að kjarnorkukafbátar gangi fyrir olíu. jM
.lafnvel Alþýðublaðsmenn ættu þó að vita að kjarn- §§!
orkukafbátarnir eru aðeins örlítið brot af hinum mikla §§
kafbátaflota Bandaríkjanna. Samningarnir um Hval- H
íjörð sanna að bandariski flotinn ætlar að hafa hér §§§
birgðastöð fyrir eldsneyti, og í sambandi við hana |jj
verða að sjálfsögðu geymdar hér aðrar birgðir flot- §1
ans, þar á meðal hergögn, því ekki verður birgðunum jjj
dritað niður í mörgum löndum þannig að skipin þurfi §§§
að vera í eltingaleik til þess að ná í þarfir sínar. Þegar H!
samið er um birgðastöð fyrir eldsneyti merkir það auð- §§§
vitað jafnframt almenna bækistöð fyrir flotann. Og ||j
slíkri stöð er á skömmum tíma hægt að breyta í bæki- j§§
stöð fyrir kjarnoi-kukafbáta — þegar bandariskum jj§
stjórnarvöldum hentar. §§§
/^ð öðru leyti er forustugrein Alþýðublaðsins gamli
songurinn um það að hér séu aðeins varnarstöðvar. §H
Nú hefur það einmitt verið einkennið á öllum þeim ^§
breytingum sem gerðar hafa verið á hernáminu að und- §§§
anförnu, að ekki er lengur sinnt um ,,vemdar“ rök- ^
semdina sem upphaflega var höfð í fyrirrúmi. Sú var §p
tíð að hér var „varnarlið', hluti af landher Bandaríkj- WL
anna, en það lið hefur nú allt verið flutt burt sem §§j§
skilyrðislaus staðfesting þess að íslendingar þurfi ekki Wí
að óttast árás frá nokkurri þjóð. En enda þótt Banda- §§§
ríkin og Atlanzhafsbandalagið hafi þannig játað í verki §§f
að hér sé ekki þörf neinna „varna“, halda herstöðv- fM
arnar áfram að þróast. Nú hefur verið tilkynnt að p§
hingað verði flutt yfirstjórn könnunardeildar flotans §=
á Norður-Atlanzhafi, en undir þá stofnun heyra kaf- j=j
bátar þeir sem ævinlega eru tiltækir með eldflaugar |§§
og kjarnorkuvopn við strendur Evrópu og langdrægar §§§
njcsnaflugvélar sem eiga að fá bækistöðvar á Kefla- =
víkurflugvelli, að því er hernámsstjórinn nýi hefur tjáð. =L
Allt er þetta hluti af árásarkerfi Bandaríkjanna og ^
verður ekki flokkað til varna með neinu móti. Og MM
ekki ætti að þurfa að deila um það að ef til styrjald- §§§
ar kemur verða slíkar stjórnarstöðvar kafbáta og =
njúsnaílugvéla einhverjir hættulegustu staðir á hnett-
inum. §§1
4 Iþýðublaðið spyr einnig hvaðan okkur stafi hætta §§§
’ *" ef við leyfum slíkar stöðvar í landi okkar. Það ætti §§§
ekki að hafa farið framhjá Alþýðublaðsmönnum frekar =
en öðrum að 'hemaðarkerfi Bandaríkjanna er beint =
gegn Sovétríkjunum og sósíalistísku löndunum. Hinu §j§
skyldi enginn spá hvernig stöðvarnar hér kunna að j§j§
verða notaðar áður en líkur. Undanfarin áratug hefur §§|
hernaðarmætti Atlanzhafsbandalagsins ekki verið beitt §§§
gegn hinum margauglýstu „óvinaríkjum“, heldur hafa §§|
NATO-ríkin gert árásir á Egyptaland og fjölmargar ^
nýlendur í Asíu, Afríku og rómönsku Ameríku — að
ógleymdri árás brezka flotans á Íslandi. Hagsmunaand- |||
stæður auðvaldsríkjanna geta á skömmum tíma leitt §§§
þau inn á brautir sem ólíklegar kunna að virðast ný, g
og vel getur svo farið að herstöðvarnar hér verði m
ógnun við frændþjóðir okkar á Norðúrlöndum, við ||§
Bretland eða Frakkland eða einhver önnur Evrópu- jg
ríki. Finnist Alþýðublaðinu það einhver pólitísk hugg- §§j
un að árásarstöðvum hér stafi hætta af sovézkum §j§j
sprengjum, skal því á það bent að jafnvel sú kyn- m
lega huggun kann að verða frá því tekin. — m. 1=
MOSKVUBREF
Lenínverðlaun
Ég má segja að Leninverð-
laununum fyrir listaverk og
•bókmenntaverk hafi verið
skynsamlega úthlutað í ár.
Bókmenntaverðlaunin hlutu
þeir Steimakh, úkraínskur
ská’dsagnahöfundur , skáldið
Prokofféf (sem talaði við
Thor Viihjálmsson) og skáld-
ið Tvardovskí. Tvardovskí er
þekktastur þessara manna,
hann er höfundur kvæða-
bálksins um Vassílín Tjork-
ín, óbreyttan erfiðismann
stríðsins en um leið hetju
þess, en bálkur þessi er með
því lífvænlegasta af þeim
ská'dskap sem til varð á
striðsárunum: Leninverðlaun-
in hlaut Tvardovski fyrir
kvæða'bálkinn Za dalju dal,
en hann geymir hugleiðingar
um eftirstriðsárin, þar er og
athyglisverður þáttur um
Stalínmálið. Tvardovskí er
stundum nokkuð þungur í
vöfum, jafnvel langorður, en
hann skrifar á mjög kjarn-
góðu máli og hann kann vel
þá list að draga upp stórar
„víðfeðmar“ myndir af tím-
anum. Tvardovskí er einnig
áhrifamaður í bókmenntalífi,
ritstjóri Noví mir, sem er
eiithvert bezta timarit lar.ds-
ins, og kurmugir segja hann
einhvern bezta stuðnings-
mann ungra rithöfunda.
Eistlenidingurinn Smuul
h’aut verðlaun fyrir ferðabók
um Suðurheimskautslandið,
mjög viðfelldna bók, skrifaða
af liugkvæmni og gamansemi.
Myndlistarverðiaun hlutu þeir
Prorokof, sem hefur dreg-
ið upp dramatískar striðs-
myndir og Sarjan, söngvari
armenskrar náttúru og þjóð-
lifs, en hann er einhver lit-
glaðasti og impressónistiski
sovézkra málara.
Tónlistarverðiaun . hlútu pí-
ancleikarinn Richter, sem
hefur lagt undir sig Ameríku
og fleiri meginlönd og hljóm-
sveitarstjórinn Mravínskí.
Mravinski stjórnar fí'harm-
oníuhljómsveitinni í Lenin-
grad, sem fræg hefur orðið
um mörg lönd. Hanri sagði
í blaðaviðtali nýlega, að
hljómsveitin æfði nú ýmis
ný verk eftir sovézk tón-
skáld og biði með óþreyju
eftir tólftu sinfóníu Sjostako-
vítsj. I júní fcr hljómsveitin
í tónaferð til Danmerkur,
Noregs, Svíþjóðar og Finn-
lands. Þá má og geta þess, að
filharmoniuhljcmsveitin hef-
ur nýlega gerzt verndari ný-
stofnaðrar áhugamannasin-
fóníuhljómsveitar í Lenin-
grad, en það er fyrsta 'hljóm-
sveit sinnar tégundar í land-
inu.
Tsjúkhræ og myndir
hans
Tsjúkhræ og rithöfundarn-
ir ’Ezjof fengu Leninverð-
launin fyrir kvikmyndina
Kvæðið um hermanninn. Sú
mynd hefur hlotið ýmislega
viðurkenningu aðra; ég má
segja að í Cannes hafi hún
verið álitin bezta kvikmyndin
fyrir æskufólk. Það var mjög
að vonum: yfir myndinni
svífur andi æskurómántíkur
cg hreinleika — í víðri
merkingu þess orðs. Og sá
maður sem hefur samið þessa
mynd h’.ýtur að vera heiðar-
legur, góðviljaður og næsta
háttvís.
Nú hefur Tsjúkhræ lokið
við nýja mynd, sem nefnist
Heiður himinn.
Ung stúlka, Sasja Lvova,
kynnist af tilviljun frægum
flugkappa, Astakhöf, og það
takast. með þeim góðar ástir.
En skjótt ber ský fyrir sólu
frá Árna Bergmann
Vörusala hlWX
um 12,55 % á sl. érí
7 af 14 mafvörubúBum félagsins kjörbúSir
Vörusala KRON jókst á
s.l. ári um 12,55% cg nam
kr. 52.090.778,82. Tekjuhalli
varö kr. 97,054,92. Þrátt
fyrir þennan tekjuhalla
varð reksturinn mun hag-
stæðari en undanfarin ár.
Frá þessu skýrði Kjartan
Sæmundsson kaupfélagsstjóri
á aðalfundi KRON í fyrradag.
Flutti Kjarta n yfirlit um rekst-
ur KRON á árinu, las reikninga
félagsins og skýrði þá, en
Ragnar Ólafsson hrl., formað-
ur félagsirr, flutti skýrslu
stjórnar, raktir framkvæmdir
síðasta árs og drap á framt;ð-
arhorfur. .
Góð reynsla af kjörbúðum
Félaginu bættust tvær kjör-
búðir frá því síðasti aðalfundur
var haldinn^ falleg og góð kjör-
búð að Tunguvegi 19 og lítil,
snotur kjörbúð cð Nesvegi 31,
fcáðar í eigin húsnæði. Nú eru
7 af 14 matvörubúðum félags-
ins kjörbúðir og fyrirhugað að
breyta tveim eldri búðanna við
•fyrsta tækifæri. Reynslan af
hinum stærri kjörbúðum varð
góð á árinu.
Félagið rekur 5 sérvörubúðir,
efnagerð og kjötvinnslu. Sjóð-
ir í árslok’ námu kr. 3.848.152,-
66. Félagsmenn voru um sið-
ustu árarnót 5335.
Á fundinum mætti Erlendur
Einarsson, forstjóri S.Í.S.
Fiutti hann ávarp og ræddi um
Ragnar Ölafsson
formaður ICRON.
samvinnu KRON og S.Í.S. og
aðstöðu samvinnumanna til
aukinnar verzlunar- og atvinnu-
rekstrar í bænum á næstu ár-
um.
Allmiklar umræður urðu á
fundinum og voru fundarmenn
ákveðnir í áframhaldandi sókn
í samvinnumálum höfuðstaðar-
ins.
Úr stjóm áttu að ganga
Ragnar Ólafsson, Þorlákur
Ottesen og Guðmundur Hjart-
arson, en voru endurkjörnir
einróma. Einnig var Haraldur
Steinþósson endurkjörinn end-
urskoðandi til næstu tveggja
ára.
Stjórn félagsins skipa eíú:
Kjartan Sæimmdsson
framkvæmdastjóri KRON
Ragrar Ólafsson, Þorlákur
Ottesen, Guðmundur Kjartans-
son, Guðrún Guðjónsdóttir,
Ólafur Jónsson, Þórhallur Páls-
son, Pétur Jónsson, Hallgrím-
ur Sigtryggsson, Sigurvin Ein-
arsson.
Varastjóm:
Guðmundur Finnbogasor.,
Margrét Árnadcttir, Sveinn
Gamalíelsson, Sveinbjörn Sig-
urjónsson, Guðbrandur Guð-
mundsson.
Endurskoðendur:
Björn Guðmundsson, Harald-
ur Steiriþórsson.
Á fundinum mættu 90 full-
trúar auk stjórnar og nokk-
urra starfsmanna félagsins.
Miðvikudagur 17. maí, 1961— IfJÓJ?VILJINN — (7-
— Astakhof kemur ekki aft-
ur úr orustu, hann er talinn
af og er látinn sæmdur heið-
ursn.afnbótinpi hetja Sovét-
ríkjanna. En Sasja bíður og
vonar, vinnur og elur upp
son þeirra. Að lokum rætast
þær vonir, sem höfðu styrkt
hana myrka daga stvrjaldar-
innar: Astakhof snýr heim:
hann hafði komizt lífs af og
setið í fangabúðum. En nú
hefjast nýjar raunir. Astak-
hof mætir tortryggni og
fjandskap, :— það er dregið í
efa að hann, þekktur orustu-
flugmaður og flokksmeðlim-
ur, hafi með heiðarlegu móti
komist líf'3 af úr viti þýzkra
fangabúða. Hann er sviftur
flugréttindum og heiðurs-
Tvardovskí
nafnból, rekinn úr flokknum
og á ekki annars úrkostar en
að gerast lærlingur í stál-
bræðslu. Undir stórri styttu
af Stalán eitja kærulausir
menn og blauðir og neita að
taka orð hans trúanleg;
spyrja aðeins: hvers vegna =
ert þú á lífi þrátt fyrir það
að nazistar skutu alla komm-
únista' sem þeip-- tóku til
fanga ? Hér er komið inn á
eitt höfuðvandamál Stalíns-
tímabilsins: árvekni gagn-
vart fjandsamlegum öflum
breytist í allherjar tor-
tryggni: Þessu tímabili er að
mörgu leyti vel lýst. Beisk-
leg er senan þegar Astakhof
reynir að sannfæra sjálfan
sig um að hann sé í raun og
veru sekur og persónuleg ör-
lög hans skifti ekki máli,
þegar ávo miklir atburðir ger-
ast. Hann segir orð, sem
margir reyndu þá að sætta
sig við: Það fljúga spænir
þegar skógur er höggvinn.
En kona hans Sasja teflir
fram mannlegri viðhorfum:
hver hefur sagt að maðurinn
sé einskis virði, aðeins mál-
efnið hafi gildi, hver?.. Svo
birtir upp um síðir, tímabili
járnagá og tortryggni lýkur
og Astakhof fær fulla upp-
reisn æru...
Það er ýmislegt gott um
þessa mynd, margar senur
eru vel gerðar og það vanda-
mál, sem rætt. er um, er
gagnmerkilegt. En myndin er
nokkuð misjöfn. Eftir að per-
sónurnar frétta að Stalín er
látinn er sýnt hvernig sól
vorsins 1953 bræðir ís og
snjca, leysir náttúruna úr
fjötrum vetrarins. Skömmu
síðar sjáum við hinar skyndi-
legu breytingar í Hfi mann-
fólksins. Með þessu móti eru
hlutirnir gerðir of einfaldir.
Tsjúkhræ hefur allvel tekist
að sýna andrúmsloft áranna
áður, — en það skortir dýpt
og hugkvæmni í lýsingu um-
brotatímanna. Þetta er slæmt,
því að örlög Astakhofs eru
sönn, þau eru örlög fjöl-
margra manna þessa lands,
og þessar veiku hliðar mynd-
arinnar hljóta að draga úr
áhrifamætti hennar.
En allavega er þessi mynd
Framhald á 10. s'iðu.
Golda Meir utanríkisráðherra
ísraels sem hingað kemur í
opinbera heimsókn í dag
fæddist í Kíev í Rússlandi
fyrir 63 árum og skipar nú
eitt veigamesta embætti í
Jerúsalem, höfuðborg hins
nýja Israelsríkis.
Hún átti erfitt uppdráttar
í rússneska keisararíkinu og
þegar hún var átta ára flutti
fjölskylda hennar búferlum
til Bandarikjanna og þar ólst.
hún upp. Þegar 'hún var 19
ára heyrði hún Beri-Gurion
fyrst tala, en þá var hann á
ferð um Bandaríkin ásamt
vini sínum Ben-Zvi. Þeir urðu
síðan forsætisráðherra og
forseti Israels.
Golda Meir afréð þá að
helga sig algjörlega er.dur-
lieimt ættlandsins. Ilún gift-
.ist Morris Meyerson (1948
tóku þau upp hebrezka nafn-
ið Meir) og 1921 fluttu þau
til Pa’estínu. Þau settust. að
í byggð frumbyggja frá
Rússlandi, í mýrlendi þar sem
malaria geisaði. Af 40 manns
voru aðeins 8 konur. Ári síð-
ar var Golda Meir fulltrúi í
Z. verkalýðsráði Gyðinga, sem
E stofnað vah 1920. Þrátt fyr-
E ir örðug’.eika og allt mót-
E lætið, sem þau hjónin urðu
= að þola, telur Golda Meir
= þetta hamingjusömustu ævi-
= ár sín.
= Fjölskyldan flutti til Jer-
E úsalem og 1928 varð frú
E Meir ritari verkalýðshreyfing-
E ar kvenna, sem hún hefur
E jafnan starfað fyrir. Ári síðar
E þegar Arabar hófu óeirðir á
5 ný, gekk hún í neðanjarðar-
= hreyfingu Gyðinga, en 1931
x fór hún til Bandaríkjanna og
= var tvö ár að skipuleggja
x samtök Gyðingakvenna. Þeg-
x ar hún kom aftur til Pale-
= stínu fór hún í framkvæmda-
E ráð kvenfélagasamtakanna
E og ári síðar gerðist hún
E starfsmaður þess. Árið 1936
E tók hún við forystu stjórn-
E máladeildarinnar og varð
E fulltrúi verkalýðsflokksins í
. . ■* i.'
;; | . ; : ; Vv
IÉ k
.
ufanrikisráSherra ísraels
framkvæmd.aráði alheimssam-
taka Gyðinga.
Meðan á siðari heimstyrj-
öldinni stóð studdi Golda
Meir stefnu Ben-Gurions:
„Við munum berjast í strið-
inu eins og ekki væri til
nein hvít bók (yfirlýsing
Breta 1939, sem koma skyldi
í veg fyrir flutning Gyðinga
ítil Palestínu) og við munum
berjast gegn hvítu bókinni
eins og engin styrjöld væri
t:.l“. Þegar stefnunni sam-
kvæmt hvítu bókinni var
haldið áfram að stríðinu
loknu cg hlið Palestínu voru
enn lukt þeim, sem komust
lifandi úr fangabúðum Hitl-
ers varð sambanu Gyðinga,
sem landið helga byggðu, og
umboðsstjórnarinnar nijög
örðugt. Þegar forystumenn.
Gyðinga voru handteknir
1946 varð Golda Meir stjórn-
Framhaid á 10. síðu.
iii 1111111 n n 1111111111111 m 11111 n w 11 ■ 11111 iti 111111111111111 ii 111111111111 ■ 11111111111111111111111111111111111111111111111 ii 11111111111 i 111111111111111111111111 i 111111111111111 ■ 111 i 1111111111111111 c 11111111111111111111111111 ■ r 111 mm 1111111 (! 111
Að göngu lokinni
Keflav.'kurgangan fyrra
sunnudag var glæsilegur áfangi
i sjálfstæðisbaráttu íslenzku
þjóðarinnar. Það voru bjart-
sýnir menn • og glaðir, sem
gengu niður Laugaveginn þetta
kvöld að aflokinni erfiðri þrek-
raun. Og það voru prúðir
menn, sem gátu sýnt og sann-
að að enn á þessi þjóð árvekni
og dug, að enn hefur íslenzk
frelsisþrá ekki verið drepin í
dróma auðhyggju og þýlyndis.
Og þúsundirnar, sem tóku á
móti göngumönnunum er 'þeir
komu i bæinn eru glöggt vitni
um þá samúð og þann skiln-
ing, sem málstaður hernáms-
andstæðinga nýtur í höfuð-
stað.oum.
Útifundurinn við Miðbæjar-
barnaskólann. þar sem álþýða
þessa bæjar mótmælti með
nærveru sinni undirlægjuhætti
og spillingu stjórnarvaldanna
var ekki síður mikil lyftistöng
fyrir þá vösku menn, sem mót-
að hafa hina voldugu hreyf-
ingu hernámsandstæðinga, . sem
nú fer einsog' heitur þeyr um
landið.
Efst í porti Miðbæjarskól-
ans var lítill hópur ungmenna
innikróaður af fjöldanum.
Þessi Jitli hópur vakti sérstaka
eftirtekt á fundinum. Fram-
koma hans öll stakk svo mjög
í stúf við kurteisa framkomu
göngumanna og annarra fund-
argésta að hann skar sig al-
gerlega úr. Vandlega æfð píp
hans og skipulagðir slagorða-
skrækir voru leiður blettur á
þessum fundi, en þó áhrifa-
laus, því enginn af þeim stóra
hópi fundargesta gaí ólátum
þeirra gaum hvað þá heldur
tók undir við þá.
Að fundarlokum óð skríll
þessi um bæinn, réðist með
grimmdarlegum óhljóðum að
virðujegu kvennasamsæti í
skrifstofuhúsi sósíalista, braut
þar rúður. með grjótkasti og
hótaði fólki meiðingum og
jafnvel lífláti. Þvínæst æddi
hópurinn að sendiherrabústað
Sovétríkjanna með aurkasti og
skrækjum. samkvæmt þeirri sí-
tuggnu kenningu afætulýðsins
að sjálfstæðisbarátta íslend-
inga sé háð í þágu Rússa.
Þótt hópur þessi væri ekki
áhrifamikill var hann samt at-
hyglisvert vitni um áhrif hinna
stríðsóðu hermangara, sem
stjóma pólitískum áróðri í-
haldsins, enda skipulagður af
þeim. Þótt „samsafn fíflanna“
á ,,Morgunblaðinu“ og' fávitar
„Alþýðublaðsins“ reyni að
skammast sín og þvo þennan
blett af sér og sínum dugir
það ekki til. Þetta voru hin
heimaöldu guðslömb „Sjálf-
stæðisflokksins“, Heimdelling-
arnir, sem ekkert geta og ekk-
ert eiga nema fé foreldra
sinna að leika sér með og koma
reglulega á málum uppað dyr-
um bandaríska sendiráðsins að
jarma þar eftir túttunni sinni
tvisvar á dag. Viðbrögð þess-
ara aumingja við hini glæsi-
legu Keflav.'kurgörigu voru
dæmigerð viðbrögð særðra nas-
hyrninga.
Við lifum nú þá merkilegu
tíma þegar langkúgaðar þjóðir
eru að rísa upp hver af ann-
arri og brjótast undan okinu.
Jafnt og þétt þrengist hringur-
inn um gömlu nýlendukúgar-
ana, sem reyna í lengstu lög
að klóra í bakkann og æpa.
Dráp Lúmúmba og innrás
Bandaríkjanna á Kúbu eru
svörtustu blettirnir á „afreka“.
skrá þeirra uppá síðkastið. En
hinir svörtu, rauðu, gulu og
brúnu rétta bök sín á ökrun-
um og heimta sinn rétt til
jaíns við hvítu harðstjórana.
Samhliða uppreisn nýlendu-
þjóðanna heyr svo þrúgaður
verkalýður hinna hvítu herra-
þjóða sina baráttu gegn sér-
réttindastéttunum.
Allt er þetta í raur.inni ein
og sama baráttan. Ein breið-
fylking hins undirokaða hluta
mannkynsins sem krefst réttar
síns á jörðinni. Réttar til
til mannsæmandi lífs.
Atlanzháfsbandalagið er
varnabandalag gömlu nýlendu-
kúgaranna, sem reyna af öllum
kröftum, með Bandaríkin í
fararbroddi, að verja sérrétt-
indi sín og kúgunaraðstöðu.
Tilgangur þessa bandalags er
að standa. vörð um kapítalism-
ann. Það var stofnað til. þess
eins að sporna við sívaxandi
kröfum almennings um aukna
hlutdeild í gæðum jarðarinnar,
jafnári skiftingu teknanna.
Það eru þessar auknu luöf-
ur fólksin? til mannsæmandi
lífs, sem auðvaldsherrarnir
kalla kommúnisma. Það eru
þessar kröfur, sem ritstjórar
þeirra um vesturlönd líkja við
skipulögð múgmorð þýzku naz-
istanna.
Keflavíkurgangan er raunar
aðeins einn liður í þeirri bar-
áttu, sem háð er víðsvegar um
hnöttinn gegn kúgun, spill-
ingu, arðráni og gereyðingar-
hótunum hinna blindu sérrétt-
indakónga auðvaldsins, sem
tróna á sýningarpöilum aug-
lýsingabraskaranna veiíandi
vetnissprengjum framan: fólk-
ið og hrópa sig hása um frelsi
og lýðræði.
Keflavíkurgangan er : ekki
krafa um ákveðið þjóðskipulag,
heldur um-rétt fólksins til að
lifa á þessari jörð. Gegn þeirri
kröfu eru cngin rök til nerna
píp hálfvitans. Þessvegna
sýndu nashyrningarnir innræti
sitt grímulaust á sunnuy.Iaginn
7. maí.
Jórt frá Pálmliolti,