Þjóðviljinn - 02.06.1961, Síða 10
30) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 2. júní 1961
RéSning og kjör kennara
Framhald af 7. síðu.
M Matarliminn hefur verið
■ friðhelgur hjá öllum
launastéttum jóðfélagsins
og fyrir löngu er það kom-
ið inn i flest launaákvæði að
greiða hann tvöföldu kaupi,
ef nauðsyn ber til að láta
vinna hann.
Vegna erfiðra starfsskil-
yrða skólanna í stærri kaup-
s:öðum, hefur víða orðið að
gripa til þess ráðs að láta
kenna í matartímanum. Hinn
almenni kennari getur ekk-
ert sagt við slíkri stunda-
skrá, hann verður að vinna
matartímann sem venjulega
vinnustun 1. Hann fær enga
aukagreiðslu fyrir hana,
hvorki í peningum né með
fækkun stunda yfir vikuna.
Skyldustundum kennara á
W viku er jafnað, að vísu
oft misjafnt, á kennsludaga
vikunnar, en þegar hann hef-
ur lokið þeirri kennslu er
stundaskráin ákveður þann
daginn er vinnudegi hans lok-
ið í skólanum. Nú er það ekki
óalgengt að skólastjórar
þurfi að biðja kennara um
aukavinnu, ýmist dag og
dag, eða jafnvel lengri tíma.
Slík vinna er þá auðvitað
eftirvinna, samkvæmt þeirri
slundaskrá er hann hefur
fengið.
Nú vill svo einkennilega til
að orðið „eftirvinna" fyrir-
finnst ekki í lögum um laun
kennara þó hinsvegar séu til
ákvæði um eftirvinnu þeirra
starfshópa sem eru í sama
launaflokki. Slík eftirvinna
kennara sem kominn er á
full laun við 9 mánaða skóla
er greidd með svonefndu
stundakennarakaupi, en það á
að vera, skv. sérákvæðum um
kennara, sem næst '80% af,
að því er virðist, þriðja árs
launum við sama skóla, en er
í raun og veru 27% lægra
en það kaup, sem hann hefur
unnið dagvinnuna á.
Mun þetta vera algert eins-
dæmi um kaupgrsiðslu fyrir
eftirvinnu. Þætti sjálfsagt
ýmsum nóg að vinna slíka
vinnu á dagvinnukaupi,
hvað þá he’ilur á mun lægra
Bjóða lægri .. .
Framhald af 7. síðu.
Þess eru engin dæmi á þessu
tímabili að verkafólk hafi
sjálfkrafa fengið það sem því
bar af vaxandi þjóðarfram-
leiðslu.
Áður en verkfallið hófst
að þessu sinni var kaupmátt-
ur tímakaupsins kominn nið-
ur í 84 stig og orðinn lægri
en nokkur dæmi eru til fyrr
fdðan stríði lauk. Tilboð at-
vinnurekenda og ríkisstjórn-
ar um 6% kauphækkun hefði
það í för með sér að kaup-
máttur hækkaði upp í 89 stig
að óbreyttu verðlagi. Hann
væri engu að síður einu stigi
lægri en hann var fyrir verk-
föllin miklu 1955 — kjörin
væru semsé lakari en þau
voru áður en verkalýðshreyf-
ingin ta’iii sig nauðbeygða til
að heyja sína hörðustu bar-
áttu!
kaupi en þéir fá fyrir dag-
vinnuna. -
M Það er alltaf töluvert um
W það, að skólarnir þurfi
að ráða til sín nokkra lausa-
vinnumenn, þ.e. stundakenn-
ara, er kenna allt frá nokkr-
um slundum upp í fulla
kennsluviku eða jafnvel
meira, þó oftasl þannig, að
kennslustundir þeirra eru
fastákveðnar. Sér í flokki eru
svonefndir forfallakennarar,
sem siundum hafa aðeins ör-
fáar, eða jafnvel enga fasta
vinnustund á viku, en verða
að hlýða kalli skólans og
teljast starfsmenn hans, án
þess að um nokkurt lífvæn-
legt atvinnuöryg^i sé að
ræða. Að v.'su getur hlaupið
svo blessunarlega á snærið
fyrir slíkum mönnum, að
einhver hinna föstu kennara
forfallist frá starfi um lengri
tíma, og sannast þá hið forn-
kveðna að eins dauði er
annars brauð, nema hvað
fasli kennarinn missir ekki í
kaupi þótt hann veikist um
stundarsakir, en forfallakenn-
arinn fær aðeins greidda
unna vinnustund. Er raunar
furðulegt að hægt skuli vera
að fá menn til siarfa með
þvilíkum skilyrðum, en
vonin um fasta stöðu
seinna. við skólann leiðir
menn út í að taka slíkum
kjörum.
Hinn fasli stundakennari
hefur þó- það öryggi fram
yfir forfallakennarann, að
hann missi'r ekki kaup, þótt
hann veikist um stundarsak-
ir.
Sú lausavinna, er skólamir
þannig kaupa er greidd skv.
32. grein launalaganna, en
þar ssgir:
,,Laun stundakennara skulu
ákveðin með reglugerð, er
kennslumálaráðherra setur,
og vera sem næst 80% af
launum fastra kennara ' við
þá skóla, er þeir starfa við,
miðað við fullan kennslu-
stundafjölda hjá báðum“.
Þetta mun eina dæmið um
það, að tímavinna sé greidd
lægra kaupi, en það mán-
aðarkaup er gildir í viðkom-
andi starfsstétt, og það er
sjálft ríkisvaldið ér setur
þetta ákvæði.
En laun stundakennara ná
ekki einu sinni þessu lág-
markisákvæði. Þau geta í
hæsta lagi orðið 73,1% af
fullum launum kennara við 9
mánaða skóla, miðað við
sama vinnustundaf jölda hjá
báðum og falli enginn starfs-
dagur úr hjá skólanum.
7Stundakennari við 9
mánaða skóla er starfs-
maður r'kisins aðeins þann
tíma, er skólinn starfar. Hann
hefur unnið, sem hver annar
tímavinnumaður og þar sem
atvinnurekandinn getur ekki
veiít honum orlof á starfs-
tímanum, ber honum að
greiða or'ofsfé á tímakaupið.
Þetta mun giHa um alla
tímavinnu lausráðinna manna
í öllum launastéttum.enda á-
kvæðj um það í orlofslögun-
um. Hinsvegar greið:r ríkis-
valdið ekki orlof á tímakaup
stundakennara né nein fríð-
indi er komi í þess stað. Þó
munu ekki vera nein lög er
banni að greiða stundakenn-
urum orlof, né heldur nein
ákvæði er skerði rétt þeirra
til orlófs, það er aðeins ekki
greilt.
Þótt stundakennari hafi ár-
um saman unnið því sem
næsl fulla kennslu, er hann
rétí’aus bæði gagnvart líf-
eyrissjóði og byggingarlánum
kennara. Dæmi eru nokkur
um það, að kennarar hafi ver-
ið allt að 10 ár stundakenn-
arar með fullan starfstíma,
en sá tími reiknast ekki lil
eftirlauna. Það getivr munað
um þótt minna sé, er hallasl
á æfidagana.
Að lokum svo það, að
hvorki forfalla né stunda-
kennarar hafa nokkttð öryggi
um s’iarf frá ári til árs. Það
kemur í ljcs á hverju hausti,
hver alvinnuvonin verður yf-
ir vcturinn.
8Það er orðin viðtekin
venja, bæði til sjáva’r og
sveita, að alvinnurekendur
greiði ferðakostnað ráðinna
starfsmanna, a.m.k. aðra
leiðina. Það er og einnig
mikið um það, að vinni menn
fjarri heimilum sínum, svo
nokkvu nemi, greiðir alvinnu-
rekandinn ýmsan aukakostn-
að, -er af því leiðir.
Barnakennarar, er fara í
kenns1u á haustin, í hin ýmsu
fræðsluhéruð, verða sjálfir
að bera allan kostnað er af
því leiðir.
Sé um fjölskyldumenn að
ræða, er ráðast nýir í starf,
hafa þeir sjaldnast. nokkurt
teljandi öryggi fyrir því, að
það verði til frambúðar, jafn-
vel þótt þeir sjálfir vildu.
þeir geta því varla flutzt bú-
ferlum á fyrsta ári.
Til þess er æPazt af föst-
um kennurum, að þeir sæki
þau námskeið, sem haldin eru
á vegum fræðslumálastjórn-
arinnar eða af námsstjórum
hennar. Margir eiga um lang-
an veg að sækja á slík nám-
skeið, en þeir verða sjálfir
að kosta jafnt ferðirnar sem
uppihald og annað það er til
útgjalda verður í sambandi
við slík námskeið. Mun slík
kvöð ekki vera lögð á neina
aðra launastétt ríkisins.
Hinsvcgar munu kennara-
samtökin sjálf hafa komið
sér upp einhverjum sjóði til
þess að greiða hluta af
ferðakostnaði í sambandi við
uppeldis- og fulltrúaþing, en
það fé fengið með greiðslu
kennaranna sjálfra til stétt-
arfélaga sinna.
Þótt. skólar séu vel búnir
að tækjum, ér það nú svo að
kennurum er brýn nauðsyn á
að eiga ýms tæki sjálfir, því
betra, sem þeir hafa meiri
möguleika á að afla sér
elíkra tækja.
Kennslutæki eru yfirleitt
dýr, og reynist mörgum erf-
itt að afla sér þeirra, en
engan styrk, né lánveitingu í
neinni mynd er hægt að fá af
hendi ríkisvaldsins til slíkra
hluta(^
Kennarinn fær sem sagt sín
árslaun, eftir því við hvaða
skóla hann ér, og ekkert þar
fram yfir. Eg skal reyna að
renna stoðum undir í næsta
kafla að þetta sé rétt með því
að athuga hin ýmsu friðindi
ríkissta’rfsmanna og hin ein-
stæðu búdrýgindi kennara.
Bæjarpósiurinn
Framh. aí i. síðu
um sínum og þær> tylla sér
báðar á tærnar og kíkja
svona inn í bílinn og önn-
ur segir með leiftrandi að-
dáun í bláum augum og
mærir kóng sinn hástöfum,
þegar bíllinn sígu’r hjá í ró-
legheitum.
„Mikið er hann sætur‘.
„En þetta er nú bara'
ekki kóngurinn“, segi ég.
„Þetta er lögreglustjórinn
í Réykjavík."
Þá urðu vinkonu’r mínar
skrítnar á svipinn."
En brátt sést hilla undir
konungsbifreiðina, sem
kemur hægt, og tignarlega
upp á bunguna og það er
eins og hún ætli aldrei að
geta skriðið yfir og hin
dýr’.ega lokastund nálgast.
Þá skeður nokkuð ægi-
legt.
Smáupphlaup Verður fyrir
aftan okkur cg þrír stráka-
bjálfar ryðjast í gegnum
mannþröngina æstir að sjá
sinn kóng og hlaupa út á
götuna og stilla sér einmiit
fyrir framan vinkonur mín-
ar og þær sjá ekki glóru.
Önnu’r byrjar að damla
fánanum í rassinn á einum
og er ógurlega æst og sár
og reið.
En þéir standa sem fast-
ast og hreyfa sig hvergi og
billinn líður hjá eins og ekk-
ert sé eins sjálfsagl í heim-
inum, því að allt ér nú einu
sinni á hreyfingu.
Þær eru báðar máttlausar
af örvæntingu og sú minni
er búin að setja upp skeifu.
„En ég sá ekki kónginn",
segir hún sárbrostinni
röddu.
Og hún tekur norska fán-
ann og sveiflar honum yfir
höfuð sér og fleygir honum
síðan í gotuna og æpir út
í mannfjöldan.
„Hvar er kóngurinn.“
Og sú eld'ri hrífst af þess-
ari mikilfenglegu stemmn-
ingu systur sinnar og æpir
nú l'ka.
„Ég heimta að byrjað sé
upp á nýtt.“
Það fór ekki á milli mála,
að okkur var veitt athj'gli
og ég segi við vinkonur
mínar og 'rejmi að sefa reiði
þeirra.
„Við skulum fara og
kaupa okkur ís“, og það
gerðum við og ísinn sló á
hið heita skap og við löbb-
uðum inn í Austurstræti og
stönzuðum fy'rir framan
einn búðargluggann.
Þarna skörtuðu þrjár lit-
myndir af kónginum og við
horfðum á þennan mikla
kóng.
„Mikið er hann fínn“,
segir sú minni dapurlega.
,,Ég hugsa að þetta sé
góður kóngur."
A Lagt er ríkt á vlð a’la sem
safna ur.dirskriftum , undir
kröfu Samtaka hernámsand-
stæðinga að hafa samband við
skrifstofuna í Mjóstræti 3,
annarri hæð. Þar er opið alla
daga kl. 9 til 22, símar 2-36-47
og 2-47-01.
k Þeir ssm selja happdrætlis-
miða fyrir samtökin eru beðn-
ir að gera skil sem örast.
Áfek í Tokl®
Tokio 31/5 (NTB—AFP) —
4000 stúdentar efndu til mikill-
ar fjcldagöngu í Tokio í dag
til að mótmæla auknum fjár-
veitingum til liernáðarþarfa, og
hersetu Bandaríkjamanra.
Þetta vom mestu fjöldagöng-
ur í Japan síðan 'i fyrra er
Eisenhower Bandaríkjaforseti
var neyddur til að hætta við
heimsókn sína þangað.
Víða sló í brýnu milli lög-
reglu og stúdenta og slösú'ðiist
samtals 78 manns.
Par'ís 31/5 — Maurie Challe og
André Zeller, fyrrverandi hers-
hcfðingjar sem voru for-
sprakkar í uppreisn hægrisinn-
aðra lierforingja í Als'r í fyrra
mánuði, voru í dag dæmdir af
sérstökum herrétti í Paris. Þeir
voru báðir dæmdir til 15 ára
hegningarvinnu.
VIÐTÆKJASALA
Hafnarstræti 7,
Ullargarn við
allra hæfi |
Lister’s Lavender
Prjónagarn . •
Tuckygarn
Nakergarn
Carogarn
Golfgarn i
Bandprjónar
Smurt brauð
snittur
iifctfÍl
Trúlofunarhringlr, stein-
hringir, hálsmcn, 14 og 18
kt. gull.
MIÐGARÐUR I
ÞÓRSGÖTU 1.
Saumavélaviðgerðir
fyrir þá vandlátu.
Sylgja,
Laufásvegi 19. -
Sími 1-26-56.