Þjóðviljinn - 21.07.1961, Síða 5
Sjö fjallgöngu.garpar lögðu upp í ofsafengna kappgöngu upp á hæsta tind Evrópu, Mont Blanc.
Þeir lentu í hinum mestu hörmungum og aðeins þrír komust til baka nær dauða en lífi. Mynd-
in er tekin þegar kornið er til byggða með Frakkann Pierre Mazaud.
Fjallgöngumaður vari vitstola í hrí8-
arveðrl í kappgönguvmi á Mont Blanc
Hörmuleg endalok frœgra fjallagarpa
Óhugnanlegir atburðir voru
rifjaðir upp á mánudaginn
þegar blaðamenn áttu við-
tai við ítalann Walter Bon-
atti. Bonatti er einn af
þremur mönnum, sem kom-
ust lifandi úr leiöangri, sem
farinn var til að reyna að
klífa hæsta tind í Evrópu,
Mont Blanc í Alpafjöllum.
Fjórir menn fómst með
hroöalegum hætti eftir að
fjallgöngumennirmir höfðu
lent í mikilli snjóhríö.
Fjallgöngugarpanna sjö, en
þeir voru frá Frakklandi og
Ítalíu, hafði verið saknað í viku
þegar þeir fundust. Þrír vo.ru
fluttir á lífi til Courmayeur, og
skýrðu þeir frá hinum hörmu-
legu afdrifum félaga sinna fjög-
urra.
Bonatti var fyrirliði þriggja
ítala, sem lögðu upp fyrir viku
til að keppa við fjögurra manna
franskan hóp í því að klifra
Mont Blanc frá þeirri einu hlið
sem enn hefur aldrei verið klif-
inn. Þar er upp að fara 800
metra þverhníptan vegg við Pil-
ier du Freney á hinni ítölsku
hlið fjaljsins. Foringi franska
hópsins var Pierre Mazeaud.
Þegar hóparnir báðir náiguð-
ust tindinn lokaðist þeim leið-
in vegna hríðarveðurs. Þá sam-
einuðust keppinautarnir j þvi
skýni að reyna að lifa óveðrið
af.
í hr'ðinni örmagnaðist annar
af félögum Bonattis og allir
Spánskur rithöf-
undur hcndtekinn
Spánska lögreglan hefur
handtekið rithöfundinn Arte-
mio Precioso, sem er vinstri-
sinnaður. Faðir Precioso var
rithöfundur og etjórnmálamað-
ur, en sjálfur var Precioso áð-
ur liðsforingi í lýðvelídishern-
um á Spáni. Yfirvöld Francos
einræðisherra gefa honum nú
að sök að hafa framið mörg
„morð“ í spænsku borgara-
styrjöldinni- Precioso var árum
saman í útlegð, en sneri heim
til Sþánar árið 1952.
Frakkamir nema Mazeaud létu
'ífið. Fyrirliðunum ásamt ítal-
•anum Gallieni var bjargað í
þyrlu, og voru þeir þá illa
leiknir af kali og taugaáfalli.
Þeir fundust í kofa, þar sem
þeir höfðu leitað skjóls, og
björgunarmennirnir komu þang-
að á síðustu stundu.
í aðeins 40 metra fjarlægð
frá kofanum fundu björgunar-
mennirnir iíkið af íranska fjall-
göngumanninum Kohlmann, og
nokkru lengra i burtu fundust
lik hinna - Fransmannanna
tveggja.
Brjálaðist af áreynslu
Bonatti skýrir svo frá, að á
leiðinni niður hafi Kohlmann
séð einn félaga sinn, sem gekk
fyrir framan hann, missa annan
vettlinginn, taka hann upp og
stinga honum á brjóst sér inn-
an glæða. Vettlingurinn hafði
blotnað og það var hættulegt að
setja hann á hendina strax.
Kohlmann virtist þá skyndi-
lega verða vitstola vegna á-
Kennedy Bandaríkjaforseti
liefur afturkallað útnefningu
negrans Frank D. Reeves (44
ára) sem fulltrúa i þriggja
manna stjórnarnefnd, sem
stjórnar Washington, höfuðborg
Bandarikjartina.
Reeves er fyrsti negrinn sem
útnefndur hefur verið í svo
hátt embætti i Columbia-fylki
en 'í' þ\'í er .yVashington, Því yar.
víða fagnað að negri skyldi
fá þessa stöðu og töldu menn
það vera spor í rétta átt í kyn-
þáttamálum. Bandaríkjanna.
Reeves, sem er lögfræðingur,
var mjög virkur í kosningabar-
áttu Kennedys og aðalráðgjafi
hans um málefni þjóðarbrota í
Bandaríkjunum. Hann lét þess
getið skömmu eftir útnefning-
una að hann skyldi vinna ötul-
lega að velferð og jafnrétti
þegnanna.
En það varð ekkert úr fyrir-
ætlununum um að gera blökku-
reynslu og þjáninga. Hann
tók tilburði félaga síns sem
merki um að hann væri að
gripa til skammbyssu í barmin-
um í því skyni að drepa sig’.
Síðan kom til alvarlegra slags-
mála milli Kohlmanns og ann-
arra þátttakenda í leiðöngrun-
um.
Fjórir dauða-
dæmdir í Kairo
Kairo 20/7 — Hinn opinberi
,,öryggisdómstóll“ í Kairó dæmdi
í dag fjóra menn til dauða fyrir
njósnir í þágu fsraels.
Einn af hinum ákærðu, sem
°r þýzk kona, var dæmd án þess
að hún væri viðstödd. Hinir,
sem dæmdir voru, voru eigin-
maður hennar, faðir hennar og
einn egypzkur maður.
Alls voru sjö menn ákærðir í
þessum réttarhöldum. Einn var
dæmdur í ævilangt fangelsi,
einn í 8 ára fangelsi en einn var
sýknaður.
mann að borgarráðsmanni í
Washington. Mótmæli misréttis-
raanna og hatursmanna blökku-
fólks í Bandaríkjunum, svo og
hótanir Qfstækishreyfinga eins
og Ku Klux Klan og John Birch.
beygðu forsetann, og hann ait-
urkallaði útnefninguna.
Heímsmet i
vöruflutningi
Sovézka fréttastofan Tass
skýrir frá því að sovézk flug-
vél af gerðinni TU-114 hafi
sett heimsmet með því að kom-
ast upp í 12.535 metra hæð
með 30.035 kg. vöruþunga inn-
anboi-ðs. Flugvélin er vöru-
flutningavél, og var hún í áætl-
unarflugi frá Moskvu til Ha-
barovsk í grennd við Vladivo-
slok.
Keimedy guggnaði á að skipa
Wökkuuiaiin í borgarráðið
Föstudagur 21 júlí 1961-— ÞJÓÐVILJINN — (&
BSéðugir bsrdsger i Tunis
Framhald af 1. síð.u.
Fyrir Öryggisráðið
Bourguiba forgeti tilkynnti á
blaðamannafundihum í dag, að
ríkisstjórn Túnis hefði ákveð-
ið að slíta stjórnmálasambandi
við Frakkland- 'Sænska stjórn-
in hefur samkvæmt beiðni Tún-
isstjórnar fallizt á að láta
sendiráð sitt i Paris gæta hags-
muna Túnis i Frakklandi.
Þá ákvað Túnisstjóm í dag
að leggja Bizerte-deiluna fyrir
Örs'ggisráð Sameinuðu þjóð-!
anna. Ambassador Túnis hjá
Sameinuðu þjóðunum, Mongli
Slim, fór í dag frá Túnis til |
New Yoyk til að flytja málið
fyrir hönd stjórnar sinnar.
Túnisstjóm ákærir Frakka fyr-
ir árásaraðgerðir sem ógna
friði í heiminum og alþjóðlegu
öryggi, auk þess sem þær
skerða fullveldi Túnis. Krefst
Túnisstjórn þess að Sameinúðu
þjóðirnar geri ráðstafanir til
að fá Frakka til að hætta
hernaðaraðgerðum sinum og
flytja lið sitt frá Bizerte.
Formaður Öryggisráðsins,
Leopoldi Benites frá Ekvac’.or,
sagði í 'dag að ráðið myndi
koma saman á morgun, föstu-
dag, til að ræða kæru Túnis á
hendur Frökkum.
Hassan Marokkókonungur og
útlagastjórn Alsírbúa hafa iýst
yfir fullum stuðningi við Tún-
is í baráttunni við Frakka um
Bizerte.
Franska stjórnin ræddi mál-
ið enn í gær. Debré forsætis-
ráðherra sagði í franska þir.g-
inu í gær að stjórn sín væri
reiðubúin til samninga við
Túnisstjórn um vopnahlé, en
hann kvað Túnissljórn e:ga
sök á bardögunum.
Yesturþýzk skriödreka-
deild til æfmara á Bretl.
Lontlon 20/7 — Margir af for-
Ingjiun brezka Verkamanna-
flokksins mótmæltu þvi harð-
lega í neðri deild brezka þings-
ins í dag, að brezka stjómin
skuli hafa gefíð Vesturþjóð-
verjum Ieyfi til að stunda her-
æfíngar með skriðdrekum á
brezku heræfingasvæði i Wales.
Sydney Silverman, sem er í
vinstri armi Verkamanna-
flokksins, sagði að ákvörðunin
um heræfingar Þjóðverja á
Bretlandi væri svívirðing í garð
þeirra 14 milljón manna, sem
féllu í síðustu heimsstyrjöld,
og saurgun á minningu þeirra.
Anthony Greenwood gagn-
rýndi þær mörgu ræður sem
vesturþýzkir ráðamenn hafa
haldið undanfarið til þess að
krefjast landvinninga í austri.
Þessi lardvinningastefna Vest-
urþjóðverja gæti auðvsldlega
dregið önnur NATÓ-riki inní
fjandsamlegar aðgerðir gegn
öðrum þjóðum sem þau ættu
ekkert sökótt við.
Harold Watkinson, hermála-
ráðherra, reyndi að verja að-
gsrðir stjómarinnar- Hann
Síigði að vesturþýzka herliðið
myndi dvelja á Bretlandi við
sömu skilyrði og bandaríski
Meistaramótið í
frjálsíþróttum
hófst í gærkvöld
35. meistaramót íslands í
frjálsum íþróttum hófst á Laug-
ardalsvellinum. í gærkvöld.
Helztu úrslit í einstökum grein-
um urðiiiþessi;
400 m grindahlaup; Sigurður
Björnsson KR 57.9.
200 m hlaup: Valbjöm Þor-
láksson ÍR 22,8.
5000 m hlaup: Kristleifur Guð-
björnsson KR 14,58,0.
800. m hlaup: Svavar Markús-
son KR 1.57,7.
Kúluvarp: Guðmundur Her-
mannsson KR 15,19.
Hástökk; Jón Ólafsson ÍR 1.90.
Langstökk: Vilhjálmur Einars-
son ÍR 7.06.
i Mótið heldur áfram í kvöld.
herinn eða aðrar NATÓ-her-
sveitir, sem þar dvelja í lengri
eða skemmri tíma. Þýzki her-
inn myndi nú senda til Bret-
lands stríðsvagnaherdeild með
30—40 skriðdrekum og
500—600 hermönnum. Þeir
myndu fyrst um sinn stunda
æfingar í þrjár vikur, en síð-
an yrði ákveðið hvort áfram-
hald yrði á þeim.
Áform ríkisstjómarinnar
var samþykkt í neðri deild-
inni með 148 atkv. gegn 10.
Þórhallisr Ejarn-
srson, prssitcri,
áttrafar í dag
f dag á Þórhallur Bjarnarson
prentari áttræðisafmæli. Þórhall-
ur er fæddur 21. júlí að Hlé-
skógum í Höfðahverfi í Suð'ar-
Þingeyjarsýslu sonur Bjariiár
ú, I* ; -
Einarssonar bónda þar og Sigut-
leífar Þormóðsdóttur konu hgnsc
Þórhallur varð gagnfræðingúr
frá MÖðruvallaskóla árið 10*96'-
Hóf hann síðan prentnám í
Prentsmiðju Björns Jónssonar
á Akureyri, lauk þar námi og
var þar lengi síðan prentari og
síðast prentsmiðjustjóri.
Þórhallur var einn af frum-
hsrjum ungmennafélagshreyf-
ingarinnar hér á landi og var
einn af stofnendum Ungmennar-
félags Akureyrar 1906, en það
var fvrsta ungmennafélagið á
landinu. Gegndi Þórhaþur mörg-
um trúnaðarstörfum innan hreyf-
ingarinnar. Einnig hefur hann
starfað mikið fyrir Kaupfélag
Reykjavíkur og nágrennis.
Eftir að Þórhailur fluttist til
Reykjavkur var hann prentiri
í Gu'enberg. Á síðustu árum
hefur hann tekið mjög virkan þátt
í baráPu hernámsandstæðinga
fyrir frjálsu íslandi til handa
íslendingum og lagt þar drýgri
skerf af mörkum en margur
yngri maður.
Þórhailur er kvæntur jón'nu
Guðmundsdóttur frá Tjarn-r-
koti á Miðnesi.
Þjóðviljinn árnar Þórhalli
allra heilla á áttræðisafmælinu.