Þjóðviljinn - 08.09.1961, Page 3
I»cssi myntl cr af stórhýsi, scm Amaró h.f. licfur látið reisa
við Hal'narstræti á Akureyfi. Mun það vera stærsta vcrzlunar-
hús, scm reist hefur verið á Altureyri. f fyrra var Inkið við
að stcypa húsið upp og cr nú unnið við innréttingar þcss.
Verður þetta vcrzlunar- og skrifstofuhúsnæði. Nýverið opnuðu
Bólstruð húsgögn verzlun á neðstu hæðinni og cr það stærsta
verzlun á Akureyri að gólfflcti. Á næsta vctri vcrður næsta
hæð l'ullbúin og flytja Bólstruð húsgögn þá verzlun sína þang-
að en Amaró h.f. flytur eigin verzlun, scm nú cr í næsta húsi,
á ncðstu hæð nýja hússins. Aðaleigandi Amaró h.f. er Skarp-
hcðinn Ásgcirsson. Myndin er tekin af suðurhlið hússins og
sést götuhæð hússins því ckki. — (Ljósm. Þ. J.).
Pólskt minnismerki afhjúpað
í Fossvogskirkiugarði í dag
f dag klukkan 2 c.h. verður af-
hjúpað í Fossvogsltirkjugarðinum
minnismerki um þá, er fórust
með pólska flutningaskipinu
janúar 1942. Hcfur pólska ríkis-
stjórnin látið gcra minnismerkið.
Á Wigry var 27 manna áhöfn
og fórust allir mennirnir nema
tveir. Þrír fslendingar voru á
skipinu og biargaðist einn þeirra
ásamt einum Pólverja. fslending-
urinn heitir Bragi Kristjánsson
tíl heimilis áð Mýrargötu 14. Var
hann 18 ára er betta gerðist.
Pólvei’.iinn. sem bjargaðist hét
Smolski. Pólska sendiráðið hér
héfur boðið Bruga að vera við
afhjúpunina.
Listsýningin
Framhald af 12. síðu.
annaÁ hvort ár síðan 1950.
Bandalagið var stofnað árið
1945 í Stokkhóimi og er til-
gangur þess „að stuðla að þvi
að efla norrænan samhug og
samstöðu í menningarmálum
með varanlegri innbyrðis list-
kynningu og samskiptum og
vinna á annan hátt að vexti og
viðgangi nurræns listalífs.“ Að
þessu marki hefur bandalagið
síðan unnið með hinum stóru
almennu norrænu sýningum og
mcð ýfirfitssýningum á verkum
einstaklinga.
Aðalfundur Norræna lista-
bandalagsfns verður haldinn hér
í Reykjavík á sunnudaginn og
kqma hingað á hann 16 lista-
menn frá Norðurlöndunum auk
íslendinganna. Þar verða rædd
ýmis mál varðandi sýningarnar
og sameiginleg vandamál önn-
ur.
Glæpaverk
Globkes
Framh. af 5. siðu
myndirnar voru einn liður í því
„úrvali“.
Éinnig í öðrum löndum
Skiöl þau sem birt Vofu í Prag
í fyrradag sanna einnig hlutdeiid
Globkes í glæpaverkum nazista
í öðrum löndum en Tékkóslóvak-
íu, einkum þó í Póliandi. Hann
hafði allt til stríðsloka nána
sámvinnu við þá deild SS-sveit-
anna untjir stjórn Himmlers er
átti að skipuleggja þýzkt landnám
í austurvegi. Aðeins örfáir menn
utnn SS-sveitanna fengu að
starfa að þessu verkefni. Meðal
þeirra var doktor Hans Globke,
hinn . samvizkulausi leppur naz-
istaböðlanna.
Wigry var á leið til Bandaríkj-
anna með ísfiskíarm, þegar það
fórst. Skipið fór frá Hafnarfirði
og var kcmið á móts við Skógar-
nes á Snæfeilsnesi, er annar ket-
illinn í vélarrúminu sprakk.
Þetta var : versta veðri og reyndi
skipið að snúa við en dró ekki
á móti storminum- og hrakti und-
an veðrinu unn að ströndinni.
Áhöfnin fór öll í björgunarbát
nema skiþstjóri og matsveinn. er
ek.ki vildu yfirgefa skipið. Þetta
var að kvcldlagi. stormur og
í'rost og haugabrim. Ætluðu
skipverjar að revna nð bíða
lendingar yfir nóttina en bátinn
hrakti upd í brimgarðinn og
hvolfdi. Nokkrir skiqverjar kom-
ust á kiöt, en siórinn sleit þá
einn af öðrum af kjölnum. Voru
aðeins þrír orðnir eftir undir
morsuninn. Bragi, Smolski og
briðji maður. Freistuðu þeir þess
bá að synda til lands og tókst
beim Braga og Smolski það, enda
er Bragi ágætur sundmaður, en
þriðji maðurinn drukknaði á
leiðinni. Smotski missti meðvit-
und. er hann kom upp í fjöruna,
en Bragi gekk berfættur og að-
framkcminn til bæjar að Skóg-
arnesi í frostinu og gaddinum.
Gerði hann þar aðvart um félaga
sinn og var honum bjarsað.
Eins og saga þessi sýnir er
Bragi mikið hraustmenni. Hann
hefur þó aldrei náð sér að fullu
í fótunum eftir þetta, því hann
var illa skcirinn og kalinn af
göngunni, er hann náði bænum.
Voru þeir báðir Pólverjinn og
Bragi lengi að ná sér eftir
þetta harðræði. Bragi hefur
tvívegis orðið skipreika eftir
þetta. Hann var á vélskipinu
Rafni frá Siglufirði er það sökk
fyrir nokkrum árum á Horna-
fjarðarósi og nú síðast var hann
einn af skipverjum á Sieipni
KE 26.
íslendingarnir tveir, sem fór-
ust með Wigry, hétu Garðar
Norðfjörð Magnússon úr Re^'kja-
vík og Ragnar Pálsson frá
Hveragerði.
Fallhlífalið frá
USA tii Evrópu
Washington 7/9 — Um 2.000
manna fallhlífalið verður efýr
nokkra daga sent frá Bandarítýj-
unum til Evrópu, en þar mun
það taka þátt í heræfingum At-
lanzbandalagsins í suðurhluta álf-
unnar. Æfingarnar verða frá 15.
til 25. septemher og taka þátt í
þeim tyrkneskar, grískar, ítalskar
og brezkar hersveitir auk þeirra
bandarísku.
Ilafið þið séð glugga-
sýningu afmæiishappdrætt-
is Þjóðviljans í Málara-
glugganum, Bankastræti
2. — Látið sýninguna ekki
fara framlijá ykkur. Hún
stendur til sunnudags-
kvölds.
*
Aukavinningar eru af-
greiddir í skrifstofu happ-
drættisins. Skrifstofan,
Þórsgötu 1, cr opip í dag
kl. 10—12 og 1—7. Á morg-
un, laugardag, kl. 10—12
árdegis. Sími hennar er
22396.
★
Unglingar, sem vilja
selja happdrættismiða, geta
vitjað þeirra á Þórsgötu
1. Góð sölulaun verða
greidd.
Framhald af 12. síðu.
ráðstafana bæjarfélagsins.
7.' — Undirbúringi þessa máls
og framkvæmd skal hraðað svo
sein verða má, og skai bæjar-
stjórn láíin í fé vitneskja um
framvindu þess stig af stigi.“
Alfreð Gíslason gerði grein
fyrir tillögunni og ástandinu í
gatnagerðarmáium Reykjavíkur
í mjög yíirgripsmikilli og rök-
fastri ræðu. Ekki eru tök á að
rekja þessa merku ræðu nér í
blaðinu að sinni, en væntanlega
verður hún birt i heild á naist-
unni.
Auðfundið var að væða Ai-
freðs kom mjög við kaun íhalds-
fulllrúanna í bæjarstjórn, þvi að
þeir risu hver af öðrum 'il ancU
svara: Björgvin Frederiksen,
Magnús Jóhanness. og Þorvald-
ur Garðar Kristjánsson, svo og
Gunnlaugur Pétursson, borgar-
ritari, sem gegnir störfum borg-
arstjóra í fjarveru Gejrs Hall-
grímssonar. Ræður íhaldsmann-
anna báru allar einkenni hins
gamla íhaldsanda: í þeim örlaði
hvergi á áhuga til úrbóth, held-
ur var reynt eftir megni að af-
saka sleifarlagið og vesaldóm-
inn.
Þessir - 10 íhaldsfulltrúar
I greiddu atkvæði með því að vísa
! tillögu Alþýðubandalagsins til
bæjarráðs, þ.e. töldu enga þörf
á úrbótum í gatnagerðarmálum
höíuðstaðarins: Auður Auðuns.
Gróa Pétursdóttir, Friðieifur
j Friðriksson, Þorvaidur Garðar
Kristjánsson, Björgvin Frederik-
sen, Magnús Jóhannesson, Guð-
mundur H. Guðmundsson, Gunn-
j ar Helgason, Úlfar Þórðarson og
Magnús Ástmarsson.
Mðntgomery víll
|3áia viðurkenna 1
bæði þýzkn ríkin
Peking 7/9 — Montgomery mar-
skálkur sagði í ræðu í veizlu
sem kínverska stjórnin hélt hon-
um til heiðurs í dag að viður-
kenna bæri bæði þýzku rikin.
Það myndi vera fyrsta skrefið
til að draga úr viðsjám í heim-
inum. Hann sagði ennfremur að
stjórnin á Formósu væri á eng'-
j an hátt fulltrúi kínversku þjóð-
arinnar. Það bæri því að viður-
kenna alþýðustjórnina sem eina
fulltrúa Kinverja.
Allt er
þá þrennt er
Morgunblaðið leggur það
mjög í vana sinn að snupra
Tímann, ef hann þykir ekki
nægilega skeleggur í kalda
striðinu. Lætur Tíminn sér þá
venjulega segjast, birtir það
sem Morgunblaðið vill fá og'
þiggur að launum fáein við-
urkenningarorð. En stundum
tekur Tíminn sjálfur frum-
kvæðið til þess að vinna sig
í ólit svo að um muni. Þann-
ig var það hér um árið þeg-
ar Tíminn samdi um það
feiknarlegar fréttir að Rúss-
ar væru að mæla allar brýr
á íslandi, lengd þeirra, breidd
og burðarþol, til þess að
ganga úr skugga um hvað
skriðdrekarnir kæmust. Þessi
frétt vakti mikla athygli og
öfund í öðrum NATO-blöð-
um og var um hana rætt
undir stórum fyrirsögnUm
dögum saman. Hitt þóttu öllu
minni tíðindi þegar í ljós
kom að eina tilefni fréttar-
innar um njósnir Rússa var
það að sakiaus íslendingur
hafði verið að mæia hvort
hann kæmi sumarbústað sin-
um yfir brú aftan á vörubíl.
Nú Jiefur Tíminn Jeikið
hliðstæðan leik með frétt
sinni um fiskibátinn sem fékk
rússneska kafbátinn í vörp-
una út af Stokksnesi, og enn
urðu hin NATO-blöðin græn
og gul af öfund og sjálfur
dómsmálaráðherrann fyrir-
skipaði réttarrannsókn. Tím-
inn birti hina upphaflegu
frétt sína undir fimm dálka
fyrirsögn á forsíðu; hins veg-
>ar var ekki orð um það í
blaðinu í gær að kafbáturinn
rússneski hefði reyndar ver-
ið sakiaus hraðbátur frá
Akranesi. Séu einhverjir þeir
menn til sem sækja alla þekk-
ingu sína í Tímann skulu
þeir vera í þeirri trú til
eilífðarnóns að fréttin um
kafbátinn sé heilagur sann-
leikur, á sama hátt og Tím-
inn hefur ekki enn beðizt ai-
sökunar á frásögn sinni um
brúamæiingar Rússa forðum
tið.
En/ allt er þegar þrennt er.
Tíminn hefur haft frumkvæði
að fréttum um njósnir Rússa
á landi og sjó. Hvenær kem-
ur furðuflugvélin?
Frjáls
fréttaflutninguri
Fréttaflutningur eins og sá
sem hernámsblöðin hafa á-
stundað að undanförnu vek-
ur menn til umhugsunar um
það hversu erfitt er að afla
sér öruggrar vitneskju um
samtímaatburði. Frásögnin
um kafbátinn út af Stokks-
nesi var send í sím^keytum
út um allar jarðir og birtist
í blöðum og útvarpsstöðvum
víða um heim. En um leið-
réttinguna verður steinþagað.
Þess vegna mun grandalaust
fólk taka fréttina trúanlega
og hún hefur áhrif á skoðan-
ir þess. Eflaust ber hana á
góma ' í deilum manna og
blaða um heimsmálin; húa
verður ótvírætt sönnunar-
gagn um ágengni og vonzku
Rússa. Og hver veit nema
eitthvert Alþýðublað úti í
löndum krefjist þess á forsiðu
dag eftir dag að samtök frið-
arsinna geri ályktanir til þess
að rnótmæta því að íslend-
ingar séu leiknir svona grátt,
v — Austri.
Föstudagur 8. september 1961 — ÞJÓÐVILJINN — (0