Þjóðviljinn - 02.11.1961, Qupperneq 4
BENEDIKT FRA HOFTEIGI SKRIFAR:
ANNAÐ BREF til
prófessors Ólafs Jóhanne
Ég kemst ekki hjá því að
•skrifa þér annað bréf, ekki fyr-
ir það að þú hafir haft mann-
skap til að gera grein fyrir
gjörðum þínum í Nalóleiðangr-
inum. Það má virða þér til
vorkunnar að endurminningin sé
■ekki glögg um tilefnið og frægð-
arljósið af herförinni í gluggum
Morgunblaðsins sé ekki til þess
fallið að kasta ljóma á þuml-
unginn sem þú vannst með
sjá.ifum þér af Rússum í herför-.
inni.
En hér er annað í efni. Fólk-
ið virðist ekki láta það hlut-
laust sem hér hefur skeð, og
það hefur ýmis ráð til að láta
skoðun sína í ljósi, t. d. með
einföldu símtali. Það kemur í
ljós, að fleirum en mér, hefur
komið þessi mannskaðafrétt af
þér óvænt og hörmulega og sýta
góðir og gamlir Framsóknar-
bændur mest. Það er þó enn
eftir af feðranna frægð. að
gráta ekki Björn bónda, en
meta skaðann á réttan mæli-
kvarða og una því í forlaga-
fræðinni, að svo taka menn
gjöld sem þeir gera til.
Það sem fyrst hefur komið í
fjós, er þakklæti fyrir þessa til-
raun mína „til að rétta komp-
ásinn“ eins og komizt var að
orði í hernatófasistum Fram-
sóknarflokksins og samvinnu-
manna. Framsóknarmenn með
rétta dómgreind koma því ekki
saman, að þeir né aðrir sam-
vinnumenn hafi neitt saman við
slíka menn að sælda, og menn
eins og Halldór skraf og Þor-
björn rindill hafi nokkurt hlut-
verk á íslandi nú á tímum með-
al þeirra.
öðrum Framsóknarmönnum
þykir ég firna ósvífinn, að meta
gáfur þínar á þumlunginn, þar
sem þetta sé þó maður, sem sé
• minnsta kosti alin. Ég hef lofað
því að athuga það, hvað þuml-
ungurinn geti verið langur.
Allir taka það fram að þú sért
bezti maður og því trúi ég vel.
Það er engin hætta á því, að
þú nagir járn af heiftinni út í
menn og málefni.
Ég veit að íslenzka þjóðin er
góð þjóð, og ég þekki marga
ágæta menn í Framsóknar-
fJokknum. Alveg það sama er
að segja um Sjálfstæðismenn.
Þetta eru yfirleitt góðir menn,
að undanteknum litlum efri
helmingi á einum eða tveimur
stcrum mönnum. En þeir hafa
ient í því óláni að gerast Nató-.
harðstjórar og koma út með:
’ bréfum um skert landsréttindi
” og skertan hag þjóðarinnar, éins
og gamalkunnugt er af hirð-
stjórasögu landsins. Það eru líka'
hinir beztu menn í Alþýðu--
fiokknum, en sá flokkur hefur
lent í hinni sömu raun og bænd-
urnir um 1750, að fella kýrnar
sínar og verða svo að kaupa
maðkamjöl af Hörmangarafélag-
inu í skuld, sem þeim hefur-
orðið bumbult af, svo nú er eins
og þeir rcli í óviti út í fen og
foræði eða fyrir björg, eins og við
bændur þekkjum að ormaveik-
ir og lúsugir gemlingar gera á
1 vorin. Og ekki virðast þeir nú
- vera neitt úrhrak í kommúnista-
: flokknum, mennirnir, sem koma
út með bréfum, sem eru við-
skiptasamningar við Rússa, fyr-
ir natóharðstjórana og mjölæt-
urnar, þegar þeir hafa ekki get-
að kvittað maðkamjölið með af-
urðum landsins. Þessir menn
virðast lifa eftir ritúalinu: Elsk-
ið óvini yðar! Blessið þá, sem
yður bölva! O. s. frv. Já svona
er þetta Ólafur minn! Góðir
menn, ill verk. Þetta er svarta-
galdurinn í nútíðarsögu lands-
ins.
En hvernig horfir nú þetta
við fyrir þínum vitsmunum?
Hér eru það Natóhirðstjórarnir,
sem koma út með þeim bréfum,
að hagur alls almennings skuli
stórum skertur, landhelgin skuli
stórum dregin inn fyrir stór-
veldin, og þetta kallað stórsig-
ur í því máli, sem íslendingar
höfðu unnið, við hin sömu stór-
veldi. Háskalegar gjörðir eins
og niðurskurður á genginu,
tækifærislega af hugdettum hirð-
stjóranna, standa í þessum bréf-
um, allsherjar launakúgun, líka
á prófessorum, stendur þar
einnig og síðan boðuð innrás,
liklega af skatta- og gjaldeyris-
sviknu fé, til stórgróðafyrir-
tækja, ef tekst að láta íslend-
inga vinna fyrir lægra kaup en
mannvinir í Nató hafa goldið
svertingjum í þrældómi, sem
tilheyrir þeirra innblásna krist-
indómi. Síðan her og hrúgur af
vopnum í landinu, ef það skyldi
þurfa að grípa til þess móti
verkamönnum og samvinnu-
mönnum í landinu, eins og
Portúgalir gera í Angóla. Þú
þykist berjast í þínum flokki
móti þessu öllu, en skilur ekki
samhengi hlutanna. Þegar á
reynir hleypur þú undir merkið
með her og Nató. Það þýðir að
þú sækir um Natóhirðstjórn
(var þekkt í gamla daga) til þess
að geta komið út með svona
þokkalegum bréfum.
Ef þér hefði tekizt að verða
Natóhirðstjóri fyrir þremur ár-
um, hefðir þú komið út með
viðreisnina og alla lygina og
allt falsið, hefðir þú orðið að
segja af dyggðugri sannfæringu,
sem nú er búið að hafa í frammi
um þessi banaráð við þjóðina.
Þú hefðir komið út með stór-
sigurinn í landhelgismálinu, og
þá hefði nú verið svipur á mín-
um general! Og þú hefðir farið
til Akureyrar til að blása upp
herkúlur á fundi stráka og
naga járn af heiftinni yfir Rúss-
um, og allri - félágslegri menn-
ingarúppbyggingu . í veröldinni,
hvarvetna. Finnst þér nú þuml-
ungurinn hafa nokt^^lengzt á
allan þennan' vitsmunamæli-
kvarða? ]'.
Allt þetta og mik’iu rríé'irá
þýðir herför þín í natófélaginu.
Og þó þýðir hún fyrst og fremst
þetta: Þú skilur ekki samhengið
milli botnlausrar kúgunar á
þjóðinni og natóvald.inu í hönd-
um hihðstjóranna. Þú ert á móti
kúguninni, en styður valdið
sem veldur henni. f þessu felst
sú auðráðna gáta. hvort þú sért
sjálfur á móti sjálfum þér eða
sjálfur ekki neitt í stríði þjóðar-
innar við natóvaldið eða tilvon-
andi bréfberi Nató, t.d. um
Efnahagsbandalagið. Jón krukk-
ur gat ekki um þig í sinni spá,
svo líklegt er, að þú losnir við
frekara ólán af tilhneigingum
þínum.
Frá þinni hlið var þó herför-
in verst í því efni, að nú var
sízt ástæða til herfarar. Nú er
þetta heimsins herfararmál
komið á það stig, að allir menn
með viti hljóta að stinga fótum
við og leggja sitt lið fram til
þess, að þeim voða verði af-
stýrt sem nú blasir við heimin-
um — hvorki meira né minna
en öllum heiminum — og gildir
hvorki meira né minna en
framhaldslíf á þessari jörð.
Hér var sxzt ástæða til að blása
í hei’Iúðra, því hér bjai’gar ekki
nema eitt — fullkomin afvopnun
alh’a þjóða — friðar og öryggis-
sáttmálar allra þjóða — enginn
her né herstöðvar í nokkru
landi. Þetta er óskadraumur
allra siðaðra manna, hugsjón
allra sannra mannvina. Allir
siðaðir menn vita að her og her-
mennska er böl fyrir alla menn
og eru eftirleguhættir frá frum-
mennsku, en siðmenntun og
kristindómur afneita í allra
krafta nafni.
Keisarar og kóngar studdust
við herinn í kúgun sinni á al-
múganum og í bílífi sínu á
frummennskustigi. Nú eru þeir
flestir úr sögunni, en auðvaldið
tók við frummennsku þeirra í
flestum löndum og studdist enn
við her til að halda völdum,
kúgun sinni og bílífi í þjóð-
löndunum. Það er ,,konunglegt“
að inni’æti og alþýðan veit að
það verður að fara sömu leiðina
og fyrirrennarar þess, kóngar
og co., en félagsleg menningar-
uppbygging að koma í staðin
meðal sjálfrar alþýðunnai’. Þetta
er lcomið vel á veg í stórum
hluta heims, og þumlungast á-
fram jafnt og þétt. Auðvaldið
ærist við þessa þróun mála og
hefur búið sér til hervaldsblökk,
sem kclluð er Nató. Svo aumir
voru þeir í upphafi, að þeir
báðu íslendinga, sem ekki mega
mannsblóð sjá, að vera með!
Nató stefndi og stefnir á gróða-
stríð við alþýðuveldin og til að
brjóta niður hina félagslegu
menningaruppbyggingu þeirra.
Engan annan tilgang gat þessi
herblökk haft, enda bjóst hún
ákaft hei’búnaði til þessara
hluta. Alþýðuveldin sáu hvað
verða vildi og hafa aukið her-
búnað sinn, svo yfirdi’ifið vís-
indalega, að nú lekur allt nató-
herkerfið máttlaust niður og
getur ekkert nerna notað kjaft.
Þú og þínir félagar eru komnir
með í skrækina, þrátt fyrir öll
borginmannlegheitin í herför-
inni, þegar ekki var búið að
tapa neinum þumlungi.
Nú er náttúrlega hver s.iálf-
um sér næstur og ekkert fyrir
íslendinea að gera annað en
draga sitt land undan skotmark-
inu og ganea til liðs við hið al-
þióðlega friðai’mai’kmið og neita
allri hlutdeild í manndrápum
og tortímingu verðmæta. Annai-s
liggur það fyrir, að bú og bín-
ir fé'aear. og þín elskaða þjóð,
liggi í stúfum og stvkkjum út
um allar Hausaskeliahæðir hins
víðlenda. mannleeamisfarar-
lands. „Hvorn veginn nú?“ Ætl-
ai’ðu aftur onpá hernómshaug-
inn og gala herveldunum holl-
ustu bína? Eða ætlarðu að koma
vitinu fyrir siálfan sig og her-
fasistana í þx'num flolcki, sem
ekki er vitað að hafi lent í því
óláni, að koma út með hii’ð-
stiórabréfum né kaupa maðka-
miöl, til að leggja sitt lið fram
í félagi við alla ærlega íslend-
inga. að losa landið við her-
smánina og Natóófögnuðinn?
„Hvorn veginn nú?“
Þetta er orðið mál sem í sínu
viðhorfi leitar fastar á ábyrgð
og skyldu hvers lifandi manns
en annað allt sem er í viðhorfi
Framhald á 10. síðu.
ÆF-heimsókn til Akraness
Samkomusalurinn í Rein, hinu glæsilcga félagsheimili sósíalista á Akranesi.
Næstkomand: laugardag, 4.
nóvember, efna Æskulýðsfylk-
ingai-nar í Reykjavík og Kópa-
vogi til .vuiátty- ,Qg1:skemmti-
ferðártil-: Æslculýðafyfkingar-Jií
innar á Akranesi.
Farið verður frá Tjarnar-
götu 20 kl. 19 á laugai’dag með
langfei’ðabílum. Áætlað er að
komið verði til Akraness um
kl. 21.
Nokkru seinna hefst kaffi-
drykkja í félagsheimili sósíal-
ista á Akranesi, Rein. Um
kl. 23,00 hef-st dansleikur er
stendur til kl. 2 e. m. Hljóm-
sveit úr Reykjavík vérður
með í förinni. Gist verður í
Rein um nóttina. Geta félágar
hreiðra^ um s.'g í svefnpokum.
Kl. 13.30 á sunnudag hefst
samrreðu fiíhdúr'•":;!§! Ili hinna
þriggja deilda. Tií Reykjavík-
ur verður farið kl. 19.45 með
m/s Akraborg.
Ekki mun þurfa að hvetja
félaga til að fjölmenna í þessa
vináttu- og skemmtiheimsókn
til Æskulýðsíylkingarinnar á
Akranesi. Eflaust fýsir marga
að sækja félaga á Akranesi
heim og skoða hið myndai’-
lega félagsheimili sósíalista
þar, er ber félögunum þar
glæsilegt vitni um dugnað og
stórhug.
Áski’iftalistar liggja frammi
á skrifstofu Æ.F.R. Tjarnar-
götu 20, sími 17513 og í félags-
heimili Æ.F.K., Þinghól í
Kópavogi.
Þátttökugjald er kr. 100.00,
þ. e. ferðir fram og til baka.
Fclagar fjölmennum til
Akraness um næstu helgi.
Félagar skráið ykkur til
þátttöku fyrir föstudag.
Æ.F.R. og Æ.F.K.
A) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 2. nóvember 1961