Þjóðviljinn - 02.11.1961, Page 5
Með hjálp NATO
Forsætisráðherra útlagastjórn-
ar Serkia. Ben Khedda, sagði í
útvarpsræðu í dag. að Frakkar
gætu aðeins haldið áfram styrj-
öklinni gegn Þjóðfrelsishreyfing-
unni vegna þess að heir nytu
til bess stvrks Atlanzhafsbanda-
lagsins. og þá fyrst og fremst
• Bandaríkianna. Ben Khedda
sagði að þeir sem berðust fvrir
frelsi Alsír kynnu vel að meta
þann siðferðilega stuðning sem
þeir hefðu fengið frá sósíalísku
ríkjunum. En Alsírbjóðin vissl
líka hveriir væru óvinir beirra
og beir væru fyrst og fremst
NATO-ríkin.
Friður í Laos
j Framhald af 1. siðu.
vopn til landsins. Ríkisstiórnin
má aðe'ns flytia inn bau vopn
sem hún telur þörf á fyrir her
sinn.
Fólk. sem situr í fangelsi,
skal látið laust í síðasia lagi
mánuði eftir að vopnahléssamn-
ingar eru undirritaðir. Ábyrgðin
| á því að samkomulag.'ð verði
haldið hvilir á hinum þrem
pólitísku öflum í Laos -— vinstri-
mönnum. hæerimönnum og hlut-
I leysisstefnumönnum — þar til
mynduð hefur verið gamsteypu-
stjórn í landinu.
Eftirlitsnefnd'n hefuv friálsar
hendur til að afla sér þeirra
j tækja, sem hún telur sig þurfa
til að rækia starf sit.t.
Bæði kínverski og brezki
fulltrúinn á ráðstefnunni létu í
ljós það álit. að genc.'ð yrði frá
endanlegu samkomulagi á næsta
' í fundi.
hafði riftað samningum allra
verkalýðsfélaga á landinu með
gerræðislögum og valdið stór-
felldri kjaraskerðingu.
Einar taldj nær að flytja til-
lögu um að reiknað verði út það
tjón er launþegar liefðu .orðið
fyrir vegna þess að rofnir voru
á þeim samningar um vísitölu-
hækkun. Og tjónið af hækkun
verðlagsins frá marz 1960 — maí
1961. Eða hvert tión Vinr.iuveit-
endasamband íslands og ríkis-
stjórnin hefði valdið verkamönn-
um og þjóðinni allri með þvi
að þrjózkast við að semja við
Dagsbrún og fieiri félög í fjór-
ar vikur sl. sumar.
Það hefði örsjaldan komið fyr-
ir í þau 60—7o ár sem verka-
lýðshreyfingin hefur starfað að
atvinnurekendur hafi boðið kaup-
hækkun, heldur hefur viðkvæð-
ið alltaf verið, hvern:g sem gekk,
að atvinnuvegirnir þyldu ekki
kauDhækkun. Verkamenn og
aðrir launþegar hafa orðið að
sækia hveria kjarabót, hverja
réttindaaukningu, og til þess
hafa verkfölljn verið þau vopn
sem bezt hafa bitið.
ÁRÓDUR GEGN VERKA-
UVÐSHREYFINGUNNI
Eðvarð Sigurðsson vísaði í
stuttri en hvassri ræðu á bug á-
róðursþvælu Jóns Þorsteinsson-
ar og hvernig tillögunni væri
ætlað að styðja áróður atvinnu-
rekenda gegn verkfallsbaráttu
launbega.
Tók Eðvarð dæmi um margs-
konar ávinning af verkfallsbar-
áttu liðinnq ára, áhrif st.vtts
v'nnutíma á heilsu og líf verka-
manna og gagnmerka löggjöf er
fengizt hefði fram með verkföll-
um.
En flutningsmaður tiUögunnar
hefði sagt úr ræðustól Albingis
fyrir nokkrum dögum að banna
hefði átt verkföllin í sumar og
að banna ætt'i verkföll þau sem
gætu orðið á næstunni. Það
væri í þeim anda sem Jón
Þorsteinsson flytti þessa tillögu.
Málið varð ekki útrætt í gær.
Neita að virða
sessipfkkt SÞ
NEW YORK 1/11 — Bandaríski
fulltrú.nn Arthur Dean lýsti yf-
ir bví á fundi allsherjarþings
Sameinuðu þjóðanna í dag, að
Bandaríkin myndu greiða at-
kvæði gegn tillögu Indlands um
að þegar i stað verði stöðvaðar
allar tilraunir með kjarnorku-
vopn.
Dean sagði að þótt indverska
tillagan verði samþykkt —- og
j allar líkur benda til þess að svo
verði gert — þá myndu Banda-
ríkin engu skeyta slíkri sam-
þykkt heldur hefja kjarnorkutil-
raunir þegar þeim sýndist svo.
Karjjalainen
er þöoiull
HELSINKI 1/11 Karjalainen ut-
anríkisráðherra Finnlands kom í
dag til Finnlands, en hann batt
skjótan endi á heimsókn sína
til Bandaríkjanna þegar fréttin
um orðsendingu Sovétstjórnar-
innar barst honum. Ráðherrann
neitaðj að segja nokkuð við
blaðamenn um orðsendinguna í
dag.
Kekkonen forseti, sem vænt-
anlegur er heim á föstudag,
mun halda útvarpsræðu til þjóð-
arinnar þegar eftir heimkomuna,
sagði Karjalainen.
Meðal fulltrúa á 22. þingi Kommúnistaflokks Sovétríkjanna cru
margir kunnir rithöfundar og listamenn. Hér á myndinni sjást
tveif þeirra, Sjolokoff (t. h.) ræðir við ljóðskáldið Tvardovskí.
Framhald af 1. síðu
ust i verkföllum. Beinar kaup-
hækkanir. sem verða raunveru-
legar kauphækkanir, aukning á
kaupmættj tímakaupsins, néma
við völd sé ríkisstjórn sem not-
ar vald sitt til að rýra kaup-
máttinn. Og það getur verið
nauðsyn að heyja verkföll til að
vinna upp rýrnun kaupmáttar-
ins, og þannig hafa allmörg
verkföll verið háð undanfarna
áratugi til þess að halda í horf-
ínu. Og því færi fjarri að slík
verkföll hafi verið árangurs-
laus, hvað eftr annað hafi tek-
izt að auka kaupmáttinn, þegar
ríkisstjórnin hafði stórminnkað
hann. Og það eru ekki lágar
upphæðir sem unnizt hafa í
verkföllum. f verkföllunum 1955
var samið um 12% kauphækk-
un og 4% í atv'nnuleysistrygg-
ingasjóð. Þau 4% eru nú orð-
in á þriðja hundrað inilljónir
króna, og geta menn þá hug-
leitt hvað 12% hækkunin hafi
gefið. Kaupmátturinn hélzt þá
að mestu leyti í sex ár, vegna
vísitöluákvæðanna.
• Hitt sem unnizt getur og unn-
izt hefur i verkföllum er það
sem nefna má ómetanleg verð-
mæti. Það vinnst félagsþroski,
viðurkenning á manngildi og
réttindum verkamanna. að þeir
séu samningsaðilar. Svo. mikil-
væg réttindalögg.jö.f og orlofslög-
in og lögin um atvinnuleysis-
tryggingar eru fengin sem árang-
ur verkfalla.
Verkföll á íslandi hafa yfir-
leitt verið m.iög árangursrík,
verkalýðshreyfingin hefur lengst
af sigrað í þeim. Ýmist bætt
kjör verkamanna beinlínis, eða
varið þau rýrnun. sem ekki er
síður nauðévn. En verkamenn
vilja spara sér fórnir verkfall-
anna. Þe:r biðu í nærri 2Vs ár
eftir að núverandi ríkisstjórn
Dörssk bókesýning
Gpnuð í dag
I dag opnar Bókaverzlun Sig-
fúsar Eymundssonar sölusýningu
á dönskum bókum í húsakynn-
um sínum í Austurstræti 18.
Á sýningunni verða nær 1000
bókatitlar frá átta helztu bóka-
útgáfum í Danmörku. Eru bæk-
urnar um hin margvíslegustu
efni,. skáldskap í bundnu og ó-
bundnu máli, ferðabækur, ævin-
týri, alþýðuleg vísindarit, sagn-
fræði, náttúrufræði, eðlisfræði,
uppeldisfræði, listaverkabækur
og ýmis konar úrvöl. Er þarna
um að ræða bæði dýrar og ó-
dýrar bækur.
Á sýningunni eru helztu bæk-
: ur allra helztu höfunda danskra,
bæði eldri og yngri, og heildar-
útgéfur af verkum. sumpa beirra.
Einnig eru þar ' margar þýddar
bankur, sem ekki hafa verið
gefnar út á íslenzku.
Abar bækurnar, sem eru á
sýningunni, eru til sölu á meðan
birgðir endast og auk þess tek-
ur bókaverzlunin að sér að út-
vega allar fáanlegar danskar
bækur með pöntun með sluttum
fyrirvara.
Bléðbeð í Alsír
Framhald af 1. síðu.
ar á hópgöngufólk með barefl-
um og sprengjukasti og var
sumstaðar tekið á móti með
þeim afleiðingum að þrír fransk-
ir hermenn féllu og 16 særðust.
Víða var hinn græn-hvíti fáni
, Þjóðfrelsishrevf.'ngarinnar við
hún og börn veifuðu litlum
þjóðfrelsisfánum upp að nefinu
á frönskum hermönnum.
Arne Skaug, viðskiptamála-
ráðherra Noregs, skýrði frá
því í Osló fyrir skömmu að
hringferð hans um aðildarríki
Efnahag'sbandalagsins og frí-
verzlunarbandalagsins (EFT
A) hefði sannfært sig um að
Noregur hefði enga ástæðu
t.l að hraða hugsanlegri um-
sókn sinni um upptöku í
Efnahagsbandalagið.
Kleopatra Elizabeth Taylor
hefur orðið fyrir átakanlegum
skakkaföllum. Stjörnudýrk-
endum er enn í fersku minni
að „Liz“ varð hættulega veik
skömmu eftir að hún byrj-
aði ,að le.ka í kvikmyndinni
um Kleopötru. 48 stundum
eftir að upptaka myndarinn-
ar hófst að nýju eigi alls
fyrir löngu byrjaði ólánið á
ný. Húsabraskari kærði Liz
og eig'nmann hennar fyrir að
hafa ekki greitt sér þóknun
fyrir að útvega þeim hús til
leigu (mánaðarleiga 130.000
krónur). — Og bandarísk
þingmannanefnd kærði kvik-
myndafélagið 20th Century
Fox vegna þess að L;'z Kleó-
patra neitaði að tala við þing-
mennina sem voru í heim-
sókn í Róm.
Haakon Bingen, formaður
fyrir þeirri deild norska
Verkamannaflokksins sem
kallar sig ,,Social:'stisk For-
um“ og meðlimur í borgar-
stjóm Oslóar, hefur varað
við inngöngu Noregs í Efna-
hagsbandalag Evrópu. Bing-
en, sem einnig er ritari fjár-
mála- og tollnefndar Stór-
þingsins, birtlr skoðun sína
í verkalýðsblaðinu Handels-
og kontorfunktionæren. ,,Þátt-
taka í Efnahagsbandalaginu
mun hafa alvarlegar afleið-
ingar fyrir okkur á flestum
sviðum, skrifar Bingen. „Nor-
egur er smáríki og getur ekk:
reiknað með að hafa nein af-
gerandi áhrif á þá pólitík sem
stofnanir Efnahagsbandalags-
ins munu reka. Það er mest
raunsæi i því að ganga út
frá því að stefna og pólitík
Efnahagsbandalagsins verði
mvnduð samkvæmt sjónar-
m'ðum og hagsmunamálum
stórveldanna“.
Susan Pratt heit.r 23 ára
gömul heimasæta í Suður-
Afríku. Faðir hennar, sem var
bóndi, komst í heimsfréttirn-
ar í fyrra þegar hann sýndi
Yerwoerd forsætisráðherra
banatilræði. Síðar hengdi
David Pratt sig í fangaklefa
sínum í Bloemfontein. Susan
giftist Bob nokkrum Hoff-
man, 23 ára gömlum syni
bandarísks olíumilljónera.
Brúðkaupið fór fram í Lond-
on.
Luigi Einaudi, fyrrverandi
forseti Ítalíu, lézt í sjúkrahúsi
í Róm s.l mánudag. Einaudi
var fyrsti forseti Ítalíu eftir
stofnun lýðveldisins árið
1948.
, Martin Nie-
möller, kunn-
ur friðarvinur
og klerkur og
kirkjumála-
ráðherra í
Hessen í Vest-
ur-Þýzkalandi,
var nýlega
endurkosinn
forset.i
þýzku deildar
Alþjóðasam-
tak^ styrjald-
arandstæðnga. Varaformaður
þýzku deildarinnar er.'Iög-
fræðingurinn Lidl frá Múnch-
en og annar varaformaður
Werner, klerkur frá Kaiser-
slauten.
Fimmtudagur 2. nóvember 1961 — ÞJÓÐVILJINN — (JJ