Þjóðviljinn - 02.11.1961, Síða 9
Knattspyrnufélagið Þróttur
hélt 12. aðalfund sinn í Þjóð-
le.'khússkjallaranum s.l. sunnu-
dag. Formaður félagsins, Har-
aldur Snqrrason, setti fundinn,
og flutti skýrslu stjórnarinnar,
sem var hin ýtarlegasta. Bar
hún það greinilega með sér að
á liðnu ári heur verið grósku-
mikil starfsemj í félaginu.
Á starfsárinu var stofnað full-
trúaráð innan félagsins, og
stjórn kosin f.vrir það, og er
Bjarni Bjarnason formaður
þess.
Sagt var frá ferð þriðjaflokks
drengja félagsins sem fóru til
Danmerkur og háðu þar 10
knattspyrnuleiki og 3 le'ki í
handknattleik á 16 dögum, og
var það hressilega af sér vik-
ið.
Þróttur tók á móti skozka
knattspyrnuliðinu Dundee hér
í júlí og tókst sú heimsókn
vel. Mun langt siðan miðsum-
arsheimsókn hefur tekizt án
halla, en það tókst Þrótti að
þessu sinni. f þessu sambandi
má geta þess að í samsæti því
sem haldið var eftir leik Þrótt-
ar önnuðust stúlkur félagsins
framreiðslu alla, og kostaði það
félagið ekki nema 500 kr., og
þó voru gestir milli 70 og 80
manns. Var þetta hið skemmti-
legasta hóf og til eftirbreytni
fyrir önnur félög.
Haldið hefur verið uppi
ýmsri félagsstarfsemi eins og
fundahöldum og kv'kmynda-
sýningum. Bridgekeppni hefur
verið haldið uppi með mikilli
þátttöku. Yngri flokkar félags-
ins hafa keppt mikið af auka-
leikjum við félög í Reykjavík
og utanbæjar, og hefur það
haft mikla þýðingu fyrir starf-
semi flokkanna.
Þeir hafa líka verið sigur-
sælli en nokkru sinni fyrr og
þá sérstaklega annar flokkur
sem vann bæði Reykjavíkur-
og íslandsmeistaratitilinn.
Á árinu hefur félagið náð
samkomulagi við Dannebrog
Um húsnæði í Grófinni fyrir
mikið af félagsstarfsemi s:'nni,
og binda félagsmenn miklar
vonir við það.
Þá átti stjórnin viðræður við
Stefán Runólfsson um afnot
eða kaup á manvirkjum Ung-
mennafélags Reykjavíkur og
virtust samningar vel á veg
komnir, er Stefán féll frá, og
hafa ekki frekari samningaum-
ieitanir farið fram.
Félagið hefur reynt að vera
sjálfu sér nóg með þjálfara
og hafa félagar annazt þjálfun
flokkanna, hafa þar lagt virka
hönd að verki Gunnar Pét-
ursson, Axel Axelsson og Jón
Ásgeirsson. Hefur þeim vel
tekizt því að á þessu ári hafa
Þróttarar hlot'ð 65 stig og
skorað 123 mörk gegn 185, en
í fyrra skoruðu þeir 72 mörk
en fengu 176 og hlutu 38 stig.
Sama var varðand: hand-
knattleikinn; þar voru það
Þróttarmenn sem þjálfuðu og
nú hefur félagið fengið Karl
Jóhannsson til að þjálfa fyrsta
og annan aldursflokk og hyggja
Þróttarar vel til þess. Guð-
mundur Axelsson þjálfar 3.
fl. og Böðvar Guðmundsson
kvennaflokkana.
Nokkrar umræður urðu um
skýrsluna Qg reikninga félags-
ins.
í kaffhléi sem gert var,
kom formaður Knattspyrnu-
ráðs Reykjavikur. Jón Guð-
jónsson, og afhenti hinum sig-
ursæla öðrum flokki Þróttar
bikar fyrir sigur liðsins í
Reykjavíkurmótinu. Hann af-
henti einnig 1. fi. félagsins bik-
ar fyrir sigur fiokksins i Mið-
sumarmótinu. Árnaði Jón
Þrótti heilla með sigra þessa
og sagði að ef þessi efnilegi
annar flokkur héldi vel saman
mundi hann færa félagi sínu
marga sigra.
Þá afhenti varaformaður
Þróttar íslandsmeisturunum í
öðrum flokki, sem er fyrsti
flokkur félagsins sem hlýtur
þetta sæmdarheiti, sérstök
verðtaunaskjöil fyrir afrek'ð,
og sömuleiðis Jóni Ásgeirssyni
þjálfara flokksins.
Þá afhenti óskar, fvrir hönd
stjórnarinnar,. Ormari Jóns-
syni áletraðan pening fyr'r.íSér-
staka ástundun við Eéfingar og
félagsleg störf.
Hann afhenti einnig þrem
drengjum úr þriðja flokki, 5
úr fjórða og 5 úr fimmta-
■flokki merkj félagsins fyr’r
góða ástundun við æfingar
og fleira.
Að lokum afhenti Óskar
stúlkum beim sem iéku í 2.
og 1. flokki í handknattleik
1957, mynd af flokkinum, en
bað ár sigraði Þróttur £ öllum
flokkum.
Þá kvaddi sér hljóðs Helga
Em'lsdóttir, og ávarpaði stjórn
félagsins og kvaðst eiga að af-
henda henni og félaginu mynd
af Reykjavíkurmeisturunum
1956 og íslandsmeisturunum
1957. Um leið hvatti hún kyn-
systur sínar til að æfa af
kappi.
Eft r kaffihlé fór fram kosn-
ing i stjórn félagsins. Var Har-
aldur Snorrason kjörinn for-
maður með lófataki.
Unglingaleiðtogi var kosinn
Gunnar Pétursson og formað-
ur handknattleiksde'ldar var
kosinn Böðvar Guðmundsson.
Aðrir í stjórn voru kjörnir
þeir Óskar Pétursson, Guðjón
Oddsson, Börge Jonsson, Jón
Ásgeirsson og til varaþeirHar-
aldur Baldursson og Jens
Karlsson. Þessir tveir menn
eru líka fulltrúar í ráðum fyrir
Þrótt: Haraldur í handknatt-
leiksráðinu og Jens í knatt-
spyrnuráðinu. Endurskoðendur
voru kosn'r beir Ari Jónsson
og Björn Árnason.
Gevðar voru nokkrar laea-
brevtingar 02 auk þess var
skipuð nefnd til að endurskoða
og samrrema lög félagsins.
Jón Ásgeisson ræddi nokkuð
um mál handknattleiksins og
flutti nnkkrar tillögur í því
sambandi.
Þá ræddi Óskar Pétursson
nnkkuð um félagssvæði fyrir
félagið 02 gat þess að ekkert
genei í bvi máli og félagið
hefði ekki enn fengið úthlutað
ppírMi s°m 1 i 1 frambúöar
væri. Bar hann fram tillögu
um það að skora á v’ðkomandi
aðila að úthluta félaginu fé-
lagssvæði sem abra fyrst.
Möry önnur mál voru rædd
á fundinum, sem ekki verða
rakin bén. Þar kom fram áskor-
un til félagsmanna að stvrkja
röfnun fvrir Svein Þormóðssnn
sem um langt. skeið hefur orð-
ið að vera undir lækn'shendi
veena brunasára, og mun eitt-
hvað hafa þegar safnazt á
fundinum.
Þá var sambykkt að senda
Ríkarði Jónssvni kveðiu fund-
arins o.g árna honum góðs bata.
Fundarstjóri var Jón Ás-
ge'rsson og fundarritari Böðv-
ar Guðmundsson.
Þess má að lokum geta að
nýr. Þróttarfáni hékk á vegg
fyr'r aftan fundarstjóra og
stjórn og hlaut vígslu sína á
þosisum ágæta og virðulega
aðalfundi.
Ein er sú íþróttagrein sem ekki hefur verið stunduð hér á landt
og það er fallhlífarstökk. f sumar fór fram alþjóðlegt fallhlífar-
stökkmót í Búlgaríu og fyrir það mót æfðu nokkrir Englendingar
sig. Maðurinn á myndinni heitir Mike McArdie og er takmark
hans að stökkva úr 20 þúsund feta hæð og láta sig falla í tvær
mínútur án þess að opna fallhlífina. Mike McArdle hefur stokkið
300 sinnum og er myndin tekin úr flugvéi i einu stökkinu.
Fundur norrænna frjáls
I Oslós
M
Um síðustu helgi fór fram
í Osló hinn árlegi fundur
frjálsíþróttaleiðtoga á Norður-
löndum og var Björn Vilmund-
arson fulltrúi FRÍ á fundinum.
Þar voru tekin fyrir ýmis sam-
eiginleg mál, og voru m.a.
staðfest 13 Norðurlandamet í
karlaflokkj, 8 í kvennaflokki og
13 fyrir drengi.
Á fundinum kom fram til-
laga frá Svíum varðandi á-
hugamannareglurnar, og urðu
miklar umræður um hana.
Tillagan gengur í þá átt að
■greiða frjálsíþróttamönnum
f.yrir vinnutap sem svarar 1 £
á dag í allt að 28 daga, og í
sérstökum tilfellum í 40 daga.
Ennfremur gerir tillaean ráð
fyr.'r að hækka verðmæti verð-
launa í 12—20£. Fundurinn
samþykkti að senda IAAF til-
lögurnar með beiðni um að
lagfæra ýmislegt í reglunum.
Fundurinn ákvað að sam-
þykktin frá 1958 um að Norð-
urlandameistaramót fari fram
annaðhvert ár til árs.'ns 1965,
og verður næsta mót 1963. en
ekki hefur verið ákveðið hvar
það fer fram.
Þá var rætt um breytingar
á keppnisreglum, en Finnar
báru fram tillögu um það.
Á fundinum var gengið frá
landskeppni milli Norðurland-
anna í karla-, kvenna- og ung-
l'ngaflokkum, en ísland er ekki
á þeirri skrá.
Tilkynnt var um daga meist-
aramótanna á Norðurlöndum
næsta ár. og verður íslands-
meistaramótið í frjálsum
íþrótum, aðalhlutinn, 11.—12.
ágúst.
Fundurinn næsta ár verður
haldinn í Stokkhólmi.
ritstjóri: Frímann Helgason
ú v-.y'-' T’. ‘V ■ *. >, 'UTy; /■v
Nú fer hver að verða síðast-
ur að sjá pólsku verðlauna-
myndina „Aska og demant-
ar“, sem Hafnarfjarðarbíó
sýnir um þessar mundir, en
hún er sýnd í næst síðasta
sinn í kvöld. — Myndin hér
að ofaiu sýnir tvo af aðal-
leikendum í þessari hugljúfu
mynd.
f. i'&L'
Sandur og sær nefnist smá- ari gerði káputeikninsu og teikn-
sagnasafn sem út er kom'ð eft- aði upphafsstafi. Útgefandi er
ir Sigurjón Jónsson frá Þor- Bókaútgáfan Fróði, en Pr'ent-
geirsstöðum. srniðja Jóns Helgasonar prent-
Bókin er 180 blaðsíður að aði.
stærð og hefur að geyma 25
smásögur og þætti. Nokkur Sandur og sær er fyrsta bók
söguheiti, tekin af handahófi: höfundarins, Sigurjóns Jónsson-
Brimhljóð. Nafnlaust bréf. ar frá Þorgeirsstöðum. Hann er
Krepptar klær, Hefndin. Öld- þó ekki með öllu ókunnur, því
ungurinn á steininum. Landvætt- að á undanförnum árum hafa
ir, Hlöðukálfur. Orðhákur. birzt eftir hann í blöðum og
Hjónasængin. Hófatök. tímaritum smásögur, frásagnir
Ilöskuldur Björnsson listmál- og þættir.
Fimmtudagur 2. nóvember 1961 — ÞJÓÐVILJINN — (Q
4