Þjóðviljinn - 02.11.1961, Blaðsíða 12
Þeir sem áttu leið um Tjarnargötuna síð-
degis í gær sáu þar menn að störfum við
harla furðulegar framkvæmdir. Þeir voru að
hlaða múrvegg á gangstéttina fyrir framan
Tjarnarbíó! Skýringin á þessu furðulega fyr-
irbæri er sú, að í kvöld halda félögin Sam-
tök um vestræna samvinnu og Varðberg fund
í bíóinu, þar sem tveir austurþýzkir flótta-
menn eiga að koma fram og vitna. Og þá
verður auðvitað að vera tilheyrandi múrverk
og gaddavír, enda á að setja þarna upp
gaddavírsgirðingu líka. Þegar hafizt var
handa við múrverkið í gær stjórnuðu þeir
verkinu dr. Gunnar G. Schram ritstjóri og
Friðfinnur Ölafsson forstjóri og lögðu þeir
jafnvel sjálfir stein og stein í múrinn.
1 gærkvöld var svo settur lögregluvörður
um múrinn og gaddavírinn, líklega til þess
að engir stælu þeim yfir nóttina. Var vörður-
inn alls ófróður um það til hvers múrinn
og gaddavírinn ættu að vera og gátu veg-
farendur frætt hann um það. iriann natoi
bara verið settur þarna á vörð af yfirboð-
urum sínum.
Hugmyndina að þessum kostulegu fram-
kvæmdum mun dr. Schram eiga og ætlar
hann væntanlega að hafa þarna „sýnikennslu11
eftir fundinn á því, hvernig á að hoppa yfir
múrinn og smjúga gegnum gaddavírinn. Ætti
það að geta orðið alltilkomumikið atriði. —
En meðal annarra orða: Hvenær skyldu Sam-
tök um vestræna samvinnu og Varðberg bjóða
okkur Reykvíkingum upp á „sýnikennslu" á
meðhöndlan Natóbandamanna okkar, Frakka,
á Serkjum í Alsír? Það ættu að vera hæg
heimatökin fyrir þessi félög að fá 2—3 menn
lánaða hjá de Gaulle til þess að hafa þá
fræðslu um hönd. — Myndin hér að ofan er
af mönnum við múrhleðsluna í gær, en
Gunnar og Friðfinnur voru þá hættir múr-
arastörfum. — (Ljósm. Þjóðv. A.K.).
ÓÐVILJINN
Fimmtudagur 2. nóvember 1961 — 26. árgangur — 252. tölublað
Á fundi í Verkamannafélaginu risakjarnorkusprengingu þeirri
Hlíf í Hafnarfirði, sem haldinn er gerð var að morgni 30. þ. m.
var í fyrrakvöld og sagt er frá Þá Iýsir fundurinn yfir and-
í annarri frétt í blaðinu voru sam-! stöðu sinni við allar kjarnorku-
þykkt einróma mótmæli gegn sprengingar stórveldanna, hvar
öllum kjarnorkuspi’engingum og sem þær eru framkvæmdar og
lýsti fundurinn yfir stuðningi af hverjum og lýsir yfir stuðn-
við baráttu fyrir banni við notk- ingi sinum við baráttuna fyrir
un kjarnorkuvopna. j algeru banni kjarnorkuvopna og
Tillagan var eínislega svo- útrýmingu á drápstækjum. Svo
hljóðandi: j og skerar fundurinn á ríkis-
Fundurinn samþykkir að mót- stjórnina að sjá svo um, að
mæla harðlega kjarnorkuspreng-' aldrei verði geymd kjarnorku-
i.ngum Rússa og þá sér í lagi vopn í Iandinu.
Vörubifreið veltur í Elliðaár
og bifreiðarstjórínn slasast
í gærdag valt vörubíll út af
veginum við vestari Elliðaár-
brúna og niður í ána. Bifreiðar-
stjórinn meiddist illa og bifreið-
in stórskemmdist.
Sjónarvottur að slysinu segir
svo fi’á, .að vörubíllinn, sem var
með rauðamöl á palli, hafi ekið
fram hjá sér í Ártúnsbrekkunni
og hafi hann ekið á eðlilegum
hraða og ekkert verið að sjá
Vilhgálmur
setti
heimsmet
í gærkvöld var haldið
innanfélagsmót hjá ÍR og
var þar m.a. keppt í há-
stökki án atrennu. Gerðist
þar sá sögulegi atþurður, að
Vilhjálmur Einarsson setti
nýtt heimsmet í þessari
grein, stökk 1,75 en heims-
metið var áður 1,74. Vil-
hjálmur hefur áður verið
mjög nálægt því að ná met-
inu.
athugavert við akstur hans fyrr
en hann var kominn yfir austari
brúna. Þá beygði bíllinn allt í
einu út á vegarbrúnina og ók
utan við ljósastaur, er þarna
stendur. Bifreiðarstjórínn reyndi
þá að ná bílnum aftur upp á
veginn en það mistókst og valt
bifreiðin út af veginum og niður
í ána. Þegar maður sá, er fylgzt
hafði með ferðum bifreiðarinnar,
kom á vettvang, var bifreiðar-
stjói’inn að mjaka sér undan bif-
reiðinni og er talið, að hann
muni hafa kastazt út úr henni
í veltunni og orðið undir henni.
Hann brotnaði í andliti og
meiddist eitthvað meii’a. Var
hann fluttur í Landakotsspítala.
Maður þessi heitir Guðjón Vig-
fússon, til heimilis að Eskihlíð
lOa. Hann er um fimmtugt, þaul-
vanur bifreiðarstjórn og hráust-
menni mikið.
í gærkvöld lék danska hand-
knattleiksliðið Efterslægten gegn
KR að Hálogalandi. Leiknum
lauk með jafntefli 16:16. í hálf-
leik stóðu leikar 10:7 fyrir
Efterslægten. Nánar,verður sagt
frá leiknum í blaðinu á morgun.
HLÍF í Hafnarfirði sam-
þykkir uppsögn samninga
1 fyrrakvöld var haldinn fund-
wr í Verkamannafélaginu Hlíf í
Hafnarfirði og voru samningar
iélagsins við atvinnurekendur til
umræðu. Var borin fram á fund-
Pólverjer keupa
20 þús. tunnur af
Suðurlandssíld
í gærkvöld barst blaðinu eft-
irfarandi fréttatilkynning frá
síldarútvegsnefnd um sölu- á 20
þúsund tunnum af saltaðri Suð-
urlandssíld til Póllands.
„Samningur hefur verið undirr
ritaður við Pólverja um sölu á
20.000 tunnum af saltaðri Suður-
landssíld.
Samkvæmt samningnum má
afgreiða allt magnið með milli-
asíld og smásíld, helming af
hvorri tegund“.
inum tillaga og samþykkt ein-
róma, þar sem stjórn félagsins
var heimilað að segja upp kaup-
gjaldsákvæðum núgildandi samn-
inga við atvinnurekendur til
þess að leita eftir nýjum samn-
ingum á þá lund, að kaupmátt-
ur tímakaups verkamanna verði
ekki lægri en hann var í sumar
eftir samningana, er þá voru
gerðir í lok verkfallsins. Ekki
Var ákveðinn á fundinum upp-
sagnardagur samninganna.
Samþykkt þessi er efnislega
samhljóða samþykkt formanna-
páðstéfnu Aiþýðusambánds Js-
lands, er haldin var í haust, og
hafa nokkur verkalýðsfélög þeg-
ar samþykkt uppsögn samninga
á grundvelli hennar eða gefið
stjórnum félaganna heimild til
uppsagnir. Má þar tilnefna
Verkamannafélagið Dagsþrún,
Vöruþílstjórafélagið Þrótt, Félag
járniðnaðarmanna og nokkur fé-
lög í Árnessýslu, er sagt hafa
upp kaupgjaldsákvæðum samn-
inga frá 1. desember n.k. að
telja. Er vitað, að mörg fleiri
félög munu fylgja í kjölfar
þessara félaga og segja upp
samningum á næstunni.
Vestmanno-
eyingar
Æskulýðsfylkingin og Sósí-
alistafclagið halda sameigin-
legan skemmtifund laugar-
daginn 4. nóvember klukkan
8.30 e.h.
Félagsvist og fleiri
skemmtiatriði.
Allir stuðningsmenn Al-
þýðubandalagsins eru vel-
komnir og iélagsmenn eru
hvattir til að taka gesti með
sér. — Aðgöngumiðar fást við
innganginn.
Stjórnin.
Húsmóðir sótti (
3 aukavinninga (
í gær kom ung húsmóðir
á skrifstofu happdrættis Þjóð-
viljans. Ilún var ekki að
borga miða sína, eins og flest-
ir aðrir sem litu þar inn,
heldur var hún að sækja þrjá
aukavinninga — 500 krónu
vöruávísanir, sem fjölskyldan
hlaut.
Þessi hcppna húsmóðir heit-
ir Klara Öskarsdóttir og býr
á Njálsgötu 13b. Hún kvaðst
aldrei áður hafa unnið í happ-
drætti, en iíklega færi hún
nú að freista gæfunnar í
happdrætti háskólans, sem
hún hefur ekki tckið þátt í.
Klara var ekki búin að gera
upp við sig hvað hún ætlaði
að kaupa fyrir vöruávísanirn-
ar, en þær voru stílaðar á
KRON.
1 sambandi við þetta er rétt
að geta þess að búið er að
draga um fyrsta Volkswag-
eninn, en ekki verður hægt að
birta vinningsnúmerið fyrr en
skil liafa veriö gerð.