Þjóðviljinn - 17.11.1961, Page 5

Þjóðviljinn - 17.11.1961, Page 5
NEW YORK 16/11 — Málverk eftir Rembrandt af Aristoteles | vid brjóstmynd af Hómer var selt á uppboði í New York í gær fyrir 2,3 milljónir dollara eða 100 miiljónir króna. Þetta cr hæsta verð sem nokkru sinni hefur verið gi’eitt fyrir málverk á uppboði. Hæsta verð sem áður hafði fengizt fyrir málverk var 770.000 dollarar (rúmlega 30 millj. kr.) sem greitt var fyrir mynd eftir Rubens á uppboði í London 1959. Uppboðið í New York í gær hafði verið auglýst fyrirfram sem mesta listaveTkauppboð á þessari. öld. Til sölu voru 24 málverk sem hafa verið í eigu fjármálamannsíns Alfred Erick- son. .Það liðu ekki nema rúmar þrjár mínútur frá því að Rem- brandt-myndin var boðin upp þar til hún var seld. Kaupand- inn var Metropolitan listasafnið í New York. Uppboðshaldarinn tilkynnti að hann hefði fengið boð upp á eina milljón dollara fj'rir málverkið, en sagði síðan: Það er með engu móti hægt að verðleggja bessa mynd. Við höf- um hér til sölu listaverk sem tekur öllu fram sem áður hefur verið selt á uppboði. Komið vin- samlegast ekki með svo lítil boð sem 50.000 dollara (2 millj. kr.). Síðan kom hvert boðið af öðru. Fyrst 1,1 milljón dollara o.g síðan stig af stigi upp í 1,9 milljón I dollara. Andartaki síðar voru S boðnar tvær milljónir. Þetta hafði aðeins tekið eina mínútu. Nú varð stutt hlé, har til næsta boð kom. og hljóðaði á 2.2 milljónir og strax á eftir kom s.’ðasta boð, 2,3 milljónir. Upp- boðshaldarinn revndi enn að þrýsta verðinu upp, en enginn bauð hærra, og myndin var sleg- in fyrir þessa ótrúiegu upphæð. Aðrar mvhdir á uppboðinu voru eftir Hans Holbein, van Dyck, Fragonard, Perugino og Franz Hals. Samtals fengust 4.7 milljónir dollara fyrir málverk- in eða rúmlega 200 milljónir króna. Mynd Rembrandts hefur af ýmsum verið talin einn fegursti gimsteinn málaralistarinnar. Hann málaði hana árið 1653, en myndin kom til Bandaríkjanna frá París árið 1907. Erickson keypti hana árið 1928 fyrir 750.000 dollara eða rúmar 30 milljónir króna. Hann seldi hana afíur eftir verðhrunið í kaup- ö’linni í New York 1929 fj'rir hálfa milljón dollara, en keypti hana síðan aftur fyrir 590.000 dollara. Þann tíma sem myndin hefur verið í eigu- Ericksons hefur hún að jafnaði hækkað í verði um s.em næst hálfa aðra milljón króna á ári. Skorað á Frakka aí ver NEW York 16/11 — Allsherjar- þing SÞ samþykkti í gær álykt- unartiliögu þar sem skorað er á frönsku stjórnina að binda endi á hungurverkfall hinna serk- nesku fanga heni?ar með þvi að verða við kröfum þeirra um að með þá sé farið sem pólitíska fanga en ekki sem ótínda glæpamenn. Áður en atkvæði voru greidd CANAVERALHÖFÐA 16/11 — Bandaríkjamenn skutu í gær á loft þremur gervitunglum sem öll komust á braut umhverfis jörðu. Frá Cariaveralhöfða var skotið á loft Thor-Able eldflaug sem bar tvö gervitungl á braut. Þeg- ar út í geiminn var komið skild- ust leiðir gervitunglanna og iara þau á mismunandi brautum um jörðu. Tilgangur þessarar til- raunar er sá að finna aðferð til að gera gervitungl stöðug á braut sinni, þannig að þau snúi ævinlega sömu hlið að jörðu. <Þetta vandamál er löngu leyst af sovézkum vísindamönnum. eins og sannaðist t.d. með myndatöku þeirra af bakhlið tunglsins 1959). jFrá Vandenberg-tilraunastöð- inni í Kaliforníu skaut flugher- inn á loft enn einu Discoverer- tungli, því 35. í röðinni. Þessi tilraun tókst betur en margar aðrar með Discovérer, því að tunglið komst á braut. Geim- hylki verður losað fró tunglinu einhvern næstu daga og verður reyni að ná því þegar það fell- ur til jarðar. Þetta er einn lið- ur í Undirbúningi Bandaríkja- manna undir mannaferðir um geiminn. um tillöguna gekk franska sendinefndin af fundi. Franski aðalfulltrúinn. Berard. hafði lýst yfir að hungurverkfall • Serkj anna stæði í engu sáriabandi ■ við nýlendumálin sem eiginle'ga voru á dagskrá fundarins. 62 ríki greiddu atkvæði með tillögunni sem lögð var fram af 34 ríkjum Asíu og Afríku. Enginn greiddi atkvæði á móti. en 31 ríki sat hjá. Auk Frakk- lands voru níu ríki fjarverandi. Ekki er- ljóst af fréttum hvern- ig fulltrúi íslands greiddi at- kvæði, en tekið er fram að Nor- egur og Sv'þ.ióð hafi greitt til- lögunni atkvæði, en danski full- trúinn setið hjá. Sama máli gegndi um fulltrúa Bretlands. Bandaríkjanna og ýmissa ann- arra vesturlanda. • Atlaseldflaugin sem sprakk. fer til Ólafsvíkur, Grundarfjarð- ar, Stykkishólms og Flateýjar hinn 21. þ.m. Vörumóttaka í dag og árdegis á morgun. NEW YORK — Eldflaug af Atlas- gerð sem skotið var ,frá Cana- veralhöfða á föstudag með sjim- pansa innanborðs var sprengd í loft upp 35 sekúndum síðar. Apinn beið bana og öll tækin gerevðilögðust. Ætlunin hafði verið að eld- ílaugin færi 10.000' /ilómetra leið suður í Atlanzhaf. Sjálft skotið tókst að óskum og hin geýsistóra eldfiaug lyft- isf. frá iörðu. En 35 sekúndum síðar hætti hún að láta að stjórn. skipti um stefnu og var hún þá sprengd. - Eldf'augin hafði haft meðferð- is margs konar rannsóknartæki, en tilraunin var þáttur í undir- búningi Bandaríkjamanna nndir að senda mann á braut umhverf- j-is jörðina. Hér var um að ræða er öflugasta tegund Atlasflaug- anna. Það verður flaug af gerðinni Atlas-E, sem ekki er iafn öflug, en vonandi áreiðanlegri í notk- un, sem nota á til að senda apa á braut umhverfis jörðina. Það hefur verið ætlunin að sú til- raun yrði gerð í þessari viku. Kroll tekinn í sátt BONN 16/11 — Adenauer kanzl- ari hefur tekið sendiherra sinn í Moskvu, Kroll, aftur í sátt og verður honum leyft iað halda embættinu áfram. Talið hafði verið víst að hann yrði rekinn úr því í refsiskyni fyrir að hafa gert Krústjoff tilboð um lausn á Berlínardeilunni án þess að hafa til þess heimild vesturþýzku flaug aí gerðinni Atlas-D, en þaðstjórnarinnar. Ég liefi ’úmS islenskan IIG mann á hans eldri yrkja fafnveS” Þetta eru erð Steins ■ Steinarf um ljóðské.Idskap Hannesar Péturssonar. Ummæl- in hafa að nokkru leytl verið staðfest nieð því að hann hefur fengið tvenn bók- t menntaverðlaun, A.B. og Helgafells, en sjálfur Tómas Guðmundsson einn þeirra sem verðlaunin hefur veitt. Það fer varla á milli mála að Hannes Pétursson er fremsta ljóöskáld yngri kynslóðarinnar. En Hannes er ekki aðeins ljóðskáld, það hefur hann oft sannað, og með bók sinni „ S Ö G U B A 9 NOSÐAN” hefur hann tryggt sér virðulegt sæti meðal höfunda í ó-bundnu máli. „SÖGUR AD NORÐAN“ eru tólf talsins, hver annarri betri, en þær beztu munu eiga tryggt öruggt sæti meðal skærustu perlanna í íslenzkum bókmenntum. — Bókin er komin í bókabúðir. Sendum eina eða fleiri bækur hvert sem er gegn eftirkröfu. Ef bókin fæst ekki hjá bóksalanum þá pantið beint frá HELGAFELLI — Veghúsastír 7 — (Sími 1S837) Föstudagur 17. nóvember 1961 — ÞJÓÐVILJINN —

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.