Þjóðviljinn - 28.12.1961, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 28.12.1961, Blaðsíða 4
Drsgnir á brott Kröfur vesturþýzkra stjórnarvalda, einkum Franz-Josef Strauss land- varnaráðhcrra, um að vesturþýzki hcrinn verðii búinn kjarnorku- vopnum verða sífcllt háværari. Vestur-Þjóðverjar sem andvígir eru kjarnorkuhervæðingu hafa sig einnig í frammi cn sæta ómjúkri meðferð. Myndin var tekin í Duisburg, þegar lögregluþjónar drógu í brott fólk sem setzt hafði á götúna til að láta í ljós andúð sína á kjarnorkuhervæðingu Vestur-Þýzkalands. 1 gær var jarðsettur frá Dómkirkjunni æskuvinur minn og félagi í yfir 30 ár, Ásgeir Jakobsson málarameistari. Við kynntumst á Hverfisgöt- unni. bjuggum sinn hvoru meg- in götunnar, hann í númer 56—3, húsi Sigurðar Ölafssonar . rakarameistara, ég í nr. 55, húsi Kristjáns pólití. Hann var þá nýkominn með foreldrum og stórum systkinahóp frá Kan- ada en ég frá Voppafirði með foreldrum og systkinum. Kynni oRkar byrjuðu í leik, til dæmis okkar skemmtilega kílu.bolta- leik. Hverfisgatan var þá ekki eins fjölfarin og nú, það var alltaf nægur tími til að gera hlé á -Jeiknum, ef kerra eða bíll sáu.st einhversstaðar á ferðinni. Svo var líka ágætt aö fara í útilegumannaleik í Skugga- hverfinu í þá daga. Það er nokkuð langt síðan þetta var árið 1919 eða 1920. Kynnin u.rðu að vináttu, og svo lylgdumst við að í leik og starfi og í skátafélagsskapnum, óað- skiijanlegir félagar. Margar á- riægjustundir áttum við Geiri eins og hann alltaf hefur verið kallaður af systkinum og vin- um. Ég minnist margra skemmtilegra kvöldstunda frá heimili foreldra hans í litla húsinu á Grímsstaðaholtinu. arameistari Allir fengu góðgerðir, hvað stór sem hópurinn var. Þar var rabbað, spilað á spil og sungið. Pétur bróðir Ásgeirs spilaði á orgelið og stundum pabbi þeirra meðan hans naut við, og oft kom það fyrir að ekkert varð úr heimferð inn á Hverfisgötu, heldur bara hald- ið áfram dálítið lengur og svo gist á Grímsstaðaholtinu. Heima vissu. allir, að ef ég ekki kom heim á ven.iulegum hátta- -<g> /ccif i II Ýncí Bréf sent Æskulýðssíðunni: Spurníngakeppni skólanna Fyrstu lotunni í spurninga- keppni skólanna, sem útvarpað er á sunnudagskvöldum, fer senn að ljúka. Þáttur sem þessi er afar vandmeðfarinn, ef vel á að takast. Ekki má mikið útaf bera, til að ýmsir telji sig geta fett fingur útí, spurn- ingar hafi verið misbungar o. s. frv. Það er þess vegna ófyr- irgefanlegt, hversu stjórnendur þáttarins hafa kastað höndun- um til verksins. Úr því þeir gátu ekki gefið sér tíma til að vinna spurningar þáttarins og form betur en raun ber vitni, hefðu þeir tvímælalaust átt að láta báða aðila glíma við sömu spurningarnar. Þá hefði öllu réttlæti verið full- nægt á því sviði. Þetta hefði alls ekki þurft að gera þáttinn neitt leiðinlegri. Það hefði ver- ið viss ánægja fyrir hlustendur að heyra seinni flokkinn koma upp í sömu spurningunum, því fylkingarfreWir Vetrarstjórn Æskulýðsfylk- ingarinnar í Reykjavík hefur ráðið nýjan starfsmann. Er það Hrafn Magnússon, vara- formaður félagsins. Skrifstofa Æ.F.R. er venjulega opin 10 til 12 f.h. og 2 til 7 e.h. Mikilvæg frétt: Rússagull hefur ekki sézt í Æskulýðs- fyikingunni síðustu 23 árin. 1 Hún verður þess vegna að 1 alltaf er svolítið gaman að heyra aðra gata á spurningum. sem maður kann að svara sjálfur! Þetta form oc þeim mun æskilegra þar sem ljóst er, að þótt gert sé ráð fyrir að spurn- ingarnar væru jafnþungar, hef- ur seinni flokkurinn alltaf betri aðstöðu. Þetta kom ljóst fram, í síðastá þætti, þegar Mennta- 'skólinn á Laugarvatni og Menntaskólinn í Reykjavík kepptu. í hverri lotu eru spurn- ingar svipaðs eðlis. Þess vegna ’ér seinni flokkurinn alltaf bet- ur viðbúinn. T.d. var spurning nr. 2 í síðustu iotunni orða- leikur hiá báðum. Seinni flokk- urinn gat auðveldlega reiknað út, hvenær hann mundi fá spurningu, sem var orðaleik- ur, og strax tekið viðfangsefn- ið réttum tökum. í síðustu keppni vildi einmitt svo til, að úrslitin réðust á bessu atriði. borga útgjöld sín ms-ð L' ■ lögum félagsmanna. Fé ! Útgjöldin eru mikil. Trkj.; ar eru af skornum :■’;: - Oft var þörf, en nú er nauð- ) syn að borga félagsgjöld sin þegar í stað! © 1 Þeir félagar, sem fúsir eru til að aðstoða við innhcimíu félagsgjalda á kvöidin eru l beðnir að gefa sig fram við ‘j starfsmann Æ.F.R. hið fyrsta. Þörf á sjálfboðaliðum er mik- il. Ennþá verra er þó, að stjómeridur þáttarins hafa.ekki getað komið sér niður á sæmi- legar keppnireglur. Ágizkan- irnar í síðasta þætti voru ó- neitanlega harla broslegar og ófyrirgefanlegt að hafa spurn- ingar þannig, að hægt sé að gizka á rétt svar, með nógu mörgurii ti’raunúm. Þetta gerð- ist síCast hjá’ báðum aðilum (Kristján 5.. Kristján 6., Kristj- án 7. og rétthyrningarnir: einn, tveir, þrír, fjórir, fimm!) Allra verst er þó1, þegar stjórnendurtifr geta ekki hald- ið sínar eigin reglur, einsog í s:ða?t-a' hætti, þegar skotið V - íil hinna spurningu, sem .þ-.:r. er uppí voru, gátu ekki r..... strax, áður en frestur- r ú+runninn. Og svo v segi >'handsúpptökur af 1 "i :ir’ 'nt, að tímatakan er ; i nákvæm. má og kalla fádæma : •;:•!•’<:?ysi, sem kom fyrir í ■■eía þæiti, að aðeins hluti J irra amatörlistamanná, sem i íram í þættinum var •riurf' ir hlustendum. Þetta i 'im mun einkennilegra, • þess er gætt, að ekki túk.-f að teygja þáttinn yfir íneira en þriú kqrtér þótt hon- i'ri liefði vorið ætluð klukku- sí'jnd í dagskránni. Þið er í sannleika harla rí. að útvarriið skuli bjóða v , i fólki upp á svo hroð- vi'-knisleg vinnubrögð og þau ■ m einkenna bennan þátt. Og stiórnendur" þáttarins ættu að athutta sinn gang áður en úr- slitakeppnin hefst. Menntaskólanemi. tíma, þá mundi ég vera hjá honum Geira. Svo gekk Ásgeir í Samvinnu- skólann en ég lauk námi sem málari. Svo fórum við að starfa saman, og úr því varð svo að hann lærði iðnina hjá Einari Gíslasyni málarameistara, og unnum við þá einnig saman þau ár er ég vann sem sveinn hjá Einari. Svo skildu leiðir um tíma. Ég fór til Svíþjóðar og dvaldi þar tæp tvö ár, en 1929 byrjuðum við svo í félagi sem meistarar, og má segja að frá þeim tíma til ársins 1954 ynnura við saman, að u.ndan- teknum þeim tíma þegar Ásgeir vann með námsfélaga mínum frá Tækniháskólanum í Stokk- hólmi, Jóhanni heitnum Sig- urðssyni málarameistara. Svo stofnuðum við samvinnufélag og þriðji félaginn var Hákon I. Jónsson málarameistari og starfaði Ásgeir með honum eins lengi og kraftar leyfðu. Eins áðu.r er sagt skidu leiðir með okku.r 1954, þar eð ég var svo oft við störf u.tan Reykjavíkur við kirkjumálun ásamt konu minni, en samstarfi okkar Geira lauk ekki að heldur, þvi að ým is störf, svo sem í skemmtinefnd Málarameistara- félags Re.vkjavíkur og fleiri, komu til. Kæri Geiri. Ég þakka þér þína sérstöku tryggð og vin- áttu við mig og mitt fólk, sem er sú bezta gjöf er manni hlotnast í þessu lífi. Ég veit að ég kom ekki að sjúkrabeði þín- um svo oft sem skyldi, en ég þakka þér samt sérstaklega þær stundir, því ég fann vinarþel ið steryma frá þér til mín, kæri vinur. Við kveðjumst nú um tíma drengirnir af Hverfisgöt- unni. en minningin lifir. Foreldrar Ásgeirs voru Jón J. Jakobson frá Húsavík af hinni kunnu ætt úr Mývatnssveit og Valgerður Pétursdóttir frá Ána- naustum hér í bæ. Systkini hans eru Sigurður rafvirki, Pétur yfirlæknir, Jakob verzl- unarmaður, Hallgrímur kenn- ari, Petrína teiknari og Áki fyrrv. ráðherra. Ég færi móður hans og syst- kinum mínar innilegustu sam- úðarkveðjur og þakka þeim fyrir bróðurinn sem nú er kvaddur. Jón Björnsson málara- meistari, Laugatungu. ÁSGEIRÍ JAKOBSSYNI FYLGT GR HLAÐI Alltaf verður manni eitthvað undarlega við þegar hvíslað er í eyra manns lát samferðafé- laga okkar. Á úthallandi þessum degi var mér grunlausum borin sú fregn, að Ásgeir Jakobsson væri fluttur. Undarlegt að standa eftir með allt ósagt, — og — aldrei verður það sagt, — er ég vildi vini mínum vel segja. Misjafnlega mælir Guð okk- ur æviforðann; varla okkar að miklast af þvi vegarnestinu er hann gaf okkur óverðugum! Það vissi Ásgeir mörgum bet- ur, að a]lt hafði hann af Guði þegið. Hann miklaðist ekki af því er honum var í brjóst lag- ið. Ásgeir hafði fengið ómælda ljúfménnskuna í vegarnesti. — Hlýja hans, bros og kæti, snart mann í argi dassins líkt og vorsól á vetri. Ástúð hans í umgengni gerði hvern þann betri er á vegi hans varð. Stórbeinóttur var hann ekki — höggsverð var ekki hans vopn. — Hann var eins og vatnið, vann allt með mýktinni og þessari göfugu ljúfmennsku sern fæstir skildu. Genginn er góður drengur, en þess myndi hann óska, að svo væru hjörtu vina hans ókorpin, að þeir drykkju honum til sem þeim, er æ á sér vísa vist Óð- ins og Hvíta Krists. Heill úr vör vinur, — og heilt sé þér hið nýja land. Er rökkur dægranna færist á augu mín mun eg riúfa myrkr- ið með minningunni um það, hvernig hann Ásgeir Jakobsson gat brosað til manns, — bros- að —. Pétur Sumarliðason. Samuðarkort Slysavarnafélags Islands kaupa flestir. Fást hjá slysa- varnadeildum um land allt. I Reykjavík í hannyrðaverzlun- inni Bankastræti 6, Verzlun Gunnþórunnar Halldórsdóttur, Bókaverzluninni Sögu, Lang- holtsvegi og í skrifstofu fé- lagsins f Nausti á Granda- garði. Afgreidd í síma 1-48-97. 4) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 28. desember 1961

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.