Þjóðviljinn - 29.12.1961, Page 1
Föstiidagur 29. tlesember 1961 — 26. árgangur — 299. tölublað
Þeir byggja
Mikil síldveiði var í fyrrinótt,
suöur af Eldey, 20—30.000 tunn-
ur mun ekki ofáætlað. Vcður var
gott og fcngu flestaliir bátar
afla.
Við Jökulinn voru 4 bátar, en
fengu ekkert.
Miklir örðu.gleikar eru nú á
löndun, t.d. reru ekki allir Kefla-
víkurbátar vegna óvissu um
hvort afli þeirra kæmist í
vinnslu. 1 Keflavík er nú sólar-
hrings löndunarbið, í Hafnarfirði
verður ekki tekið við fyrr en
eftir áramót og Reykjavíkurbát-
ar sit.ja fyrir löndun hér. Mjög
margir bátar munu hafa leitað
til Eyja.
Allur' aflinn er smásíld, sem
fór í bræðslu.
® Keykjavík
Til Reykjavíkur áttu að komá
12 bátar með samtals rúml.
10.000 tunnur, en þeir eru þess-
ir: Helga með 1700. Pétu.r Sig-
urðsson með 1400, Björn Jónsson
T000, Leifúr EirikSsön með -
950 tunnur. Svanur RE með 800,
Ásgeir og Hafþór með 750 tunn-
ur hvor, Reynir og Bjarnarey
með 700 tunnu.r hvort, Víðir SU
með 550 tunnur og Rifsnes með
400 tunnur.
Mesta írost í des-
ember síðan 1920
Mest frost í fyrrinótt
mældist hér í bæ 16,8 stig,
en þaff er næstmesta frost
sem mælzt hefur í Reykja-
vík síffan Veffurstofa íslands
tók til starfa árið 1920. Mest
frost mældist í janúar 1956
17,1 stig.
Veðurstofan tiáði blaðinu í
gær, að þegar hann legðist í
irost og stillur, mætti búast við
að veðrið yrði þrálátt.
Veðurspáin hér suðvestanlands?>þar sem veðurskeyti vantáði frá
i gærmorgun hijóðaði uppá norð-
anátt með 10—20 stiga frosti,
svo að ekki er útlit fyrir að
úr rætist.
Mest frost í fyrrinótt, mun
hafa verið 20 stig á Þingvöllum.
þó er það ekki alveg óyggjandi,
Mikojan þiggur
boð frá Touré
MOSKVU 28/12 — Mikojan að-
stoðarforsætisráðherra Sovétríkj-
anna :hefur þegið boð frá Sekou
Touré, forseta Gíneu, að koma
þangað í opinbera heimsókn í
janúar. Förin verður farin í því
skyni að treysta samvinnu Gíneu
og Sovétríkjanna, segir sovézka
fréttastofan Tass.
Undanfarið hafa vestrænar
fréttastofur sagt frá ágreiningi
sem upp væri kominn milli
landanna og var hann byggður
á því að stjórn Gíneu fór fram
á það fyrr í mánuðinum að sov-
ézki sendiherrann í Conakry
væri kallaður heim. Sú skýi'ing
var gefin á þeim tilmælum að
þau væru „af persónulegum á-
stæðum“.
Grímsstöðum á Fjölium.
Árið 1918, sem var mesti
frostavetur aldarinnar, íór frost-
ið niður í 38 stig á Grímsstöð-
um og er það mesta frost, sem
hér hefur mælzt. Árið 1918 var
ekki fullkomin veðurathugana-
stöð í Reykjavik, en þá var hér
yfir 20 stiga gaddur. Á Vifils-
stöðum var hins vegar 1. flokks
athuganastöð og þar mældist
mest frost 29 stig.
ísjakar á siglingaleið
Landhelgisgæzlan tilkynnti i
gær um þrjá varasama ísjaka á
sigiingaleið fyrir Vestfjörðum.
Stærsti jakinn, 23 metra hár,
var réttvísandi 305 gráður 5,4
sjómílur frá Barða; hann sást
★ Frostið hér sunnaniands í
★ gær skildi eftir þessi
★ merki á rekkverki vél-
★ bátsins Arnfirðings II.
ic sem var að landa hér 900
★ tunnum síldar. Veðurstof-
★ an spáir áframhaldandi
★ frosthörkum. — (Ljósm.
★ Þjóð. A. K.).....
iengst 7 mílur í radar. Annar,
8 metra hár, var réttvísandi 282
gráður 4 sjómilur frá Sauða-
nesi; hann sást illa í radar,
lengst 3 mílur. Þriðji jakinn var
r *»
4ra metra har; hann var 0,35
sjóm. undan NV horni Barðans.
Ermfremur er laust íshrafl og
einstakir smájakar á siglingaleið
í nágrenninu.
Eldur í vélbáti
f fyrrakvöld kom upp elduE í
véibátnum Sæfara GK 224, sem
var á leið í róður, en hann hef-
ur stundað handfæraveiðar við
suðvesturland. Eldurinn kom upp
i vélarrúmi bátSins. Áhöfninni
var bjargað yfir í vélbátinn
Ester.
Togarinn Sigurður Bjarnason
dró Sæfara til Reykjavíkur og er
hann nokkuð mikið skemmdur.
• Akranes
Ágæt veiði var hjá Akranes-
bátum, en þangað komu 12 bátar
með tæpl. 10.000 tunnur. Hæstur
var Höfrungur II með 1700 tunn-
ur, Haraldur var með 1500, Sig-
urður AK með 1300, Sæfari og
Höírungur með 900 tunnur hvor
og Reynir með 650 tunnur. Aðrir
voru með 4—500 tunnur og
munu hafa legið úti með þann
afla og beðið kvöldsins.
! !
• Keflavík
Keflavíkurbátar reru ekki all-
ir vegna óvissunnar um löndun.
Þeir sem voru úti munu allir
hafa fengið afla. Jón Finnsson
fór til Eyja með 800 tunnur, en
til Keflavíkur var von á Jóni
Guðmundssyni með 550 tunnur
og Manna með 3—400 tunnur.
1
Sandgerði
Sandgerðisbátar voru allir á
sjó, en fæstir koma til löndunar
þangað, heldur munu þeir hafa
leitað til Eyja. Þó var von á
Mumma með 600 tunnur og átti
að reyna að vinna eitthvað af
því í frost.
•
Helga RE 49 kemur drekk-
hlaðin til Reykjavíkur í gærdag.
Hún var með 1700 tunnur. —
(Ljósm. Þjóðv. A. K.).
...v : 4
mmmm