Þjóðviljinn - 20.07.1962, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 20.07.1962, Blaðsíða 3
Veriaunafripir á skákmóti NSU Þess? mynd er af hinum fallegu vcrðlaunagripu m, >nm keppt er um á skákmóti NSU, sem frá er sagt á 12. síðu blaðsins í dag. Ýmsir af þessum gripum voru afhentir að gjöf í gær við setningu mótsins og hefur þcim enn ekki verið ráðstafað til vcrðlaunaúthlutunar. Stóri bikarinn á miðri tnyndinni er hins vegar farandgripur, sem kcppt er um í cinmcnningsskákkcppnum NSU og sigurveg- arinn i meistaraflokki lilýtur að verðlaunum. — (Ljósm. Þjóðv. A. K.), Þingeyingar eru andvígir bdtttöku íslands í EBE Sl. fimmtudag, 12. þ.m. var áð tilhlutan Búnaðarsamibands Suður-Þingeyinga haldinn al- mennum fundur að ÍLaugum um Efnahagsbandalag Evrópu. For- maður sambandsins, Hermóður Guðmundsson, setti fundinn og bauð fundarmenn vel'komna og Sérstaklega dr. Ragnar Frisch og konu hans og Arnór Sigurjóns- son, en prófas-sorinn var á fund- Inn kominn 'tiil að flytja fyrir- lestur og Arnór fil að túlika mál hanis. Þá nefndi formaður Teit Björnsson til að stjórna fiundi og Inga Tryggvason fundarstjóra. Tó;k þiá Teitur víð ifundarstjórn og gaf Arnóri Sigurjónssyni orð- ið. Gerði hann ýtarlega grein fyrir tildrögum þess, að prófess- or Frisch var hingað kominn og kynnti hann með nokkrum orð- um fyrir fundarmönnu'm. iFlutti þá dr. Frisoh erindi sitt og Arnór endursagði. Rakti ræðumaður ýtarlega þær ástæð- ur, sem hann tatdi, að mæltu gegn því, að gmáþjóðir eíns og íslendingar og Norðmenn gerð- ust aðilar að Efnalhagsbandalagi Evrópu. Þökkuðu fundarimenn fyrir- lesturinn með lófataki. Var. nú orðið gefið frjiálíst. Komu fram margar fyrirspurnir, sem próf- essorinn svara’8i jaifnóðum.' Friðjón Guðmundsso.n llutti ræðu og lýsti sig andvígan þátt- töfou íslands í Efnaihagsbanda- Iagi Evrópu. Hermóður Guð- mundsson onæ-lti fyrir svoihljóð- andi tillögu frá stjórn B.S.S.Þ.: „Almennur fundur lialdinn að Laugum 12/7. 1962, að tilhlutan B.S.S.Þ.. lýsir sig algjörlega and- vígan aðild íslands >að Efna- hagsbandalagi Evrópu vegna smæðar þjóðarinnar, vanþróaðra atvinnuhátta, lítt nýttra auðlinda og sérstæðrar menningar, sem stefnt yrði í voða með liömlu- litlum innflutningi erlends fjár- magns og verkafólks. Krefst fundurinn þess að þjóðinni verði gefnar scm gleggstar upplýsingar um allar þær viðræður íslenzkra stjórnarvalda, |sem farið hafa fram og fram kunna að fara við forráðamenn Efnahagsbandalags- ins um þessi mál og skorar ein- dregið á þau að engar ákvarð- anir verði teknar um neinskonar aðild íslands að því án þjóðar- atkvæðis. Skorar fundurinn á scm flest félagssamtök og landsmenn alla að hefja sem virkasta baráttu gegn þátttöku þjóðarinnar í þess- um samtökunv.“ Samþykkt með atkvæðum allra fundarmanna. Sængurfatnaður — hvítur og mislitur. Rest best koddar Dúnsængur. Gæsadúnsængur. Koddar. Vöggusængur og svæflar Skólavörðustíg tl Mörg ríki áhyggjufull sak- ir valdatöku hersins í Períi LIMA 19/7 — Herforingjancfndin sem tók völdin í Pcrú í sínar hendur í gær birti í nótt tilskip- un sem ógildir forscta- og þing- kosningarnar sem fram fóru 10. júní. Jafnframt leysa hcrforingj- arnir kjörstjórnina upp og boða nýjar kosningar annan sunnudag í júní 1963. L_nefndinni eru hershöfðingar úr landher, flugher og flota. Forsætisráðherra er Ricardo Perez Godoy hershöfðingi. Valdataka hershöfðingjanna fór fram án, blóðsúthellinga. Þeir hafa tilkynnt að þeir hafi hvorki né muni taka menn til fanga af 'stjórnmálaástæðum og ekki muni þeir heldur banna neinn stjórn- málaflokkanna. Nefndin hefur ennfremur lofað að láta kosning- ar fara fram árlega.. Orsök valdatökunnar var sú að Prado forseti neitaði að ógilda forsetakosningarnar, en þess höfðu yfirmenn hersins krafizt. Skömmu' 9Íðar ságði ríkisstjórnift af sér, en forsetinn neitaði að samþykkja lausnarbeiðnina. For- setinn mun nú vera í haldi á eyju einni úti fyrir Perúströnd- urn. Bandaríkin, Venezúela og Col- umbía slitu stjórnmálasambandi sínu við Pervi í ' gærkveldi, en sendiherra ftiéxíkó sagðí af sér til að nvótmæla handtöku Prados forseta. Ríkisstjórn Donvinik- anska lýðveldislns samþykkti ' í dag að vvðurkenna ekki herfor- ingjastjórnina í Pcrú. Samband Amervkuríkjanna (OAS) hyggst kveðja saman ráðstefnu til að ræða og ranvvsaka valdatökuna. Gody hershöfðingi hélt út- varpsræðu í nót't og sagði hann að herinn hefði tekið stjórnina í sínar hendur þar sem stjórnmálaleg svik og falsanir hafi hindrað lýðræð- islega lausn á stjórnarkrepp- unni. Fullyrti hann að landið hefði rambað á barmi borg- arastýftjaldái' er lverinn skarst í leikinn. Stjómarblöðin viður- Framhald af 1. síðu. æðuft“ þeirra á opin'herum vefet- 'angi. • Aðalatriði Morgunblaðið segir, að aðal- itriði þessa máls sé, að ísland iafi ekki sótt. um aðild að Efna- lagsbandalaginu i neinu formi, ig Alþýðublaðið segir, að stjóm- rblöðin hafi verið svo viss í inni sök, þar sem ritstjórar >eirra hafi vitað, að Island hafi 'kki sótt um aukaaðild að Sfnahagsbandalaginu! Því hefur hvergi verið haldið ram í túlkun þeirra frétta, sem jallað hafa um ummæli Aden- uiers, að íslenzka ríkisstjórnin ftafi sótt formlega um aðild að Ifnahagsbandalaginu. En um- næli kanzlarans sýna ótvírætt, ívern skilning erlendir forráða- nerín Efnahagsbandalagsins hafa agt í viðræður íslenzku ráð- íerranna við þá. Þau sýna, að nikilvægustu ákvarðanir um fftámtíð íslands éru teknar í ■ makki við erlenda ráðamenn, ] áður en íslenzka þjóðin fær nokkuð um þær að vita. Og rík- isstjórnin er svo ósvífin að telja sig enga ákveðna stefnu hafa í þessum málum, þótt hún hafi þegar tekið sínar ákvarð- anir bak við tjöldin. Þegar mál- in svo eru lögð fyrir Alþingi, er það gert sem algert formsat- riði, en látið líta svo út sem það „marki stefnuna“ á yfirborð- inu. Þetta hefur enn á ný sann- azt ótvírætt með ummælum Adeauers, og það cr aðalatriði þessa máls. ® Ósamhljéða yfirlýsingar T Það vekur einnig athygli, að ummælum íslenzku ráðherranna varðandi undirbúning að málinu, eru engan vegin samhljóða. Ólaf- ur Thors, forsætisráðherfta, sagði í viðtali við Morgunblaðið 17. júlí s.l.,' að hann teldi, að ekki yrði gert út um mólið, „fyrr en einhvern tíma á næsta ári“. En 5. júlí s.l. sagði Gylfi Þ. Gísláson eftirfarandi út í Brussel sam- kvæmt frásögn Morgunblaðsins: „Fulltrúar Islands luku í dag skýrslugerð sinni til nefndar Efnahagsbandalags Evrópu. Gylfi Þ. Gíslason, viðskiptamálaráð- herra, sagði þar að engar raun- verulegar samningaviðræður geti hafizt um samskipti íslands og Efnahagsbandalagsins fyrr en Al- þingi hefur markað stefnuna næsta haust“. Þessar yfirlýsingar forsætisróðherra og viðskipta- málaráðherra stangast því á, nema ríkisstjórninni hafi þótt vænlegra að hopa til baka, eftir að upp komst um áform henn- ar. — Svo tala^ Alþýðublaðið um, að deila sem þessi isé furðu- leg, því að hún byggifct á því, að j'itstjórar - stjörnararídstöðunnar trúi eklii ráðherrum! ® Hvers vegna þeg- ir ríkisstfórnin ■íslenzka iþjóðin á heimtingu á því að ríkisstjórnin geri hreint fyrir sínum dyrum í þessu máli. Engin ábyrg 'ríkisstjórn getur lát- Regnklæði handa yngri og eldri, sem ekki er hægt að afgreiða til verzlana, fást á hag- stæðu verði í ABALSTRÆTI 1«. ið það sem vind u.m eyrun þjóta, að erlendir stjórnmálamenn hermi upp á hana mikilvægustu stjórnarathafnir og opinbérar fréttastofur sendi þær fréttir út um allan heim, ef enginn fótur er fyrir slíku. Enn frekari á- stæða er til að leggja áherzlu á þetta, þar sem málgögn stjórnar- innar segja þjóðinni, að engar ákvarðanir hafi enn verið teknar í þessu mikilvæga máli. Þess er skemmst að minnast, að Halvard Lange utanríkis- ráðh. Noregs taldi sig knúinn ti-1 aö leiðrétta opinberlega ummæli, sem ranglega voru höfð eftir h'onum á blaðamannafundi hér á landi, og var þar þó engan veginn um að ræða jafn mikil- vægt atriði og hér um ræðir. Dragi ríkisstjórnin það enn á langinn, að bera ummæli Aden- auers til baka, á opinberum vett- vangi, verður þögn hennar ekki skilin nema á einn veg. Blaðamanna- klúbbur opnar að Hótel Borg í kvöld Blaðamannafélag íslands hefur nú ákveðið að stofna til blaða- mannaklúbbs, þar sem blaða- menn og gestir þeirra geta komið saman. Hefur Pétur Daníelsson, hótelhaldari á Hótel Borg, látið félaginu í té húsnæði undir þessa stárfsemi uppi í turnherberginu á Borginni, og er ákveðið að þar verði opið fyrir blaðamenn fyrst urn sinn eitt kvöld í viku, t'östu- dagskvöld. Verður opnað í fyrsta sinn nú í dag kl. 8.30 og eru blaðamenn hvattir til að koma. Framvegis er þó ætlunin að opna fyrr eða síðdegis og geta blaðamenn þá komið hvenær sem er eftir þann tíma og fram til kl. 1, fengið sér brauðsneið og glas af eimhverju. Verður eldri blaða- mönnum, blaðafulltrúum sendí- ráöanna og þeirra fyrirtækja, sem hafa sérstakan blaðafulltrúa, boðið þátttaka. Nota starfandi blaðamenn blaðamannaskírteini sín, en aðrir fá sérstök skírteinii gegn árgjaldi. Þá geta félagar í blaðamannaklúbbnum tekið með sér gesti, en tölu þeirra verður að takmarka á mesta annatím- anura vegna lítils húsrýmis. Hækkonir Framhald af 1. siðu. flytja inn aftur nokkrum vik- um síðar erlendar kartöflur á margföldu verði. Mjólk hefúr hækkað um 6% í sumar Verðhækkunin á mjólkiftni. rjómanum og skyrinu, kvað framkvæmdastjórinn stafa a'f launahækkunum starfsfólks við dreifingu og sölu, ,sem urðú f síðasta mánuði. 13. júní s.l. hækkuðu þessar vörur ásamt öðrum landbúnaðarvörum vegna 4% grunnkaupshækkunar til bænda og álagningar stofnlána- sjóðsgjalds. Þá hækkaði mjólk- in um 15 aura eða 3.8n'n, rjóm- inn um 90 aura og skyrið um 25 aura kílóið. Samkvæmt þessu hefur mjólk í flöskum því hækkað samtals í sumar um 25 aura lftrirín úr kr. 4.15 í kr. 4.40 eða um 6% Rjóminn hefur hækkað úr kft. 46.00 í kr. 47.50 eða um kr. 1.50., þ.e. 3.25%. Skyrið hefur hækkað um samtals 45 aura úr kr. 11.60 kg. í kr. 12,05 eða um 3.9% Föstudagur 20. júlí 1962 — ÞJÖÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.