Þjóðviljinn - 17.08.1962, Side 4
Það er góður siður margra
Reykvíkinga og annarra Suður-
nesjamanna .að ferðast um ís-
!arul um heígar. sumir taka sér
' Bð auki sumarfrí. dve’.jast jafn-
vei nokkra hrið á íögrum stað
og- finna i)á á góðviðrisdögum
hvað menn verða andlega fá-
tækir á Reykjanesskaganum.
Nýlega varð ég ^vo lánsamur
að íerðast átta daga um Norð-
ur- og Austurland. Tvær mynd-
ir eru mér einkum minnis-
stæðar úr þeirri för. Hin fyrri
er síðkvöld á Hallorm?sstað,
Langeldar eru í rjóðri, þar sem
mætast lækír tveir. en fram-
anVið er ■ hylurinn Skyggnir.
Umihverfis bál sitja ungir o.g
aldnir íslendingar, syngja
falleg lög og kunna íslenzku
söngtextana, stundum mörg er-
indi, — syngja aldeilis ó-
drukiknir. Þessi mynd er mjög
hugþekk. en hin er þó lær-
dómsríkari.
Við þjóðveginn til Austur-
lands er öræfabýiið Möðrudal-
'ur, þar sem einna harðbýlast
mun á byggðu bóli íslenzku.
Áður en ég kom að þessum bæ,
hafði ég sem aðrir ókunnir
undrazt þá sérvizku að búa í
einangrun fjarri öðrum mönn-
um. Furðu torskilið fannst mér
iþað atihæfi bónda að verja fé
.sínu til kirkjubyggingar þarna
á þessum riðustu tímum. Okk-
ur félögunum þótti þvi for-
vitnilegt að dveljast að Möðru-
dal nokkra stund og ná tali af
Jóni Stefánssyni.
Hann er lágvaxinn öldungur.
hrjúfur og hvatlegur, -S dæmi-
gerður fulltrúi hinna list-
hneigðu, sjálfmenntuðu bænda,
sem nú gerast fáir. Hann er
tónfróður og sparaði hvergi að
láta okkur fávísa nútímamenn
að sunnan finna hve snauðir
við erum af sönnum auði list-
arinnar í samanburði við af-
idalakarlinn, — og hæfði vel
þótt hljóðfærið væri slitið,
röddin brogtin og sumir tón-
ar óþarflega langdregnir, því
■maðurinn er sjóndapur. en
leikur eftir nólum. — Við vor-
um einungis vestrænir apar, —
án þjó&egra sérkdrma, hefðum
allth eins geta ðverið Þjóðverj-
ar eða Bandaríkjamenn.
Með þessum orðum vil ég
ekki varpa rýrð á þessar þjóð-
ir, £em ég virði á marga lund.
En sem ég gtóð á kirkjugólfinu
i Möðrudal, sá ég betur en áð-
ur hve tæpt við stöndum sem
íslenzk þjóð. Horfnir eru þeir
þjóðfé'.agshættir sem gkópu
bókmenntir o.kkar allt til
krappuáranna. Við stöndum
býsna vanmegnugir frammi
fyrir þeim vanda að varðveifa
íslenzka þjóðmenningu á at-
omöld, þótt beztu listamenn
okkar hafi margt stórvel gert
síðustu þrjá áratugi. Við verð-
um að herða baráttuna og
hnekkja þeim EBE og NATO-
viðhorfum, sem rótlaus Varð-
bergslýðurinn útbreiðir af svo
mikilli eíjju, að hætta' -:.er -á að
við verðum bratt 20Ó þúsund
„vestrænir lýðræðissinnar‘‘ en
ekki íslenzk þjóð. Við verðum
að herða baráttuna, svo að
langlífur verði íslenzki söng-
urinn í Hallormsstaðaskógi,
iNú þykir mér vænt um litlu
kirkjuna í Möðrudal og því vil
ég ijúka spjallinu með því að
senda Jóni bónda tvær vísur í
gömlum stíi, undir því lagi
sem hann metu- flestum meir
og allir íslendingar kunna (Ó
þá náð...):
★
I-íeiil þér aldni íslendingur,
einyrki í Möðrudal.
Hátt og vel þú sömgva syngur,
svo að fyrnast aldrei skal.
Þú kannt helgum Þorlákstíðum
,þíðum hreyfa af næmri greind,
hetja og skáld á heiðum viðum,
Ihöfðingi í sjón og reynd.
Einihvern tíma auðna nemur
vfrið fagra og rrjikla sveit.
Hagleikssmiður hver þar
kemur,
helgar sér einn grænan reit.
Þar mun rísa þarfleg kirkja,
þá mun ríkja tíðin mild,
þegar ljóð sín Iqfðar yrkja
Ijúf og fser af hreinni snilld.
Jón Böðvarsson.
Mitja Stupan heitir ungur
Júgóslavi, sem hér er staddur
um þessar mundir, í boði
Æskulýðsfylkingarinnar. Hann
var einn af fulltrúum ..landis
síns á nýafstöðnu heimsmóti
æskunnar í Helsinkf. Við hitt,-
um Mi.tja að.máli, ög háhn er
fús að leysa frá skjóðunni.
— Ég bý í Ljubljana, sem er
stjórnarsetur og höfuðborg
Slcvenjíu. Ljubljana er verk-
smiðjubær með u.þ.b. 150.000
líbúa. Ég hef lokið lögfræði-
niámi og starfa nú í stjórn
Æskulýðssamtaka Júgóslaviu.
— Við viljum vita meira um
iþau samtök.
— í Slóveníu eru meðlimir
samtakanna um 150.000. ó aldr-
inum 15—25 ára. Samtökin
ihafa fulltrúa í skólum, verk-
smiðjum og sveitaþorpum, í
verkamannaráðum og stúdenta-
ráðum. Fjórða hvert ár er
ihaldið þing. þar sem kosin er
60 manna stjórn. Stjórnin
heldur 2—3 fundi á ári, en kýs
úr sínum hópj framkvæmda-
nefnd, hem sér u-m starfið mijli
funda. í janúar n.k. verðúr
haldið 7. þing samtakahria í
Slcveníu.
— blvert er markmið sam-
takanna?
— Við viljum veita ungu
fólki fræðslu um hugmynda-
kerfi sósíalismans. Við hjálp-
um til víð uppbyggingu sósíal-
ismans í landi okkar. Einnig
viljum við auka almenna þekk-
ingu ungs fólks og beina hug-
um þess að þroskandi viðfangs.
efnum. Aðalstarf okkar er
stjórnmálalegs eðlis, en við
stundum einnig íþróttir o.g
starfrækjum margsk. klúbba,
listaklúbba, 'menningarklúibba,
föhdurkiúþba' óls.frV.
Samtökín' 'vilja stefna að
'friði og viháttu. milii þjóða. í
Júgóslavíu gætir áhrifa þæði
úr austri og vestri. Við vilj-
um sameina það bezta úr þeim
láhrifum.
— Þú varst á Heimsmótinu.
— J-á, við vorum 53 frá
Júgóslavíu. í hópnum var
jazzhljómsveit og þjóðdansa-
flokkur. Bæði hljómsveitin og
dansararnir fengu gullverðlaun.
Heimsmótið var mikill viðburð-
ur og fór mjög vel fram.
— Að lokum spyrjum við
Mitja; Hvað segir þú um fs-
land að lokinni vikudvöl hér?
— Ég er mjög ánægður með
þessa för. Ég hef átt fróðlagar
viðræður við marga félaga
Æskulýðsfylkingarinnar, bæði
um stjórnmál og annað, sem
við höfum samqiginlegan áhuga
á. Einnig hef ég- férðazt um
íatidið, sém ‘mer þykir mjog
falíegt. Ég’" hef •-kymizt mörgu
ágætu og gestrisnu 'fólki hér,
og hlakka til að segja löndum
mínum frá öllu því, sem á daga
miína hefur drifið. ih.
Úr Langadal í Þórsmörk.
tlr Þórsmerkurferðinni. Stiklað á steinum yfir Krossá.
Úr ferðinni á Snæfcllsncs. Rætt við fcrfætling á förnúm vcgi.
Ferðahefnd ÆFR hefur að
venju gengizt fyrir fjölmörgum
ferðaiögum I sumar. Má þar
m.a. nefna ferð í Breiðafjarð-
areyjar, á Snæfcllsnes, í Brú-
arárskörð cg á Þórsmörk. —
Ferðirnar hafa happnazt mjög
vel og verið fjölmennar. Hér
birtast nokkrar svipmyndir úr
ferðum þessum.
4) _ ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 17. ágúst 1962