Þjóðviljinn - 17.08.1962, Page 12
Hver mófmœlir
í dag berum við saman há-
setahlut á Hávarði IS eins og
hann var fyrir úthaldið frá
25/6—28/7. Hávarður IS er
aflalægstur af þeim 12 bátum,
sem útreikningar LÍÚ náðu
til en gróði útgerðarmannsins
á kostnað háseta vex að sama
skapi og aflaverðmæti. Með
úrskurði gerðardómsins er
rænt kr. 1.681,40 af hlut hvers
háseta á umræddu tímabili og
stungið í vasa útgerðarmanns-
ins. Sé gert ráð fyrir 11 há-
setum á Hávarði nemur þessi
upphæð samtals kr. 18.495,40.
Samanburðurinn lítur þannig
út:
HÁVARÐUR ÍS — Samkvæmt úrskurði gCrðardómsins er rænt'
kr. 1.681,40 af hluta ihvers háscta úthaldið 25/6—28/7.
Nafn skips Úthald Aflaverðm. í kri Hásetahl. m. orl. samkv. úrsk. gerðard. kr. Hásetahl. m. orl. samkv. samn. f. 1959 kr. Mismunur (rænt af hv. háseta samkv. gerðard.)
Ilávarður IS 25/6—28/7 349.110,00 11.775.20 13.456.60 1.681.40
SkáE&'saga Eiíascr Marcr
„VOGGUVISA" kvikmynduð
til sýninga í SJÓNVARPI
í haust, væntanlega í októbermánuði n.k., verð-
ur skáldsagan „Vögguvísa“ eftir Elías Mar sýnd
í austur-þýzka sjónvarpinu. Ekki er óhugsandi að
sjónvarpskvikmyndin verði síðar sýnd víðar, t.d.
I Tékkóslóvakíu.
„Vögguvísa" kom fyrst út fyrir
12 árum, en var síðar þýdd á
á rússnesku, en óráðið enn um
útgáfutíma í Sovétríkjunum.
Unnið að undirbúningi
kvikmyndatökunnar
Það var á sl. vori sem for-
ráðamenn austur-þýzka sjón-
varpsins, Deutscher Fernsehr-
funk, leltuðu til umboðsmanns
Elíasar Marar í Þýzkalandi,
Sveins Bergsveinssonar px-ófess-
ors við Humboldtháskóla í Aust-
Framhald á 10. síðu.
(3IÓÐVILJINN
Föstudagur 17. ágúst 1962 — 27. árgangur — 183. tölublað.
Samkomulog um
V. - Nýju - Gíneu
NEW YORK 16/8 — FuKltrúar
stjórna Indónesíu og Hollands
hafa undirritað samkomulag um
að Indónesía taki stjórn vestur-
hluta Nýju-Gíneu í sínar hendur
í áföngum.
Samkomulag þetta bindur enda
á deiluna um yíirráðin á þessu
svæði, en hún hefur staðið í 13
ár. Subandrio utanríkisráðherra
undirritaði í aðalstöðvum S.Þ.
fyrir hönd Indónesíu en am-
bassadorarnir van Roin og
Schurmann fyrir Holland.
Samkomulag náðist um vopna-
hlé V.-Nýju-Gíneu og skal það
ganga í gildi á laugardagsmorg-
un. Mu.nu eftirlitsmenn Samein-
uðu þjóðanna sjá um að vopna-
hléinu verði framfylgt.
Eftirlit S.Þ.
Þetta samkomulag í deilunni
um vesturhluta Nýju-Gíneu er
talið mikill sigur fyrir U Thant
framkvæmdastjóra S.Þ., en hann
hefur mjög beitt sér fyrir því.
Fru.mbyggjar V.-Nýju-Gíneu
eru Papúar, og hefur landsvæðið
verið undir nýlendustjórn Hol-
lendinga í aldaraðir. Samkvæmt
hinum nýju samningum skal fót-
gönguliðsherdeild undir stjórn
Sameinuðu þjóðanna, ásamt lög-
regluliði papúa, sjá um að við-
halda lögum og friði í landinu,
þar til Indónesar hafa að fullu
fengið yfirráðin. S.Þ. munu einn-
ig koma á fót borgaralegri
stjórnarneínd fyrir þetta tíma-
bil.
V.-Nýja-Gínea er um 420.000
ferkílómetrar að flatarmáli og
innfæddir íbúar um 700.000. Fást
þeir aðallega við dýraveiðar,
fiskveiðar og iandbúnað með
mjög frumstæðum áhöldum. Hol-
iendi.ngar náðu fyrst fótfestu í
landinu 1687 og gerðu það síðar
að nýiendu sinni.
Glcði — óánægja
íhaldssöm blöð í Hollandi eru
mjög óánægð með samningana,
og telja að Holland hafi beðið
mikinn ósigur. Vinstri blöðin
taka samningunum hinsvegar vel
og telja mildu fargi létt af Hoi-
iendingum við lausn deilunnar.
Súkarnó Indónesíuforseti mun
ræða samkomulagið í ræðu til
þjóðar sinnar á morgun en þá er
þjóðhátíðardagur landsins. Af
opinberri hálfu hefur enn ekk-
ert verið sagt um samningana í
Indónesíu.
Indónesíustjórn hefur lagt til við
Hollandsstjórn að aftur verði
tekið upp stjórnmálasamband
milli ríkjanna, en Indónesía
sleit þvi fyrir nákvæmlega tveim
árum (17. ágúst 1960).
Smyglvarningur
finnst í Heklu
Er Hekla kom til Reykjavík-
ur í fyrradag frá Norðurlönd-
um fundu tollverðir við leit í
skipinu nokkuð af víni, fatnaði
o.fl., sem grunur leikur á um að'
sé smyglvarningur. Fannst þetta.
í farþegaflutningi og geymslum..
Er blaðið átti tal við Unnstein
Beok í gær, sagði hann, að»
varningur þessi hefði verið tek-
inn til varðveizlu af tollgæzl-
unni en ekki hefði enn unniztr.
tími til að ganga úr skugga
um, hvað af þessu væri smygl'
og hvað ekki.
Nenni hrapoði
og slasaðist
RÓM 16/8 — Pietro Nenni, for-
ingi vinstri-sósaldemókrata á.
Italíu, og einn af kunnustu
stjórnmálamönnum ítalíu, fannst
í dag meðvitundarlaus við rætur
fjallgarðs í grennd við Aosta í
ítölsku ölpunum. þar sem hann
dvaldi í orlofi. Hafði hann hlotið1
áverka á höfði. Hann var fluttur
í sjúkrahús og komst brátt til
meðvitundar. Talið er að höfuð-
kúpan sé sködduð og nokkur rif-
bein brotinn.
Nenni mun hafa fengið aðsvif
er hann sat við lestur í fjalls-
hlíðinni og hrapað síðan allmikið
fall.
ELÍAS MAR.
þýzku og gaf hið kunna forlag í
Austur-Þýzkalandi, Aufbau-Ver-
lag í Berlín, söguna út árið
1958 undir heitinu „Chibaba,
Chibaba". Þá hefur Árni Berg-
jnann lokið við þýðingu sögunnar
Tillaga Guðmundor Yigfússonar:
við
Fyrir íundi borgar-
stjórnar í gær lá tillaga
[rá Guðmundi Vigíús-
syni þess eínis, að borg-
arstjórn ályktaði að
hraða skipulagningu og
undirbúningi nýrra
byggingalóða, þannig
að íullnægt yrði þörí
fyrir nýjar lóðir miðað
við íbúafjölgun borgar-
innar. Borgarstjórnar-
íhaldið samþykkti að
vísa tillögunni frá sem
algerlega óþarfri!
Tillaga Guðmundar var svo-
hljóðandi:
„Þar sem borgarstjórninni er
ljóst, að skipulagning og undir-
búningur nýrra byggingarsvæða
er eitt af grundvallarskilyrðum
þess, að nægilegar íbúðabygging-
ar verði íramkvæmdar í borg-
inni, en skortur á lóðum undir
íbúðir er hins vegar mjög til-
finnanlegur, ályktar borgar-
stjórnin eftirfarandi:
1. Að gera ráðstafanir til að
hraða skipulagningu og undir-
búningi nýrra byggingarsvæða,
miðað við að sjá árlega fyrir
lóðum í samræmi við viður-
kennda nauðsyn íbúðafjölgun-
ar í borginni.
2. Að miða allar tæknilegar og
fjáihagslegar aðgerðir við að
Framhald á 10. síðu.