Þjóðviljinn - 25.02.1964, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 25.02.1964, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 25. febrúar 1964 — 29. árgangur — 46. tölublað. SKÝRSLA DÓMARANS KOMIN ■ f gær sendi rannsóknardómarinn í fjársvikamálinu á Keflavikurflugvelli, Ólafur Þorláksson, bloðunum skýrslu um helztu atriði þess sem þegar hefur komið fram við rannsókn málsins en hún er enn aðeins á byrjunarstigi og hefur einvörðungu beinzt að fjórnm ákveðnum atriðum. Er skýrslan í heild birt á 12. síðu. ■ í skýrslunni segir að svið rannsóknarinnar muni nú fært út og mun þá 4n efa fleira misjafnt koma í ljós en fram kemur í þessari fyrstu skýrslu dómarans. Yfírlýsing SHdarverksmiBja ríkisins um niðurlagningaverksmiðjumálið: VÍSVITANDI LYGI í 6LEKKINGAR- SKYNI □ í gærdag barst Þjóðviljanum „leiðrétting“ frá stjóm S.R. vegna blaðaskrifa að undanfömu um mál Niðurlagningarverksmiðjunnar í Siglu- firði og segir þar meðal annars, að Austur-Þýzka- land neiti að kaupa afurðir verksmiðjunnar að svo komnu máli. er □ Hér eru hrein ósannindi á ferðinni og ennþá hægt að selja afurðir verksmiðjunnar með því skilyrði að með fylgi í kaupunum fimm hundruð tonn af síldarmjöli. ☆ Sigurður Einarsson lék í ☆ fyrsta sinn í landsliðinu í ☆ handknattleik í leikjunum ☆ við Bandaríkjamenn um helg- ■jír ina. Myndin sýnir eitt æsi- ☆ Iegt augnablik í síðari Iands- ☆ leiknum. Sigurður er að skora •fr án þess að Bandaríkjamenn it fái nokkrum vörnum við ☆ komið. Bak við Sigurð sést ☆ í Ragnar Jónsson, fyrirliða it íslenzka landsliðsins. Banda- •jír rísku leikmennirnir á mynd- ☆ inni eru: Ronny B. Rollat, ☆ Renc Landis, Vincent Drake ☆ og dr. Buehning, fyrirliði ☆ bandaríska landsliðsins. — ☆ (Ljósm. Bj. Bj.). Afstaða forustumanna allra flokka á Siglufirði: Einróma fordæming á af- stöðu ríkisstjórnarinnar ■ Fulltrúum Austur-Þýzka- lands og föðurlandssvikurun- um fjölgar jafnt og þétt í Oldruð hjón slasast í hifreiðaárekstrí Síðdcgis á laugardaginn varð harður árekstur á Þrengslaveg- inum og slösuðust öldruð hjón héðan úr Reykjavík allmikíð og auk þess rotaðist ökumaður bifreiðarinnar sem þau hjónin voru með. Áreksturinn varð um kl. 3 e.h. Bar hann að með þeim hætti að Volkswagenbifreið sem var á leið austur yfir fjall var ekið á kyrrstæðan jeppa. Við árekstui’- inn kastaðist jeppinn um 6 m. ökumaður Volkswagenbifreið- arinnar rotaðist eins og áður Begir, en gömul hión sem vo'u farþegar í bílnum hlutu bæði talsverða áverka í andliti og meiddust auk þess eitthvað inn- vortis. Voru þau bæði flutt á slysavarðstofuna og konan síðar í sjúkrahús. Hjónin heita Guðný Pálsdóttir og Sigurður Sæmunds- son til heimilis að Nesveg 62. Er pilturinn sem ók bamabarn þeirra og hafði hann fengið bíl- inn lánaðan hjá bílaleigu. Segist hann ekki hafa séð jeppann á veginum fyrr en of seint vegna þess að skyggni hafi verið slæmt og framrúða bílsins ötuð auri. Jeppinn hafði fengið benzín- stíflu og var ökumaður hans rétt kominn inn í bílinn frá því að athuga vélina og slapp hann ómeiddur Siglufirði samkvæmt skoð- unum Alþýðublaðsins og Morgunblaðsins. Var haldinn þar fjölmennur fundur síð- astliðinn sunnudag á vegum verkalýðsfélaganna og mættu sem gestir fundarins for- ystumenn allra stjórnmála- flokkanna og fordæmdu ein- róma afstöðu ríkisstjórnar- innar til mála Niðurlagning- arverksmiðjunnar. Þóroddur Guðmundsson hafði framsögu í málinu og líka tóku til máls forystumenn allra stjómmálaflokkanna á Siglufirði og fluttu hvassyrtar ræður um málið. Voru þeir gestir fundar- ins og voru allir á einu máli um að fordæma þá afstöðu ríkis- stjómarinnar að vilja ekki selja síldarmjöl til þess að greiða fyr- ir sölu á afurðum Niðurlagning- arverksmiðjunnar. Þarna fluttu ræður til dæmis Bjarni Jóhannesson, útibússtjóri Áfengis- og tóbaksverzlunar rík- isins og Ragnar Jóhannesson, skattstjóri sem íulltrúar Fram- sóknarflokksins. Þá má geta Jó- hanns Möllers, bæjarfulltrúa Al- þýðuflokksins og varaformanns stjómar S.R., og fordæmdi hann sérstaklega skrif Alþýðublaðsins. Framhald á 2. síðu. Hér fer á eftir „Leiðrétting“ stjómar S.R. „Vegna ummæla, sem fram hafa komið á Alþingi og hafa verið endurtekin í Ríkisútvarp- inu og sumum dagblaðanna, varðandi sölu niðurlagðrar síld- ar til Austur-Þýzkalands, vilja Síldarverksmiðjur ríkisins taka fram, að ekkert tilboð hefur komið frá Austur-Þýzkalandi um kaup á birgðum Niðursuðuverk- smiðju ríkisins á Siglufirði af niðurlagðri síld Hinsvegar hafa Síldarverk- smiðjur ríkisins gert tilraun til þess að selja umræddar birgðir þangað fyrir milligöngu verzlun- arfulltrúa Austur-Þýzkalands í Reykjavík. Taldi verzlunarfull- trúinn, að sala á síldarmjöli jafnframt niðurlögðu síldinni myndi greiða fyrir kaupunum. Báðu sfldarverksmiðjur ríksins fulltrúann því að athuga hvc>rt sölumöguleikar á umræddum birgðum væru fyrir hendi á þeim grundvelli að tengja þess- ar sölur saman, en s.l. laugar- dag barst það svar frá fulltrú- anum, að hann gæti ekki tekið tilboði Síldarverksmiðja ríkisins, sem sett hafði verið fram í fyr- irspumarformi í s.l. janúarmán- uði. Sfldarverksmiðjur ríkisins". Þjóðviljinn hafði samband í gærdag við Þórodd Guðmunds- son, en hann er einn af stjóm- armeðlimum S.R. og gerir hann eftirfarandi athugasemd við þessa leiðréttingu: „Hér er aðeins um hálfan sannleik að ræða eða vísvitandi tilraun til blekkinga á þessu stigi málsins. Sveinn Benedikts- son, formáður stjómar S.R. Framhald á 2. síðu. Strandaði við Aknrey í blíð- skaparveðri Aðfaranótt sl. sunnu- dags strandaði vélskipið Sæúlfur, BA 75 við Akur- ey. Dráttarbáturinn Magni náði bátnum á flot á flóð- inu á sunnudag. Var Sse- úlfur tekinn í slipp í gær til athugunar og viðgerðar. Mun botnstykki bátsins haf skemmzt. Þegar báturinn strandaði var gott veður og ofurlítil austangola. Er því ekki hægt að kenna veðrinu um hve slysalega tókst til. Bát- urinn var á leið út til þess að vitja um net þegar ó- happið vildi til og var vél- stjórinn í brúnni en skip- stjórinn nýgenginn inn í „bestikk”. Sæúlfur er frá Tálkna- firði. Hann er 150 tonn að stærð og kom til lands- ins í fyrra. Stórsigur vinstri manna í Trésmðafélagi Rvíkur ■ Trésmiðir svöruðu í kosningunum um helgina hinum rætnu árásum íhaldsins á forvígismenn Trésmiðafélags Reykj avíkur. Urðu kosningarnar stórsigur fyrir vinstri menn og eftirminnileg traustsyfirlýsing á stjórn Jóns Snorra Þorleifssonar og félaga hans. ■ A-listi, listi vinsj;ri manna hlaut 316 atkvæði og alla stjórnina kosna. íhaldslistinn, B-listinn, hlaut 216 at- kvæði. Alls neyttu,539 atkvæðisréttar, en auðir seðlar voru 7. Á kjörskrá voru 629. + í stjórnarkosningumim í fyrra hlaut A-listi vinstri manna 290 atkvæði, en B-listi í- haldslns 227 atkvæði. Hafa vinstri menii hlotið 100 atkvæði fram yfir og er það meirihluti allra félagsmanna, og unnið verulega á, en í- haldið tapað atkvæðum. ★ Það vantaði þó ekki að í- haldið gerði ekki það sem það gat. Hefur líklega aldrei verið beitt í Trésmiðafélaginu jafn óvönduðum og óþokka- legum áróðri og íhaldið lét sér sæma að þessu sinni, og reynt var sérstaklega að nota hina erfiðu samningabaráttu í vetur til árása á stjóm fé- lagsins. Framhald á 2. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.