Þjóðviljinn - 25.02.1964, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 25.02.1964, Qupperneq 3
Þriðjudagur 25. febrúar 1964 ÞJÓÐVILJINN SlÐA 3 Hmétekim í réttarsahwm I McNamora vœntanlegur til Saigon Bollaleggingar í Washington um innrás í Norður- Vietnam WASHINGTON 24/2 — Spurzt hefur að Robert McNamara ætli bráðum í enn eina ferð til Saig- on, höfuðborgar Suður-Vietnams, og hefur sú frétt vakið allmikla athygli, vegna þess að sá orðrómur hefur komið upp í Washington að viss- ir bandarískir ráðamenn vilji að hafnar séu hein- ar hemaðaraðgerðir gegn Norður-Vietnam í þeirri von að með þeim megi draga úr stöðug- um hrakfömm suðurvietnamska hersins og hinna bandarísku hjálparsveita hans fyrir skærulið- um Vietcongs. Annan dag réttarhaklanna yfir Jack Ruby, sem myrti Lee Oswald, var handtekinn í réttarsalnum maður að nafni David Conrad Glass og sést hann þegar verið er að taka af honum fingraför. Glass var með hlaðna skammbyssu á sér, en hafði einnig sögu að segja, eins og áður hefur verið skýrt frá hér. Hann sagðist hafa fengið að vita um það í júlí í fyrra aö Oswald ætlaði að ráða Kennedy forseta af dögum og einnig að Ruby hefði verið falið að ryðja Oswald úr vegi cftir morðið. Hefði hann, Glass, verið beðinn um að fara til Dallas að drepa Ruby á5ur en honum ynnist tími til að vega Oswald. Enn verður ekkert um það fullyrt hvort saga hans hefur við rök að styðjast, en hún er ekki ótrúlegri en margt ann- að í þessu mikla og dularfulla máli. Bandarísk blöð fullyrða að bæði embættismenn í utanrík- isþjónustunni og háttsettir for- ingjar í Bandarikjaher hafi lagt fast að stjóminni að hefja slík- ar hemaðaraðgerðir, sem myndu fela í sér beina innrás í Norð- ur-Vietnam, en þó einkum að þangað yrðu sendir skemmdar- verkaflokkar. Blöðin sem skýrðu frá þessu í gær taka fram að enn hafi engin ákvörðun ver- ið tekin um þetta. Ekki borið til baka. Það þykir benda til þess að slík áform séu í rauninni á prjónunum að talsmenn utan- ríkis- og landvamaráðuneytanna Langt viðtal Castros við Reuter: Beitum ekki hervaldi til að ná herstöðinni í Guantanamo í Washington hafa neitað að svara spumingum um þau og hafa þannig ekki borið fréttim- ar til baka. Það er gefið í skyn að banda- rískir hermenn myndu sennilega ekki látnir taka beinan þátt í slíkum hemaðaraðgerðum gegn Norður-Vietnam, heldur myndu þeir aðeins veita suðurviet- namska hemum aðstoð til þeirra. McNamara til Saigon. Fréttaritari Reuters í Saigon skýrði frá því í gær að McNam- ara landvarnaráðherra væri væntanlegur þangað einhvern næstu daga, en hann var þar á ferð fyrir skömmu. Vist er talið að fyrirskipun um innrás í Norður-Vietnam eða það sem kallað er ,,takmörkuð sókn gegn kommúnistum í Norður-Viet- nam” muni ekki verða gefin fyrr en McNamara hefur rætt við núverandi valdamenn í Suð- ur-Vietnam, Khanh hershöfðingja og félaga hans. Rockefeller spyr Nelson Rockefeller, fylkisstjóri Sovézk sendinefnd í Nikosíu Kýpurstjórn þakkur hjálp Sovétríkjanna HAVANA 24/2 -—Fidel Castro forsætisráðherra sagði í dag í löngu viðtali við fréttamann Reuters í Havana að Kúbu- menn myndu fyrr eða síðar fá aftur yfirráð yfir flota- stöðinni sem Bandaríkjamenn hafa í Guantanamo, en þeim lægi ekkert á og þeir myndu ekki beita hervaldi í því skyni. — Við erum á engan hátt ó- þolinmóðir um þetta, sagði Castro, sem bætti við að Kúbu- stjóm myndi sækja þetta mál eftir diplómatískum leiðum og í alþ j óðastofnunum. Hann sagði að sú ákvörðun Bandaríkjastjómar að hætta hemaðaraðstoð við þau lönd sem ættu viðskipti við Kúbu væri heimskuleg. Kúba hefði nú góða viðskiptaaðstöðu og gæti boðið evrópskum og öðrum ríkjum á- gæta verzlunarskilmála. Helztu sjónarmið Viðtal fréttamannsins við Castro stóð 1 hálfan sjöunda tíma og voru þetta helztu sjón- armiðin sem hann lét í Ijós. 1. Fylgzt væri vel með deilum Sovétríkjanna og Kína í öllum marxistaflokkum. Castro vildi ekkert um það segja hvemig Góð síldveiði við Noreg nú KRISTJÁNSSUNDI 24/ 2 —Mjög mikil veiði hefur verið í dag á síldarmiðunum undan ströndinni við Kristjánssund og allar líkur til að aflinn verði enn meiri en á laugardaginn, sem var met- afladagur á vertíðinni. Miklar síldartorfur voru þarna á stóru svæði og hefuf afli bátanna bæði verið meiri og jafnari en fyrr á þessari vei’tíð. þeim deilum myndi lykta, en taldi bölsýni um niðurstöður varhugaverða. 2. Hann sagði að tillaga for- seta Mexikós, Mateos, um að á- greiningur Kúbu og Bandaríkj- anna yrði lagður fyrir SÞ mjög sanngjama. Tilgangur hennar væri góður og hún væri sett fram með góðu hugarfari. 3. Castro vildi ekki spá neinu um hve mikil sykuruppskera Kúbumanna yrði á þessu ári, en sagði að þeir myndu geta staðið við allar skuldbindingar sínar. Hann taldi þó víst að fyrir lok þeasa áratugs myndi ársuppsker- an verða 10 milljón lestir, eða meira en helmingi meiri en nú. 4. Um þá ákvörðun Banda- ríkjastjómar að svipta ýms lönd hernaðaraðstoð í hegningarskyni fyrir að þau verzla við Kúbu sagði Castro: — Ég get ekki ímyndað mér neitt heimskulegra. 5. Varðandi stefnu Johnsons forseta gagnvart Kúbu sagði hann — Við fylgjumst vel með öUu sem gerist, en erfitt er að dæma hvað Johnson hyggst fyr- ir, vegna þess að forsetakosning- ar standa fyrir dyrum í Banda- ríkjunum. 6. Castro skýrði frá því að Kúbustjóm hefði boðið brezk- hollenzka olíuhringnum Shell skaðabætur fyrir olíuhreinsunar- stöð félagsins sem þjóðnýtt var 1. júlí 1960. Stöðin var þjóðnýtt vegna þess að Shellfélagið neit- aði eins og bandarísku hringarn- ir að hreinsa sovézka olíu sem Kúba hafði keypt í skiptum fyr- ir sykur. NlKÖSlU 24/2 — Einn af ráðherrum stjómarinnar á Kýpur færði í dag sovétstjórninnl ein- Iægar þakkir Kýpurbúa fyrir þá aðstoð sem hún hefði veitt þeim í þrengingum þeirrr. og erfiðleik- um að undanförnu. Það var viðskiptamálaráðherr- ann, Adreas Araouzos, sem bar fram þessar þakkir, þegar hann bauð velkomna sovézka sendi- nefnd sem kom til Nikosíu í dag til að ræða við Kýpurstjórn um fastar áætlunarferðir flugvéla á milli Kýpur og Sovétríkjanna. — Við höfum síðustu dagana fengið áþreifanlega sönnun fyrir því hve traust vinátta er með þjóðum okkar, sagði ráðherrann, en sovétstjómin hefur eindregið stutt Kýpurstjóm í þeirri af- stöðu hennar að neita Atlanz- bandalaginu um leyfi til að senda herlið til eyjarinnar. Talsmaður Kýpurstjórnarinnar sagði að viðræðumar við sov- étstjórnina um áætlunarflug milli landanna hefðu verið á- kveðnar áður en viðsjámar hóf- ust á Kýpur. Stjórn Libyu í boðskap til Nassers: írlendar herstöivar verða lagízr niður Engin átök hafa orðið milli Grikkja og Tyrkja á Kýpur síðasta sólarhringinn. Viðræður Ú Þants tJ Þant. framkvæmdastjóri SÞ, hélt í dag áfram viðræðum sínum í New York við fulltrúa helztu deiluaðila í Kýpurmál- inu, um hvemig haga skuli fyr- irkomulagi og skipan alþjóðlegs gæzluliðs sem sent yrði til eyj- arinnar, en ekkert hefur verið látið uppi um tillögur hans, sem líklega munu lagðar fyrir fund annað kvöld. í New York, sem hafið hefur baráttu sína fyrir tilnefningu sem forsetaefni Repúblikana í kosn- ingunum í haust krafðist þess í gær af Lyndon B. Johnson forseta að hann ,,segði banda- rísku þjóðinni allan sannleikann um stríðið í Suður-Vietnam”. Rockefeller gaf í skyn að Banda- ríkjamenn væru leyndir sann- leikanum um ástandið í Suð- ur-Vietnam og sagði að sú bjartsýni á sigurhorfur Banda- ríkjanna sem fram kæmi í op- inberum tilkynningum kæmi illa heim við fréttir af stöðugum ó- förum þeirra í viðureigninni við skæruliðasveitir Vietcongs. Nýr ráðgjafi. I kvöld var skýrt frá þvf f Washington að William Sullivan hefði verið skipaður sérstakur ráðunautur Rusks utanríkisráð- herra um mál sem „varða bar- daga milli Norður- og Suður- Vietnams”. Sullivan hefur verið aðstoðarutanríkisráðherra. Það var staðfest í Washington í kvöld að McNamara myndi fara til Saigon um mánaðamót- in. en tekið var fram að sú ferð væri þáttur í reglubundn- um viðræðum milli stjóma Bandaríkjanna og Suður-Viet- nams, en stafaði ekki af því að ástandið hefði versnað í þessum heimshluta. Talsmaður Hvíta hússins neitaði enn að ræða nokkuð blaðafréttir um að Bandaríkin áformi að hefja beinar árásir á Norður-Vietnam, senda þangað skæruliða, setja hafnbann á landið eða gera rðr- ar hefndarráðstafanir. Jarðskjálftar AÞENU 24/2 — íbúar norður- hverfa Aþenu ruku fáklæddir út úr húsum sínum f gærkvöld eftir óvenjulega harða jarðskjálfta- kippi skömmu fyrir miðnætti. VÍSINDI KAlRÖ 24/2 — Stjóm Libyu hef- ur kunngert að samningar um hemaðarsamvinnu sem hún hef- ur nú við stjómir Bretlands og Bandaríkjanna muni ekki verða enduraýjaðir þegar gildistíma þeirra lýkur. Nauðungaruppboð Húseignin Langeyrarvegur 16 A í Hafnarfirði, þinglesin eign Sigurðar Hólms Þorsteinssonar verður eftir kröfu Kristins Ö. Guðmundssonar hdl. og fl. seld á opinberu uppboði sem fram fer á eigninni sjálfri föstudaginn 28. þ.m. kl. 1. Uppboð þetta var auglýst f 91., 92. og 94. tbl. Lögbirtingablaðsins. BÆJARFÖGETINN 1 HAFNARFIRÐI. Kaíróútvarpið skýrði frá þessu ' í gærkvöld og sagði að Libyu- stjóm hefði tilkynnt Nasser for- seta þetta í boðskap sem hún hefur sent honum. — Erlendar herstöðvar á lib- yskri grund munu aldrei verða notaðar til árása á okkar arab- ísku bræðraþjóðir, hefur Kaíró- útvarpið eftir stjóm Libyu, sem notaði tækifærið til að ítreka enn órjúfandi vináttu þjóðar sinnar og Egypta. Samkvæmt þeim samningum sem um ræðir hafa Bandaríkja- menn rétt til herstöðvanna i ! Lybiu. Mikil óánægja hefur ver ið með þessar herstöðvar í Lib- í yu og hafa stúdentar þannig far- ið mótmælagöngur í Tripoli að undanförnu til að krefjast þess I að þær verði lagðar niður. OG TÆKIMI HALDAST f HENDUR OG ÁRANGURINN VERÐUR MelPl BetPl ódýparl FRAMLEIÐSLA 0 ÞrSH fyrli* sMHhSakkun A larmgl»ltlum, aOflutnlngsgltíldum og sðluskatfl getum vlö nú boölö yOui> STÓRFELJLOA VERÐLÆKKUN á rússneskum hSöIbÖPðum 560x15- 4 Kr. 600x16- 6 670x15- 6 — 650x16- 6 — 825x20-12 — mmm 719,00 896,00 — 986,00 — 1.099,00 — 3.320,00 RÚSSNESKI H«JÓLE3ARÐINN ENDIST KLAPPARSTÍG 20 SfM11-7373 TRADING CO> HF. <

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.