Þjóðviljinn - 25.02.1964, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 25.02.1964, Qupperneq 7
Þriðjudagur 25. febrúar 1964 ÞlðÐVIUINN SÍÐA ^ B í LAÞÁT T U R m EFTIRLIT OG UMHIRÐU □ Við skulum nú athuga ofurlítið umhirðu og □ eftirlit sem við getum annazt sjálfir, eða □ höfum í öllu falli gagn og gaman af að vita □ eitthvað um. Ef fækifæri gefst verður hald- Q ið áfram í sama dúr einhverntíma síðar í □ þessum þættí. Billinn er ótrúlega marg- brotið tæki og því er ekkert undarlegt þó að hann þurfi mikið eftirlit og varfaemi f allri meðferð til þess að hann nýtist sem bezt og við höfum sem mest gagn og gaman af honum. Vélin Smumingin er eitt veiga- mesta atriðið í viðhaldi bfls- ins og þá ekki sízt á og í vélinni, því að þar má með sanni segja að bíllinn þurfi smurning undantekningar- laust. Það er mjög mikilvægt að fara eftir leiðbeiningum bæklingsins sem fylgir bfln- um, um olíuskipti og viðhald vélarinnar, einnig hvað þykktargráðum olíunnar við- víkur. Það er einnig góð regla að líta undir bílinn þegar hann hefur staðið óhreyfður nokkum tíma, þá getum við séð hvort á götunni eru nýj- ir olíublettir, benzínblettir eða bremsuvökvi og einnig hvort nokkurt vatn hefur lekið af bílnum. Ef olíupannan er heil og pakningar og þéttingar á vél- inni eru f lagi, þá á að vera nóg að mæla olíuna á vél- inni eftir h. u. b. 400 km akstur. Ef vélin er orðin slit- in eða hún brennir olíu af öðrum orsökum er nauðsyn- legt að mæla oftar og fylgj- ast vel með að ávalt sé nóg olía í pönnunni — (olíubyð- unni segja þeir sem kenna bifvélavirkjum). / Litur olíunnar á mælstik- unni gefur nokkuð til kynna ástand olíunnar þar sem græni liturinn hverfur smám saman, olían dökknar og verður að lokum svört og missir þá mikið fituinnihald sitt, sem finnst ef dropi er tekinn af kvarðanum á milli fingurgóma vísi- og þumal- fingurs og gómunum nudd- að saman. Eftir vissan tíma eða réttara sagt vissan akst- urstíma er olían orðin svo slitin og tærð að nauðsynlegt er að skipta um hana. Notk- unartími olíunnar fer mikið eftir tegund bifreiðarinnar og stærð pönnunnar og er því sjálfsagt að fara sem mest eftir því sem framleiðendur viðkomandi bifreiðar segja í þeim efnum. eins og áður segir. Það er mikilvægt að nota tækifærið og tappa olíunni af vélinni meðan hún er heit, olían rennur þá betur af og minna verður eftir i pönnunni. Margir hafa þann sið að skola alltaf vélina með skololíu þegar skipt er um, og er það að sjálfsögðu ágætt ef rétt er að farið. Þó er eitt atriöi, sem er vafalaust ekki síður hollt fyrir vélina, og það er að skipta reglulega um olíusigti og nota þá rétta gerð og rétta stærð af sigtum í hylkið. Strákamir á smur- stöðvunum eru liðlegir og vanir að eiga við þessa hluti og hafa líka í flestum til- fellum réttu lyklana og tæk- in, og þeir skipta um slgti fyrir okkur á örskammri stundu gegn vægu gjaldi um leið og þeir skipta um olíu, en munið eftir að gera þetta reglulega. eftir hverja 5000 kflómetra. Undirvagninn Það vill stundum dragast úr hófi að smyrja undirvagn- inn í tæka tíð, sérstaklega er það bagalegt að trassa und- irvagninn þegar mikið er ekið í bleytu og krapi, þá skolast feitin ótrúlega fljótt burtu og málmfletimir núast saman, og fyrr en varir er komið slit í spindla, stýrisenda, hjöruliði og alla þessa mikilvægu staði, sem bifreiðaeftirlitsmaðurinn athugar svo gaumgæfilega þegar þar að kemur. Til þess að koma í veg fyr- ir þetta slit er bráðnauðsyn- legt að fara eftir leiðbeininga- bókinni og smyrja á réttum tíma (frekar of oft en of sjaldan), með réttri feiti. Ef leiðbeihingamar mæla svo fyrir að nota skuli feiti, þá þýðir auðvitað ekki að nota smurolíu — og öfugt. Það er í flestum tilfellum teikning af undirvagninum í leiðbeiningabókinni, þar sem merktir eru allir staðir, sem þarf að smyrja, og þar get- ur eigandinn séð nákvæmlega hvar koppamir eru í undir- vagninum. Ef bíllinn er smurður á smurstöð, og hann er ekki eini bíllinn á landinu af þessari gerð, þá er alveg óhætt að treysta starfsmönn- um stöðvarinnar fyrir verk- inu, þeir vita alveg hvar smurkopparnir eru, en það er gott að nota tækifærið og athuga bílinn að neðan, ef hann er hafður í lyftu meðan smurning fer fram. • Drif og gírkassa á bein- skiptum bílum þarf að kíkja í um leið og smurt er, og sjálfsagt er að skipta um feiti á þeim eftir 10.000 km akstur. Þá er gott að skola kassa og drif áður en nýja feitin er sett á og athuga vel hvort nokkurt svarf er í feit- inni eða skolinu. örlítið svarf er ekki neitt hættumerki, en ef feitih er málmlituð eða svo stórar málmagnir eru í feitinni að þær finnist greini- lega milli fingranna, líkt og sandkom, þá er vissara að láta athuga viðkomandi bif- reiðarhluta. því það er ekk- ert skemmtilegt að stranda einhversstaðar úti á þjóðveg- um með brotinn gírkassa eða eyðilagt drif. Benzínsigtin Það skeður alloft að bíl- eigendur trassi hreinsun á benzínsigtum vélarinnar. Það eru 1 flestum tilfellum tvö aðskilin sigti á benzínleiðsl- unum, annað er sambyggt benzíndælunni, hvort sem hún er knúin af vélinni sjálfri eða rafknúin, hitt sigtið er áfast við eða innbyggt í blöndunginn. Sigtið í dælunni stíflast miklu oftar enda er það fyrsta hreinsunin á benzíninu á leiðinni frá geim- inum, en bæði sigtin þarf að hreinsa öðru hvoru til að komast hjá benzínstíflum á óheppilegasta tíma. Lofthreinsarinn við blönd- unginn er ákaflega mikilvægt tæki, ekki sízt hér hjá okkur með alla okkar moldarvegi og moldrok. Þessi hreinsari er oftast þannig útbúinn, að loft- ið sem vélin þarf til brennsl- unnar og óhreinindin sem annars færu inn í blöndung- inn og settust þar í nálar og úðara, eða héldu áfram inn í vélina. Þessi hreinsari þarf reglubundna umhirðu. það þarf að þvo hann upp úr steinolíu og fylla olíuskálina að merkinu sem á henni er, með hreinni þunnri smurolíu. Við hugleiðum það einhvem daginn í sumar ef við förum í þurru veðri út fyrir bæinn og verðum að kafa vegarykið, að fyrir hvern lítra af benz- íni sem eyðist í vélinni sog- ar hún inn í sig 10 rúmmetra af lofti — og ryki. Er þá ekki augljóst að lofthreinsarinn þarf svo sannarlega góða um- hirðu? — L. Neanderthaismaðurinn dvaldist í Danmörk Merkileg uppgötvun józka áhugajarðfræðings- ins Eli Jepsen er ekki fyrsta bending þess, að menn hafi lifað á Danagrund fyrir meir en eitt hundrað þúsund árum. Þegar nútímamaðurinn hélt fyrir um það bil þrettán þús- und árum inn í hrollkaldan krapaelginn í henni Danmörk, og svipaðist um eftir eftirlætis- bráð sinni. hreindýrinu, kom hann ekki að ósnortnu landi. Neanderthalsmaðurinn hafði verið þar meir en eitt hundrað þúsund árum áður. Að vísu kom nútímamaður- inn ekki að óbreyttu landi. I sjötíu þúsund ár hafði megin- landsísinn þakið mestan hluta landsins — það var aðeins vest- urhluti Jótlands sem gægðist undan ísröndinni. Mörg þúsund ára heimskautaloftslag hafði breytt þessu landslagi nr ■’-’f það óþekkjanlegt. Landslagið Józki - frístundajarðfræðing- urinn Eli Jepsen hefur fyrir ekki alls löngu gert mikilvæga uppgötvun. Hann fann frum- stætt verkfæri frumdanans. handfleyginn, sem hlýtur að vera frá tímabilinu fyrir síð- ustu ísöld. En þetta er ekki fyrsta merki þess, að hér hafi verið menn á ferli áður en hreindýraveiðimennimir lögðu undir sig landið fyrir þrettán þúsundum ára. Fyrir nokkrum árum gótu dýrafræðingar sann- að það, að menn hefðu verið ó ferli í Danmörk fyrir síðustu fsöld. Og dý.rafræðingarnir gátn jafnframt skýrt fró því f* hverju þessir menn lifðu. Hvernig var það land, sem Neanderthalsmaðurinn kom að fvrir meir en eitt. hundrað þús- und árum? Mörg hundruð metra þykkkur ís hafði tvisvar á síðustu 750 milljónum ára þakið landið. Þar sem nú er Slésvík var þá sund, er tengdi saman það sem nú er Norður- sjór og mikið innhaf, sem svarar til Eystrasalts vorra daga. Siðar þaktist hluti af Vendilskaga vatni. Þar sem nú eru aflíðandi heiðar Vestur- Jótlands, voru þá há giljótt hæðadrög. Og sennilega fylgja vestjózkar ámar i dag sama farvegi og ár Neanderthals- mannsins. Á hitatímabilinu, þegar lofts- lagið var sýnu mildara en það er í dag. prýddu skógana eik, beiki, linditré. ýviður og aðrar þær trjátegundir, er við þekkj- um í dag. En hér óx einnig rauðgreni, og það er athyglis- vert. Hversvegna það — höf- um við ekki greniskóglnn fyrir augunum daglega? Rétt er það. en rauðgrenið hefur komið tii landsins af sjálfsdáðun, fram á það hafa skógfræðingarnir sýnt. Dýralífið var svipað og það er enn f dag að viðbættum Framhald á 9. síðu Þannig ímynda mannfræðingar við Náttúrugripasafnið í Chica- gó sér að hin evrópíska Neand- erthalskona hafi litið lit. Hún hcfur verið um hálfan annan metra á hæð. LEIKHÚSMÁL um tímarit í fyrravor hóf göngu sína nýtt tímarit um leiklist og hafði Haraldur Björnsson gefið því nafn þess tímarits sem hann gaf út heilan ára- tug: Leikhúsmál. Þetta var á margan hátt mjög myndar- legt íyrirtæki, tiltölulega fjöl- mennt lið framlagsmanna, glæsilegur frágangur, hraust- mannlegt loforð um að menn- ingarrit ætti að koma út ein- um átta sinnum á ári. Ég skal jóta á mig þá synd að hafa ekki lesið þetta rit síðan fyrr en nú að á borðinu ligg- ur 4-5 hefti fyrsta árgangs, tafið í útkomu af verkföll- um. Þetta er fremur aðlaðandi hefti, skemmtileg uppsetning Garðars Gíslasonar og Baltas- ars, fjöldi mynda — verst að prentvillur eru undarlesa margar. Lipurlega er saman sett langt viðtal við Lérus Ingólfsson, sem gefur nokkurt tilefni til hugleiðinga um hið „léttara leikhús“, þeirrar greinar leikstarfsemi sem blómgaðist allt í einu mjög rðsklega fyrir um það bil tuttugu árum og allir hafa saknað síðan, að því er bezt verður séð, líka þeir sem ekki lifðu þetta tímabit. Það er raunar merkilegt að slík- ar leikbókmenntir skuli ekki aftur hefjast til vegs og virð- ingar einmitt nú, þegar við bókstaflega vöðum í stórkost- legum skrýtlum úr fíármála- lífinu og „viistinni. Máske þetta stafi af því, að við finnum hjá okkur þörf — ekki fyrir létt skop — heldur magnaðan kveðskap og illvrtan — og þorum ekki að riða á vaðið. Ólafur Mivn Viallmælir for- ystumönnum réttilega fyrir tilviliunarkennt og oft stór- furðulevt 1":' þáttur hefst á aldrei of oft kveðinni hugvekiu um Kefla- víkursjónvarp: stutt íslenzk sjónvarosdagskrá bætir lítið úr skák ef kanar munu (með aðstoð væntanlegs islenzks dreifingarkerfis) valsa um land allt með fimm- til sjö- falt lengri útsendinsartima. Þeim er ekki auðvelt að ræða leikdóma sem ekki þekkir nm»»tn?r svninsar nema af afspum. En því verður ekv; leitað að Leik- húsmálamenn eru svipaðir öðrum íslenzkum leikdómur- um að hví leyti að hnim geng- ur miklu betur að skrifa um leikritin sjálf heldur en með- ferð einstakra leikenda I hlutverkum. Pétur Ólafsson sér um kvikmyndaþátt og hefur uppi mjög timabæran áróður fyrir Antonioni. Vernharður Linn- et hefur tekið að sér jazz og byrjar á sögulegu yfirliti — tónlistarþátturinn er að þessu sinni einnig varla ann- að en annálsbrot. Leikrit heftisis er Gísl Brendans Behans í þýðingu Jónasar Ámasonar. Af Öðru þýddu efni myndi greinin ..Hvemig listdans verður til” teljast réttilegast valin i rit sem þetta. Þá er „Flúxús- fólkið" kynnt: „Sýningar Flúxusfólksins ganga út á. það, að spinna utan um hið fráleita. heimskulega líf, að þess áliti, — fráleitar og heimskulegar athafnir, hreyf- ingar, orð og tóna — svo að lífið verði þolanlegra", stend- ur þar. Birt er þýtt viðtal við tvo framámenn í þessari hreyfingu — og verður ekki betur séð en þetta séu ákaf- lega leiðinlegir menn, en lát,- um það vera. Hitt er svo al- veg út í hött að þýða slík viðtöl. Dæmi: „Ameríkaninn hefur áhuga á tækifæri til að græða peninga. Hann hefur tileinkað sér hina efnis- hyggjulegu hlið Búddismans; ágæta hlið ef ykkur sýnist svo. Ameríkaninn fékk sinn Búddisma að mestu frá Jap- an. Jananir eru suðlæg þjóð. Litir þeirra eru fallegir. Þeir eru tilfinninganæmir. Sem hernámsvald hafa Amerikan- ar tileinkað sér betta. Evr- ópa hefur tekið til sín meg- inland Austur-Asíu: Kína. Caspari til dæmis. Hann rann á rassinn. Austurvíg- stöðvarnar og allt um það. Caspari án expressiónisma, Cage án amerískra éhrifa — það væri blanda sem segði sex.“ Ekki er allt svona slæmt, en margt. Og það er þvi miður ekki einsdæmí að svo hráu efni er dembt yfir lesendur tímarita hér á landi alsaklausa. Ef mönnum þyk- ir taka því að kynna flúxus- menn, sem hafa begar getið sér allmikla fræeð fyrir að mölva píanó með helvítleg- um gauragangi, þá verða þeir að gjöra svo vel og leggja á sjálfa sig einhvern skriflegan undirbúning, mætti þá tina með einhver spakmæli um- ræddrar hreyfingar ef þurfa þætti. Að öðru leyti má óska Leikhú«máUim langra lífdaga. A.b. A THUGASEMD VEGNA MÍMIS Einn af lesendum blaðsins hefur sent mótmælabréf gegn ummælum sem und- irritaður viðhafði um tímarit nemenda Norrænu- deildar og er rétt og sjálf- sagt að birta bað á við- eiffandi stað. — Á.B. „Mér þótti Á.B. undarlega geðillur í greinarstúf sem hann skrifaði um blað stúd- enta i islenzkum fræðum, Mími. Hann sá varla Ijósan ounkt í þessu riti og nöldr- aði töluvert um það, að höf- ■mdar greinanna hefðu leið- 'nleg og úrelt áhugamál. Má vera að eittbvert sannioíka. kom leynist í þessu nöldri, *n það er þá i meira lagi •’inkennile»gt að ekki er minnzt á bá grein f blaðinu sem ber ótvíræðast vott um pktúel áhueo"-'’ Tiér á ég „ið ^roinargerð Vést.oins Óla- 'nnar fvrir tveim ritum um nókmenntava vnrýni. Þessi vreinargerð , stendur einmitt i nánu svwnbandi við allan anda ritsins. En hann er, að mínum dómi, fólginn í því, að taka bókmenntaverk nýj- um tökum, beina öllum á- herzlum pð sjálf- um í stað þess að dansa í kring um þau á öiium hugs- anlegum aukaatriðum, bíó- grafiskum og sögulegum. •"•nmitt m’jög ánægju- leg þróun í deild íslenzkra fræða. sem hefur verið þekkt fvrir annað en það, að senda frá sér lifandi og virka sagn- rýnendur. Menn sem þaðan koma hafa lengstum látið sitja við burrar unntalninear á æfiatriðum skálda og svo orðaskýrinear beear beir bafa reynt að knma nálæst bókmenntum. Þessi leiðindi virðpp+ htn«vegar vera á und- anhaldi og meiri reisn og meira b’f nnrntermdeild, pf ekki vfir forvstnmöhnum bennar. há að mjnnsta kosti vfir bennar. eins 0„ hojrra ber vitni um. — H.”

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.