Þjóðviljinn - 25.02.1964, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 25. febrúar 1964
MðDVlLIIM
SÍÐA 0
moipgjirii S
útvarpið
I
!
!
i
i
hádegishitinn skipin
★ Klukkan 11 í gær var
austan og suðaustan átt um
allt land. Við suður- og aust-
urströndina var rigning og
sums staðar allhvasst, en á
Norður- og Vesturlandi var
víðast kaldi og þurrt veður
Djúp lægð og hægfara um
1100 km suðvestur af Dyr-
hólaey.
til minnis
■ £■., fi.-.s '
★ í dag er þirðjudagur 25.
febrúar. Hlaupársdagur. Ar-
degisháflæði kl. 4.02.
★ Næturvörzlu í Hafnarfirði
í nótt annast Kristján Jó-
hannesson læknir, sími 50056.
★ Næturvörzlu í Reykjavik
vikuna 22. til 29. febrúar ann-
ast Vesturbæjarapótek. Sími
22290.
★ Slysavarðstofan i Heilsu-
vemdarstððinni er opin allan
sólarhringinn Næturlæknir *
sama stað klukkan 18 til 8
SfmJ 2 12 30.
★ SlðkkvIIIðlð ob sjðkrahif
reiðin sfmi 11100.
★ tðgreglan sími 11168
★ Holtsapótek os Garðsapótek
eru op!n alla virka daga kl
0-12. taugardaga kl 9-1*
oa sunnudaea klukkan 13-16
★ Neyðarlæknlr vakt «11»
daga nema laueardaga fclukk-
an 13-12 — Sfmi 11510.
★ Sjúkrabifreiðin Hafnarfirði
•ími 51330
★ Kópavogsapótek ei opið
aila virka daga klukkan 0-15-
20. laueardaga dukkan J.15-
16 08 eunnudne* ki 13-16
★ Eimskipafélag Islands.
Bakkafoss fór frá Akureyri í
gær til Svalbarðseyrar, Húsa-
víkur, Ölafsfjarðar og Norð-
urlandshafna. Brúarfoss kom
til N.Y. 22 þ.m. frá Dublin.
Dettifoss kom til Reykjavík-
ur 23. þ.m. frá Hamborg.
Fjallfoss fór frá Ventspils 23.
þ.m. til Hamborgar og Rvík-
ur. Goðafoss fór frá Vest-
mannaeyjum i gærkvöld til
Keflavíkur. Gullfoss fer frá
Kaupmannahöfn í dag til
Leith og Reykjavíkur. Lagar-
foss fer frá Gautaborg í dag
til Kristiansand, Hull ’ og
Reykjavíkur. Mánafoss kom
til Norðfjarðar í gær, fer það-
an í dag til Reyðarfjarðar,
Vopnafjarðar, Raufarhafnar,
Akureyrar. Hjalteyrar, Stykk-
ishólms og ’ Reykjavíkur.
Reykjafoss fer frá Seyðisfirði
í dag til Norðfjarðar, Eski-
fjarðar, Reyðarfjarðar og Fá-
krossgáta
Þjóðvilians
Lárétt:
I í Almannagjá 6 vandi 7
fréttast 9 drykkur 10 verkf.
II borg 12 titill 14 lengd 15
ker 17 fúnaði.
Lóðrétt:
1 mixar 2 sk.st. 3 álpast 4
fluga 5 spillti 8 riss 9 nam 13
vatn 15 sk.st. 16 frumefni.
skrúðsfjarðar og þaðan til
Gautaborgar og Kaupmanna-
hafnar. Selfoss fór frá N.Y.
18. þ.m. til Reykjavíkur.
Tröllafoss fer frá Immingham
i dag til London og Amster-
dam. Tungufoss fór frá Sauð-
árkróki í gær til Siglufjarðar,
Akureyrar, Hjalteyrar, Rauf-
arhafnar, Eskifjarðar og það-
an til Hull og Antwerpen.
★ Skipaútgerð ríkisins. Hekla
fer frá Reykjavík á hádegi
í dag austur um land i hring-
ferð. Esja er í Reykjavík.
Herjólfur fer frá Vestmanna-
eyjum kl. 21.00 í kvöld til R-
víkur. Þyrill er á Norður-
landshöfnum. Skjaldbreið er
í Reykjavík. Herðubreið er
á Austfjörðum á norðurleið.
★ Skipadeild SÍS. Hvassafell
er f Grimsby. fer þaðan til
Rotterdam. Amarfell er í
Middlesborough. Jökulfell er
væntanlegt til Camdem 25.
þ.m. Dísarfell er í Liverpool,
fer þaðan í dag til Cork,
Avonmouth, Antwerpen og
Hull. Litlafell fór i gær frá
Reykjavík til Norðurlands-
hafna. Helgafell er i Helsing-
fors, fer þaðan til Aabo.
Hamrafell fór í gær frá Bat-
umi til Reykjavíkur. Stapa-
fell kemur til Reykjavíkur í
dag.
★ Ilafskip. Laxá er í Ham-
borg. Rangá fór frá Gauta-
borg 23. febr. til Þrándheims.
Selá er í Reykjavík.
★ Jökiar. Drangajökull fór
frá Camden í gær til Reykja-
víkur. Langjökull fór frá
Vestmannaeyjum 23. þ.m. til
Póllands, A-Þýzkalands,
Hamborgar og London.
Vatnajökull er í Grimsby. Fer
þaðan til Calais. Antwerpen
og Rotterdam.
13.00 Við vinnuna.
14.40 Ragnhildur Ingibergsd.
læknir talar um and-
legan vanþroska.
15.00 Síðdegisútvarp.
17.05 Endurtekið tón-
listarefni.
18.00 Tónlistartími bam-
anna (Guðrún Sveins-
dóttir).
20.00 Einsöngur í útvarpssal:
Ketill Jensson syngur.
Við hljóðfærið: Skúli
dórsson.
20.20 Hugleiðing um húsa-
gerðarlist; II. erindi
(Hörður Ágústsson list-
málari).
20.50 Þriðjudagsleikritið „I
Múmum“ eftir Gunnar
M. Magnúss; 7. og 8.
kafli: Grátur í Múmum
og Jörundur kemur af
hafi.
21.45 Söngmálaþáttur þjóð-
kirkjunnar: Dr: Róbert
A. Ottósson söngmála-
stjóri talar um kirkju-
orgel og orgelkaup á
íslandi; áttundi þáttur.
22.10 Lesið úr Passíusálmum.
22.20 Kvöldsagan: „Óli frá
Skuld“.
22.40 „Blandaðir ávextir."
Sinfóníuhl j ómsveitin
Bavaria o.fl. hljóm-
sveitir leika.
23.25 Dagskrárlok.
*
\
I
\
\
\
\
\
\
\
k
!
visan
★ Tileinkuð Baldvin Þ.
Kristjánssyni.
Gosi sagði eitt sinn eitt:
þeir ættu að bera við að fela,
sem stela.
Nú er mörgu máli breytt —
margra hnifur kemst í feitt.
Og nú vill framsókn fela það
sem frímúrarar stela.
Gaui.
flugið
h
i
★ Flugfélag Islands. Skýfaxi
er væntanlegur aftur til R-
víkur kL 16.00 í dag frá
Kaupmannahöfn og Glasgow.
Skýfaxi fer til Glasgow og
Kaupmannahafnar kl. 8.15 í
fyrramálið.
★ Pan American þota er
væntanleg frá N.Y. í fyrra-
málið kl. 7.45. Fer til Glasgow
og London kl. 8.30.
félagslíf
★ Húsmæðrafélag Reykjavík-
ur haldur spilakvöld miðviku-
daginn 26. þ.m. kl. 8.30 í
Breiðfirðingabúð. Mætið vel
og stundvíslega. — Stjómin.
söfnin
!
s
!
* Bókasafn Seltjarnamess.
Opið: Mánudaga kl. 5.15—7 og
8—10. Miðvikudaga kL í.lð
—7. Föstudaga kL 5.15—7 o|
8—10.
Bohmer hefur séð mennina þrjá halda á braut. Nú bar
vel í veiði, drengurinn er einn um borð. Tækifærið
gríptu greitt, gæfu mun það skapa, segir skáldið! Óá-
eittir fara þeir um borð. Er þeir opna káetuna tekur
•Túlíus skipshundur að urra illilega, og Kidda dylst það
ekki, að aðkomumennimir hafa illt í huga. Hvað skyldu
þeir vilja? Bara að Þórður væri hér kominn!
Júlíus býst til varnar og gnístir tönnum. Þeir kump-
ánar höfðu ekki búizt vfð honum.
■«. jHF*
Neanderthalsmaðurínn
Framhald af 7. síðu.
nokkrum framandi tegundum
svo sem nashymingi, fíl, vís-
undi — og dádýri. Og það er
eftirtektarvert, að enn þann
dag í dag fyrirhittast miklar
dádýrahjarðir í Norðurevrópu.
en eins og rauðgrenið em þær
aðfluttar. Fyrir síðustu ísöld
kom dádýrið af eigin hvötum
til Danmerkur, og við vitum
með vissu, að það var veitt af
dönskum Neanderthalsmanni.
Miðdegis-
maturinn
Fyrir átta árum tók Ulrik
Möhl, starfsmaður við Zoolog-
isk Museum, til rannsóknar
gömul, rykfallin dádýrabein frá
síðustu mið-ísöld. Og þá komst
hann að því, að hér var komin
sönnunin fyrir því, að menn
hefðu búið í Danmörk á mið-
ísöld. Dádýrabeinin voru nefni-
lega mergsogin. Eitt út af fyrir
sig er þetta ekki svo athyglis-
vert, mergur hefur alla tíð þótt
hið mesta hnossgæti og til er
urmull af mergsognum beinum
frá steinöld. Uppgötvunin ligg-
ur i því einu, að hér er um
dádýrabein að ræða. Ef frá eru
skildir dýragarðar nútímans
hafa dádýr nefnilega aðeins
lifað hér á miðisöld! Þar með
liggur málið ljóst fyrir. mað-
urinn hlýtur að hafa verið hér
fyrir ísöld, og þá getur tæpast
verið um annað að ræða en
N eanderthalsmann inn.
Uppgötvun hins józka áhuga-
jarðfræðings olli því Magnúsi
Degerböl ekki undrunar, en
hann er sérfræðingur i dýra-
lífi og manna á þeim tíma, er
hér um ræðir. Prófessor Deger-
böl skýrir svo frá, að hann
hafi áður haft um það grun,
að menn hlytu að hafa lifað
í Danmörku fyrir síðustu ísöld,
grun sem nú er orðinn að
vissu. 1948 fannst nefnilega
skammt frá Bremen fíll af teg-
und, sem tilheyrir síðustu mið-
ísöld, og ffllinn hafði fengið tré-
spjót í brjóstið. Og hefði mað-
urinn komizt þó þetta norðar-
lega var heldur ósennilegt að
hann hefði ekki stigið skrefið
til fulls og haldið til Dan-
merkur.
Útlitið
Hver var hann svo þessi Ne-
anderthalsmaður? Hann var
enginn sérstakur Adonis á að
líta. Ennið var lágt, augabrúnir
miklar og samfastar. augna-
tóftimar djúpar og hakan
smá. Hann gekk álútur, legg-
imir voru stuttir og bognir en
hendur og fætur fremur í
stærra lagi. Neanderthalsmað-
urinn var lágvaxinn, meðal-
hæðin einhversstaðar milli 150
og 160 cm. En enda þótt lýs-
ingin minni á apa, var Neand-
erthalsmaðurinn raunveruleg-
ur maður, og dýrafræðilega er
hann sömu ættar og nútíma-
maðurinn. Hann var síðasta
hliðargrein þeirrar ættar, sem
liggur til okkar eins og við er-
um í dag. Að baki Neander-
thalsmannsins liggur þróun
hundrað þúsunda ára, þróun,
sem hefst með apaforföðumum
sem varð að apamanni. Þróun-
in tók yfir afríkanska Austral-
opithecus-manninn, sem oftast
gekk uppréttur og smíðaði
fyrstu klunnalegu steinverk-
færin. Enn nær þróunin yfir Pit-
hecanthropus-manninn. Peking-
manninn, sem lifði fyrir 100
til 500 þúsundum ára. Hann
gerði verkfæri úr beini og
tinnusteini og kunni að nota
eld.
Neanderthalsmaðurinn ríkti í
Evrópu á síðustu miðísöld og í
byrjun síðustu ísaldar. Hann
var þéttur á velli og vel fallinn
til að lifa í köldu loftslagi. 1
fjöllunum leitaði hann inn í
hellana og fann þar vemd gegn
kulda — og mat. Risavaxinn
hellabjöminn hlýtur að hafa
verið ógnþrunginn ásýndum,
en var i raun og veru klunna-
leg og hættulaus jurtaæta, og
varð helzta bráð Neanderthals-
mannsins. Oft á tlðum hefur
hann verið sjálf undirstöðu-
máltfðin. Dádýrið var enginn
sérstakur Neanderthals-matur.
Heili Neanderthalsmannsins
hefur ekki verið sérlega mikið
notaður — miðað við nútíma-
manninn. Að vísu var heili
hans eins stór og nútímamanns-
ins, og nokkrir Neanderthals-
menn höfðu meira að segja
heilabú, sem er sýnu stærra.
En greindar- og skynjunar-
stöðvar heilans eru tengdar
enni og hvirfli — einmitt þeim
hlutum, sem lítt voru þróaðir
í höfuðkúpu Neanderthals-
mannsins. Dæmigerður Neand-
erthalsmaður hefur naumast
gert sér hugmyndir um dauð-
ann, og varla hefur hann hald-
ið „veizlur góðar“ eða haftauga
fyrir annarri lífsgleði. Engir
skartgripir hafa fundizt eftir
hann og heldur ekki neinar
menjar um listsköpun.
Álfar og tröll?
Þegar Neanderthalsmaðurinn
sat í helli sínum £ fjöllum Suð-
ur- og Miðevrópu fyrir um það
bil áttatíu þúsund árum, kom
fram á sjónarsviðið i Suðvest-
ur-Asíu maður framtíðarinnar
— Cromagnonmaðurinn, „homo,
sapiens", eða hinn „vitandi
maður“. Frá fæðingarheimili
sínu breiddist hann til allia
átta og einnig inn í land Ne-
anderthalsmannsins. Gromagn-
on-maðurinn var Neaderthals-
manninum að öllu leyti yfir-
sterkari. Hann var greindari,
fljótari, og eitt dæmið um yfir-
burði hans eru heliamálverkin,
hin fyrsta list mannsins.
Við vitum ekki. hvað orðið
hefur um Neanderthalsmanh-
inn. Kom til baráttu milli
framtiðarmannsins og fyrir-
rennara hans? Var Neander-
thaismaðurinn hrakinn á verra
og verra land árþúsund eftir
árþúsund? Lifði hann í stöðug-
um ótta við hinn nýja, öfluga
frænda sinn? Menn hafa látið
sér til hugar koma, að hér og
þar hafi þessar 4rvær mann-
gerðir blandazt, en sennilega
hefur munurinn verið of mikill
til þess að slíkt yrði algengt.
Við vitum þetta ekki. Við
vitum það eitt, að mergsogin
dádýrabein og frumstæðir hand-
fleygar eru sterkar líkur þess,
að Neanderthalsmaðurinn hafi
verið hér. Þegar ísinn hverf-
ur og hið nýja land rís, er
hann allur á braut. Síðan hef-
ur hann aðeins lifað i sögnum
og draumum Cromagnon-
mannsins — ef til vill er það
hann, sem við minnumst óljóst
f sögnum um dverga, tröll og
álfa.
Bent Jörgenscn
(Þýtt úr Information)
Snæfellingar Snæfellingar
ÁRSHÁTÍÐ
Félags Snæfellinga og Hnappdæla í Reykjavík,
verður haldin að Hótel Borg laugardaginn 29. febr.
og hefst með borðhaldi kl. 6.30 s.d.
— FJÖLBREYTT SKEMMTIATRIÐI —
Aðgöngumiðasala í Verzl. Eros (sími 13350), Raf-
lampagerðinni (sími 11926) og Klæðaverzlun Þ.
Þorgeirssonar Lækjargötu (sími 19276).
Sfjóm og skemmtinefnd.