Þjóðviljinn - 25.02.1964, Síða 12

Þjóðviljinn - 25.02.1964, Síða 12
Þriðjudagur 25. febrúar 1964 — 29. árgangur — 46. tölublað. Stærsta skákmót ársins: Sveitakeppni stofn- ana hefst í kvöld ■ Skákkeppni stofnana 1964 hefst í Lídó í kvöld kl. 7,30 og er þetta í fimmta sinn sem mót þetta er hald- ið. Að þessu sinni senda 30 fyrirtæki og stofnanir sveit- ir til kep^pninnar og eru sveitirnar alls 42 að tölu þar sem Þrjú innbrot um heigina UM HELGINA var brotizt inn í verzlunina Radióver að Skólavörðustíg 8 og stol ð þaðan 9 transitorviðtækjum en samanlagt verðmaeti þeirra mun vera nálægt 30 þúsund krónum. TVÖ ÖNNUR innþrot voru einn- ig framin um helgina. Brot- izt var inn í Hressingarskál- ann og stolið þaðan einhverju af sælgæti og um 300 krón- um í peningum. Einnig var brotizt inn í skrifstofu að Sk'pholti 35 en ekki er vitað til þess að neinu hafi ver- ið stolið þaðan. Bruni í Skúlatúni í gærkvöld 1 gærkvöld um klukkan sjö varð allmikill eldur laus í Vél- smiðju Sigurðar Sveinbjömsson- ar að Skúlatúni 6. Kom eldurinn upp í norð-vestur homi smiðj- unnar, brauzt upp i gegnum þakið og hlutust af miklar skemmdir áður en slökkviliðinu tókst að slökkva hann. Þegar Þjóðviljinn hafði tal af slökkvi- liðinu seinna í gærkvöld var enn ekki kunnugt um upptök eldsins. 1 smiðjunni var mikið af hlöðnum gashylkjum og má telja lán að eldurinn komst ekki að þeim. Slökkvistarfið gekk fljótt og vel og engin slys urðu á mönnum. Blaðamannaklúbbur inn í kvöld: I þessum húsum eru íbúðirnar 48. — (Ljósm. Þjóðv. A. K.) MÁNUÐER LÍÐA ÁN SAMNINGSAÐGERÐA □ Hugsanleg kaup Reykjavíkurborgar á 48 fullgerðum íbúðum í tveim sambýlishúsum, sem íslenzkir aðalv erktakar eiga í smíðum við Kapla- skjólsveg, komu til umræðu á síðasta borgarstjórnarfundi, sl. fimmtu- dag, er húsnæðismál voru rædd þar sem oftar, m.a. í tilefni fyrirspuma sem Adda Bára Sigfúsdóttir óg Óskar Hallgrímsson báru fram. sum fyrirtæki senda allt upp í 4 sveitir. Keppt verður í 6 flokkum og eru 7 sveitir í hverjum flokki skipaðar 4 aðalmönnum og 2—4 varamönnum. Eru alls skráðir til keppninnar 296 keppendur. Adda Bára spurði þá m.a.: „Hvað líður samningum þeim um kaup á 48 fullgerðum íbúð- um við Kapplaskjólsveg, sem voru að hefjast fyrir 4% mán- uði. sbr. frávisunartillögu borg- arstjóra á borgarstjórnarfundi 3. okt. sl..?” Borgarstjóri svaraði því til, eins og greint hefur ver- ið frá hér 1 blaðinu, að grein- argerð verktakanna varðandi verð húsanna myndi væntanlega bráðlega lögð fyrir borgarráð, en gert væri ráð fyrir að húsin yrðu tilbúin í apríl eða maí n.k. Að loknum svörum borgar- stjóra vakti Adda Bára athygli á hversu sleifarlagið hjá borg- Féll sf 2. hæð Laust upp úr hádegi í gær féll drengur á þriðja ári út um glugga á annarri hæð á húsinu númer 66 við Bólstaðahlíð; mun bamið hafa verið þama í fylgd með gestkomandi fólki. Kom drengurinn niður á sendna flöt og virtist, er síðast fréttist, hafa meiðst éitthvað innvortis. Var hann þá enn til rannsóknar á sjúkrahúsi. aryfirvöldunum einkenndi þetta mál allt. Benti hún á að borg- arstjómin hefði einróma sam- þykkt fyrir nær ári ályktun um ráðstafanir í byggingamálum borgarinnar, m.a. að leitað yrði forkaupsréttar á þessum 48 í- búðum við Kapplakjólsveg hjá Islenzkum aðalverktökum eða gera aðrar ráðstafanir sem sam- bærilegar teldust. Þegar ekkert hefði bólað á framkvæmd þess- ara borgarstjómarsamþykktar hálfu ári síðar, eða í október s.l., hefði Guðmundur Vigfússon borið fram tillögu, þar sem þetta aðgerðarleysi hefði verið á- talið, sleifarlagið talið óafsakan- legt og borgarráði og borgar- stjórn falið að gera tafarlausar ráðstafanir til að hrinda um- ræddri samþykkt í framkvæmd. Þessari tillögu Guðmundar hefði borgarstjómarmeirihlutinn vísað frá á þeim forsendum m.a. að samningar borgarsjóðs við Is- ienzka aðalverktaka um Kapla- skjólshúsin væru í þann veginn að hefjast. Nú — þegar enn væru liðnir 4% mánuðir frá umræddum borgarstjómarfundi — væri allt í óvissu um kaup- in á íbúðunum 48. Vítti Adda Bára þessi vinnubrögð borgar- yfirvaldanna harðlega og taldi þau . hin ískyggilegustu, ekki hvað sízt vegna þess að nú væri Reykjavíkurborg komin í þá að- stöðu að þurfa að sæta í raun- inni hverjum þeim kostum sem húsbyggjendumir settu fram um kaupverð og greiðsluskilmála á byggingunum. Skipting skáksveitanna í flokka er sem hér segir: A-flokkur: Alm. byggingafélagið, Stjóm- arráðið, 1. sv., Útvegsbankinn, Pósturinn, Búnaðarbankinn, 1. sv., Veðurstofan, Landsbankinn, I. sv. B-flokkur: Raforkumálaskrifstofan, Hót- el á Keflavíkurflugvelli, Sam- vinnutryggingar, Hreyfill, 1. sv., Miðbæjarskólinn, Ríkisútvarpið, Gutenberg. C-flokkur: Eimskip, 1. sv„ Stjómarráðið, II. sv., Hreyfill, II. sv„ Borgar- bílastöðin, 1. sv„ Verðgæzlan, Rafmagnsveita Rvíkur, 1. sv. Landssíminn, 1. sv. D-flokkur: Héðinn, Morgunblaðið, Lands- bankinn, II. sv., Búnaðarbank- inn, II. sv„ Þjóðviljinn, Hreyfill, Framhald á 2. síðu. Syngja annað kvöld. Hér er frú María Markan óperusöngkona með nemendum sínum átta er syngja á fyrstu opinberu tónleikum söngskóla hennar í Gamla Bíói annað kvöld kl. sjö. Þeir eru talið frá vinstri: Jónas Magnússon ('hár barryton), Inga María Eyjólfs- dóttir (sópran), Sæmundur Nikulásson (tenór), (frú María Markan), Áslaug Sigurgeirsdótt- ir (sópran), Jónas Eggertsson (bassi), Bjarnheiður Davíðsdótt- ir (sópran), Guðrún Hulda Guð- mundsdóttir (sópran coloratura), og Unnur Eyfells (sópran). Við píanóið er Ásgeir Beinteinsson en hann leikur undir á tónleik- unum, og hefur verið til aðstoð-. ar við udirbúning þeirra. HARALDUR Haraldur Björns- son ræðir leik- húsmál Blaðamannaklúbburinn kemur saman í Þjóðleikhúskjallaranum ! í kvöld. Haraldur Björnsson rabbar við blaðamenn um leik- húsmál Qg hefjast umræður klukkan 9,30. Réttur blaðamanna verður framreiddur að venju. Mætið vel og stundvíslega. — Stjórnin. : \ I ! » * ! I ! I \ \ \ \ \ \ Skýrsla rannsóknardómarans í Flugvallarmálinu SVIKU ÚT560 ÞÚSUND KR.Í SAMBANDI VIÐ FJÖGUR VERK I gær barst Þjóðviljanum skýrsla frá Ólafi Þorlákssyni rannsóknardómara um rann- sókn á verktakastarfsemi á Keflavíkurflugvelli. 1 skýrsl- unni kemur fram að rann- sóknin er enn á frumstigi og hefur til þessa aðcins beinzt að fjórum tilteknum verkum þar sem fölsuð hafa verið nöfn í sambandi við tilboð og samninga. Nemur upp- hæð þeirra tékka sem grcidtl- ir hafa verið í sambandi við þessi verk samtals kr. 560 þús. ísl. kr. 1 skýrslunni segir að rann- sóknin muni síðar bcinast að því hvort fle:ri verk hafi verið unn’n á flugvellinum mcð svipuðu fyrirkomulagi og er því sýnt að enn eru ekki öll kurl komin til grafar í sambandi við þetta fjársvika- mál. Rannsóknin er þó þegar orðin allumfangsmikil og eru málsskjölin komin á níunda tuginn og þingað bcfur verið í fimm lögsagnarumdæmum. „Með umboðsskrá dóms- málaráðherra, dags. 14. jan. s.l. var undirrituðum falin rannsókn verktakastarfsemi íslenzks aðila á Keflavíkur- flugvelli. Lá þá fyrir úrdrátt- ur bandarískrar rannsóknar, varðandi fjögur tilgreind verk, er íslenzkir aðjlar höfðu framkvæmt fyrir Bandaríkja- menn á flugvpllinum. Rarrn- sókn Bandaríkjamanna var gerð vegna grunsemdar þeirra um að allt væri ekki með felldu um skjalagerð vegna verkanna. Hin íslenzka dómsrannsókn hefur í fyrstu beinzt að verk- um þessum. I ljós hefur kom- ið að tilboð og samningar hafa verið undirritaðir í þrem tilvikum tilbúnum nöfnum cg einu tilviki í nafni íslenzks iðnaðarmanns, án heimildar hans. Greiðslutékk- ar allir vegna verkanna hafa verið útgefnir á hin tilbúnu nöfn annarsvegar og á nafn íslenzka iðnaðarmannsins hinsvegar. Tékkarnir eru framseldir í öllum tilvikum utan tveim. af öðrum aðilum en þeir eru stílaðir á. Upp- hæð tékkanna, vegna verka þessara. er um 560 þúsund íslenzkar krónur. Hin umgetnu verk hafa öll verið unnin án athugasemda hins bandaríska aðila. M.a. var eitt af verkunum unnið af íslenzkum aðila frá Rvík. Aðili sá fékk greiðslu fyrir verk sitt samkv. reikningi frá öðrum íslenzkum aðila í þjón- ustu Bandaríkjanna. Banda- ríkjamönnum var síðan gerð- ur annar reikningur, tilbúnu nafni, mun hærri upphæðar, en Reykvíkingmánn fékk greitt fyrir verkið. Banda- ríkjamenn greiddu hinn síð- ar framkomna reikning án at- hugasemda. Greiðslan fór fram í tékka, stíluðum á hið tilbúna nafn. Tékkinn var síðan framseldur með þvf nafni. Þá var tékkinn fram- seldur að nýju af íslenzkum starfsmanni Bandaríkja- manna. Rannsóknin mun síðar beinast að því, hvort fleiri verk hafa verið unnin á flug- vellinum með svipuðu fyrir- komulagi. Rannsóknin, sem enn er á frumstigi, hefur verið all-um- fangsmikil. Þingað hefur ver- ið í fimm lögsagnarumdæm- dæmum. Málsskjöl eru þegar kominn á níunda tuginn og hafa bandarísk yfirvöld á Keflavíkurflugvelli fúslega veit alla aðstoð sína vegna gagnaöflunar þar. Þrír íslendingar hafa setið í gæzluvarðhaldi vegna rann- sóknarinnar, þar af eru nú tveir lausir úr gæzluvist. Fram skal tekið, að réttar- höld í málinu hafa farið fram fyrir luktum dyrum. svo sem títt er, þegar sakamál eru á byrjunarstigi rannsóknar og eru fréttir um efnishlið máls- ins fram að þessu, undirrituð- um óviðkomandi. Ólafur Þorláksson." * I \ \ \ I I \ \ \ \ \ 4

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.