Þjóðviljinn - 01.05.1964, Side 7
ÞlðSVILIINN
SIBA 7
i'oscuaagur l. maí 1964
K þ'essu ári er öld liðin frá því hin fyrs’tu al-
þjóðasamtök sósíalista voru stofnuð — 1864 var
stofnað Alþjóðasamband verkamanna, sem Marx
hafði forystu fyrir. Það er því ekki úr vegi að
rifja upp nokkrar sögur um viðureign hinnar
Karl Marx.
Kóngar skjálfa
Byltingin 1848 kom miklu
róti á alla Evrópu. Stórir og
smáir kóngar voru skelfingu
losnir. Allt austur f þokubæl-
ið Pétursborg heyrðist berg-
mál mikilla atburða. Nikolaj
keisari fyrsti var mjög á-
hyggjufullur; 14. marz skrifar
hann ávarp þar sem eftirfar-
andi ummæli er að finna: „I
Vestur-Evrópu hafa skyndilega
brotizt út uppþot og óeirðir,
sem ógna löglegum valdhöfum
og allri þjóðfélagsskipan . . .
Og nú ógnar uppreisnarandinn
í vitfirringu sinni einnig Rúss-
landi, því landi sem Guð hef-
ur trúað oss fyrir”. Keisarinn
gerði sitt bezta til að reynast
verður trausts almættisins: um
það leyti var hert mjög á rit-
skoðun og minnsta óánægja
með stjórnarfarið var bæld
niður sem snarlegast. Hin
fræga þriðja deild kanselariu
hans keisaralegu hátignar — en
þaðan var pólitísk njósnastarf-
semi skipulögð — efldi búskap
sinn mjög verulega. Ekki að-
eins innan lands heldur og ut-
an: áhugi þessarar deildar á
byltingarhreyfingu erlendis óx
mjög verulega.
Ofstopa-félag
Einmitt um þetta leyti urðu
þeir í þriðju deildinni varir
við vofu kommúnismans, sem
þá var farm að glettast víð
höfðingja þessa heims í vestur-
hluta álfunnar. 1 skýrslu frá
erlendum erindrekum deildar-
innar segir að kommúnista-
klúbbar starfi nú f mörgum
höfuðborgum og í Berlín einni
séu fimmtíu þúsund meðlimir.
I plaggi frá 3J50 má finna lista
yfir byltingamenn og er þar í
fyrsta sæti Karl Marx sem
sagður er „áróðursmaður i
Lomdon sem reynir að hafa á-
hrif á Þýzkaland með aðstoð
bóka” Nókkru síðar er einn
af agentum deildarinnar kom-
inn í kallfæri við Marx sjálf-
an. Honum farast svo orð í
skýrslu sinni til Pétursborgar:
„Einu af hinum þýzku fé-
lögum, sem þeir Marx. Wolf,
Engels og Seidel stjóma, er
skipt i þrjá hluta, þ.e.a.s. ný-
liða, reynda félaga, og þá sem
„framkvæma í blindni” eins
og það er kallað. Þetta félag
kemur saman á Great Widmay
í húsinu nr. 20. Á bakvegg
herbergisins er rauður dúkur
með áletrun: Lifi hið lýðræð-
islega þjóðveldi!
Annað þýzkt félag sem hef-
ur bókstafinn B. er ofstopa-fé-
lag. 1 því læra menn allar að-
ferðir til að drepa þjóðhöfð-
ingja”.
Agentinn hefur bersýnilega
haft nokkurn grun um það
hverskonar upplýsingar Pét-
ursborg hefði helzt smekk fyr-
ir. Þessvegna sveipar hann
hina ungu hreyfingu kommún-
ista í rauða skikkju hrollvekj-
andi leyndardóma og samsær-
is, og einkum hamrar hann á
þeim bráða lífsháska sem
krýndu fólki sé búinn: ,,1 lok
fundar sem nýlega var hald-
inn í félaginu fullvissaði Marx
alla viðstadda um að stundin
væri nú að nálgast og ekki
ein einasta konungsfjölskylda
álfunnar mundi komast und-
an”. Vonandi hefur maðurinn
hlotið einhvcrja upphefð fyrir
djarft ímyndunarafl sitt. Svo
mikið er víst, að þessi skýrsla —
og aðrar svipaðar — ollu
miklu fjaðrafoki í Pétursborg.
Nauðung og óstjórn
A.F. Orlof greifi var þá yfir-
maður Þriðju deildar. Varð-
veitzt hefur mjög athyglisverð
greinargerð sem hann tók sam-
an eftir að hafa kynnt sér
nákvæmar skýrslur sem yfir-
boðarar lögreglunnar í Hann-
over og prússnesku lögreglunn-
ar höfðu vinsamlegast sent
honum um starf og skipulagn-
ingu þýzkra byltingarsamtaka;
alþjóðahyggja lögreglunnar
hefur því miður alltaf verið
jafntraust alþjóðahyggju verka-
manna — eða traustari jafn-
vel. Þetta skjal er vel þess
virði að f það sé vitnað:
„Sterkasta vopnið gegn hin-
um skaðlegu kenningum
kommúnista er fólgið í því að
stilla upp gegn kommúnistísk-
um áróðri öðrum áróðri —
andkommúnistískum: að út-
breiða þá skoðun meðal verka-
manna að kommúnistar berjist
keisaralegu og konunglegu Evrópu við hina ungu
hreyfingu og fulltrúa hennar. Hér verður rætt
um spaugilegan eltingaleik rússnesku leynilög-
reglunnar við Karl Marx, — eða réttara sagt
skugga hans.
KARL MARX
og rússneska
lögreglan
Sendum öllu starfsfólkinu og öllu vinnandi
fólki til lands og sjávar okkar beztu kveðj-
ur í tilefni dagsins.
Sendum öllu vinnandi fólki til lands og
sjávar okkar beztu kveðjur.
Bifreiða- og trésmiðja Borgarness h.f.
Finnbogi Guðlaugsson.
Sendum öllu vinnandi 'fólki beztu kveðjur
í tilefni dagsins. — Þökkum viðskiptin.
fyrir þvi að nauðung og ó-
stjóm taki völd, fyrir útrým-
ingu persónulegs frelsis og að
eina leiðin fyrir verkamenn til
að binda endi á ósjálfstæði
sitt sé fólgin í spamaði og
vexti auðmagnsins . . tJt-
breiðsla heilbrigðra skoðana á
hagfræði, einkum meðal verka-
lýðsins (eins og gert hefur
verið t.d. í Englandi), viður-
kenning verkamanna á því að
núverandi afstaða milli vinnu
og auðmagns sé óhjákvæmileg
og eðlileg — í þessu er fólgin
sterkasta vöm þjóðfélagsins
gegn pest kommúnismans”.
Ekki geta þessar hugleiðing-
ar lögreglugreifans talizt bein-
lfnis frumlegar. En í þeim er
ýmislegt sem minnir á það
sem við heyrum í borgaralegum
áróðri enn þann dag í dag,
þótt nú sé að vísu oftast kom-
Eftir ÁRNA
BERGMANN
izt kænlegar að orði: Einmitt
þess vegna var nú minnzt á
þetta skjal: kenningar Marx
eru jafnlifandi nú og fyrir 100
árum; óttinn við þær líka.
Voði á ferðum
Árið 1871 er ár Parísar-
kommúnunnar. sem var fyrsta
tilraun til að stofna öreigaríki
á jörðunni.
Á slíkum tímum tekur keis-
araleg og konungleg lögregla
álfunnar eðlilega nýjan fjör-
kipp: hún brettir upp ermarn-
ar hver í sínu landi og s,ver að
vofu kommúnismans skuli ekki
takast að smjúga inn á sitt
umdæmissvæði. Þriðja deild
kanselaríu hans keisaralegu
hátignar var engin undantekn-
ing. Þessa mánuði fékk hún
mikinn og uggvænlegan póst.
Gendarmeríið í Varsjá fékk til-
kynningu þess efnis, að borg-
ari Jan Kostecki hafi farið frá
London 20. september og sé á
leið til Galizíu og Varsjár „sem
erindreki Karl Marx til að
stofna deildir Alþjóðasam-
bandsins f suðursýslum Rúss-
lands”. 10. júlí 1871 skrifar
lögregluforsetinn í Berlín til
Þriðju deildar og segist reiðu-
búinn „að láta yður í té nauð-
synlegar heimildir um austur-
rískan ríkisborgara, Leitner að
nafni, sem er á leið til Rúss-
lands í áróðursferð fyrir flokk
Bebels og Liebknechts”. 5.
apríl 1872 berast fregnir af þvi
að í Zúrich hafi komið út á
rússnesku bæklingur Karls
Marx sem sé „upphafin lof-
gjörð um Parísarkommúnuna”.
Lögreglumenn spila ekki ólsen
— ólsen á svo alvarlegum tfm-
um. það er augljóst mál.
Skakkur Marx
handtekinn
Þó var aðalhvellurinn eftir.
Upp kom sá kvittur, að von
væri á sjálfum höfuðpauran-
um, Karli Marx. til Rússlands,
og eðlilega var ekki búizt við
þvf að sú ferð væri farin til
gottgjörelsis. Fyrst var þess
vænzt, að hann kæmi frá Kon-
stantínópel. Gendarmeriið
gerði ráðstafanir til að veita
honum verðugar móttökur. Og
18. maí 1872 sendir Knopp, þá-
verandi lögregluforingi í Ód-
essu hraðskeyti til Pétursborg-
ar þess efnis, að hann hafi
handtekið Marx þá um morg-
uninn. Þetta voru mikil tíð-
indi. En svo kom það á dag-
inn að þetta var ekki sá rétti
Marx. Sá handtekni hét Juli-
us Alexander Marx, enskur
borgari, kaupsýslumaður frá
Nottingham með alla pappira
í bezta lagi. Knopp taldi samt
rétt að hafa vaðið fyrir neðan
sig og setti Julius þennan 1
stofufangelsi í einu af gisti-
húsum borgarinnar, leyfði hon-
um að vísu að veita innborn-
um viðskiptavinum áheym. en
setti lögregluþjón við dymar.
Juliu&i Marx var fljótlega
sleppt úr haldi eftir tilskipun
frá Pétursborg og kærði hann
bréflega illa meðferð á sér fyr-
ir brezka konsúlnum í Ódessu.
Það er athyglisvert að kons-
úllinn tók ekki upp þykkjuna
fyrir Ianda sinn heldur lýsti
þvert á móti velþóknun sinni
á aðgerðum yfirvaldanna.
Hann hefur sjálfsagt hugsað
að menn geti aldrei verið of
varkárir gagnvart þessum and-
skotans kommum.
Knopp lögregluforingja þótti
samt miður að hafa hlaupið
svona á sig. Og í næstu skýrslu
sinni til Pétursborgar biður
hann undirdánugast að sér
verði tilkynnt ef fyrir hendi sé
„sérkenni eða önnur nákvæm-
ari vitneskju um Marx þann,
sem handtekinn skal”. svo að
hægt sé að komast hjá nýjum
mistökum. Þeir í Péturborg
brugðu skjótt við og fundu
ljósmynd af þeim rétta Marx:
27. maí var kopia af þessari
mynd send til Ódessu.
,„í illu markmiði“
Ekki leið samt á löngu áð-
ur en pólitískum öryggisbjöll-
um Rússlands yrði hringt á
nýjan leik. Þann 10. ágúst
sendir Þriðja deildin leynileg
fyririnæli til yfirmanna allra
gendarmería: „Forseti þýzku
deildarinnar í Alþjóðasamband-
inu og einn helzti frömuður
þess, rithöfundurinn Karl
Marx, hefur í hyggju að laum-
ast inn í Rússland í illu mark-
miði á ensku vegabréfi, stfl-
uðu á Wallace”. Það tr ekki
Framhald á 10. siðu.
Gleðilega hátíð!
STEYPUSTÖÐIN H.F.
Sendum öllu starfsfólki voru og öðru vinn-
andi fólki til lands og sjávar okkar bez'tu
kveðjur í tilefni dagsins.
NETAGERÐ
REYKDALS JÓNSSONAR
Auðbrekku 49, Kópavogi.
Sendum öllu vinnandi fólki til lands og
sjávar okkar beztu kveðjur í tilefni dagsins.
(uuntmidí
Sendum öllu starfs'fólki okkar og vinnandi
fólki til lands og sjávar bezfu kveðjur í
tilefni dagsins.
SÆNSK-lSLENZKA
FRYSTIHOSIÐ H.F.
VERKAKVENNAFÉLAGIÐ
FRAMSÓKN
óskar til hamingju með daginn.
GLEÐILEGA HÁTlÐ!
Sendum öllu starfsfólki okkar og öðru
vinnandi fólki til lands og sjávar, okkar
beztu kveðjur í tilefni dagsins.
BERNHARD PETERSEN
Hafnarhúsinu.
¥■
‘ *
»