Þjóðviljinn - 01.05.1964, Blaðsíða 10
10 SlÐA
ÞJðÐVILIINN
Föstudagur 1. maí 1964
Myndirnar eru frá sömu árum og atburðir greinarinnar gerðust, t.v. fundur verkamanna í Þýzkalandi, t.h. stofnun þýzka keisaradæmisins í Versöluin 1871.
KarI Marx og rússaeska lögreglan
Framhald af 7. síðu.
von á góðu enda var skipað
svo fyrir að þessi Marx-Wall-
ace skyldi handtekinn um leið
og í hann naeðist.
Viti menn. Ári síðar berast
þau tíðindi frá landamæra-
stöðinni Skúljani, að kafteinn
Sazonof hafi handtekið Daniel
nokkum Wallace. Wallace
þessi tók handtökunni með
mikilli vandlsetingu og kvaðst
Framhald af 5. síðu.
eru í Prag, spurði leiðsögu-
maðurinn hvert skyldi halda
og hvað ég vildi sjá um kvöld-
ið. Nú hef ég heimsótt stórt
félag og séð það sem þar er
að gerast, nú langar mig tii
að sjá lítið félag. hvernig það
berst fyrir tilveru sinni. Það
er þá bezt að fara með þig
til félags sem heitir Tatran-
Stresovige og er aðeins 7 ára
gamalt, og hefur m.a. fang-
brögð á stefnuskrá sinni. Þú
segir að þið iðkið ekki slíka
íþrótt á íslandi, og þá getur
verið gaman fyrir þ'g að sjá
þetta, og hvernig æfingarnar
ganga til.
Þetta varð að ráði og fórum
við langa leið í útjaðar borg-
arinnar, og komum þar að all-
stórum byggingum, en þar
hafði félagið bækistöð sína.
Fórum við rakleitt inn í einn
salinn sem ekki var stór, en
þar var mikið að gera. Marg:r
ungir menn klæddir íþrótta-
búningi voru þar og áttust
sumir við á mikiili mottu sem
næstum var horn í hom i
þessum litla sal.
Voru það hörð átök, og sann-
arlega til að stæla líkama
þeirra og þá ekki síður skap-
gerð. Þegar þeir tóku á í við-
----------------------------<S>
SjálfsæSishetja
látin í Afríku
FREETOWN 29/4 — Forsætis-
ráðherrann í Sierra Leone, Sir
Milton Margain, dó í nótt eftir
langa sjúkralegu. Sir Milton
varð 68 ára gamail og er sjálf-
stæði Sierra Leone talið honum
mikið ag þakka.
aldrei fyrr hafa orðið var við
þvílíkt virðingarleysi fyrir
ensku vegabréfi. Það var ekki
nema von að maðurinn reidd-
ist: mistökin í Odessu höfðu
endurtekið sig. Og í annað
sinn var klagað til sendifull-
trúa Breta, og í annað sinn
lögðu sendifulltrúar blessun
sína yfir aðgerðir rússnesku
lögreglunnar: þeir kváðust vel
geta skilið áhyggjur hennar á
þessum erfiðu tímum.
ureignum sínum mátti sjá
skemmtilegt vöðvaspil, og þeg-
ar þeir slepptu tökum og stóðu
í réttstöíðu var hér greinilega
um vel byggða pilta að ræða,
sem höfðu fengið góða þjálf-
un. Til hliðar við æfinga-
svæðið sat æruverðugur full-
orðinn maður milli 60 og 70
ára gamall, og hafði öll ein-
kenni þess að vera gamall
glímukappi, og reyndist vera
það við nánari kynni. Það var
formaður glímudeildarinnar.
og fylgdist með öllu sem fram
fór. Hafði hann flutzt til
þessa borgarhluta og hafði
stöðugt áhuga fyrir fangbrögð-
um, og hafði gaman af að vera
innan um þessa ungu glímu-
menn.
Hvað eru margir í deildinni?
Skráðir eru alls 50 félagar.
sagði hnn þrekvaxni formað-
ur, 30 þeirra eru virkir og
starfandi, og er mikill áhugi
meðal piltanna.
Hefur þetta unga félag náð
góðum árangri í fangbrögðum?
Já, já, við eigum þegar unga
menn sem fara á meistaramót-
ið núna bráðum. og það í
tveim flokkum, en þangað
komast ekki nema góðir menn.
Ég er því bjartsýnn á fram-
tíðina.
Þjálfarar?
Yfirleitt höfum við á að
skipa áhugaþjálfurum. aðal-
þjálfarinn fær þó smáþóknun
fyrir kennsluna.
Hver leggur ykkur til hús-
næði?
Þetta húsnæði sem við er-
um í, voru áður skemmur frá
búgarði, og fengum við leyfi
til að laga þetta til fyrir okk-
ur í þessu félagi. Söfnuðum
við liði og gerðum allar þess-
ar breytingar í sjálfboðavinnu
og var það mikið verk, og
Fáir munu lesa og
enn færri skilja
Karl Marx hafði mikinn á-
huga á málefnum Rússlands:
hann kunni málið, las rússn-
esk skáld og hagfræðinga. En
hann kom aldrei til Rússlands
í eigin persónu. Hann heim-
sótti það land með öðrum
hætti: í bókum. Um þá heim-
sókn er einnig til saga engu
hefur það þjappað piltunum
saman á þessum byrjunarár-
um.
Við erum ánægðir með þetta,
og erum alltaf að bæta og
laga til.
Eigið þið í fjárhagsörðug-
leikum?
Við innheimtum auðvitað
ársgjöld. og reynum fjáraflan-
ir, og ef það dugar ekki þá
leitum við til Iþróttasam-
bandsins um aðstoð. Nú þetta
gengur ágætlega. Við söfnum
unga fólkinu hér saman, það
fær hér líkamlegan þroska og
félagslega útrás. Við hinir
eldri megum ekki skilja við
íþrótt okkar, þótt við hætt-
um að geta nokkuð í sjálfum
íþróttunum. Við verðum að
koma hinum yngri í kynni við
íþróttimar og gildi þeirra fyr-
ir þá sjálfa og þjóðfélagið. Ég
hef góðan tíma. Ég er kominn
á eftirlaun, og mér er ánægja
í að eyða tíma mínum í þetta.
Ég hef trú á því að ég sé að
gera gagn, sagði þessi þrek-
vaxni öldungur að lokum.
I hliðarsal við glímusalinn
mátti heyra mikinn klið frá
borðtennisleik, en félagið hef-
ur þá íþrótt á stefnuskrá sinni,
og er hún ákaflega mikið iðk-
uð í Tékkóslóvakíu. Voru bar
mörg ungmenni að leik. Ýms-
ar fleiri greinar hafði þetta
unga félag á stefnuskrá sinni.
en ekki vannst tími til að
kynnast því nánar að þes&u
sinni.
Eftir að hafa horft á æfing-
ar í fangbrögðum, vaknaði sú
spuming í huga mínum:
Hversvegna hafa fangbrögð
ekki verið tekin upp sem i-
þróttagrein á Isiandi, þvi vafa-
laust mundu íslendingar ná
góðum árangri í þeirri grein.
ef þeir hefðu lagt áherzlu á
hana. Má í þvi sambandi
minnast á árangur Sigurjóns
Péturssonar á OL í Stokk-
hólmi 1912, og raunar fleiri
manna, en það er eins og
fangbrögð hafi ekki náð fót-
festu hér, hvemig sem á því
stendur.
Það var gaman og eftir-
minnilegt að heimsækja þetta
imga félag, og sjá þann áhuga
sem þama ríkti. sjá hina vel-
vöxnu menn í karlmannlegum
átökum, og sjá hvað hinir
ungu og gömlu héldust í hend-
ur um að leiða þetta áhuga-
mál sitt fram til meiri árang-
urs, meiri þroska. Frímann.
síður lærdómsrík en sú saga
sem nú var sögð um viður-
eign lögreglunnar v'ð þennan
ágæta hugsuð — eða réttara
sagt: skugga hans.
Skömmu eftir að fyrsta bind-
ið af Au'ðmagninu kom út
barst ritskoðuninni í Péturs-
borg eintak af bókinni á
þýzku. Svo fór að leyft var að
selja bókina í Rússlandi. Skút-
arof hét sá maður sem um
þetta mál fjallaði. Hann segir
svo í ályktun sinni:
,,Eins og við mátti búast eru
í bókinni ófá dæmi um sósíal-
istískar og guðlausar til-
hneigingar hins illræmda for-
seta Alþjóðasambandsins. En
hve hvassyrtur sem Marx er
um afstöðu kapitalista til
verkamanna, þá álítur ritskoð-
arinn samt vafasamt að þau
ummæli geti valdið verulegu
tjóni þar eð þau drukkna, ef
svo mætti segja, í geysimiklu
hafi myrkra pólitískra og hag-
fræðilegra rökfærslna, sem eru
innihald þessarar bókar. Það
má fullyrða að fáir muni lesa
þessa bók og enn færri skilja
hana.”
Lögreglan sór að hleypa
Karli Marx ekki inn í Rúss-
land: hún óttaðist þann mann
sem átti víst að kunna allar
hugsanlegar aðferðir til að
drepa þjóðhöfðingja. En rit-
skoðunin hleypti höfuðriti hans
inn í landið á þeim forsendum
að fáir myndu lesa það og enn
færri skilja. Og þessi ákvörð-
un var tekin einmitt í því
landi þar sem fyrst var hafizt
handa um að leysa vandamál
þjóðarbúskapar á grundvelli
þeirra kenninga sem fram voru
settar í Auðmagninu. Svona
glottir sagan af mikilli mein-
fýsni að öllum þeim sem ekki
þekkja lögmál hennar.
„A/drei
um seinan"
Neskaupstað, 24/4 — Leikfélag
Neskaupstaðar frumsýndi síðasta
vetrardag gamanleikinn „Það er
aldrei um seinan“ eftir enska
konu, Felisity Douglas. Aðalper-
sónan í leiknum er líka kona,
húsmóðir sem hneigist til rit-
starfa og lendir í ýmsum á-
rekstrum á heimilinu fyrir bragð-
ið. Leikrit þetta hefur ekki verið
fært upp áður hérlendis, en hins-
vegar hefur gengið hér kvik-
mynd, „Fjölhæf húsmóðir," sem
gerð er eftir því.
Leikstjóri er Stefán Þorleifs-
son spítalaráðsmaður, en hann
er hér að góðu kunnur bæði sem
leikari og leikstjóri, og bregzt
heldur ekki bogalistin í þetta
sinn. Hina pennaglöðu húsmóð-
ur leikur Hrafnhildur Sigurðar-
dóttir og bónda hennar Aðal-
steinn Halldórsson. Alls eru níu
hlutverk í þessum leik, sem var
vel tekið af áhorfendum. Á nasst-
unni mun hann verða sýndur á
fleiri stöðum hér eystra Það er
aldrei um seinan, þótt komið sé
vor, segir formaður leikfélags-
ins Birgir Stefánsson. — H. G.
VörnskiptÍH í
Marzmánaði
Samkvæmt bráðabirgðayfirliti
Hagstofunnar um verðmæti út-
og innflutnings í marz sl. var
vöruskiptajöfnuðurinn í mánuð-
inum hagstæður um 45.7 milj.
króna en í sama mánuði í fyrra
var hann óhagstæður um 18.1
milj. króna. Ot voru fluttar
vörur fyrir 359.6 milj. (282.7
í fyrra) en inn fyrir 313.9 milj.
kr. (300.9).
IÐJA, félag verksmiðjufólks
Hafnarfirði
Sendum öllum verkalýð landsins hug-
heilar stéttarkveðjur 1. maí.
GLEÐILEGA HÁTÍÐ!
I tilefni af 1. maí sendum við íslenzkum
verkalýð okkar beztu heillaóskir.
Skipaafgreiðsla
JES ZIMSEN
Sendum öllu starfsfólkinu og vinnandi fólki
til lands og sjávar okkar beztu kveðjur í til-
efni 1. maí.
MARS TRADING COMPANY h/f
Sendum viðskiptavinum og öllu vinnandi fólki
til lands og sjávar okkar beztu kveðjur
í tilefni dagsins.
WREVF/LZ.
______________________________________________________<s>
Stórt íþróttafélag og annað lítið