Þjóðviljinn - 21.08.1964, Síða 12

Þjóðviljinn - 21.08.1964, Síða 12
Sb ■ W 11 2> <5MZ ’Z* ó 'rz<??íz2z£c<yf'.. ~mzp .&mr J- .6 •vjz @0 Framkvæmdir haínar vil skrúðgarð- inn fyrirhugaða á Klamhratúninu ■ Eins og menn munu minnast af fyrri fréttum sam- þykkti borgarstjóm Reykjavíkur í vetur skipulag Klambra- túns og var þá ákveðið að gera skrúðgarð á svæðinu. Teikninguna sem samþykkt var af hinum fyrirhugaða skrúðgarði gerðu þeir í sameiningu Reynir Vilhjálmsson arkitekt og Hafliði Jónsson garðyrkjustjóri Reykjavíkur- borgar og sést hún hér á myndinni fyrir ofan. Sl. mánuð hefur verið unnið af kappi við frágang austurhluta skrúðgarðssvœðisins og stjórnar Theódór Halldórsson verkstjóri Jarðskjálftinn fannst í Bergen BERGEN 20/8 — Jarðskjálfta- mælar í Bergen skráðu í fyrri- nótt jarðskjálftakipp. Ekki varð séð með neinni nákvaemni hver fjarlægðin var ^frá upptökum hans, en menn þykjast vita, að hér hafi komið fram sami kipp- urinn og sá er velti sultukrukk- um manna á Rangárvöllum um •ama leyti. þeim framkvæmdum. Átti Þjóð- viljinn tal við hann nýverið og leitaði frétta hjá honum. Theódór skýrði svo frá að nú væri verið að ljúka við að búa austurenda garðsvæðisins undir sáningu. Var búið að aka mikiu uppfyliingarefni á þetta svæði og í sumar hefur verið lagt kapp á að ganga frá þessum hluta val'larins samkvæmt skipu- lagsteikningunni svo að hægt sé að sá í hann og rykbinda mold- ina. f horninu milli Löng ihlíð- ar og Flókagötu hefur verið gerð djúp og rnikil skeifa og á í framtíðinni að asfaltera botn hennar og hafa þar skautasvell á vetrum og einnig verður þar hljómsveitarpallur. Fyrir miðju vallarins við Lönguhlíð verður hins vegar boltavöllur og þar verða haldnar álfa- og áramóta- brennur. f vetur verður unnið að því að holræsa túnið og einnig verðá byggingar þær sem nú standa á miðju túninu rifnar. Næsta vor er svo ætlunin að jafna all- an völlinn og búa hann undir sáningu. Er þá eftir geysimikið verk við lagningu gangstíga og gróðursetningu trjáa og runna svo og" frágang hinna einstöku svæða garðsins, en eins og sést á teikningunni er honum skipt niður í allmörg svæði. Meðfram Flókagötu verður svonefndur garyrkjumannagarð- ur og á þeim h'luta vallarins á einnig að reisa listamanna- skála, veitingahús og salerni. Meðfram Miklubrautinni verða hins vegar leiksvæði og e.t.v. gæzluvöllur. Og við þá götu nálægt miðju vallarins verður reist stytta af Einari Benedikts- syni skáldi. Kér hefur aðeins verið drepið 'á nokkur helztu srræðin sem völlurinn á a 1 skiptast í en nánari skiptingu hans geta menn séð á teikning- unni sjálfri. Er teikningin gerð í mælakvarðanum 1:500. Það tekur að sjálfsögðu mörg DIMINN Föstudagur 21. ágúst 1964 — 29. árgangur — 187. tölublað. ár að ganga endanlega frá vell- inum, reisa þær byggingar sem þar eiga að koma og rækta hann og að sjálfsögðu verður þetta dýr framkvæmd, en þessi garður á líka eftir að verða borgarbúum til mikils yndis- auka í framtíðinni. svo að það er til nokkurs að vinna. Sex sólarhringa í iðrum jarðar GRENOBLE 20/8 — Sjö brezkir hellnakönnuðir komu í dag upp á yfirborðið eftir að hafa verið 134 klukkustundir eða hálían sjötta sólarhring niðri i iðrum jarðar í grennd við Grenoble í frönsku Ölpunum. Fjórir mtnn voru þá eftir niðri í jörðinni á um 490 metra dýpi, en þeir voru væntanlegir upp um kvöld- ið. Leiðangurinn tók Iitmyndiraf 122 meira löngum göngum sem hann kannaði. ÁCÚST MÓTMÆUR RÉTTMÆTI (JPP- BOÐSKRÖF'JNNAR ■ Nýverið mátti lesa eftirfarandi tilkynningu í dagblöð- unum frá borgarfógetaembættinu í Reykjavík: „Nauðung- aruppboð annað og síðasta, fer fram á hluta í húseigninni nr. 48 við Drápuhlíð hér í borg, þiriglesin eign Ágústs Sig- urðssonar, á eigninni sjálfri fimmtudaginn 20. ágúst 1964, kl. 2,30 síðdegis“. Samkvæmt tilkynningu þessari skyldi uppboðið haldið í gær- dag. Er tíðindamaður b'laðsins kom á vettvang voru þegar komnir þar aðstoðarmaður Ágústs, Bergur Sigurbjömsson, ritstjóri, og ýmsir aðrir, sem annað hvort komu af forvitni eða þá af öðrum og lægrj hvöt- um en í þeim hópi voru ,,pen- ingamenn“. þ.á.m. Högni Jóns- son starfsmaður uppboðsbeið- andans Jóhannesar Lárussonar. Klukkan liðlega 2.30 kom Kristján borgarfógeti og á eft- ir honum Jón B. Jónsson skrif- ari fógeta. Er Kristján og skrifarinn höfðu komið sér fyrir hóf Krist- ján harmatölur sínar við Ijós- myndara blaðanna, bað þá ljós- mynda sjálfa sig. hvað sem slíkt hefur átt að þýða. Síðan var réttur settur. Strax í upphafi réttarins lagði Bérgúr Sigurbjörnsson fram fyrir hönd Ágústs skrif- leg rökstudd mótmæli gegn rétt- mæti uppboðskröfunnaf og enn fremur eftirtalin skjöl: 33. tbl. Frjálsrar Þjóðar 1963, með kæru Ágústs til yfirsakadómara vegna víxilláns þess sem innheimta á með nauðungaruppboðinu. Skattaframtöl. Ágústs fyrir árin 1962, 1963 og 1964, öll Ijósprent- uð. Nú vildi Kristján heyra álit Högna Jónssonar á þessu máli. Högni hafði til þessa setið inn af aðsetursherbergi fógeta, en fógeti vildi fá hann á vígvöll- inn sjálfan. Heldur varð Högni fár við en fógeti benti honum á að hann gæti fengið uppboð- inu frestað og mótmælt fram- komnum skjölum. Högni tók ráðleggingunum og fór fram á að uppboðinu yrði frestað til næsta fimmtudags klukkan 10 árdegis. Mótmæli Ágústs Aðalatriði í mótmælaskjali Ágústs eru einkum gegn lögmæti uppboðskröfunnar. Segir þar að saksóknari hafi viðurkennnt sök Jóhannesar Lárussonar um okur en jafnframt fullyrt að sökin á hendur honum hafi verið fymd er kæra Ágústs út af víxiláninu kom fram í ágústmánuði 1963. Ágúst bendir á að fymingin skipti ekki máli á þessu stigi. Færir hann fram þau rök, að kvittun sú er hann varð að und- irrita til þess að fá lánið hjá Jóhannesi sé marklaust þar sem hún sé ósundurliðuð. þar komi ekki fram að hve miklu leyti andvirði víxilsins var greitt sér með forvöxtum, stimpilgjaldi, bankakostnaði eða afföllum og peningum. Þá segir í mótmælaskjalinu að Ágúst hafi fært afföllin kr. 65 þús. (víxillinn hljóðaði upp á 150 þús.) til frádráttar skatt- skyldum tekjum árin 1962 og 1963 og var þess jafnframt getið á framtölum þessum, að afföllin væru greidd Jóhannesi Lárus- syni hdl. í bæði skiptin voru frádráttarliðir þessir teknir gild- ir. Ágúst segir og að hann hafi fært afföllin til frádráttar á framtalinu í ársbyrjun 1964 og enn hafi það verið tekið gilt og þá eftir að fjársvikin voru kærð. Nú segir Ágúst að Jóhannesi hefði átt að vera í lófalagið að kæra sig fyrir skattsvik en svo hefur ekki veyið gert — „Állt þetta sýnir. að uppboðskrafan er röng og af refsiverðum rót- um runnin og því algerlega frá- leitt að byggja á henni upp- , Framhald á 9. síðu. Sveinn Björnsson opnar sýn- ingu i Listamannaskólanum Senn hefst annatími í sýn- ingarsölum bæjarins. Sveinn Bjömsson opnar sýn- ingu á morgun í Listamanna- skálanum. Þar hefur hann fest upp um það bil fjörutíu mynd- ir, málaðar á síðastliðnum fjmm árum. Síðast sýndi Sveinn í Bogasal, og bar þar mest á skrautlegum myndum af sjávar- skepnum allskonar — á þessari sýningu skipa mest rúm furðu- fuglar og álfaskip og reyndar nokkrar huldukonur. Ennfremur eru þama til staðar nokkrar landslagsmyndir. Sveinn Björnsson hefur haldið allmargar r.ýningar síðan hann hættj sjómer.nsku fyrir fimmtán árum og tók að mála. Og síð- ast sýndi hann í Listamarma- skálanum árið 1959. Nokkrar myndanna sem nú koma fram, voru á sýningu í Danmörku síðastliðið haust, en þar hefur Sveinn sýnt ásamt fjórum dönsk- um málurum og riámsfélögum sínum undanfarin þrjú ár. Sýningin verður opnuð á morgun. sem fyrr segir, og stendur í tiu daga. Hún verður opin frá kl. 10—12 og 13—22 daglega. Sveinn Björnsson. «

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.